Morgunblaðið - 16.10.1976, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1976
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Sjálfstæðishúsinu Bolholti 7 á
laugardögum frá klukkan 14:00 til 16 00 Er þar
tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum ogábendingum
og er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér
viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 16. október verða til viðtals
Guðmundur H. Garðarsson, alþingismaður,
Ragnar Júlíusson, borgarfulltrúi,
Sveinn Björnsson, varaborgarfulltrúi.
VIÐTALSTIMI
Torfi Jónsson opnar
Loftinu”
syningu 1
TORFI Jónsson opnar sýningu á
33 vatnslitamyndum og sjö
pennateikningum og grafíkmynd-
um á „Loftinu" á Skólavörðustfg
4 f dag. Sýning þessi var fyrst til
húsa f húsnæði „Graffkur og
hönnunar" að Skúlagötu 61, en
það fyrirtæki rekur Torfi ásamt
Ottó Ólafssyni. Vegna áskorana
hefur Torfi nú skipt um sýningar-
stað.
9*
Torfi nam myndlast, grafík og
teikningu í Þýzkalandi, en eftir
að hann kom frá námi stundaði
hann kennslu við Myndlista- og
handiðaskóla íslands í 14 ár.
Sýning Torfa stendur í 2 vikur
og verður opin frá 9—18 virka
daga og um helgar frá 14—18
Allar myndirnar eru til sölu á
sýningunni.
Nigeríumenn hafa óskað eftir við
ræðum við okkur beint og ætti
það að vera ljóst innan skamms
hvort við tökum að okkur verk-
efni i Nfgeriu og þá hvers konar,
sagði Sigurður að lokum.
Breiðholtsmenn bjartsýnir
á að fá verkefni í Nígeríu
FULLTROl frá byggingarfyrir-
tækinu Breiðholti hf. fer um
næstu helgi til Nlgeríu þar sem
hann mun ræða við þarlenda að-
ilja um hugsanleg verkefni sem
Breiðholt tæki að sér við bygg-
ingarframkvæmdir þar.
Sigurður Jónsson forstjóri
Breiðholts sagði í viðtali við
Morgunblaðið i gær, að allt það
sem fyrirtækið hefði heyrt frá
Nígeríumönnum upp á síðkastið
hefði verið jákvætt og því teldu
þeir mikla möguleika á að fyrir-
tækinu yrðu falin verkefni þar í
landi. Málið er komið á það stig að
Nefnd kannar
vanda smásölu
í dreifbýli
HINN 13. þ.m. skipaði við-
skiptaráðherra þriggja
manna nefnd til þess að
athuga sérstök vandamál
smásöluverslunar í dreif-
býlinu og gera tillögur til
úrbóta.
I nefndina voru skipaðir Georg
Ólafsson, verðlagsstjóri, for-
maður, Kristmann Magnússon,
frkvstj., eftir tilnefningu
Verslunarráðs tslands, og Axel
Gíslason, frkvstj., eftir til-
nefningu Sambands ísl. sam-
vinnufélaga.
(Fréttatilk. frá Viðskiptaráðu-
neytinu).
44 bátar stunda rækju-
veióar við Djúp:
Gífurlegt seida-
magn á Húnaflóa
og í Öxarfirði
(Ijósm. Rax.
Torfi Jónsson með pennamynd,
gerð með bambusreyr I Suður-
Frakklandi og vatnslitamynd,
sem hann nefnir „Orminn langa".
Verid ad ljúka
við að þétta lón-
ið við Sigöldu
ÞESSA dagana er verið að Ijúka
við að þétta lónið við Sigöldu, en
sem kunnugt er kom I Ijós leki á
nokkrum stöðum er lónið var fyllt
I tilraunaskyni I ágústmánuði. Að
sögn Gunnars Páis Olafssonar
verkfræðings Landsvirkjunar við
Sigöldu verður lónið fyllt á nýjan
leik (lok þessa mánaðar.
Nú er einnig verið að ljúka við
steypuvinnu i aðrennslisskurði
þannig að hægt verður að hleypa
þangað vatni I nóvember. Áætlað
er að byrjað verði að prufukeyra f
nóvember og desember en fyrir
áramót á fyrsta vélin til orku-
framleiðslu að vera tekin til
starfa. Mun hún framleiða 50
megawött og sömuleiðis hinar
tvær vélarnar, sem teknar verða í
notkun með fjögurra mánaða
millibili á næsta ári.
Nú starfa um 700 manns hjá
hinum ýmsu verktökum hjá Sig-
öldu og er það svipaður fjöldi og
vann þar i sumar.
