Morgunblaðið - 30.09.1976, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 30.09.1976, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1976 21 Ráðherrar fá morðhótanir Madrid, 29. september. Reuter. ADOLFO Suares forsætisráð- herra og flestir ráðherra hans hafa fengið nafnlausar morðhót- anir undanfarna daga að sögn blaðsins Informaciones. Háttsettir embættismenn sem eru kunnir fyrir frjálslyndar skoðanir hafa fengið svipaðar hót- anir að þvl er blaðið hefur eftir áreiðanlegum heimildum. Hótanirnar koma greinilega frá mönnum sem eru mótfallnir áformum stjórnarinnar um póli- tiskar umbætur að sögn blaðsins. Enrique de la Mata verkalýðs- málaráðherra hefur komið fyrir skotheldum gluggarúðum í skrif- stofu sinni, segir Informaciones. Stúdent lézt í gær af sárum sem hann hlaut þegar hann var skot- inn í kviðinn og verkalýðsfélög kvöddu i dag til eins dags verk- falls í mótmælaskvni. Hann virð- ist hafa verið skotinn eftir áflog við öfgasinnaða hægrimenn í mót- mælaaðgerðum, sem efnt var til gegn stjórninni á mánudag og var jarðsettur í dag. Þar með hafa verið framin 36 pólítísk morð síðan Franco hers- höfðingi lézt í nóvember I fyrra en þetta er fyrsta morðið af þessu tagi sem hefur verið framið í Madrid. Tveir leiðtogar verkfalls póst- manna hafa verið ákærðir fyrir undirróður og settir í gæzluvarð- hald. Verkfallið hefur breiðzt út til allra helztu borga og nær til 30.000 manna. BOBBY Fischer, fyrrverandi heimsmeistari f skák, var afslappaður þegar hann kom fram á blaðamannafundi I Manila þar sem hann hefur ákveðið að setjast að um óákveðinn tfma. Hann kvaðst ætla að vera þar unz samningum lyki um einvfgi við heimsmeistarann Anatoly Karpov. Margar milljónir dollara eru f húfi. Mao smurður og varðveittur Peking, 29. september. Reuter. LlK MAO Tse-tungs verður smurt og varðveitt að sögn kfn- verskra embættismanna. En þeir vilja ekki segja hvar jarð- neskar leifar formannsins verða geymdar. IJtlendingar sem hafa verið í Changsha i Mið-Kína hafa fengið þær upplýsingar að gestum á fæðingarstað hans í þorpinu Shaoshan hafi fjölgað úr 2.000 i 20.000 á dag. Forystumenn á landsbyggð- inni munu hafa hvatt til þess að likið verði smurt svo að fólk frá öllum landshlutum geti gengið fram hjá líkbörunum í virðingarskyni. Diplómatar hafa gizkað á að grafhýsi verði reist I Peking, Shaoshan eða í Yenan í Norð- ur-Kína sem var bækistöð Rauða hersins á erfiðustu ár- um byltingarinnar. Eiturleki í annað skipti á Ítalíu Róm, 29. september. Reuter. I ANNAÐ skipti á þremur mán- uðum hefur slys leitt til þess að banvæn eiturefni hafa dreifzt yf- ir stórt svæði á Italfu. Tfu ferkflómetra svæði f Man- fredonia á sunnanverðri Adrfa- hafsströnd Italfu hefur verið lok- að. Svæðið er umhverfis efna- verksmiðju sem er I eigu rfkisfyr- irtækisins Anic. Við sprengingu f verksmiðj- unni á sunnudaginn þeyttist mik- ið magn af arseniki út f andrúms- loftið og þegar það kom aftur til jarðar munu nokkur húsdýr hafa drepizt. í dag bönnuðu yfirvöld alla venjulega starfsemi í iðnarar- hverfi þar sem verksmiðjan er, fólki var bannað að fara inn á svæðið og sérfræðingar voru kvaddir á vettvang. Slysið minnir á sprenginguna í svissnesku Icmesa-verksmiðjunni I Seveso norður af Mílano 10. júlí þegar mikið af eitruðu dioxin-efni Viðræður um Foxbatþotuna Tokyo, 29. september. Reuter. JAPANIR tilkynntu