Morgunblaðið - 30.09.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1976
Einn aðilanna í ávísanahringnum:
Seldi sama gjaldkera
271 ávísun ad upphæd
71 milljón kr. á 2 árum
YFIRHEYRSLUM I ávísana-
keðjumálinu svonefnda var fram
haldið I gær, og athuguð voru
sérstaklega ávísanaviðskipti Ás-
geirs H. Eirfkssonar. Fyrir rétti
mættu gjaldkeri úr Landsbankan-
um, aðalbanka og tveir gjaldker-
ar Utvegsbankans f Kópavogi.
Blaðamaður Morgunblaðsins var
viðstaddur yfirheyrslurnar. Það
kom f Ijós að Ásgeir H. Eirfksson
lagði inn hjá sama gjaldkera f
I.andshankanum alls 271 ávfsun
að upphæð 71 milljón króna á
tveggja ára tfmabili.
20 þús. kr.
kostar að
verka eina
síldartunnu
IIEILDARSÖLTUN Suður- og
Suðausturlandssfldar er nú
talin nema um 20 þúsund
tunnum, að þvf talið er. Mest
er búið að salta á Höfn f
Hornafirði, en þar var búið að
salta í gær rétt rúmar 10 þús-
und tunnur og er það mest sfld
frá reknetabátum. Sfldin sem
borizt hefur á land f haust, er
mun vænni og feitari en á
sama tfma f fyrrahaust eða
18—20% feit, en þá komst
búkfita sfldarinnar sjaldnast
yfir 17%.
Eftir þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið aflaði sér f
gær, þá mun hver fullverkuð
síldartunna með stórsíld kosta
framleiðanda um 20 þúsund
krónur. Gert er ráð fyrir að
146 kíló af síld þurfi i hverja
Framhald á bls. 24
Það kom einnig í ljós að tals-
verður kunningsskapur var með
Ásgeir og mættum gjaldkera.
Gjaldkerinn bar því þó við að
hann hefði framkvæmt öðru
hvoru venjulegar kannanir fyrir
innstæðu á reikningi þeim sem
ávísanirnar voru venjulega stílað-
ar á, og ætíð hefðu ávísanir hans
reynst „góðar“. Aðspurður sagðist
mættur gjaldkeri Ll aldrei hafa
tekið eftir nokkru varðandi út-
fyllingu ávlsananna sem vakið
hefði grunsemdir varðandi hugs-
anlegan ávísanahring. Þótt mætt-
ur bæri fyrir sig minnisleysi um
marga hluti, taldi gjaldkerinn að
aldrei hafi verið um neina
óvenjulega hegðan Ásgeirs að
ræða miðað við aðra viðskipta-
menn.
Við yfirheyrslu gjaldkeranna
úr Kópavoginum, kom fram að
báða hafi undir lok tímabils
meintrar keðju grunað að eitt-
hvað óeðlilegt væri með viðskipta-
hætti Ásgeirs H. Eirikssonar, og
einnig annarra svo sem Jóns 0
Ragnarssonar, Guðmundar Þ.
Jónassonar o.fl.
Athuganir þeirra á innstæðum
fyrir ávísunum mannanna hefðu
þó vanalega endað á þann veg að
innstæða væri fyrir þeirra eigin
ávisunum, en þó kom nokkrum
sinnum fyrir að aðilar að meint-
um ávisanahring væru að leggja
Eldur í vestur-
þýzkum togara
ELDUR kom upp í v-þýzka
togaranum Hinrik Kern i Reykja-
víkurhöfn um hádegisbil í gær.
Kviknaði eldurinn út frá bilun í
vatnskerfi og urðu nokkrar
skemmdir á klefanum sjálfum en
hann náði ekki að breiðast út
frekar.
inn ávísanir útgefnar af Klúbbn-
um og hefðu þær stundum reynst
innstæðulausar.
Annar gjaldkeranna í Kópavogi
kvaðst hafa komist að raun um,
eftir eigin athugun, að Ásgeir H.
Eiríksson stundaði það að færa
fjármagn á milli banka, en hefði
þó aldrei haft það á orði við yfir-
menn sina, heldur rætt það aðeins
við fulltrúa hlaupareikninganna.
Það kom fram að talsverður
munur virðist vera á milli gjald-
kera hvað varðar athuganir á inn-
stæðu innlagðra ávisana. Þannig
kom fram að gjaldkerarnir úr
Kópavoginum athuguðu yfirleitt
hjá reikningsböndunum ef ávfsun
væri stærri en 100 þúsund krón-
ur, en gjaldkeri Landsbankans
sagðist yfirleitt ekki athuga þær
nema upphæðin færi yfir 500 þús-
und krónur, en þó væri það alls
ekki undantekningarlaus regla.
SPJÖLL hafa verið unnin enn
einu sinni á klukkunni ð Lækjar-
torgi, og hafa tvær hliðar hennar,
þar sem auglýsingaspjöld voru,
verið brotnar.
