Morgunblaðið - 25.09.1976, Side 29

Morgunblaðið - 25.09.1976, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976 29 VELX4CVKAINIDI Velvakandi svarar ( sfma 10- 100 kl. 10—11 f.h. frá mánu- degi til föstudags. 0 Minnispunktur fyrir villu- ráfandi Skattgreiðanda „Þröngsýnn SKATT- GREIÐANDI hellir úr skálum reiói sinnar í Velvakanda þriðju- daginn 21. þ.m. og nær ekki upp í nefið á sér fyrir reiði og talar um yfirgang sjónvarpsmanna. Það skyldi þó ekki vera fleiri en hann sem greiða skatta? Hvað skyldu sjónvarpsmenn greiða samanlagt í skatta? Það vakti á sinum tíroa undrun margra, sem þekktu aðeins til málanna, að það skyldi takast að býrja sjónvarpsútsendingar hér á landi fyrir tæpum 10 árum. Þeim sem hafa kynnt sér mál. sjón- varpsins á þessum árum sem að hefur starfað, er það ennþá meira undrunarefni hvernig sjónvarps- menn okkar hafa bökstaflega unnið hvert kraftaverkið eftir annað, eins og þeir hafa oft verið aðstöðu og tækjum búnir og eru reyndar ennþá. Það má t.d. benda á gamalt strætisvagnshróf, sem við sjáum oft og þeir sem hafa áhuga á vita hvað inni heldur. Það má deila um listræn afköst sjónvarpsins, en þá hæfileika er ekki hægt að kenna fólki sem hefur ekki neistann í sér og það er önnur saga. Oftar en einu sinni, þegar sjón- varpsmenn frá stórþjóðunum hafa verið staddir hér hafa þeir orðið steinhissa á því hvernig strákarnir hjá íslenzka sjónvarp- inu hafa getað komið út efni, sem hefur verið tekið upp á filmu sama kvöldið og stundum jafnvel nokkrum minútum áður en út- sending hefur hafizt. Þetta getum við ekki hjá okkur hafa þeir margoft sagt. Við gerum okkur heldur ekki grein fyrir þvi, hvaða vinna og stundum áhætta liggur að baki þegar við sitjum í makind- um i stofum okkar og sjáum at- burði á skjánum, sem okkur finnst alveg sjálfsagt að fá að sjá. Jú — SKATTGREIÐANDI góð- ur, gleymt er þá gleypt er.... nei, það hefur ekki vantað áhugann hjá starfsmönnum sjónvarpsins okkar í gegnum þessi ár sem það hefur starfað, en því miður er þessi áhugi ef til vill að dvina, en hverju er það að kenna? Það skyldi þó ekki vera skilnings- leysi? Ég hugsa að flestir landsmenn séu sammála um það, að mörg eru þau mál, sem sjónvarpsmenn okk- ar hafa varpað kastljósum sínum a, almenningi i landinu til heilla og þannig reynt eftir megni að leiðrétta misrétti á skútunni, eins og þeir hafa getað og þó innan þessa fræga hlutleysis-ramma. Ætli það sé ekki líka þess vegna að þeir sjá betur nú að mælirinn er fullur. Eftir að hafa lesið það sem haft er eftir Höskuldi ráðu- neytisstjóra í einu dagblaðanna virðist mér það lika: „Ég er hætt- ur að líta á þetta sem launamál“ og „Við teljum okkur hafa farið eftir öllum lögformlegum leiðum sem okkur ber, í viðskiptum okkar við sjónvarpsfólkið. Nú er þessi deila orðin annars eðlis.“ „Það er nú þeirra sem húsbónda- valdið hafa að taka ákvörðun, en það er stjórn Rikisútvarpsins og menntamálaráðuneytið.“ Stangast þetta ekki á við greinargerð launamálanefndar og Starfsmannafélags sjónvarpsins: 1. I.aunamálanefnd hefur aldrei gert athugasemdir við aðal- kjarasamning fjármálaráðherra og BSRB, þótt vissulega megi margt að þeim samningi finna, ekki sizt að því varðar vakta- vinnufólk. Það er hins vegar hlut- verk ráðuneytisins og einstakra starfsmannafélaga að semja um röðun starfsmanna í launaflokka innan aðalkjarasamningsins. Að þvi er snertir Starfsmannafélag Sjónvarpsins hafa slíkar samn- ingaviðræður við ráðuneytið aldrei átt sér stað. Um röðun i launaflokka segir svo í aðalkjara- samningi: „7. gr. Um röðun starfa I launa- flokka. 