Morgunblaðið - 16.10.1976, Page 29

Morgunblaðið - 16.10.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1976 29 VELVAKAIMDI Velvakandi svarar f slma 10- 100 kl. 10—11 f.h. frá mánu- degi til föstudags. # Góð lið- veizla Eins og kunnugt mun vera af fréttum hefur Krabbameins- félag Islands ásamt Krabbameins- félagi Reykjavíkur nýlega hafið útgáfu blaðs, sem heitir Takmark. Fjallar það um reykingar og þá hættu sem þær hafa í för með sér og segir þar í forystugrein Þor- varðs Örnólfssonar að takmarkið sé reyklaust land. Nokkrir lesendur þess blaðs hafa haft samband við Velvak- anda út af þessu blaði og viljað koma á framfæri þökkum sínum fyrir það. Hafa sumir þeirra sagt að þetta væri það sem þurft hefði að koma fyrir löngu og það væri gott til þess að vita að þetta ætti upptök sín að nokkru leyti í barnaskólunum, hjá þeim sem eru i efri bekkjunum. — Það er mjög nauðsynlegt, sagði einn af viðmælendum Vel- vakanda, að börnin' viti það fljótt að það að reykja er ekki eins saklaust og margir vilja vera láta. Það getur á margan hátt verið heilsuspillandi og af þeim stafar margvíslegur óþrifnaður, ólykt, sem getur verið erfitt að losna við, ólykt sem sezt i föt og hús- muni og fer ekki svo auðveldlega þaðan. Ég styð heilshugar þetta framtak með útkomu þessa blaðs og það má eflaust gera meira til að vekja athygli á þessum óþæg- indum, að ég kveði nú ekki fastar að orði, sem fylgja reykingum. Ýmislegt fleira hafa menn haft að segja um reykingar og eitt og annað í sambandi við þær, en hér verður látið staðar numið í bili. Til gamans mætti þó gefa örlítið sýnishorn úr blaðinu Takmark, sem áður er nefnt. Það eru vísur, sem nemandi i einum 6. bekkn- um, hefur sett saman og voru þær notaðar á sameiginlegum fundi 6. bekkinga í Vogaskóla þar sem fjallað var vítt og breitt um reyk- ingar. Vísurnar eru eftir Guðmund Atla Pálmason, sem er i 6 E.E. Að reykja er bæði rangt og ljótt, reykur heilsu eyðir. Miklar fúlgur fljúga skjótt, fara vondar leiðir. SAGAN Nokkur ruglingur hefur orðið 1 sambandi við birtingu fram- haldssögunnar — en nú er hún aftur komin í rétta númeraröð. — Lesendur eru beðnir afsök- unar á þessu. miðaði stöðugt byssunni á hann. það var töluverð fjariægð á milli þeirra svo að það var óhugsandi áð reyna að stökkva á hann. Dan Bayles setti vörubflinn f gang á ný og þeir höktu af stað út f eyðimörkina. Nú var ekki lengur eftir vegi að fara. En það olli engum erfiðleik- um, þar sem vörubfllinn hafði drif á öllum hjólum. Jack reyndi að hlusta og horfa svo að hann gæti sfðar ratað til baka. Hann var ekki viss um hann gæti fylgt hjólförunum þar sem þau myndu ■ fljótlega hverfa f rykið. E4ns og Art Whelock hafði sagt daginn áður óku þeir f átt til fjalla. Jack braut heilann um hversu lengi þeir hefðu verið á ferðinní sfðan þeir skildu bifreið Verns eftir. llöfðu þeir ekið f jóra kflómetra? Erfitt var að átta sig á fjarlægðum hér f auðninni og birtan var ekki til að hjálpa til heldur. — Við erum komnir nógu langt, hrópaði Whelock. Vörubfllin nam staðar, Bayles slökkti á mótornum og sté niður og hélt á rifli f hendinni. — Komdu. Whelock stökk niður og skipaði Jack að stfga niður. Kæri vinur, snöggur snú, að snöru tóbaks gættu. Ef þú reykir, rétt er nú að reykja ei meira, hættu. Svo mörg voru þau vísuorð og látum við lokið spjalli um reyk- ingar að sinni. 