Morgunblaðið - 16.10.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÖBER 1976
15
Sovézki sellóleikarinn Rostropovich:
Nafn mitt
var máð út
London 15. október — Reuter.
SOVÉZKI sellóleikarinn Mstislav Rostroprovich
sagði f viðtali við BBC-sjónvarpið f Bretlandi f
gærkvöld, að það væru mikil mistök hjá Sovétstjórn-
inni að reyna að steypa alla þjóð sfna í sama
hugmyndafræðilega mótið. Rostropovich, sem fór
frá Sovétrfkjunum 1974, kom fram f sjónvarpinu
ásamt eiginkonu sinni, sópransöngkonunni Galina
Vishnevskaya.
Rostropovich sagði að so-
vézka skriffinnskan væri farin
að ganga mjög nærri mörgum
meiriháttar listamönnum. ,,Ég
er ekki stjórnmálamaður, held-
ur hljómlistarmaður, en mér
finnst að hver manneskja eigi
að hafa rétt til að segja það sem
hún hugsar og til að hafa sínar
hugsanir í friði... Það er
ómögulegt fyrir 250 milljónir
manna að hugsa eins og ein
hljómsveit," sagði hann.
Sovézka stjórnin lengdi dval-
arleyfi Rostropovich erlendis í
ár um 12 mánuði. Hann sagði að
honum hefði ekki verið boðið á
tvöhundruð ára afmæli Bolshoi-
leikhússins í Moskvu í maf síð-
ast liðnum, en hann starfaði i
námum tengslum við leikhúsið
f 20 ár.
„Og eftir allt þetta sendu vin-
ir mínir mér stóra ferðatösku
með prentuðu efni frá afmæl-
inu. öllum blöðum, öllum dag-
skrám, öllum tímaritum og öll-
um bókum, sem gefnar voru út
af þessu tilefni. .. Þar var eng-
in Vishnevskaya nefnd.. . og
mitt hafn hafði algerlega verið
máð út,“ sagði hann.
Galina Vishnevskaya, sem
var einsöngvari við Bloshoi-
leikhúsið, sagðist álíta að það
væri erfitt fyrir unga listamenn
að vera í Sovétríkjunum.
Rostropovich, sem er f Lon-
don vegna tónleikahalds, sagði
að hann ætlaði að biðja vini
sína um allan heim að hjálpa
sér ef sovézka stjórnin meinaði
honum að fara heim.
Hann sagði að svo virtist sem
sovézk sendiráð hefðu fengið
fyrirskipanir um að senda ekki
fólk á tónleika hans á Vestur-
löndum.
;,Ég elska landið mitt. Ég
elska þjóðina mina og konuna
mfna, og við söknum heim-
kynna okkar. .. en það eru ekki
okkar mistök og ef við reynum
að hafa áhrif á stjórn okkar eða
kerfið til að koma okkar málum
til leiðar, þá gerum við það ekki
með þvf að breyta hugarfari
okkar eða einlægri ást okkar á
fólki," sagði hann.
íslenzk skip
til aðstoðar
Brest, 15. október. Reuter.
AUSTUR-ÞVZKT olfuskip sökk 1
miklu fárviðri undan strönd Bre-
tagne-skaga 1 nótt og 32 manna af
35 manna áhöfn skipsins er sakn-
að.
íslenzkt flutningaskip tók þátt i
tilraunum til að finna skipsbrots-
mfenn auk franskrar flotaflugvél-
ar og fransks togara. Nafn fs-
lenzka skipsins fékkst ekki stað-
fest, en Saga, eign Sjóleiða h/f,
var á svipuðum slóðum og austur-
þýzka skipið.
Franska ávaxtaflutningaskipið
Fort Pontchartrain bjargaði loft-
skeytamanni skipsins. Hann sagði
að fjórum gúmbjörgunarbátum
hefði verið fleygt fyrir borð þegar
ákveðið var að yfargefa skipið.
Hann kvaðst ekki vita hve
margir skipsfélagar hans hefðu
komizt f gúmbjörgunarbátana, en
þeir hafa ekki fundizt.
Skipið hét Böhlen og var 7.875
lestir. 1 Austur-Berlin var sagt að
tvö austur-þýzk flutningaskip
hefðu tekið þátt í leitinni að
áhöfninni.
Böhlen var á leið frá Venezúela
til Rostock í Austur-Þýzkalandi
þegar það sökk. Eiginkonur
tveggja af áhöfninni voru með í
ferðinni.