1. mgr. Við röðun starfa í launa- flokka skal að meginstefnu til höfð hliðsjón af röðun skv. sér- samningum bandalagsfélaga 1974 með siðari breytingum sbr. yfirlit yfir samsvörun i launaflokka á fylgiskjali nr. 1. 2. mgr. Frá þessari reglu má þó vikja, ef ástæða er til vegna samanburðar við kjör á almenn- um vinnumarkaði eða af öðrum gildum orsökum.“ Þennan hluta aðalkjarasamn- ingsins telur launamálanefnd að fjármálaráðuneytið hafi ekki staðið við. Fulltrúar fjármála- ráðuneytisins hafa einfaldlega neitað að ræða rök launamála- nefndar i þessu sambandi. Ég held að allir sjái að hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri er að gera í ráðuneytinu og þurfi ekki til skarpskyggni sjónvarps- manna okkar. Nú, svo er það Vil- hjálmur, ætli hann viti ekki sitt hlutverk ennþá? Það er eins gott að kunna sína rullu, þegar tjaldið verður dregið frá 11. október n.k. Gamall sjónvarpsáhugamaður". „Mér finnst ekki rétt að vera alltaf að ráðast þetta á sjónvarps- starfsmennina," sagði maður sem hringdi í Velvakanda í fyrradag. „Þetta eru oft ósanngjarnar að- finnslur og þeir hafa ekki eins góð laun og margir virðast halda. Ég er sjálfur rikisstarfsmaður og veit þvi vel að laun okkar ríkis- starfsmanna yfirleitt eru ekkert of há og mér finnst ekki rétt að níðast svo i orðum á þessu fólki. Menn verða nú að geta haft laun til að borga sína skatta." Viðbrögðin við sjónvarpsleys- inu eru á marga vegu og þessi sýnishorn eru nokkuð á annan veg er þau sem hafa verið hér í dálkunum að undanförnu. San Lucas. Að vlsu var ferðin löng niður eftir öllum tanganum, en hann þóttist vita að það kæmi sér vel siðar. — Bllstjórinn stóð við húsið þar sem herbergi Jacks var. Jack nam staðar við bláa Chevroletinn. — Miguel, viltu gera dálitið f.vr- ir mlg? — J á, senor. — Hann hefði ekki getað verið heppnari, þvi að maðurinn virtist fús að þóknast honum i einu og öllu og aukinheldur var hann bæði viðfelldinn og glaðlegur ungur maður. Auk þess virtist hann þrátt fyrir ungan aldur kunna skil á mörgu hér ( grennd- inni og hafði varla samkjaftað á leiðinni hingað. — Viltu fara inn i bæinn og athuga hvort þú getur haft uppi á vini mfnum, sem býr hérna ein- hvers staðar. A gistihúsi eða á móteli. — Kannski á Hacienda? — Reyndu. Hann heitir Vernon Fix. F-I-X. Ef þú finnur hann þá kemurðu með hann til mfn. 1 lagi? — Já. Röð af skjannahvftum tönnum kom (Ijós og hann bjó sig til að leggja af stað. Jack gekk HÖGNI HREKKVÍSI »-/* „Segið mér, gefum víð stig fyrir riddaralega fram- komu?“ Byggingaþjónusta Arkitekta Grensásvegi11 Fiskiskip til sölu 140 lesta stálskip með nýrri vél 1 20 lesta byggt 1972. 170 lesta byggt 1963 endurbyggingu lokið á þessu ári. 60 lesta stálbátur með 360 lesta Wichmann I 972. Veiðarfæri fylgja. 50 lesta eikarbátur með Cat 335 1970 II lesta súðbyrðingur byggður 1 972 Höfum kaupendur að góðum 150 — 250 lesta skipum. FISKISKIP, Pósthússtræti 13, sími 22475, heimasimi sölumanns 13742, Kjartan Jónsson, lögfræðingur. Þessi stórglæsilegi Pontiac Grand Am 1973 Er til sölu. Með öllu 400 cu.in., sjálfsk., rafm. rúður, stereo. Til sýnis í dag, laugardag og sunnudag frá kl. 9—5, í Hvassaleiti 14. (Haukur Ingimarsson 3h h)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.