Morgunblaðið - 25.09.1976, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976
— Ávísanamálið
Framhald af bls. 32 :
kvæmdastjóri heildverzlunar
Á.H. Magnússon.
7. Hreiðar Albertsson, bifreiða-
stjóri, fyrrverandi starfsmaður
Klúbbsins.
8. Eyþór Þórarinsson, bifreiða-
stjóri, mágur Hreiðars.
9. Sigurjón Ingason, flokksstjóri í
lögregiunni í Reykjavík.
10. Arent Claessen, stórkaup-
maður.
11. Guðjón Styrkársson hrl.
12. Valdimar Olsen, skrifstofu-
maður hjá Þórscafé.
13. Haukur Hjaltason, veitinga-
maður.
14. Hrafnhildur Valdimarsdóttir,
eiginkona Jóns Ragnarssonar.
15. Jóna Sigurðardóttir, eigin-
kona Ásgeirs H. Magnússonar.
16. Björk Valsdóttir, eiginkona
Magnúsar Leópoldssonar.
17. Sigríður Sörensdóttir, starfs-
stúlka í Klúbbnum.
Um þátt Hauks Hjaltasonar er
það að segja, að hann hefur verið
yfirheyrður sem vitni, en óljóst er
með ávisanaútgáfu og framsöl.
Hrafn Bragason umboðsdómari
sagðí á blaðamannafundinum í
gær, að ekkert væri hægt á þessu
stigi að segja um þátt hvers og
eins fyrrnefndra einstaklinga í
ávísanaútgáfunni, en ljóst væri að
fjórir fyrstnefndu mennirnir, Jón
0. Ragnarsson, Ásgeir H. Eiríks-
son, Magnús Leópoldsson og
Sigurbjörn Eiríksson, hefðu
ávisað langmest og væru eins kon-
ar „burðarásar ávísanastarfsem-
innar“.
TENGSL
REIKNINGSHAFA
Á fundínum í gær var lagður
fram listi um tengsl reiknings-
hafa innbyrðis samkvæmt fram-
burði þeirra. Listinn er þannig:
Nafnalisti var valinn í fram-
haldi kæru Seðlabanka Islands til
Sakadóms Reykjavíkur vegna
meints tékkamisferlis forsvars-
manna Veitingahússins Borgar-
túns 32 og Hreiðars Albertssonar.
Nöfnin voru valin vegna meintra
tengsla innbyrðis.
Samkvæmt framburðum
reikningshafa eru tengslin þessi:
I. —2. Jón Ö. Ragnarsson og
Ásgeir H. Eiríksson eiga ásamt
forsvarsmönnum Veitingahússins
Borgartúns 32 aðild að flestum
tékkanna og þessir aðilar allir
tengjast.
3.—4. Forsvarsmaður Veitinga-
hússins er nú aðallega Magnús
Leópoldsson, en Sigurbjörn
Eiríksson á húsið sem veitinga-
húsið starfar í og tékkatengsl eru
mikil þarna á milli.
5. Guðmundur Þorvar Jónasson
tengist Ásgeiri H. Eiríkssyni og
forsvarsmönnum Veitingahússins
Borgartúns 32.
6. Ásgeir H. Magnússon tengist
Jóni 0. Ragnarssyni og Ásgeiri H.
Eiríkssyni.
7. Hreiðar Albertsson tengist
Ásgeiri H. Eiríkssyni, Veitinga-
húsinu Borgartúni 32, Jóni 0.
Ragnarssyni og Eyþóri Þórarins-
syni.
8. Eyþór Þórarinsson tengist
Ásgeiri H. Eiríkssyni, Hreiðari
Albertssyni og forsvarsmönnum
Veitingahússins Borgartúns 32.
9. Sigurjón Ingason tengist
forsvarsmönnum Veitingahússins
Borgartúns 32.
10. Arent Claessen tengíst Jóni
Ragnarssyni.
II. Guðjón Styrkársson tengist
Jóni Ragnarssyni.
12.—13. Haukur Hjaltason og
Valdimar Olsen ávisa á hvor á
sinn reikninginn ásamt Ásgeiri H.