í kvöld að þeir væru reiðubúnir til viðræðna við Rússa eftir nokkra daga um að skila MIG-25-þotunni („Fox- bat“) sem flogið var til Japans fyrr f þessum mánuði en sögðu að flugmaðurinn vildi ekki snúa heim. Utanríkisráðuneytið I Tokyo birti afrit af tveimur bréfum sem það sagði að flugmaðurinn, Viktor Belenko, hefði skrifað áð- ur en honum var veitt hæli í Bandaríkjunum. Jafnframt sak- aði ráðuneytið Rússa um að hafa snúið við staðreyndum í ásökun- um um meðferð Japana á málinu. Rússar segja að Belenko hafi ver- ið neyddur til að biðja um hæli. Heimildir í ráðuneytinu sögðu að rússneska sendiráðið hefði tek- ið við japönsku orðsendingunni Framhald á bls. 24 barst út í andrúmsloftið. Um 1.000 manns voru fluttir burt og sérfræðingar reyna enn að finna leiðir til að útrýma eiturefnunum. Þeir sem hafa verið fluttir á brott hafa fengið þær upplýsingar að ólíklegt sé að þeir fái að snúa aftur heim fyrir áramót. í Manfredonia gætir áhrifanna aðallega á verksmiðjulóðinni og á litlu svæði ræktaðs lands. Sala allra Iandbúnaðarafurða frá nær- liggjandi svæði hefur verið bönn- uð, svo og veiðar við ströndina. Framkvæmdastjórar Anic segj- ast gera ráð fyrir að ein lest af arseniki hafi lekið við sprenging- una, en verkalýðsfélagið á staðn- um segir :ð mágnið geti verið þrisvar sinnum meira. Vísindamenn í Manfredonia segja að sá reginmunur sé á ar- senik og dioxin-mengun að arse- nik er aðeins hægt að innbyrða með þvf að anda því að sér eða gleyma það en dioxin-eitrun gæti átt sér stað við snertingu. Genscher hjá S.Þ.: Hvetur til reglugerð- ar gegn gíslatöku Sameinuðu þjóðunum 28. september Reuter. IIANS Ðietrich Genscher, utan- rfkisráðherra V-Þýzkalands, sagði f ræðu sinni á Allsherjarþingi S.Þ. f New York f dag, að V- Þjóðverjar myndu innan skamms leggja til að skipuð yrði nefnd, sem fulltrúar 35 þjóða ættu sæti í, til að semja alþjóðlega reglugerð, Nixon neitar ábyrgð í æviminningum sínum New York, 29. september. Reuter. RICHARD Nixon fyrrverandi forseti heldur þvf fram að hann sé saklaus f æviminningunum sem hann vinnur að og segir að óvinir hans hafi notað Water- gate-hneykslið til að bola hon- um frá völdum. New York Times hefur þetta eftir útgefendum í Bandarlkj- unum og Evrópu er hafa lesið bókina. Blaðið segir að Nixon sjái eftir að hafa ekki krafizt nánari upplýsinga frá sam- starfsmönnum slnum þar sem hann hafi lítið vitað sjálfur um Watergate-innbrotið og það sem sfðar gerðist. Nixon viðurkennir aðeins dómgreindarskort og neitar því að hafa borið persónulega ábyrgð á hneykslinu sem leiddi til falls hans. Hann kveðst hafa sagt af sér 1974 til þess eins að koma I veg fyrir þjóðarsundr- ungu. New York Times segir að i bók sinni muni Nixon einnig fjalla um hljóðritunarkerfið I Hvíta húsinu, skapgerð nán- ustu samstarfsmanna sinna, fall Spiro Agnews fyrrverandi varaforseta og fjöld'a utanrlkis- mála, þar á meðal Vfetnam- strfðið, fjöldamorðin I My Lai og fundi hans og evrópskra og asfskra leiðtoga. Nixon er sagður vinna dag- lega að endurminningum sfn- um sem forlagið Warner Books mun gefa út i Bandarikjunum, en New York Times hefur tryggt sér rétt til að birta út- drátt úr þeim. New York Times segir að starfsmenn Warner Books hafi sýnt leynilegt 13 sfðna ágrip erlendum bókaútgáfumönnum á bókasýningu í Frankfurt f Vestur-Þýzkalandi. Þeir lásu það i litlum klefa að