Morgunblaðið - 16.10.1976, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 16. OKTOBER 1976
19
Sigurgeir
Bjargi —
F. 29. 3.1908
D. 4.10.1976
Mér verður um h jarta svo hettt og kalt
f hvamminum, þar sem urðfn valt.
Hér dvelur mfn sál, hér dreymir mig allt,
sem drottinn oss gaf — til að unna.
E. Ben.
I dag verður gerð að Melstað f
Húnavatnssýslu jarðarför Sigur-
geirs Karlssonar Bjargi í Miðfirði.
Hann var fæddur þ. 29. marz 1908
— dáinn 4. okt. 1976, eftir löng og
erfið veikinda, er hann átti við að
striða hin síðustu árin. Með burt-
för þessa manns má sveit hans sjá
á bak einum af sfnu beztu sonum,
er búinn var þeim kostum, er garð
hennar mátti prýða og reist hafði
hús sitt um þjóðbraut þvera svo
sem áður höfðu gert foreldrar
hans.
Heimili hans var opið hús fyrir
gest og gangandi og enginn hlutur
hans of góður fyrir þann, er
þurfti með. A þann hátt var
hugur hans, örlæti og höfðings-
lund. Eðliskostum sfnum þjónaði
hann með ósérplægni. Ósætti eða
erjur þoldi hann ekki, sérlyndi
gat hann ekki hýst.
Hann var manna-sættir sem í
góðum hópi dró að sér glaðværð
og góðan félagsskap, enda þá
tíðum tekið lagið, þvf að söng-
elskur var hann og góður söng-
maður og einn af máttarstólpum
Karlakórs Miðfirðinga er hélt
uppi sönglífi í sveitinni um
margra ára skeið. Þvf er mér nú
tregt um tungu að hræra, því að
ég trega hann sem einn hinna
beztu manna sem ég hefi kynnzt,
og get tekið mér í munn orð góð-
skáldsins: „Það sem góðir menn
ganga, þar eru Guðs vegir. “
Karlsson
Minning
langa tfð verið rómað fyrir gest-
risni og höfðingsbrag. Þangað
sóttu menn um langan veg til
samfélags og góðra funda, og
mætti svo verða enn um sinn.
Að endingu nú við leiðarlok vil
ég kveðja þennan mág minn með
innilegri þökk fyrir allt það góða
er ég og mín f jölskylda nutum hjá
honum heima og að heiman. Nú
sfðustu tímana eftir að veikindi
hans ágerðust dvaldi hann oft á
heimili mfnu f hinni vonlausu bið.
Þá undraðist ég æðruleysi hans
og sálarró og hversu létt var að fá
fram gleðiglampa á andlitið og
ljúflegt andsvar ofar stríði og
þraut. Blessuð sé minning hans.
Öllum ástvinum hans, eigin-
konu og börnum, bróður og syst-
ur, sem sjá á bak kærum vini,
sendi ég djúpa samúðarkveðju.
Drottinn gaf og Drottinn tók,
lofað veri nafn Drottins.
Arinbjörn Árnason.
Sigurgeir á Bjargi er látinn og
verður jarðsunginn frá Melstað-
arkirkju í dag. Andlát hans kom
ekki á óvart. En þó við vitum að
þetta er leiðin allra, eigum við
oftast erfitt með að sætta okkur
við það er vinir og vandamenn
eru fluttir yfir landamærin.
Sigurgeir var fæddur að Bjargi
29. marz 1908, sonur hjónanna
Karls Sigurgeirssonar og Ingi-
bjargar Jóhannesdóttur er þar
bjuggu allan sinn búskap. Voru
þau hjón rómuð fyrir háttvísi og
góða framkomu. Var þar oft gest-
kvæmt, þótti öllum þar gott að
koma. Bæði voru þau hjón söng-
elsk, og virðist sú gáfa vera mjög
rfkjandi hjá afkomendum þeirra.
Er búskapartfð þeirra hjóna
lauk tóku synir þeirra Páll og
Sigurgeir við búi á Bjargi. Páll
stofnaði nýbýlið Ytra-Bjarg af
nokkrum hluta jarðarinnar og er
það nú orðið stórbýli, en Sigur-
geir bjó á aðaljörðinni, við þann
stað batt hann tryggð og dvaldi
þar til æviloka.
Þann 24. ágúst 1940 gekk hann I
að eiga frændkonu sfna önnu
Axelsdóttur; hefur hún verið
hans tryggi förunautur alla táð
sfðan.
Á Bjargi liggur mikið starf eftir
Sigurgeir, enda fylgdist að áhugi
og dugnaður. Snemma á
búskaparárum sínum byggði
hann stórt og vandað íbúðarhús
og síðar ágæt gripahús og hlöður.
Tún hefur margfaldast að stærð.
Um langt skeið annaðast Sigur-
geir grenjavinnslu fyrir Torfu-
staðahreppa, var hann mjög
hneigður fyrir alla véiðimennsku
og ágætur skotmáður. Pyrir
nokkrum árum fór hann að kenna
sjúkdóms, sem ágerðist eftir þvf
sem lengra leið og læknar fengu
ekki ráðið bót á. Varð hann þá að
dvelja langdvölum á sjúkra-
húsum eða undir læknishendi.
Hann andaðist á sjúkrahúsinu á
Hvammstanga þann 4. okt. síðastl.
Þetta er f stórum dráttum sú
mynd er við blasir ef horft er yfir
líf og starf Sigurgeirs heitins, en
á bak við er maðurinn sjálfur,
þau áhrif sem hann hefur haft á
lff annarra með breytni sinni og
framkomu og þær minningar sem
hver og einn á f sambandi við
kynna sín af honum. Þar hef ég
sem þessar lfnur rita margs að
minnast.
