Morgunblaðið - 25.09.1976, Side 25

Morgunblaðið - 25.09.1976, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976 fclk í fréttum Fjandvinir hittast Það var mikið um að vera á Hótel Sahara ( Las Vegas fyrir nokkru. Fyrir framan hljóð- nemann stóðu Dean Martin og Jerry Lewis, sem gerðu garðinn frægan á sjötta áratugn- um og léku saman 116 kvikmyndum áður en upp úr slitnaði vinskapnum árið 1956. Sameiginlegur vinur þeirra beggja, Frank Sinatra, vann að þvf baki brotnu 1 þrjá mán- uði að koma á fundi þeirra og tókst það loks eftir miklar fortölur. Eins og áður sagði hittust þeir félagarnir fyrrverandi á Hótel Sahara 1 Las Vegas en þar hélt Lewis skemmtun til styrktar börnum sem þjást af vöðvarýrnun, en til þeirra hefur hann safnað nærri 28 milljónum dollara á þessu ári. -f Það vildi til 1 Frönsku ölp- unum fyrir nokkrum dögum, að lyfta sem flytur fólk frá bæn- um Grenoble og upp á Bastillu- fjall bilaði og urðu 36 farþegar að hafast við lyftuklefunum klukkustundum saman áður en unnt var að koma þeim til hjálpar. Til björgunarstarf- anna var notuð þyrla og var þessi mynd tekin meðan á þeim stóð. Þess má þó geta að lyftan var ný af nálinni, tekin 1 notk- un f júlf sfðastliðnum. Uppog gfír + Sjóskiðafþróttin er vinsæl vfða um lönd og hefur meira að segja rutt sér dálftið til rúms hér á landi. Þó er ekki Ifklegt að margir geti ieikið þessar listir eftir hér enda eru hér á ferðinni atvinnumenn I fþrótt- inni. Myndin er tekin f Flórfda og kalla þeir þetta atriði „upp og yfir“. Harpa og Heiðar með verð- launin, sem þau fengu fyrir beztu frumsömdu táninga- dansana. Hlutu verðlaun fyrir beztu táningadansana f AGUST s.l. sóttu danskennar- arnir Harpa Pálsdóttir og Heiðar Ástvaldsson þing dans- kennara hjá Dansk Danselære- foreníng f Danmörku. Þar fór m.a. fram keppni um beztu frumsömdu táningadansana og hlutu þau Harpa og Heiðar 1. og 3. verðlaun fyrir tvo dansa, sem þau sendu f þessa keppni. Auk þess að sækja þingið sóttu þau námskeið I táninga- dönsum í dansskóla Barböru Weber og í dansskóla Udo Bier, sem eru í Wiesbaden í Þýzkalandi. Fleira hefur verið að gerast hjá danskennurum við dans- skóla Heiðars Astvaldssonar, þvi í júnímánuði kom hingað enski danskennarinn Joan Richards og hélt 10 daga nám- skeið fyrir kennara skólans, en Joan kenndi ýmis ný tilbrigði i samkvæmisdönsum. Þá fóru þau Edda Rut Páls- dóttir og Heiðar til Englands i maí og stunduðu þar nám i dansskóla Alex Moore i Lond- on. Tveggp daga flóa- markaður FEF FLÖAMARKAÐUR Félags ein- stæðra foreldra verður að Hall- veigarstöðum um helgina og hefst kl. 2 á laugardag. Verður opið kl. 2—5 bæði laugardag og sunnu- dag. Mikið úrval er þar á boðstól- um af nýjum fatnaði, notuðum fötum, búsáhöldum, matvælum, borðsilfri og skrautmunum, hús- munum og barnastólum o.fl. Þá verður happdrætti og verður dregið í þvi á sunnudagskvöld. Meðal vinninga er vikudvöl I Kerlingarfjöllum, málsverður i Nausti fyrir tvo, svefnpoki, borð- lampi, eldhúsklukka o.fl. Einnig verða seldir lukkupakkar með sælgæti og leikföngum. Allur ágóði rennur i Húsbyggingarsjóð Félags einstæðra foreldra, en hann hefur fest kaup á húseign- inni Skeljanesi 6 og er ætlunin að koma þar upp neyðar- og bráða- birgðahúsnæði fyrir einstæða for- eldra með börn. — Myndlist Framhald af bls. 12 hann hlyti næg verkefni á þeim sviðum, sem hann kemur sterk- astur fram — eða hins vegar að hann skapaði verkefnin sjálfur. Full ástæða er til að þakka ánægjulega sýningu, sem þeim sem hér ritar kom allmjög á óvart, fyrir ýmsra hluta sakir. Ber af heilum hug að óska lista- manninum heilla og velfarnað- ar. 25 EIMSKIP A NÆSTUNNI FERMA SKIP VOR TIL ÍSLANDS SEM HÉR SEGIR: ANTWERPEN: Grundarfoss 27. sept. Úðafoss 4. okt. Tungufoss 1 1. okt. Grundarfoss 18.okt. ROTTERDAM: Grundarfoss 28. sept. Úðafoss 5. okt. Tungufoss 1 2. okt. Grundarfoss 1 9. okt. FELIXSTOWE: Dettifoss 28. sept. Mánafoss 5. okt. Dettifoss 1 2. okt. ! Mánafoss 1 9. okt. Dettifoss 26. okt. HAMBORG: Dettifoss 30. sept. Mánafoss 7. okt. Dettifoss 14. okt. Mánafoss 21. okt. Dettifoss 28. okt. PORTSMOUTH: Selfoss 28. sept. Goðafoss 1. okt. Bakkafoss 4. okt. Brúarfoss 1 2. okt. Hofsjökull 25. okt. Bakkafoss 25. okt. KAUPMANNAHÖFN: írafoss 28. sept. Múlafoss 5. okt. frafoss 1 2. okt. Múlafoss 1 9. okt. Irafoss 26. okt. GAUTABORG: írafoss 29. sept. Múlafoss 6. okt. Irafoss 1 3. okt. Múlafoss 20. okt. (rafoss 27. okt. HELSINGBORG: „Skip" 28. sept. Álafoss 14. okt. Álafoss 28. okt. ; KRISTIANSAND: „Skip" 1. okt. Álafoss 1 5. okt. Álafoss 29. okt. GDYNIA/GDANSK: Urriðafoss 1. okt. Fjallfoss 22. okt. VALKOM: Urriðafoss 8. okt. Fjallfoss 20. okt. VENTSPILS: Urriðafoss 9. okt. WESTON POINT: Kljáfoss 30. sept. Kljáfoss 1 2. okt. REGLUBUNDNAR VIKULEGAR HRAÐFERÐIR FRÁ: ANTWERPEN, FELIXSTOWE, GAUTABORG, HAMBORG, KAUPMANNAHÖFN, ROTTERDAM ALLT MEÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.