Eiríkssyni. Hver hlutur þeirra er
í útgefnum ávísunum er óljós
erin.
14., 15., 16., 17. Hrafnhildur
Valdimarsdóttir er kona Jóns O.
Ragnarssonar, Jóna Sigurðardótt-
ir er kona Ásgeirs H. Maghús-
sonar, Björk Valsdóttir er kona
Magnúsar Leópoldssonar,
Sigríður Sörensdóttir er starfs-
stúlka í Veitingahúsinu Borgar-
túni 32. Sammerkt aðild þessara
kvenna er það að þær segjast gefa
út tékka og vera skrifaðar fyrir
reikningum sem aðrir sjái alfarið
um.
Tengsl þau sem hér er rætt um
eru samkvæmt framburðum
reikningshafa lán sem gengið
hafa á milli þeirra.
FYRIRTÆKI, SEM
VIÐSÖGUKOMA
Bankareikningar þeir sem um
ræðir, eru ekki allt persónu-
reikningar heldur einnig fyrir-
tækjareikningar. Fyrirtækin sem
koma fyrir samkvæmt upplýsing-
um Hrafns eru þessi:
1. Bláfjöll hf. Með þennan
reikning voru Ásgeir Hannes
Eiríksson og Haukur Hjaltason.
Ásgeir hefur ávísað miklu meira
á þennan reikning. Framsöl hafa
fundizt hjá Hauki, en aðeins á
örfáum tékkum.
2. Hafnarbíó, prókúruhafi Jón
0. Ragnarsson.
3. Freysteinn hf., útgáfu- og
auglýsingafyrurtæki. Prókúru-
hafar Ásgeir Hannes Eiríksson og
Valdimar Olsen. Valdimar hefur
gefið út minna af ávísunum en
Ásgeir, en er framseljandi á all-
mörgum tékkum og er yfirheyrð-
ur sem grunaður, gagnstætt
Hauki Hjaltasyni, samkvæmt því
sem Hrafn Bragason sagði á
fundinum í gær.
4. Handbók LÍU (Landssam-
band íslenzkra útvegsmanna),
prókúruhafi Ásgeir Hannes
Eiríksson. Freysteinn hf. mun
hafa gefið þessa bók út.
5. Prentsmíði hf., prókúruhafi
Ásgeir Hannes Eiríksson.
6. Veiðival sf., prókúruhafi
Guðjón Styrkárssson.
7. Verzlunin Kópavogur,
prókúruhafi Guðmundur Þorvar
Jónasson.
8. Bær hf., fyrirtæki sem rak
Klúbbinn. Prókúruhafi Björk
Valsdóttir, en Magnús Leópolds-
son og Sigurbjörn Eíriksson
ávísuðu.
9. Lækjarmót hf., fyrirtæki sem
rekur Klúbbinn. Prókúruhafi
Björk Valsdóttir, en Magnús
Leópoldsson ávísaði.
10. Borgartún 32 hf., fyrirtæki
um húseign þá, sem Klúbburinn
er í. Prókúruhafar Björk Vals-
dóttir og Sigríður Sörensdóttir.
Eigandi eignarinnar er Sigur-
björn Eiríksson.
Það kom fram á fundinum í
gær, að fyrrnefnd fyrirtæki munu
öll vera starfandi í dag nema Blá-
fjöll hf. og Bær hf. Þá kom það
fram á fundinum, að hinir yfir-
heyrðu kváðust allir hafa verið í
tengslum við forsvarsmenn
veitingahússins Kiúbbsins nema
Guðjón Stýrkársson, Ásgeir H.
Magnússon og Arent Claessen.
LÍU VISSI EKKERT
UM REIKNINGINN
Það vekur athygli, að reikning-
ur í nafni handbókar LítJ hefur
verið notaður við ávlsunaútgáf-
una. Morgunblaðið sneri sér f gær
til Kristjáns Ragnarssonar, for-
manns LtU, og spurði hann um
málið. Kristján sagði: „Mál þetta
er þannig vaxið, að Ásreir H.