0 Sólarorkan nýtt til húshitunar. 1 blaðinu Washington Post er nýlega sagt frá hjónum sem hafa byggt hús sitt með það í huga að lækka hitunarkostnaðinn. Kemur þetta fram í sérstakri út- gáfu blaðsins, sem fjallar m.a. um húsbúnað og tómstundir og fleira í þeim dúr. Þau sem byggt hafa þetta hús eru David og Kristin Nickerson og er húsið í Chevy Chare. Hann er frá Hawaii en Kristín frá Islandi. Þau höfðu áhuga á því að geta byggt sitt hús að mestu leyti sjálf og þau teikn- uðu það og hönnuðu, eins og sagt er í dag, að öllu leyti sjálf, enda hefur David Nickerson lagt stund á tæknifræði og Kristin er lista- maður, segir í umræddu blaði. Eins og fyrr segir er húsið aðal- lega teiknað með það í huga að geta nýtt sólarorkuna eins og hægt er og er það m.a. gert í framhaldi af orkukreppunni. I þvi skyni var m.a. rætt um að hafa á þaki hússins eins konar „mót- töku“ fyrir sólarorku, en horfið frá því vegna þess hversu dýr slik tæki eru. í stað þess var reynt að hafa glugga þannig útbúna að þeir gætu nýtt sem bezt sólarhit- ann og snúa þeir t.d. flestir í suður og eru nokkuð stórir. Það hefur komið í ljós að þetta fyrirkomulag á húsinu hefur sparað þeim töluvert mikið i hit- unarkostnaði. Hann er mun lægri en í húsum af svipaðri stærð og ekki var húsið neitt að ráði dýrara i byggingu þrátt fyrir ýmiss konar aukabúnað og aðra tilhögun en almennt gerist í húsum vestra. Það er erfitt að lýsa nokkuð að ráði hvernig húsið er byggt og verður það ekki gert hér en að- eins vakin á þessu athygli, hér er um íslenzka konu að ræða og þetta er góð tilbreyting frá ýmsu öðru efni sem verið hefur hér til umræðu að undanförnu. Það eru líka til „góðar“ fréttir og ýmis mál sem hægt er að fjalla um, án þess að vera sífellt að kvarta, þótt það sé vissulega oftlega nauðsyn- legt. Því má bæta við, að David Nickerson segir að í einu húsi sem var byggt á svipaðan hátt og hans héldu þeir sem seldu olíu í húsið til hitunar að enginn væri i húsinu að vetrarlagi þar sem svo lítil olía var notuð. HÖGNI HREKKVISI ©1976 MrNauf ht Synd., Inc. ,Jæja, þá er ræstingakonan komin!‘ Áhugamenn um bifreiða- íþróttir Stofnfundur Bifreiðaíþróttadeildar F.Í.B. verður haldinn í Ráðstefnusal Hótels Loftleiða sunnu- daginn 17. október n.k. kl. 14. Markmið deildarinnar er: Bifreiðaíþróttir, t.d. rally, rally- cross, ísakstur, og fl. Skýrt frá brautarlagningu. Áhugamenn fjölmennið, vélahjólamenn vel- komnir. Stjornin. 0REG0N PÆN Ofnþurrkað — geislaskorið. Stærðir: 21/2x5 ', 3x6", 4Vax5" Pantanir óskast sóttar. Timburverslun Árna Jónssonar & Co hf. Laugavegi 148, símar 11333 — 11420. Ny sendíng af loftliósum i böð og eldhús Ennfremur hentug i ganga. svefnherbergi, stof ur og utan dyra LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL. SENDUM I PÓSTKRÖFU. OPIÐ TILHÁDEGIS. LJÖS & ORKA Suðurlandsbraut 12 simi S4488

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.