Morgunblaðið - 16.10.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.10.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1976 Gódur árangur af hita- stigulsborunum í sumar Meiri hiti mældist í berglögum við ísafjörð, Hvolsvöll, Eskifjörð og Grundarfjörð en búizt var við t SUMAR hefur verið unnið að svokölluðum hitastigulsborunum á þéttbýlissvæðum um allt land en þessír staðir eiga það allir sammerkt að ekki er vitað um jarðhita á yfirborði þar 1 grennd. Með þessum borunum má kanna hita 1 berggrunni og þannig fá einhverja vfsbendingu um hvort einhver von sé til þess að heitt vatn leynist undir yfirborði jarð- ar. Að sögn Kristjáns Sæmunds- sonar, jarðfræðings hjá Orku- stofnun, hafa hitastigulsboran- irnar 1 sumar þegar borið svo góðan árangur á f jðrum stöðum á landinu að full ástæða þykir til að rannsaka þessi svæði frekar. 1 fjárlögum þessa árs var varið um 30 milljónum króna til þessa verkefnis og samkvæmt fjárlög- um næsta árs hefur fjárveiting þeirra vegna verið aukin um 10 milljónir. í sumar hafa verið bor- aðar holur á Hellu og Hvolsvelli, eftir er að bora við Vik í Mýrdal, Qrkustofnun; Kaup á nýjum bor í athugun ORKUSTOFNUN hefur f athugun að festa kaup á nýjum jarðbor og hefur gert tilboð f nokkra bora en ekkert er ákveðið f þessu efni enn sem komið er, að sögn Isleifs Jónssonar, forstöðumanns jarð- boranadeildar Orkustofnunar. Að sögn Isleifs hafa menn aðal- lega augastað á bor af svipaðri stærð og Narfi eða sem getur borað niður á um 1500 m dýpi. Myndi þeim bor ætlað að sinna þörfum sveitarfélaga líkt og Narfi gerir nú. Bor af þessari stærð kostar nú milli 70 og 80 milljónir króna, en ekki er á fjárlögum næsta árs gert ráð fyrir sérstakri fjárveitingu til Framhald á bls. 18 WMMIfSJB = = - ein hola hefur verið boruð á Eski- firði, önnur á Vopnafirði, ein á Skagaströnd, ein á Hólmavfk, lok- ið við holu á ísafirði, sem byrjað var á síðasta ári, þá var og boruð ein hola á Þingeyri, á Patrekst- firði, Grundarfirði og Stykkis- hólmi, sem verið er að vinna við um þessar mundir. Að sögn Kristjáns eru boraðar um 100 metra djúpar holur f þeim tilfellum þar sem bergið er sæmi- lega þétt til að fá megi marktæk- an hitastigul en fara verður dýpra þar sem við er etja lek berglög. Þannir þurfti að bora niður á 400 metra dýpi á Patreksfirði og Hellu, niður á tæpa 600 metra á Hvolsvelli og á ísafirði, og Kristj- án kvaðst búast við að bora þyrfti minnst 600 metra við Vík í Mýr- dal Kristján sagði, að ekki væri unnt að gera hitastigulsmælingar á berginu fyrr en nokkuð væri liðið frá boruninni, en niðurstöð- ur einstakra borana væru þó smám saman að skýrast. Mætti segja að útkoman til þessa væri f þá veru, að fleiri holur reyndust hafa háan hitastigul en fyrirfram hefði mátt búast við. Nefndi hann sem dæmi holur þær, sem boraðar voru á Isafirði, í Grundarfirði, á Eskifirði og Hvolsvelli, sem allar gæfu til kynna að rétt væri að kanna nánar hvort heitt vatn gæti valdið hinum háa hitastigli, sem komið hefði fram i berginu á þess- um stöðum. Kristján kvaðst gera ráð fyrir að einhverjum hluta fjárveitinar- innar til þessa verkefnis fyrir næsta ár yrði einmitt varið til að gera frekari athuganir í grennd við þá staði, sem gáfu hvað bezta raun nú, t.d. á fleiri þéttbýlisstöð- um á Austfjörðum og Vestfjörð- um. Markmið þessara rannsókna er eðlilega að leiða í ljós hvort grundvöllur kunni að vera fyrir hitaveitu á ýmsum þéttbýlisstöð- um, þar sem ekki var áður vitað með að jarðhita væri að finna. Hafnarfjörður: Allar götur malbikað- ar innan fjögurra ára Unnið er að þvt þessa daga að ijúka við samningu áætlunar yfir varanlega gatnagerð i Hafnar- firði. Samkvæmt þeirri áætlun á að vera lokið við að malbika allar götur 1 Hafnarfirði á næstu 3—4 árum. Kostnaður við þessar fram- kvæmdir eru áætlaður um 500 milljónir og er ( þeirri upphæð reiknað með kostnaði við frágang rafmagnsveitunnar og gangstétt- um að mestu leyti. Að sögn Árna Grétars Finnsson- ar hefur heildaráætlun um varan- lega gatnagerð í Hafnarfirði ekki verið til fyrr en nú. Þegar er lokið talsverðri undirbúningsvinnu varðandi gatnagerðina og t.d. hafa hitaveitufrankvæmdir undanfarin ár verið miðaðar við að ekki þyrfti að raska við þeim vegna malbikunarframkvæmda. Siðastliðin tvö ár hefur verið unnið að því að endurnýja hol- ræsi f eldri götum bæjarins og holræsi þar sem þau voru ekki fyrir. Reyndar var