TYR til
viðgerðar
í Arósum
VARÐSKIPIÐ Týr heldur i dag
áleiðis til Danmerkur, en þar
mun skipið fara I slipp f skipa-
smiðastöð þeirri f Árósum sem
smiðaði skipið á sfnum tíma.
Týr varð illa úti i siðasta
þorskastríði, varð fyrir ásigling-
um brezkra freigáta og f einni
slikri brotnaði önnur skrúfa
skipsins. ftarleg athugun hefur
aldrei verið gerð á þeim skemmd-
um, en nú er ætlunin að taka
skipið til gagngerrar viðgerðar.
Liggur ekki fyrir hversu langan
tíma viðgerðin muni taka.
Landhelgisgæzlan hefur haldið
áfram að kanna veiðarfæri er-
lendra togara hér við land og á
mánudagskvöld var aftur farið
um borð I belgfska togara, sem
reyndust vera brotlegir þegar
veiðarfæri þeirra voru könnuð i
sl. viku, en nú reyndist allt vera
reglum samkvæmt hjá þeim. I
gær voru um 24 brezkir togarar
hér að veiðum, 8 v-þýzkir og 5
belgískir auk 2ja færeyskra tog-
ara.
Ahrif af lækkun pundsins:
Cortinan lækkar
um 80 þúsund kr.
STERLINGSPUNDIÐ hefur und-
anfarna daga stórlækkað á alþjóð-
legum gjaldeyrismörkuðum.
Kaupgengi pundsins var í gær hjá
Seðlabankanum 311,50 krónur og
sölugengi 312,50 krónur. Hafði
þvf lækkunin verið rúmlega 5%
sfðustu daga. Þessar gengisbreyt-
ingar geta haft veruleg áhrif á
viðskipti landanna, en tslending-
ar hafa á undanförnum árum
keypt allmikið meira af Bretum
en þeir hafa keypt af okkur.
Takmarkið: Engin slysaalda í ár
Sjo ohopp í
átta sama dag
SJÖ óhöpp urðu f umferðinni f
Reykjavík í gær en 8 sama dag í
fyrra, þannig að vegfarendur
hefðu getað staðið sig miklu
betur. Ef litið er á fjóra fyrstu
daga vikunnar og óhappafjöldi
borinn saman við sömu daga f
fyrra er samanburðurinn hag-
stæður, 22 óhöpp þessa vikuna
á móti 36 f fyrra. En allir geta
verið sammála um, að 22 er
alltof há tala og það má gera
betur í umferðinni en þetta.
Hér fer á eftir yfirlit yfir
umferðina f gær og sfðan yfirlit
yfir sama dag f fyrra, en eins og
áður hefur slysarannsókna-
deild lögreglunnar unnið yfir-
litið:
MIÐVIKUDAGUR 1976
Kt. 08.58 tar bifreid ekið ðl af Breið-
höfóa or hafnaöi á hvolfi f skurði. Kn«in
meiósli.
Kl. 12.00 varó mjö« haróur árekslur á
Háaleitishraul við Smáagerði. Jeppa var
ekið lil suðurs og heynl lil vinslri áleiðis
austur SmáaKrrði. en ók þá f veg fyrir
bifreið sem var ekið norður lláaleitis-
braul. V ið höggið vall jeppinn á hliðina eg
ökumaður hans skrámaðisl.
Kl. 16.18 var bifreið ekið af Langholts-
ÞETTA óhapp varð á Háaleitisbraut f hádeginu f gær. Þarna ók
jeppinn inn á aðalbraut, f veg fyrir fólksbflinn. Ljósm Brynjólfur.
— en
í f yrra
vegi inn á Kleppsveg. en ók þá f veg fyrir
bifreið sem var ekið til auslurs.
Kl. 16.30 var ökumaður á leið suður
Suðurgötu og beygði til vinstri áleiðis
austur Vonarslreti. en ók þá f veg fyrir
bifreiðsem kom á móti.
Kl. 16.35 var bifreið ekið í veg fyrir aðra
á Elliðavogi við Suðurlandsbraul.
Kl. 17.18 varð enn einn áreksturinn þar
sem biðskylda var hrotin. K'n þá var bif-
reiðekiðaf Brautarhoiti og inn á Nóatún.
Kl. 17.48 var verið að flytja kranabómu
á flutningabifreið, en ekki tókst betur til
en svo að bóman lenti á húsvegg og gekk
inn.
MIÐVIKUDAGUR 1975
Kl. 01.15 var bifreið ekið aftur á bak við
l mferðarmiðstöðina þar til hún stöðvað-
ist á kyrrslæðri og mannlausri bífreið.
Kl. 09.55 var almenningsvagni ekið af
stað frá biðstöð, en lenli þá á vörubifreið,
sem var ekið fram með um leið.
Kl. 13.42 var bakkað á kyrrstæða og
mannlausa hifreið.
Kl. 14.15 varð árekstur á mótum Miklu-
brautar og firensásvegar þ(‘gar ökumaður
ruglaðist f rfminu og ók inn á gatnamótin.
móti rauðu umferðarljósi.