Eirfksson sá fyrir mörgum árum
um útgáfu handbókar LlU. Hann
safnaði m.a. auglýsingum í bókina
og stóðu þær undir útgáfunni,
þannig að LlÚ hafði engar fjár-
hagslegar skuldbindingar gagn-
vart útgáfunni. Okkur var með
öllu ókunnugt um tilvist þessa
reiknings á nafni sambandsins og
erum nú fyrst að frétta af því
hvernig hann hefur verið notað-
ur. Þykir okkur furðulegt að hægt
skuli að stofna í banka reikning á
nafni LlÚ, án þess að samráð sé
haft við okkur. LlÚ mun krefja
viðkomandi banka skýringa á
þessu máli.“
MEGINHLUTI
ÁVlSANNA EKKI
ATHUGUNARVERÐUR
Eins og fram kom á fyrsta
blaðamannafundi Hrafns Braga-
sonar nam heildarupphæð þeirra
ávísana sem dómsrannsóknin nær
til um 2000 milljónum króna. At-
hugun Seðlabankans náði til 26
reikninga en reikningshafar voru
15, allir nema Magnús Leópolds-
son og Sigurbjörn Eiríksson á
nafnalistanum, en þeir munu
ekki hafa haft leyfi til að hafa
opna bankareikninga. Aftur á
móti ávlsuðu þeir á reikningana,
eins og fyrr segir. Það kom fram
hjá Hrafni Bragasyni á fyrsta
fundinum, að 5 aðilar hefi gefið
út ávfsanir fyrir 100 til 557 millj-
ónir króna á tveggja ára tlmabili
og 8 aðilar hafa framselt ávlsanir
yfir 100 milljónir á tímabilinu. Á
blaðamannafundinum I gær upp-
lýsti Hrafn, að meginhluti fyrr-
nefndra ávlsana hafi ekki þótt
athugunarverður.
Frá þvf Hrafn hélt sfðast blaða-
mannafund, föstudaginn 17. sept-
ember, hafa komið fyrir dóminn
sem vitni ýmsir bankamenn. Eru
það aðalgjaldkerar bankanna,
deildarstjórar hlaupareiknings-
deilda og bankastjórar. Þeir hafa
staðfest að munnlegar yfirdrátt-
arheimildir eru veittar, en telja
að það sé aðeins gert til skamms
tlma I einu. Sýnist misjafnlega
tryggilega gengið frá slfkum yfir-
dráttarheimildum. Þá hafa þeir
tjáð sig um nokkur þeirra reikn-
ingsyfirlita, sem fyrir lágu I rétt-
inum. Hefur því verið haldið fram
af bankamönnunum, að sum
reikningsyfirlitin veiti greinilega
vísbendingu um keðjuávfsana-
starfsemi, en svo er ekki talið um
önnur. Ávísun I keðju þarf ekki
að vera bókuð innstæðulaus i
reikningsyfirliti og heldur ekki
að falla utan yfirdráttarheimild-
ar, því bjarga mátti innstæðuleys-
inu með annarri ávfsun áður en
fyrri ávfsunin kom til bókunar,
segir I greinagerð Hrafns Braga-
sonar i gær._______________
SEGJAST HAFA VITAÐ
UM SKYNDIKANNANIR
Þegar Hrafn Bragason var
spurður að því á fundinum I gær,
hvort könnuð yrði ávísanaútgáfa
lengra aftur I tímann, sagði hann
að það væri ákveðið. Hins vegar
yrði könnuð ávísanastarfsemi allt
fram að þeim tfma að Reiknistofa
bankanna tók til starfa 11. júnf
s.l. en tók fram, að flestum reikn-
inganna hefði verið búið að loka
fyrir þann tíma. Er nú búið að
loka öllum reikningum, sem
könnunin náði til. Þá hefur þótt
ástæða til að kanna fleiri reikn-
inga en þá sem Seðlabankinn
kannaði sérstaklega, þar á meðal f
Samvinnubankanum, en hann var
eini viðskiptabankinn, sem könn-
un Seðlabankans náði ekki til.