hafizt handa þegar í ár við varanlega gatnagerð og að sögn Arna Grétars Finnssonar hefur í ár verið unnið fyrir um 30 milljónir króna við malbikun og undirbúningsvinnu. Aætlunin um gatnagerðarframkvæmdirnar næstu 3—4 árin verður lögð fram innan mánaðar og eins og áður sagði er samkvæmt henni áætlað að allar götur f Hafnarfirði verði malbikaðar og frágengnar innan fjögurra ára. Suzanne H. Ralph Financial Times undirbýr blað um íslenzk málefni BREZKA blaðið Financial Times 1 London hyggst birta sérstakan greinaflokk um Island og fslenzk málefni. Verður það uppistaðan ( einu blaði I nóvember eða desem- ber n.k. Sérgrein Financial Times eru viðskiptamál og er blaðið eitt virtasta blað á sfnu sviði í heimin- um. Það fer lfka daglega út um allan heim, til fyrirtækja, banka, stjórnarstofnana o.fl., og eru t.d. 15 áskrifendur að þvf á Islandi. Hér er nú staddur einn af starfsmönnum blaðsins, Suzanne H. Ralph, sem komin er til að undirbúa útkomu blaðsins um Is- land. En hún er frá auglýsinga- deildinni. Ðegar tekið er fyrir slíkt efni sem aðalefni f blaðinu, er leitað til auglýsenda, en auglýs- ingar þurfa að vera um helming- ur að efni. Þannig var það 1969, þegar Financial Times gaf út blað að mestu um íslenzk málefni. Þá voru þar undirstöðugreinar um landið, á 5 blaðsíðum, mjög ítar- legar með myndum, en íslenzk fyrirtæki auglýstu á móti í blað- inu. Sagði Suzanne H. Ralph við blaðamann Mbl., að hún væri þannig að kanna umfang efnisins Framhald á bls. 18 99 Ég hvorki braut lög né hótaði að brjóta lög” — segir Eyjólfur Konráð Jónsson alþm AÐ UNDANFÖRNU hefur því hvað eftir annað verið haldið fram í nokkrum fjölmiðlum, að Eyjólfur Konráð Jónsson al- Skagafirði." 1 gær, 15. október, birtir aðstoðarmaður Þórarins Þórarinssonar leiðara úr Fram- sóknarblaðinu Degi á Akureyri þar sem segir m.a.: „Hitt er mjög vafasamt, hvort hann á nokkurn siðferðilegan (eða lagalegan) rétt til að sitja á Alþingi eftir að hafa opinber- lega tilkynnt ákvörðun sfna um skýlaust lagabrot mað dráps- vopn í hönd.“ 1 Dagblaðinu hinn 13. októ- ber sl. birtist svonefnt ,,les- endabréf" sem bar fyrirsögn- ina: „Biddu fólk afsökunar og segðu af þér þingmennsku, Eyjólfur." Og f Þjóðviljanum hinn 12. október sl. segir rit- stjórinn Svavar Gestsson, að Morgunblaðið „hafi reynt að sveipa sig löghlýðniskápunni. En nú hefur orðið breyting á þessu. Eyjólfur Konráð Jóns- son hótar að skera og skjóta hrúta norður f landi, hvað sem tautar og raular, hvað sem öll- um reglugerðum og lögum líð- ur.“ Loks voru sönn brigzl höfð f frammi í útvarpsþætti Páls Ileiðars Jónssonar. 1 tilefni af þessum ftrekuðu aðdróttunum um lögbrot eða hótun um lögbrot, sem aðallega hafa birzt í málgögnum Fram- sóknarflokksins sneri Morgun- blaðið sér í gær til Eyjólfs Kon- ráðs Jónssonar og leitaði um- sagnar hans um þessar aðdrótt- anir. Svar hans var svohljóð- andi: „Ég hvorki braut lög né hót- aði ég að brjóta lög. Það geta góðir lögfræðingar auðveldlega sannað, en slæmir stjórnmála- menn auðvitað ekki skilið." þingismaður hafi haft í hótun- um um að fremja lögbrot vegna deilu um sláturleyfi á Sauðár- króki. Alveg sérstaklega hefur dagblaðið Tfminn verið iðið við að koma þessu sjónarmiði á framfæri. Þannig sagði aðstoð- armaður Þórarins Þórarinsson- ar hinn 12. október sl. að „margir (bfða) spenntir eftir leiðara f Mbl um hinn skot- glaða þingmann, Eyjólf Konráð Jónsson, sem hótaði að taka iög- in I sfnar hendur norður í Agaívysið f þjóðfólaginu Nýleg* birtust bugleieSagar I blafthia D«gl A Aknreyri um f þjóOTétagiaa. Pmr »«gir ».*.: * . v . „Eins ér jP alXBgii- »»»»»• ,f y)- m , ðtfar K«nri» ,» UF 1 r kyoall virftn- l«*0« ráðtt- Hrðtttt «(■», ir»..^il \ -BB IBBtt by««n I httwi ^Tkaöur”. En situr i rikisstjórn svartamarka6sbraskir> ''aldret fyrr. Dregur Eykon dilk á eftir sér? j A undanförnum árum hefur • Eyjólfur Konráö Jónsson skrif- 5 "Tfraga1diUnTeftir sér Sjálfstæóisflokkinn. i>aö skipt- . ir óneitanlega frá þeim svip viröuleikans sem Morgunblaóió hefur stundum reynt aö setja upp til þeirrar skotgleói sem birtist I hótunum Eyjölfs Kon- ' ráös viö skagfirska hrútinm Veröur fróölegt aö fylgjaát meö bvi hvort forustumenn Sjált- stæöisflokksins muni 1 framtió- inni beita andskota sina slikunr. hótunum, utan sláturhúsa. »/. Biddu fólk ofsökunar og segðu af þér þingmennsku, Eyjólfur!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.