Fjöldi annarra skipa átti í erfið-
leikum á Ermarsundi í nótt og 38
manns af vestur-þýzkum skipum
drukknuðu. Að minnsta kosti
tveir brezkir fiskimenn fórust i
fárviðrinu. Flugvélar brezka flug-
hersins tóku þátt í leitinni að
Böhlen.
Fárviðrið olli flóðum á nokkr-
um stöðum í London og vfðar,
meðal annars á stóru landbúnað-
arsvæði á Suðaustur-Englandi.
Nefnd kannar
grænapaveiki
3 pólitískir f angar í
nefnd Abel Muzorewa
Salisbury, 15. október.
Reuter.
Sá armur Afríska þjóðar-
ráðsins (ANC) sem fylgir
Abel Muzorewa biskupi að
máli skipaði í dag þrjá
pólitíska fanga í sendi-
nefnd sína á Genfar-
ráðstefnunni um framtíð
Rhódesíu.
Heimildír f stjórn Rhó-
Stakk konu
sína sofandi
London 15. október — Reuter.
Félagsráðgjafi nokkur rak
eiginkonu sína á hol með hnff á
meðan hann dreymdi að hann
væri að berjast við ólátaseggi á
knattspyrnuleik, að þvf er hann
bar fyrir rétti f dag. Rétturinn
sýknaði félagsráðgjafann af
ákæru um að hafa sært konu sína
með vilja. Leiddust þau hjón inni-
lega þegar þau gengu út úr rétt-
inum. ______ ________
Lögreglu-
stjórar þinga
um flugrán
Accra 15. október — Reuter
LÖGREGLUSTJÓRAR frá 90
iöndum hófu í dag umræður um
hvernig koma mætti i veg fyrir
flugrán og svartamarkaðsbrask
með gjaldeyri, á 24. þingi alþjóða
lögreglusamtakanna Interpol,
sem sett var í Accra, höfuðborg
Ghana, í dag.
Forseti Interpol, William Higg-
ins, sem er kanadískur, sagði
fréttamönnum að samtökin hefðu
komið á nefnd, sem kanna á þær
öryggisráðstafanir, sem gerðar
eru gegn flugránum
desíu herma að sennilega
verði ekki lagzt gegn því að
þeir verði látnir lausir svo
framarlega sem þeir hafi
ekki framið glæpi.
Nefndin verður skipuð
31 manni og þar á meðal
verður dr. Edson Sithole,
einn kunnasti leiðtogi
blökkumanna i Rhódesíu,
er hvarf með dularfullum
hætti fyrir einu ári.
Þar með virðast
stuðningsmenn Muzorewa
biskups telja að stjórn Ian
Smiths hafi dr. Sithole í
haldi þótt hún hafi neitað
því.
Nefnd Muzorewa er álíka
fjölmenn og nefnd þess
arms ANC sem fylgir
Joshua NkomQ að málum. í
þeirri nefnd verður Gar-
field Todd, fyrrverandi
forsætisráðherra Rhó-
desíu.
Robert Mugabe, sem al-
mennt er litið á sem leið-
toga skæruliða ZANU, seg-
ir að hann geti ekki skipað
nefnd til að sitja ráðstefn-
una þar sem gert sé ráð
fyrir of stuttum fyrirvara.
Ráðstefnan á að hefjast 25.
október og Mugabe leggur
enn fast að Bretum að
fresta henni.
Genf, 15. október.
Reuter.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
(WHO) hyggst senda nefnd sér-
fræðinga frá nokkrum löndum til
Mið-Afrfku til að kanna dularfull-
an faraldur, svokallaða grænapa-
veiki, sem hefur orðið rúmlega
300 manns að bana.
Tilraunir í rannsóknarstofum í
Bandaríkjunum, Englandi og Bel-
gfu hafa leitt í ljós að hér er á
ferðinni fágæt veirusýking sem
er þekkt undir nafninu Marburg-
veikin. Hún kom fyrst upp 1967
og varð að bana sjö visindamönn-
um sem voru að rannsaka liffæri
„græns apa“ frá Uganda, Ceco-
pithecus Aethiops.
Ekki er kunnugt um lækningu
við veikinni. Að sögn talsmanna
WHO verður vandasamt að ráða
niðurlögum hennar þar sem veir-
an er hættuleg og erfitt er að
einangra hana. Belgiski’- læknar
segja að 253 sjúklingar handan
landamæranna í Norðvestur-
Zaire hafi einnig látizt af veik-
inni. Hins vegar er haft eftir
áreiðanlegum heimildum i Nai-
robi að 118 hafi látizt í Súdan.
ERLENT
Verðbólga eykst
á ný í Bretlandi
London, 15. október.
Reuter.