Ekki hafa aðrir sparisjóðir en
Sparisjóðurinn Pundið komið við
sögu þessa máls.
Hrafn Bragason upplýsti það á
fundinum í gær, að Seðlabanki
Islands hefði s.l. fimmtudag ritað
viðskiptabönkunum bréf og
greint þeim frá nöfnum allra
reikningshafa. Þá upplýsti Hrafn
ennfremur, að sumir reiknings-
hafa töldu sig hafa vitneskju um
skyndikannanir, sem Seðlabank-
inn lét framkvæma annað slagið
áður en Reiknistofa bankanna tók
til starfa. Einn reikningshafanna,
Ásgeir H. Eirfksson, sagði að
hann hefði haft vitneskju um all-
ar skyndikannarirnar, sem gerðar
voru á tfmabilinu, sem könnun
Seðlabankans náði yfir, enda
„hafi þetta verið alkunna um all-
an bæ“. Þá kvaðst Ásgeir hafa
heyrt að bankastjórar hefðu látið
beztu viðskiptavini sfna vita um
skyndikannanir fyrirfram, þann-
ig að þeir gætu hagrætt hlutun-
um, en Hrafn sagði að Ásgeir
hefði ekki getað nefnt miklar
heimildir fyrir þessu.
SEÐLABANKINN
LÆTUR LOKA ÖLLUM
REIKNINGUM
Morgunblaðið sneri sér f gær-
kvöldi til Sveinbjörns Hafliðason-
ar, lögfræðings Seðlabankans,
Sveinbjörn staðfesti að umrætt
bréf hafði verið sent til viðskipta-
bankanna á fimmtudaginn, hefði
þeim þar verið skipað að loka
öllum reikningum, sem menn
þeir, sem Seðlabankinn kærði,
hafa haft. Sagði Sveinbjörn, að
þetta væri alltaf gert þegar Seðla-
bankinn sendi slfkar kærur, en f
þetta sinn hefði það verið dregið
vegna rannsóknarinnar, sem fram
hefur farið undanfarnar vikur.
Sveinbjörn vildi sem minnst segja
um þann framburð sumra reikn-
ingshafa, að þeir hefðu vitað fyr-
irfram um skyndikannanir, en
sagði að þetta mál yrði vænt-
anlega tekið sérstaklega fyrir á
næstunni.
Eins og fram hefur komið áður,
telja umræddir reikningshafar,
að þeir hafi ekki staðið að ávis-
anakeðjum eða stundað annað
ávísanamisferli. Aftur á móti hafi
þeir gefið út innstæðulausar ávfs-
anir, enda hafi þeir haft yfirdrátt
í bönkunum og gert þetta með
þeirra leyfi. Á móti hafi þeir
greitt refsivexti. Skýrði Jón Ragn-
arsson frá því við yfirheyrslurn-
ar, að hann hefði eitt árið greitt
400 þúsund krónur í refsivexti og
eitt sinn hefði hann verið í 6
milljón króna yfirdrætti hjá
ákveðnum banka, og hefði hann
haft til þess munnlega heimild.
MIKIL VINNA EFTIR
Hrafn Bragason umboðsdómari
sagði að lokum, að geysimikið
verk væri eftir við úrvinnslu
gagna, og væri alveg óvíst hvenær
hann lyki málinu. Þá verður yfir-
heyrslum haldið áfram. Þær fara
fram í húskynnum Borgardóms
að Túngötu 7 og eru réttarhöldin
opin-
— íþróttir
Kringlukast Sigurlína Hreiðarsdóttir,
Ár. 28,52 metrar
Spjótkast: Dóróþea Reimarsdóttir, Sv.
29,49 metrar
100 metra hlaup: Aðalsteinn Bern-
harðsson, Fr 11,7 sek.
200 metra hlaup: Aðalsteinn Bern-
harðsson, Fr. 23,7 sek.
400 metra hlaup Aðalsteinn Bern-
harðsson, Fr 52,0 sek.