Kl. 15.07 rann mannlaus dráttarvél á
kyrrstæða bifreið.
Kl. 17.55 var ekið aftan á bifreið á
Mikluhraut við Kringlumýrarhraut.
Kl. 18.45 varð mjög harður árekstur á
Njarðargötu við Fjólugötu. en þar var
almenningsvagni ekið f veg fyrir leigubif-
reið. Kona f leiguhifreiðinni slasaðist.
Kl. 21.30 varð óhapp á Lækjargötu.
Bjartsýnn ökumaður kom niður Banka-
stræti og ætlaði suður Lækjargötu. t
beygjunni ætlaði hann fram úr hifreið
sem hafði verið á undan, en ekki tóksl
betur ril en svo að hann rakst utan f
bifreiðina. Við það missti hann stjórn á
ökutækinu, ók yfir á öfugan vegarhelming
og ók þar niður bifhjól.
Morgunblaðið reyndi í gær að
gera sér grein fyrir helztu áhrif-
um þessara breytinga. Benda lik-
ur til að lækkunin sé einmitt sem
nemur lækkun pundsins. Brezkar
bifreiðar, sem hingað eru fluttar
hafa þó lítið lækkað enn — en
búizt er við því að haldist verðlag
pundsins óbreytt miðað við það
sem það er nú, að t.d. Ford Escort
lækki um 65 þúsund krónur og
komi til með að kosta 1.185 þús-
und krónur og Cortina lækki um
80 þúsund krónur og komi til með
að kosta 1.440 þúsund krónur.
Benda þvi likur til að vöruverð
lækki yfirleitt á brezkum vörum
um rúmlega 5%. Það gerist þó
aðeins að framhald verði á því
verðlagi, sem nú hefur myndast á
sterlingspundinu.
Um útflutning er það að segja
að um sjávarafurðir þekkist varla
lengur að um þær sé rætt f sterl-
ingspundum, heldur er nú rætt
um dollara nær eingöngu og allir
viðskiptasamningar fara fram
miðað við þann gjaldmiðil. Er
þetta mikil breyting frá þvf sem
áður var, er allur útflutningur
landsins var yfirleitt miðaður við
pund. Þvi ætti hér ekki að vera
um mikil áhrif að ræða, en þó
getur það verið, þar sem um bein-
ar sölur til Bretlands er að ræða.
Á árinu 1975 keyptu fslending-
ar af Bretum vörur fyrir rúmlega
8 milljarða króna, en vörur, sem
tslendingar seldu til Bretlands,
voru að verðmæti 4,7 milljarðar.
Nánari skipting þessa er ekki aí-
veg ljós, en verið getur að ál og
álmelmi, svo og kfsilgúr skipti
töluverðu máli f þessum tölum
um útflutning til Bretlands.
Víglundur
Möller
yfirmaður
Frímúrara-
reglunnar
VlGLUNDUR Möller, skrif-
stofustjóri hjá Sjúkrasamlagi
Reykjavfkur, hefur verið kjör-
inn æðsti maður Frfmúrara-
reglunnar á Islandi.
Víglundur var kjörinn til
þessa embættis í reglunni á
fundi innan Frimúrararegl-
unnar um siðustu helgi, og tek-
ur hann við embættinu af Ás-
geiri Magnússyni, forstjóra Is-
lenzka járnblendifélagsins,
sem lézt fyrir skömmu. Meðal
þeirra sem gegnt hafa þessu
embætti á siðustu árum eru
Vilhjálmur Þór, fyrrum Seðla-
bankastjóri, Ásgeir Ásgeirs-
son, forseti fslands, og Valdi-
mar Stefánsson ríkissaksókn-
ari, en þeir eru allir látnir sem
kunnugt er.
Vöxtur í Kreppu
o g brúarskemmdir
Egilsstöðum — 29. september.
Menn frá Egilsstöðum fóru héð-
an sl. sunnudag til lokafrágangs á
Kverkfjallaskála á vegum Ferða-
félags Fljótsdalshéraðs. Á baka-
leið út Krepputungu á sunnu-
dagskvöld urðu þeir varir við það
að mjög hafði hækkað f Kreppu.
Hafði myndast stórt lón og var
byrjað að vætla vestur yfir Tung-
una. Þegar þeir komu að brúnni á
Kreppu var áin að byrja að renna
yfir veginn austan við brúna og
mátti ekki tæpara standa að þeir
kæmust yfir.
Á mánudag fór síðan Gunn-
steinn Stefánsson vatnamælinga-
maður til að athuga þessi umbrot.
Þá var farið að sjatna mikið í ánni
frá því á sunnudag en hún hafði
grafið burt uppfyllingu austan
brúarinnar og er þar skarð um 2ja
metra djúpt og um 11 metra
breitt. Er því algjörlega ófært í
Krepputungu.
Ekki er vitað hvort flóðið hefur
komið úr Kverká eða Kreppu, þar
sem ekki hefur verið farið að upp-
tökum þeirra, en þær renna sam-
an sem kunnugt er á öræfunum
eða til móts víð Grágæsadal.
Steinþór