viðstödd- um fulltrúum Warner Books en þrátt fyrir vfðtækar öryggisráð- stafanir segir Times að einu eintakinu hafi verið komið und- Svíþjóð: Fyrirsát á Riviera Nizza, 29. september. Reuter. FJORIR grfmuklæddir menn komust undan með eina milljón franka f peningum og skartgrip- um og tóku f gfslingu sextugan fjármálamann eftir að hafa veitt þekktum frönskum lagasmið fyr- irsát skammt frá villu hans nálægt Nizza. Mennirnir stöðvuðu Rolls Royce tónskáldsins Francis Lopez þegar hann var að koma heim úr veizlu ásamt konu sinni og fjár- málamanninum Francois Feril. Mennirnir fóru með þau inn í villuna og neyddu Lopez til að opna peningaskáp þar sem pen- ingarnir og gimsteinarnir voru geymdir. Lopez var læstur inni f baðher- bergi ásamt konu sinni og Feriel var neyddur til að undirrita ávfs- anir upp á þrjár milljónir franka áður en hann var tekinn f gislingu og mennirnir flúðu með hann. Þeir hurfu sporlaust. sem bannaði töku gfsla, þ.á m. flugfan og annað. Ráðherrann sagði að taka gfsla væri ekki aðeins vandamál einnar eða nokkurra þjóða heldur allra þjóða heims. Hann sagði að taka gísla væri einhver hroðalegasta og útbreiddasta ofbeldisaógerð, sem þekktist og þessi þróun hefði færzt ógnvekjandi f aukana. Hins vegar forðaðist ráðherrann að nefna orðið „hryðjuverk" að því er virtist til þess að forðast við- kvæm pólitísk viðbrögð, sem hafa komið f veg fyrir setningu slíkrar reglugerðar sl. 4 ár. Ymsar Araba- þjóðir og Afríkuþjóðir hafa látið í ljós ótta um að setning slikrar reglugerðar yrði notuð gegn þvi sem þeir kalla lögmætar aðgerðir frelsissamtaka. Kötturinn var líka dæmdur Plymouth, 29. sept. Reuter. VASILOV Iakimenko, skip- stjóri á sovézka togaranum Dzukiya, hefur verið dæmdur f 250 punda sekt fyrir veiðar innan brezku 12 mflna mark- anna. Hann var einnig dæmd- ur f 200 punda sekt þar sem skipskötturinn laumaðist f land og braut þar með ströng lög gegn hundaæði. Menn af brezka tundurspill- inum Soberton föru um borð í Dzukiya á laugardaginn þegar togarinn hafði verið staðinn að veiðum 1.2 km innan mark- anna. Eftir 15 tfma þras var togarinn dreginn til hafnar f Plymouth. Iakimenko skipstjóri segir að hann hafi ekki vitað að kött- urinn Tovarich hafi verið um borð og benti á að samkvæmt sovézkum lögum væri bannað að hafa dýr i skipum. Dómarinn tók til greina þá staðhæfingu skipstjórans að ratsjárbilun hefði valdið þvf að hann hefði farið inn fyrir mörkin. Þótt hann væri sektað- ur var vfsað á bug þeirri kröfu landbúnaðar- og sjávarútvegs- ráðuneytisins að afli og veiðar- færi yrðu gerð upptæk. Kötturinn Tovarich var sett- ur í sóttkvf. 300.000 fjöl- skyldufyrírtæki STOKKHÓLMI — 1 Svfþjóð eru starfrækt um 300.000 fjölskyldu- fyrirtæki sem veita rúmlega einni milljón manna atvinnu eða um það bil 30 af hundraði þeirra sem stundq atvinnu. 125.000 þessara fyrirtækja starfa í landbúnaði, 26.000 í iðn- áði 57.000 við verzlun, 37.000 við byggingarstarfsemi og 80.000 á ýmsum öðrum sviðum. Fjölskyldufyrirtækin gegna lykilhlutverki í atvinnulífi í lang- flestum fylkjum Svíþjóðar. Á sumum svæðum starfar hjá þeim rúmlega helmingur heildarvinnu- aflans. Hins vegar fa-kkar fjölskyldu- fyrirtækjum og á næstu fimni ár- um er gert ráð fyrir að a.m.k. 40% þeirra leggist niður, hvort sem þau verða seld eða þeint verður lokað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.