RÆKJUVEIÐAR við Isafjarðar-
djúp hófust I morgun og að þvf er
Jón B. Jónsson, fulltrúi f sjávar-
útvegsráðuneytinu, tjáði Morgun-
blaðinu f gær, þá munu 44 bátar
stunda þessar veiðar f vetur og
eru það Iftið eitt fleiri bátar en á
s.l. vetri. Þá kom fram hjá Jóni,
að veiðar á rækju hafa verið
bannaðar um óákveðinn tfma f
Oxarfirði vegan gffurlegs seiða-
magns og sömu söguna er að segja
úr Húnaflóa, þar hafa veiðar ekki
hafist enn vegna mikils seiða-
magns.
Jón sagði, að rækjuveiðarnir í
öxarfirði hefðu verið stöðvaðar í
fyrradag formlega, en reyndar
hefðu sjómenn á rækjubátum þar
verið hættir veiðum áður, þar sem
þeim blöskraði seiðamagnið sem
kom inn með rækjutrollinu, og
létu þeir vita um þetta. Vilhjálm-
ur Þorsteinsson fiskifræðingur,
sem hefur aðsetur á Húsavfk, fór
út með einum bátnum til að at-
huga málið og fengust að jafnaði
um 3500 seiði á togtfma, sem þyk-
ir óheyrilega mikið, og eru rækju-
veiðar jafnan stöðvaðar ef seiða-
magn fer fram yfir 500 á togtfma.
Þá sagði hann að við rannsóknir
Diskótek” fyrir
yngri kynslóðina
UNGTEMPLARAFÉLAGIÐ
Hrönn mun f vetur gangast fyrir
„diskótekum" fyrir unglinga f
Templarahöllinni á föstudögum
og laugardögum. Á föstudags-
kvöldum verður diskótek fyrir 13
ára og eldri, en tækjabúnaður og
plötuúrval hefur verið stórbætt
frá þvf sem áóur var. Hafa 200
unglingar komið f Templarahöll-
ina f þau þrjú skipti sem ung-
Akureyri
DQnSSHðll
sTunmssonnR
Flokkar fyrir börn (yngst 4 ára), unglinga og
fulloröna (einstaklinga og hjón). Byrjendur og hjón
Byrjendur — Framhald.
Innritun í Alþýðuhúsinu mánudaginn 18. október og þriðjudaginn 19.
október kl. 1 —7 báða dagana og í síma 23595.
Athugið. Innritun aðeins þessa tvo daga.
hefði komið f ljós, að seiðamagn á
Húnaflóa væri mjög mikið. Það
væri reyndar misjafnt þar, en
mest komizt f 3200 á togtíma.
Langt væri síðan seiði hefðu sézt
á Húnaflóa og myndu sjómenn
vart eftir seiðum þar sfðustu 15
árin.
templararnir hafa haldið diskó-
tek þar f haust. Þess má geta að
engin vandræði af neinu tagi hafa
komið upp f sambandi við þessar
skemmtanir, hvorki innan húss
eða utan.
A laugardagskvöldum er svo
ætlun Hrannara að hafa diskótek
fyrir unglinga 15 ára og eldri.
Verður f hvert skipti reynt að
hafa diskótekin með sérstöku
sniði og þannig verður t.d. í
kvöld lögð áherzla á að fólk mæti
klætt samkvæmt tízkunni eins og
hún var fyrir 10—15 árum. Þ.e. í
þröngum gallabuxum, támjóum
skóm og herrarnir jafnvel með
brillantíngreiðslu. Tónlistin, sem
verður leikin verður svo með
köppum eins og Elvis Presley í
aðalhlutverkum.
Nemar í bygg-
ingariðnaði
mótmæla frum-
varpi um nýja
vinnulöggjöf
FUNDUR f Félagi nema f bygg-
ingariðnaði mótmælir harðlega
frumvarpi að nýrri vinnulöggjöf.
Segir f ályktun fundarins að það
muni rýra stórlega réttarstöðu
verkalýðshreyfingarinnar og
skerða samnings- og verkfallsrétt
hennar.
Þá segir f ályktuninni að frum-
varpið sé samið án samráðs við
A.S.I. og geri Félag nema í bygg-
ingariðnaði ráð fyrir að reynt
verði að fá frumvarpið samþykkt
á fyrstu vikum þingsins og á þann
hátt komið í veg fyrir að þing
A.S.Í. geti fjallað um það. Félag
nema í byggingariðnaði hvetur
verkalýðshreyfinguna til að
standa vörð um sjálfsögð réttindi
sín og mótmæla harðlega slíku
gerræði segir að lokum á ályktun
fundarins.
Austfirding-
ar með helg-
armót í skák
Helgarmót á vegum Skáksam-
bands Austurlands fer fram á
Egilsstöðum um aðra helgi.
Tefldar verða sex umferðir eft-
ir Monrad-kerfi og umhugsunar-
tfmi verður ein klukkudtund á
mann á hverja skák. Teflt verður
í barnaskólanum og hefst taflið
klukkan 14 laugardaginn 23. októ-
ber. Öllum er heimil þátttaka í
mótinu.