Ég minnist hans f æsku þar sem
hann ólst upp á mannmörgu
heimili í stórum og glæsilegum
systkinahópi. Þó mikið væri
unnið, þá var einnig tfmi til að
blanda geði við þá gesti sem bar
að garða, stundirnar fljótar að líða
við söng og gleöskap. En þarna
var einnig alvara lífsins á
ferðinni, þar sem þrjú af hinum
efnilegu systkinum urðu að lúta
valdi dauðans f blóma lífsins, með
fárra ára millibili.
Ég minnist hans er við vorum
sessunautar og herbergisfélagar
tvo vetur á Bændaskólanum á
Hvanneyri þar sem hann stundaði
nám sitt af alúð, en tók þó virkan
þátt f öllu félagslffi og var
elskaður og virtur af kennurum
og skólafélögum.
Ég minnist einnig „samstöðu"
okkar f Karlakór Miðfirðinga þar
sem við stóðum hlið við hlið yfir
þrjátfru ár sem kórinn starfaði og
sömuleiðis við messugjörðir f
Staðarbakkakirkju. og þó við
værum ekki f sömu rödd þá var
traustvekjandi að vita af honum
við hliðina á sér.
Ég minnist hans er við vorum í
hreppsnefndum Torfustaða-
hreppá.^hve gott var að vinna með
honum að hinum sameiginlegu
málum, og sama má segja um
margra ára samstarf f sóknar-
nefnd Staðarbakkasóknar. öll
þessi störf rækti hann af trú-
mennsku, hann var frábitinn því
að vilja ota sér fram og vildi um-
fram allt forðast það er valdið
gæti úlfúð og ósamkomulagi,
Minnist ég ekki að nokkurntima
kæmi upp missætti okkar á milli.
Mér er heldur ekki kunnugt um
Framhald á bls. 23
Brazilíukaffi
írvalskaffi
%
™ J
Sigurgeir var góðum hæfileak-
um klæddur út f lífið. Hann var
alinn upp f glaðværu, menningar-
rfku heimili meðal ástsælla syst-
kina. Naut hann nokkurra
mennta í æsku, útskrifaðist frá
bændaskólanum á Hvanneyri
ungur að árum og hóf síðan í
samvinnu við eldri bróður sinn
búnaðar- og ræktunarstörf á
föðurleafð sinni, sem þeir síðar
skiptu sín í milli eftir að foreldrar
þeirra voru hættir búsýslu og f jöl-
skyldur þeirra stækkuðu og um-
svif urðu meiri. Þrátt fyrir það
mun aldrei hafa slitnað sá þráður,
er tengdi þá saman um afkomu
hvors annars og hag.
Þegar Sigurgeir stofnaði sitt
eigið heimili, hafði hann fest ráð
sitt og gengið að eiga systurdóttur
sína, önnu Axelsdóttur, sem alla
tfð hefur reynst honum vel, styrk
stoð og nærfærin, einkum f hans
langa veikindastrfði, enda mat
hann hana mikils.
Þau Anna eignuðust fjögur
börn, sem öll eru uppkomin: Karl
Asgeir, verzlunarstjóra á
Hvammstanga, Axel sem veitir
forstöðu búinu á Bjargi, Elín-
borgu, tónlistarkennara, og Arin-
björn, vélvirkja.
Eftirlifandi systkini Sigurgeirs
eru þau Margrét búsett í Reykja-
vík og Páll á Bjargi.
Eftir að þau Sigurgeir og Anna
hófu búskap á Bjargi, þar sem
þau bjuggu allan sinn búskap,
hafa þau byggt upp öll hús, fram-
kvæmt stórfellda ræktun, þar sem
áður voru holt og mýrar, en eru
nú stórir töðuvellir og land allt
girt. Er hér verðugt ævistarf sem
að baki er og eftir skilið komandi
kynslóð.
Þó er ekki hægt að skiljast svo
við þennan þátt, án þess að
minnast um leið samstarfs þeirra
bræðra, því þótt Páll, bróðir hans,
hafi áður byggt yfir sig og sína
f jölskyldu i sama túni, þá var það
samt svo og fram eftir árum, að
full samvinna var með þeim um
ræktun og bústörf, og það, sem
var velgengni annars, var hagur
hins.
Þessi sterku ættarbönd er
ávallt voru milli þeirra systkin-
anna, hafa mér fundist bera vitni
góðum jarðvegi, sem þau eru vax-
in úr, göfgi og manndómi.
Heimilið á Bjargi hefur um
Meó Ajox þvottaefní veróur mistití
þvotturinn atveg jafn hreinn og
suóuþvotturinn.
Hittir nýju endurbættu
efnakljúfar gera þaó kleíft
aó þvo jafn vel meó öllum
þvottakerfum.
Ajax þvottaefni, með hinum nýju efnakljúfum sýnir ótvíraeða
kosti sína, einnig á mislitum þvotti — þegar þvottatiminn er
stuttur og hitastigið lágt. Hann verður alveg.hreinn og litirnir
skýrast.
Hreinsandi efni og nýjr. endurbættir fefriakljúfar ganga alveg
inn i þyottinn og leysa strax upp óhreinindi og bletti i
forþvottinum. Þannig er óþarft að nota sérstök forþvottaefni.
Mjög óhreinn fatnaóur þarf mjög gott þvottaefni...
Strax við lægsta hitastig leysast óhreinindi og blettir upp og
viðkvæmi þvotturinn verður alveg hreinn og blettalaus.
Við suðuþvott verður þvotturinn alveg hreinn og hvitur.
Ajax þvottaefni þýóir:
gegnumhreinn þvottur meó öllum
þvottakerfum.