Morgunblaðið - 27.11.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.11.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÖVEMBER 1976 £> Kirkjukórinn á Raufar- höfn með aðventutónleika Raufarhöfn, 26. nóvember. Þorbergur Guðmundsson og Finnbogi Ásgeirsson.sölumenn hjá Sveini Egils syni, við Cortinu 2000 Ghia. Þaí5 er dýrasta tegund Cortinunnar, kostar tæpar 2.4 milljónir, en Cortina 1 600 kostar frá 1.765 þúsund kr. Breytt útlit Cortinu 1977: Stærri rúður — endurbætur á vél Á FYRSTA sunnudegi í aðventu, sem er á morgun, gengst kór Raufarhafnarkirkju fyrir tón- leikum I Félagsheimilinu Hnit- björgum á Raufarhöfn. Þeir hefj- ast klukkan 17 og flytjendur auk kirkjukórsins eru kór Raufar- hafnarskóla, Orthulf Prunner, Fengu 46 lúður á haukalóðir Stykkishólmi 26. nóvember TVEIR menn, Hermann Guðmunds- son og Sigurður Sörensson, fóru fyrir skömmu út á 1 5 tonna bát og höfðu meðferðis haukalóðir, sem þeir lögðu I sjó. Öfluðu þeir mjög vel, eða 46 lúður yfir daginn. Voru þetta feitar og fallegar lúður, frá 4 kg og uppúr. Verðmæti aflans skiptir tug- um þúsunda króna. — fréttaritari. sem einnig er undirleikari, og Margrét Bóasdóttar, en hún er jafnframt stjórnandi kóranna Á efnisskrá þeirra eru verk eft- ir J.S. Bach, W.A. Mozart, Johaness Brahms, negrasálmar, madrígalar og íslenzk þjóðlög í raddsetningu Jóns Ásgeirssonar. Einsöng með kór kirkjunnar syngur Guðrún Stefánsdóttir, en tvísöng með skólakórnum Ragnar Erlangsson og Svava Árnadóttir. Orthulf Prunner leikur á píanó tvö verk eftir J.S. Bach og Margrét Bóasdóttir syngur lög eftir Pál ísólfsson, Sigvalda Kaldalóns og Franz Schubert. Aðgangseyrir að tónleikunum rennur að hluta til skólakórsins, en hann undirbýr nú þátttöku í landsmóti barnakóra, sem haldið verður í Reykjavik i vor. I kórn- um eru nú 33 félagar og fjöldi flytjenda á þessum tónleikum er alls 61. Til gamans má geta þess að íbúar á Raufarhöfn eru um 500. — Helgi UM HELGINA verður kynnt hjá Sveini Egilssyni h.f. árgerð 1977 af Ford Cortinu. Hefur Cortinan tekið nokkrum útlitsbreytingum, en undanfarin ár hefur hún verið svo til óbreytt. Af þeirri gerð sem framleidd hefur verið árin 1971 — 76 hafa nú verið seldar um 2200 bifreiðar. Af helztu breytingum á þessari nýju Cortinu má nefna að útsýni er um 15% meira, bæði um fram- og afturrúðu Fjaðraútbúnaði hefur einnig verið breytt og er nú sjálfstæð gormafjöðrun á hverju hjóli og er sjálfkrafa jöfnun á fjöðrum í samræmi við hleðsiu. Þá má nefna fullkomnari loftræstingu og aukna eingangrun sem minnkar vegar- og vélarhljóð Gerðar hafa verið endur- bætur á vél, sérstakga blöndungi og segir að það muni spara bensín um allt að 10% í innanbæjarakstri, án þess að draga úr vélarorku Forráðamenn Sveins Egilssonar h f sögðu að þégar Cortinan árgerð 1 97 7 hefði verið sett á markað í Bretlandi hefði strax komið i Ijós að verk- smiðjurnar myndu ekki anna eftirspurn á næstu mánuðum. Fyrsta sendingin af þessari nýju teg- und er nærri uppseld og er næsta sending væntanleg í desember og til afgreiðslu i janúar Bílasýning verður i húsnæði Sveins Egilssonar, að Skeif- unni 1 5 i dag, laugardag. kl 10—18. og á sama tima á morgun og i tengsl- um við sýninguna eru sýndar kvik- myndir um bílaframleiðslu. m a hvern- ig bilar eru teiknaðir og ýmislegt um varahlutaþjónustu og fleira Afmælis- helgi í Langholti BRÆÐRAFÉLAG Langholts- safnaðar hefur árum saman undirbúið myndarlegt aðventu- kvöld árlega á afmælisdegi safnaðar sfns f upphafi jólaföstu. Svo er einnig nú þ. 28. növember. Ber þar margt til fagnaðar þessu sinni. Vígður verður skfrnar- fontur við aðalmessu dagsins, sem kirkjunni barst að gjöf. Á laugardagskvöldið 27. nóv. verður æskulýðsfélag safnaðarins vakið til starfs að nýju. Það ætti öllum að vera gleðiefni. Og þann dag minnast einnig blómlegar deildir AA og AI-Anon, sem hafa starfsemi sína í Safnaðarheimil- inu, afmæla sinna. Samkomur afmælisdagsins hefjast með barnasamkomu kl. 10.30 að morgni. Hátíðamessa verður kl. 14 þann dag 28. nóv. Þar verður flutt ávarp og fjöl- breytt tónlist, kórsöngur, einleik- ur og einsöngur undir stjórn Guðna Guðmundssonar organ- leikara. Aðalræðu kvöldsins flytur frú Hrefna Tynes um Æskulýðsstarf- semi þjóðkirkjunnar og hjálpar- starfsemi. En Hrefna er þekkt sem æskulýðsleiðtogi við barna- starf kirkjunnar og hefur unnið að fjölbreyttu starfi á Biskups- stofu árum saman. En um starf- semi þar eru margir litt fróðir. Heiðrar hún þannig Æskulýðs- félag safnaðarins. Eins og oftast áður á aðventu- kvöldum verður tekið á móti framlögum til Liknarsjóðs Lang- holtssafnaðar um þessa afmælis- helgi. Þann sjóð er metnaðarmál að efla sem mest. Oft er þörf að styrkja og gleðja. Fjölmennið á samkomur dagsins. (Fréttatilkynning). SJÓMANNADAGSRÁÐ 1 Reykjavfk og Hafnarfirði hafa undanfarið verið að reisa nýtt dvalarheimili f Hafnarfirði fyrir aldraða sjómenn. Byggingin verður fokheld f dag. Er hér um að ræða 5 hæða byggingu, hið veglegasta hús, svo sem sjá má af meðfylgjandi mynd. OUMDEILDIR YFIRBURÐIR Um flest er deilt og sjaldnast eru menn á eitt sáttir. Fáir hafa þó orðið til að véfengja gæði og tækni- snilld MARANTZ hljóm- tækjanna. Þótt enn sé biðlisti og nokkur afgreiðslutími,þá hvetjum við þig til að kynna þér MARANTZ hljómtækin og kaupa þau. SAMVALDAR NESCO HUÓMTÆKJASAMSTÆÐUR Leiðandi fyrirtæki á sviði sjónvarps útvarps og hljómtækja VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788,19192,19150. Marantz 7 G hátalari. Verð kr. 53.500. stk. Marantz höfuðtól kr. 9.900.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.