Morgunblaðið - 25.09.1976, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976
BÍLAR
Autobianchi A112E
FYRIR skömmu bættist smábílum
á íslandi liðsauki. Hingað til lands
hefur verið hafinn innflutningur á
ítölskum bil, er Autobianchi efn-
ist. Hann er framleiddur af hluta
Fiatbílasamsteypunnar á ítalíu og
er mest tengdur Lancia verksmiðj-
unum (sem einnig eru hluti Fiat).
Umboðið fyrir þennan bil hefur
Sveinn Björnsson og Co, Skeif
unni 11 (þekktari hingað til fyrir
Saab umboðið)
Autobianchi A1 12 leit fyrst dags-
ins Ijós 1969 en E-gerðm (þ e sú
gerð sem hingað er flutt) var fyrst
sýnd á bilasýninguunni í Genf
1973
Þessi bíll er 3ja dyra og telst fimm
manna Hann er mjög léttur, vegur
6 75 kg óhlaðmn Vélin er að framan
og drifur framhjólin Vélin er fjög-
urra strokka, 903 rúmsm með
Stilhreinn að innan.
Vélin liggur þvert.
þjöppun 9:1 og er 47 hestöfl við
5600 snún /min Hún liggur þvert
og er með hitastilli á viftunni Þetta
er raunar sama vél og í Fiat 12 7.
Þessi bill er nokkru minni en Fiat
1 27 og kostar 1 148 þúsund krónur
tilbúinn á götuna en 3ja dyra Fiat
1 27 kostar kr 1170 þúsund
E-ið stendur fyrir Elegant þannig
að nokkuð er i þennan bíl lagt
Stýrishjólið er mjög skemmtilegt og
þægilegt, lítið og klætt leðri
Fyrirkomulag stjórntækja er ann-
ars svipað og í Fiatinum Framsætin
eru góð nema hvað bökin eru í
lægra lagi Hnakkapúðar fylgja,
sömuleiðis hliðarspeglar báðum
megm.
Autobianchi kemur hingað á radi-
aldekkjum, sem gerir hann nokkru
lausari á mölinni en ella Framhjóla-
drifið bætir það hins vegar upp
Hámarkshraðinn er sagður um 140
km/klst en vélarhljóðið við 120
km/klst er hins vegar ekki sérlega
uppörvandi Viðbragðið er gefið 14
sek 0—100 km/klst en ónákvæm
mæling bendir til að það sér nokkuð
mikil bjartsýni
Autobianchi A112E er á stórum
dekkjum, a m k miðað við sta?rð
bílsins að öðru leyti, 13 tommu.
Þannig er hæð undir lægsta punkt
14 sm og nokkru hærra er undir
lægsta punkt vélarinnar Bíllínn er
með drskabremsur að framan en
borða að aftan Eðlilega er ekki mjög
mikið pláss aftur í bílnum a.m.k.
ekki fyrir fimm manns Hins vegar
má, ef einn eða tveir eru i bilnum,
leggja niður og fram bak aftursætis-
ms og er þá ágætt farangursrými
komið
Farangursrýmið þegar aftursætisbakið er fram. Hliðargluggar að aftan eru
opnanlegir.
Mælaborðið.
Bíllinn er aðeins 323 sm. langur,
148 sm breiður og 134 sm hár
Bensíntankurinn er staðsettur undir
gólfinu ofan afturfjaðra og tekur
hann um 30 litra Um eyðsluna pr
100 km er það að segja að í sviss-
nesku bilaárbókinni Automobil
Revue er hún talin 7.2 lítrar en
umboðsmr nn hér segja hana iara
niður í 6.3 ítra á langkeyrslu.
Autobianchi A112E er lipur í
akstri og tekur lítið pláss á götu.
Stýringin er í þyngra lagi en samt
sem áður er mjög þægilegt að stýra
bílnum Gírskiptingar eru sæmilega
liprar en þriðji gírinn er helst til
nálægt fyrsta
br.h
Fjaðurnellika
meðmeiru...
Margir af lesendum þessara þátta hafa óskað eftir upplýsingum um
efni þeirra frá byrjun. Til þess a8 þóknast ágætum lesendum hefur því
verið tekin saman skrá yfir þættina og verður hún birt i tvennu lagi:
fyrri hlutinn tekur yfir áriS 1975 en sá síðari nær til 11. sept. 1976.
Með skrá þessari verður jafnframt leiðrétt tölusetning þáttanna sem
villur hafa slæðst inní á stöku stað og valdið nokkrum ruglingi og
heilabrotum.
ATHUGIÐ: FREMRI TOLUSETNINGIN ER RÉTT en hin er eins og hún
hefur verið birt i blaðinu.
1975
'T’-ó lusetn. Fyrirsögn Latneskt heiti Birt
1 1 Inngangur Vatnsberi eöa sporasóley Aquilegia hybrida 8.3.
2 Venusvagn eöa bláhjálmur Aconitum napellus 15.3.
3 3 Páskalilja Narcissus pseudonarcissus 22.3.
4 4 Krókus ofl. smálaukar 5.4.
5 5 Ilmreynir Sorbus aucuparia 12.4.
6 6 Gulrætur Daucus carota sativ. 19.4.
7 7 Vióir Salix 26.4.
8 8 Víöir í limgeröi Salix 7.5.
9 . 9 Geitabjalla Pulsatilla vulgaris 10.5.
*0 10 Gemsufífill Doronicum 17.5.
11 11 Pabb um matjurtir ófl. 24.5.
12 12 Vepjulilja Frittillaria meleagris 31.5.
13 13 Illgresi . 7.6.
14 14 Enn um illgresi 14.6.
15 15 Gullhnappur Trollius 21 .6.
16 Steinbrjótar Saxifraga 5.7.
17 17 HnoÖrar Sedum '12.7.
18 18 Hreðkur Raphanus sativus 19.7.
19 19 Silfursóley Ranunculus aconiti- folius flore pleno 26.7.
20 20 Ótlagi Lysimachia punctata 2.8.
21 20 Silkibygg Hordeum jubatum 9.8.
22 22 Hjartablóm Dicentra spectabilis 16.8.
23 23 Alpafífill - Edelweiss Leontopodium alpinum 23.8.
24 24 Bláklukkur Campanula 30.8.
25 25 Rósin litla Dorn Dorn Röschen Rosa acicularis (kynbætt afbrigöi) 7.9.
26 26 KÍnavöndur - Klukkuvöndur Gentiana 19.9.
27 27 Blómlaukaspjall I 28.9.
2R 28 Blómlaukaspjall II 28.9.
29 29 Blómlaukaspjall III 30.9.
30 30 Blómlaukaspjall IV 5.10
31 31 Jólastjarna Euphorbia
pulcherrlma 13.12
Til þess að lifga svolitið upp á þessa þurrlegu upptalningu látum við
fylgja mynd af FJAÐURNELLIKU (Dianthus plumarius) en hún hefur
staðið sig sérlega vel hér syðra þetta votviðrasama sumar og viða vakið
á sér athygli með ferskum lit og hressilegu yfirbragði á sólarlitlum
dögum. Úm hana segir m.a. i Skrúðgarðabókinni: „Fjaðumellika er
forláta garðjurt og töluvert ræktuð hér. Sum afbrigði hennar eru vel
harðger einkum þau sem hafa einföld blóm. Blöðin eru blá-grá-græn og
mynda stærðar breiður þaktar ilmandi blómum, oftast bleikum. Blómin
eru mjög góð til afskurðar, springa vel út og standa lengi."
ÁB.