800 metra hlaup: Aðalsteinn Bern-
harðsson, Fr. 2:08,6 mín.
1500 metra hlaup: Benedikt
Björgvinsson, Dbr. 10:32,7 mín.
5000 metra hlaup: Benedikt
Björgvinsson,, Dbr. 1 7:43,2 mín.
110 metra grindahlaup: Aðalsteinn
Bernharðsson, Fr 1 6,9 sek.
4X100 metra grindahlaup: A-sveit
Reynis 49,3 sek.
Langstökk: Aðalsteinn Bernharðsson,
Fr. 6,55 metrar
Hástökk: Aðalsteinn Bernharðsson, Fr.
1,60 metrar
Þrístökk: Aðalsteinn Bernharðsson, Fr
1 3,61 metrar
Stangarstökk. Valdimar Bragason, Sv.
2,70 metrar
Kúluvarp: Þóroddur Jóhannsson, M
Kringlukast: Matthías Ásgeirsson, Sv.
Spjótkast: Jóhannes Aslaugsson, N
— Starfsfólk
/ Framhald af bls. 32
framt skal nefndin hafa hliðsjón
af launum sambærilegra starfs-
hópa, sem taka laun hjá íslenzka
ríkinu, og á almennum vinnu-
markaði, sbr. 7 grein aðalkjara-
samnings BSRB og fjármálaráð-
herra frá 1. apríl 1976. Skal hún
sfðan á grundvelli þessara athug-
ana gera tillögur um stöðu starfs-
manna sjónvarpsins í launakerf-
inu.
Stefnt skal að því að nefndin
skili áliti fyrir lok þessa árs.
Sjónvarpsútsending féll fyrst
niður á föstudegi fyrir viku. Ekki
var rætt við fulltrúa starfsmanna
sjónvarpsins fyrst f stað, en sam-
kvæmt upplýsingum, sem fram
komu á fundinum kallaði Gunnar
Thoroddsen, sem gegnir forsætis-
ráðherrastörfum í fjarveru Geirs
Hallgrímssonar, fulltrúa sjón-
varpsmanna á sinn fund til þess
að heyra rök þeirra. I framhaldi
af þeim fundi komst á samband
milli starfsfólksins og Vilhjálms
Hjálmarssonar, sem tók málið í
sínar hendur og sagði Eiður
Guðnason að það hefði ekki verið
sízt menntamálaráðherra að
þakka að aftur hæfist vinna í
sjónvarpinu og að fundizt hefði
lausn, sem starfsmennirnir teldu
viðunandi eftir atvikum. „Eftir
sem áður búum við við kerfi, sem
við teljum óviðunandi," sagði Eið-
ur Guðnason, „og ætli ríkið að
halda sæmilega góðum starfs-
krafti, verður það að fella niður
atvinnurekendasjónarmið, sem
áttu við fyrir 40 árum.“
Það kom fram á fundinum að
sjónvarpsstarfsmenn eru hlut-
fallslega miklu neðar í launakerfi
íslenzka ríkisins en sjónvarps-
starfsmenn í Svíþjóð og Dan-
mörku. Þar við bætist að vinnu-
álag hjá fslenzka sjónvarpinu er
margfalt á við vinnuálag i þessum
löndum, sakir mannfæðar hér.
Þá gagnrýndu sjónvarpsstarfs-
menn talsvert hvernig ríkið stæði
að samningsgerð við starfsfólk
sitt. 1 þessum viðræðum.sem fram
hafa farið undanfarna daga, kom
fulltrúi fjármálaráðuneytisins
aldrei inn í myndina, en helzt
fannst starfsmönnunum ámælis-
vert, að i sambandi við samnings-
gerð við þá, sögðu þeir að ekki
hefði verið haft samband við yfir-
menn sjónvarpsins.
Fjármálaráðuneytið hefur til-
kynnt að dregið yrði 6 daga kaup
frá launum starfsfólks sjónvarps-
ins um næstu mánaðamót, en sið-
an kom tilkynning að vegna
tækniatriða yrði frádráttur frá
launum ekki fyrr en um mánaða-
mótin október-nóvember. Starfs-
menn sjónvarpsins buðu sjón-
varpinu i gær að vinna án kostn-
aðar stofnunarinnar 6 fimmtu-
daga til þess að vinna upp það tap,
sem stofnunin hefði orðið fyrir
vegna verkfalls þeirra.
