Morgunblaðið - 16.10.1976, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.10.1976, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKT0BER 1976 Sykurnáma Siggu gömlu Eftir Ann Richards 8. Hann Iagði hendurnar á bakið og byrjaði aó ganga, boginn og herðalotinn eins og reitt tigrisdýr. Ekki ætlaði hann sér aö fara að húsi Siggu gömlu, en á það rakst hann nú einmitt, og að öllum líkind- um vegna þess, að hann var að hugsa um Alla og Siggu. Að minnsta kosti var það svo, að hann snarstoppaði allt í einu fyrir utan trjágirðingu Siggu gömlu, og þegar hann kíkti í gegnum laufþykknið, hvern skyldi hann þá sjá nema Siggu og Alla, þar sem þau voru við vinnu í garðinum. Eins og þið vitið, hafði Sigga gamala ánægju af öllum sætindum. Ekkert hafði hún meiri ánægju af en að baka kökur og búa til sultutau og saft úr berjum. En til að geta þetta, varð hún að eiga sykur og svo ráðagóð var hún, að hún ræktaði sykurrófur, en úr þeim vann hún svo allan þann sykur, sem hún þarfnaðist. Alli árrisuli dró ekki af sér, þegar hann hjálpaði henni að rækta sykurrófurnar, því hann gerði sér ljóst, hversu bráð- nauðsynlegar þær voru. Gráálfur greip andann á lofti. Ekki vildi hann láta sjá sig, en hann dauð- langaði að komast aö því, hvað Sigga og Alli væru að gera. Meginástæðan fyrir því var auðvitað sú, að hann vildi eyði- leggja það, sem þau unnu að. Það var Alli árrisull sjálfur, sem leysti gátuna fyrir Gráálf, og svona vildi það til. Alli hafði pælt garðinn fyrir löngu síðan, og sett niður rófurnar og var í þessu að reita milli plantnanna. „Þetta verður nú meiri uppskeran!“ kallaði hann til Siggu gömlu, sem stóð rétt hjá honum. „Sykurrófurnar ætla að reynast vel i ár“. Og þessi fáu orð sögðu Gráálfi allt það, sem hann óskaði eftir aö vita. „Sykurrófur“, tautaði hann. „Svoþetta eru þau þá að dunda vió! Jæja, þau skulu fá nóg af sykurrófunum sínum!“ Svo læddist hann út í skóginn og braut heilann um það, hvernig hann gæti eyði- lagt sykurrófuuppskeru Siggu gömlu. Maður frá skatt- rannsókna- deildinni vill taia við þig! GRANI göslari Nú kemur sér vel fyrir hann að hafa æft kraftstokk! Þetta er í sjálfu sér ágætis eyja, en ókostur hve mikill munur er á flóði og fjöru. Gjaldkerinn: Ég gerði ráð fyrir að fá kauphækkun um nýár. llúshóndinn: Þar hefur yður misreiknast, og ég get ekki not- að gjaldkera, sem reiknar skakkt. Éáum þótti neitt varið f skáld- skap skáldsins nema því sjálfu. Það greip því hvert tækifæri sem gafst til þess að lesa upp kvæði sfn. Svo var það einu sinni í stóru samkvæmi að skáldið las upp nokkur kvæði, en fann að áheyrendur tóku þeim heldur þurrlega. Ilann mælti þá gremjulega að lokum: „Ég hef ákveðið að kvæði þau. s____________________________ sem ég á heima, megi ekki birt- ast fyrr en ég er dauður.“ Þá hóf einn gestanna gias sitt og hrópaði: „Lengi lifi skáldið." Mér er sagt að konan þín hafi hlaupizt á brott með bflstjóran- um þfnum. — Það er rétt, en það sakar ekki svo mjög. Ilann átti hvort sem var að fara um mánaða- mótin. „Éæ ég allt, sem ég bið guð um, niamma?" „Já, allt, sem er gott fyrir þig.“ „Uss, hvaða gagn er að því, það fæ ég hvort sem er.“ Fangelsi óttans Framhaldssaga eftir Rosemary Gatenby Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 46 hrædda að hún dirfðist ekki að segja neinum þaðsem hún vissi. Og hvað vissi hún svo sem þegar allt kom til alls? Sem betur fór höfðu Rosalía og Émilío ekki séð manninn né vissu hvað um hann hafði orðið. Það var engin ástæða til að hún segða Miguel frá þessu. Það gat skapað vandamál fyrir þau öll. Miguel var bara piltur frá La Paz, sem hún þekkti ekki... 10. kafli Þeir óku lengi með vörubflinn á hælum sér. Þýðingarlaust var að hugsa til þess að komast undan