Morgunblaðið - 30.09.1976, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 30.09.1976, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1976 35 Brœðraminning: Ágúst Jónsson og Sigurjón Jónsson Bræðurnir Agúst Jónsson Hraunbæ 132 og Sigurjón Jóns- son Laugarásvegi 41 Reykjavík, létust mað rúmlega mánaðarmilli- bili, hinn 5. júlí og 12. ágúst 1976. Ágúst Jónsson, sem fæddur var að Syðri-Hömrum i Holtum 1. maí 1901, lést í Reykjavfk 5. júli s.l. og Sigurjón Jónsson, sem fæddur var að Grettisgötu 17 Reykjavík, lést í Hamborg 12. ágúst s.l. Foreldrar þeirra bræðra voru Jón Vigfússon og Helga Sigurðar- dóttir er bjuggu að Syðri- Hömrum í Holtum. Þau áttu bæði ættir að rekja um Rangárþing, voru af hinum kunnu ættum sem kenndar eru við Sandhólaferju og Vikingslæk. Þau hjón fluttu til Reykjavikur 1901. Börn þeirra urðu alls átta, sex komust til fullorðinsára, en tvö dóu ung. Bræðurnir, Ágúst og Sigurjón, ólust upp með foreldr- um sfnum í Reykjavík, ásamt þrem systrum, en einn bróðirinn á Eyrarbakka. Jón Vigfússon stundaði stein- smiði alla tið eftir að hann flutti til Reykjavákur, og bjó lengst af að Njálsgötu 35. Jón var hagur vel og þótti f mörgu bera af í iðn sinni, enda má enn sjá snilldar- handbragð hans á ýmsum mann- virkjum í Reykjavík, þó að nú sé fæstum kunnugt hver fram- kvæmdi verkið. Bræðurnir hófu báðir undir- búning lífsstarfs síns með námi f Iðnskóla Reykjavikur, jafnframt því að þeir gerðust nemar i járn- smíði hjá sama meistara, Jóni Sig- urðssyni Laugavegi 54. Að loknu námi f járnsmíði inn- rituðust þeir f Vélskóla íslands, þaðan lauk Ágúst prófi 1925 en Sigurjón útskrifaðist 1930, að loknu námi. Báðir voru þeir bræður smiðir góðir og færir I sinni iðn, enda er talið að Ferjuætt hafi löngum alið mikla hagleiksmenn og smiði, svo að orð var á gert. Þó að lifsstarf þeirra bræðra hafi ekki orðið við rennibekk eða steðja, svo sem i fyrstu hefði mátt ætla, var það jafnan f tengslum við þá iðn og höfðu þeir ætíð mikil samskipti við iðnaðarmenn i þessari grein. Með aukinni vélskipaeign landsmanna, varð þörfin fyrir sér- menntaða menn f vélgæslu æ brýnni. Vélstjórn á skipum varð því ævistarf þeirra bræðra. I fyrstu var eingöngu um að ræða stjórn gufuvéla, enda allt nám við þær miðað. Engu að síður reynd- ust þeir bræður þess umkomnir að taka að sér gæslu dfeselvéla, þegar þær komu til sögu, enda höfðu þeir fylgst vel með þróun mála I þessari grein og eðlislæg athygli og næmi gerði þeim kleift að verða f fremstu röð sinna sam- starfsmanna. Ágúst hóf vélstjórn á togara Framhald á bls. 26 NÝ DEILD (í kjallara undir matvörudeild) ■ 11 jy ippy rfff | ; ■■ | 3]Electrolux 2]Electrolux HEIMILISTÆKI ELDHÚSINNRÉTTINGAR BÖKUNAR OG GRILLOFNAR, HELLUR, DJÚPSTEIKINGARPOTTAR OFL. Rowenla HEIMILISTÆKI Brumarkaðurinnhf. 1 Arrr Ma iúla 1A. Húsgagna og heimilisd. S-86-112 tvörudeild S-86 111. Vefnaðarv.d. S-86-113 Lækkun á sykri 25 kg. sekkur á 2950. — (1 kg. 118.—) 10 kg. pakkning á 1200.— (1 kg. 120.—) Opið aftur á laugardögum frá 9—12. 15 úrvals vörutegundir á helgarpöllunum (m.a. C-11 — 3 kg. Epli 2 kg. Eldhúsrúllur 2 stk. W.C. pappír 2 stk. Rúgmjöl og heilhveiti.) Munið að kvöldhelgarsalan er opin til kl. 23.30 öll kvöld. — Takið búðarkerruna með út að bílnum. vfl ,Vö íkurbær, ^örumarkaður, sími 2042-44

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.