— Ródesía
Framhald af bls. 1
með þeim skilyrðum að aðrir aðil-
ar deilunnar féllust einnig á þær.
Forsætisráðherrann sagði, að
bráðabirgðastjórnin mundi sam-
anstanda af ráðherraráði og ríkis-
ráði. Svartir ættu að hafa meiri-
hluta í ráðherraráðinu, og æðsti
ráðherra yrði svartur. Á ráðið að
hafa ráðgjafarvald. í rlkisráðinu
verða jafn margir svartir og hvít-
ir, en formaðurinn verður hvítur.
Verður ráðið æðsta vald landsins.
Skipar það ráðherra og semur
drög að stjórnarskrá.
Upplýsingafulltrúi þess arms
Afríska þjóðarráðsins, sem
Joshua Nkomo er leiðtogi fyrir,
Wille Musarurwa, sagði í kvöld,
að þó að ráðið gæti ekki séð af
hverju fresturinn til að koma á
meirihlutastjórn hefði ekki verið
eitt ár, þá væri það ekki óyfirstíg-
anlegt vandamál, ekki sízt þar
sem Afríkumenn hefðu meiri-
hluta í bráðabirgðastjórninni.
Hann kvaðst þó ekki ánægður
með að varnarmálaráðherrann og
lögreglumálaráðherrann skyldu
báðir vera hvítir, en hann fagnaði
því að tveggja þriðjuhluta at-
kvæða væri krafizt við samþykkt-
ir í ríkisráðinu.
1 tilkynningu brezku stjórnar-
innar 1 dag segir að samþykki
Ródesfustjórnar við tillögum
Kissingers vekji góða von um að
friðsamleg lausn muni verða á
Ródesíudeilunni. í Washington
lýsti Ford, forseti, ánægju sinni
með samþykkt tillagnanna og
sagði að með afstöðu sinni hefði
Smith komið f veg fyrir blóðbað í
suðurhluta Afríku.
Ródesfustjórn bíður nú með
óþreyju eftir viðbrögðum frá öðr-
um leiðtogum og hreyfingum Af-
rfkumanna f landinu, og leiðtog-
um annarra Afríkuþjóða. Smith
gaf ekkert f skyn f ræðu sinni um
það við hvaða leiðtoga Afríku-
manna rætt verður um myndun
bráðabirgðastjórnar. Helztu leið-
togar eru Joshua Nkomo, Abel
Muzoreva, biskup, séra
Ndabaningi Sithole og Robert
Mugabe.
Nkomo er leiðtogi hófsamari
arms Afrfska þjóðarráðsins og
hefur verið litið á hann sem hugs-
anlegan forsætisráðherra í meiri-
hlutastjórn. Muzorewa, biskup,
sem er í útlegð að eigin vilja, er
leiðtogi hins armsins og heldur
þvf fram, að hann eigi meiri
stuðning meðal svarts almenn-
ings. Sithole er leiðtogi Zimbawe
(afrfskt nafn á Ródesíu) þjóðar-
sambandsins, sem er bannað og
Mugabe er pólitfskur leiðtogi
„þriðja aflsins", sem heldur uppi
skæruhernaði frá Mózambique.
— Háskóla-
kennsla
Framhald af bls. 30
eftir samninga BHM og fjármála-
ráðuneytisins í vetur og dómsorð
Kjaradóms nú stefnir gengi
Háskóla íslands sem vfsindastofn-
unar f bráða hættu, þar sem þau
bægja frá honum vel hæfu starfs-
liði og starfsmönnum háskólans
er gert turvelt og f mörgum til-
vikum ókleift að helga sig störf-
um sínum heilir og óskiptir.
4. Félag háskólakennara mun
undirbúa róttækari aðgerðir f
kjaramálum í haust."