nú. Éf það tækist að eyðileggja bílinn og ráða niðurlögum Wheelocks myndi Dan Bayles ekki bfða boð- anna. Hann varð að bíða átekta enn um hrfð. Loks sagði Wheelock honum að sveigja út til hliðar og hinkra við. Örskömmu sfðar var vörubfllinn kominn upp að þeim og Bayles rak höfuðið út um gluggann. — Hvað nú? hrópaði Dan. Whelock sneri sér víð til að sjá betur inn til hans og orgaði: — Við verðum að bíða hér þangað til fer að birta. Ég vil ekki tefla f þá tvfsýnu að vörubállinn festist. — I lagi. Bayles lagði bflnum rétt fyrir framan þá og sté út. — Nokkur vandræði meðhann? — ekki vitund. Þeir biðu lengi. Art Whelock steig út úr bflnum til að teygja úr sér og á meðan miðaði Bayles byssunni á Jack. — Það á að vera einhvers staðar hér f grenndinní, heyrði Jack að Whelock sagði við Bayles. — Hvernig lýsti Tim þvf? — Tim! Það hlaut að hafa verið Tim Donan sem lokkaði Vern burtu f fyrri viku. Þá hlaut Tim að hafa verið á vettvangi enn. Hann og kona hans gættu Helene White. Veik von bærði á sér f brjósti Jack þegar hann hlustaði á þetta. Héldu þeir Vern virkilega föng- um einhvers staðar f nágrenninu? Gat þá verið að hann væri lif- andi? Éða hafði hann verið skil- inn eftir allslaus f eyðimörkinni? Meðan þeir sátu og biðu varð Jaek hugsað til þess sem Dwight Percy hafði sagt honum um Bajatangann. Um það hversu viilugjarnt var á þessu svæði. Þeir sem urðu uppiskroppa með bensfn eða vatn. Eða dóu úr þorsta. Það var farið að lýsa af degi. Éjöllin umhverfis voru nær en honum hafði sýnzt. Whelock settist aftur inn við hlið hans og Bayles settist við stýrið á vörubflnum. Þeir óku áfram en nú var Bayles á undan. Enn óku þeir drjúgan spotta, en sfðan minnkuðu þeir ferðina. Eft- ir þvf sem Jack hafði heyrt af samtali þeirra, var honum Ijóst að þeir voru að svipast um eftir inn- keyrslu. Nú gátu þeir slökkt á Ijósunum. Skammt fyrir framan þá nam vörubflinn staðar og Dan hafði stigið út og gekk nú fram og aft- ur. Það var eins og hann væri að kanna slóð sem lægi inn f kjarrið. Hann kom aftur og hristi höfuð- ið. — Þetta var ekkert! hrópaði hann og hraðinn var aukinn á ný. Smám saman varð landslagið hrjóstugra en áfram var haldið. Jack fygldist með á kflómetra- mælinum hvað leiðin væri oðin löng sem þeir höfðu ekið eftir að þjóðveginum sleppti. Ef vagninn festist eða fer ofan f holu er úti um yður, sagði Whe- lock einu sinni. Hér úti f eyði- mörkinni var furðu fjölskrúðugt dýralff. Litla eðlur skutust til og frá. Tvívegis sá hann slöngur. Nú greindist vegurinn og Bayl- es virtist um stund ekki alveg viss um hvert skyldi stefna. Hann valdi að aka til vinstri. Og svo festist bfllinn. Hægra afturhjól rann til á steini og festist f sand- inum. Jack revndi að bakka og taka áfram en allt kom fyrir ekki. Honum var skipað að stfga út. Bayles hafði einnig numið stað- ar og kom nú f áttina til þeirra. Svo stóð hann kyrr og virti þá fyrir sér. Wheloek tók bfllyklana út og gekk þvf næst að farangursrým- inu og gægðist inn. Svo kallaði hann á Jack. Þar var svefnpoki og taska. Hann þekkti hvort tveggja. Þar voru eigur Verns og stafirnir hans voru grafnir f töskuna. Þarna voru einnig tvær Ijós- myndavélar. Whelock tók aðra vélina og skoðaði hana. Þetta var eftirlætis vél Verns, Nikonvél með sterkri aðdráttarlinsu. Jack fann skelfinguna gagn- taka sig. Það hafði varla runnið upp fyrir honum fyrr en nú að eitthvað alvarlegt hefði komið fyrir Vern. — Efuðust þér um að þetta væri bfllinn sem vinur yðar var á? Whelock tók aðra myndavéiina og slengdl henni um hálsinn á sér. Svo lokaði hann farangurs- rýminu og sagði: — Aftan á vörubflinn. Jack sveiflaði sér upp á pallinn og Art kom á eftir honum. Hann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.