VERÐBÓLGAN f Bretlandi er
aftur farin að aukast en hún hef-
ur farið minnkandi á undanförn-
um tólf mánuðum og við þetta
aukast vandræði rfkisstjórnar
Verkamannaflokksins sem á við
ótal önnur efnahagsvandamál að
strfða.
Stjórnin ákvað i gær að gefa
upp á bátinn það takmark að
minnka verðbólguna niður fyrir
tíu af hundraði á næsta ári og í
dag voru birtar nýjar tölur sem
sýna að verðlag hefur hækkað um
14.3% á 12 mánuðum.
Fyrir einum mánuði var verð-
bólgan 13.8% á ársgrundvelli og
fyrir tveimur mánuðum minnkaði
hún I 12.9%. Nú er lítil von til
þess að takast megi að halda verð-
bólgunni fyrir neðan 15% í vetur.
Þurrkunum i sumar.er kennt
um þessi siðustu áföll stjórnar-
innar í baráttu hennar gegn verð-
bólgunni þar sem þeir valda mikl-
um hækkunum á verði matvæla.
Hagræðing
í norskum
sardínu-
iðnaði
IIAGRÆÐING er nauðsyn-
leg f norskum sardfnuiðnaði
ef hann á að verða sam-
keppnisfær segir í áliti
nefndar sem hefur kannað
ástandið f niðursuðuiðnaði
Norðmanna.
Nefndin vill færri og
stærri fyrirtæki, en það
hefði f för með sér fækkun
starfsfólks. Rfkisstuðningur
yrði nauðsynlegur til að
koma þessum breytingum
til leiðar. Nefndin gerir
einnig tillögur um fjárfest-
ingarlán og skattafvilnanír.
Auk þess vill nefndin
betra markaðskerfi . Meiri-
hlutinn vill að stofnað verði
sameiginlegt útflutningsfyr-
irtæki til að selja sardfnur
þannig að komast megi hjá
skaðlegri og óþarfri sam-
keppni innanlands um verð.
Minnihlutinn vill nýtt sölu-
kerfi á vegum útflutnings-
nefndar lagmetisiðnaðarins.
Múmía Tiye drottningar fundin
Ann Arbor 15. október — AP
HIN löngu týnda múmfa Tiye
drottníngar, tengdamóður
hinnar fögru drottningar Nef-
ertiti, er nú fundin, eftir 35
aldir. Það var alþjóðlegur
hópur vfsindamanna, sem
skýrði frá þessu f Michigan-
háskóla, og fýstu þeir fundin-
um sem hinum merkasta sfðan
grafhýsi Tutankhamons kon-
ungs var opnað árið 1922.
Dr. James Harris, forustu-
maður hópsins, 9agði að fund-
urinn hefði verið staðfestur
með elektróniskum samanburði
á hári múmíunnar og hárlokk
sem geymzt hefur í 3.500 ár i
litlum gullkassa, sem á var letr-
að nafn Tiye drottningar. Kass-
inn fannst í grafhýsi Tuts kon-
ungs I Egyptalandi. Sýndi sam-
anburðurinn að hárin voru af
sömu manneskjunni.
Frekari staðfesting fékkst
með þvi að nota tölvutækni í
sambandi við gegnumlýsingar á
hauskúpu múmiunnar og bera
hana saman við aörar konung-
legar múmiur, sagði Harris á
fundi með blaðamönnum. Tiye
drottning var móðir Akhnaton
konungs og tengdamóðir Nefer-
titi, sem er álitin hafa verið ein
af fegurstu konum sögunnar.
Hú n var gift hinum mikla her-
konungi Amenhotep 3., sem
réði Egyptalandi um það bil 15
öldum fyrir Krist. Margir sagn-
fræðingar álíta Tiye hafa verið
harðráða konu og ákveðna og
að hún hafi stjórnað á bak við
tjöldin.
Múmía Tiye drottningar tap-
aðist sögunni þegar likræningj-
ar rændu grafhýsi hennar og
annarra konungborinna, og af-
máðu öll kennimerki hennar.
Nokkrum öldum fyrir Krists
burð var mörgum múmíum
faraóa og drottninga komið fyr-
ir i grafhýsi Amenhoteps 2. til
að koma í veg fyrir frekari eyði-
leggingu ræningja. Það graf-
hýsi fannst 1898, og voru þær
múmíur, sem kennsl voru borin
á, fluttar á safn í Kairó. En
múmia Tiye og annarra
óþekktra voru geymdar i inn-
sigluðu fordyri grafklefans og
álitnar hafa litla sagnfræðilega
þýðingu.