Morgunblaðið - 27.11.1976, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NOVEMBER 1976
Janus Cerwinski stjórnar
landsliðinu í fyrsta sinn
Pressuleikurinn í handknattleik
verður tvímælalaust að teljast aðal
íþróttaviðburður helgarinnar Verður
þetta fyrsti leikurinn sem hinn pólski
landsliðsþjálfari HSÍ. Janus Cer
winski, stjórnar, og jafnframt fyrsti
þáttur undirbúnings islenzka lands
liðsins fyrir B-
heimsmeistarakeppnina í marz
Verður fróðlegt að sjá hvernig liðinu
vegnar i baráttu við pressuliðsmenn,
en leikir landsliðsins og pressuliðs
ins hafa jafnan verið nokkuð tvisýnir
og harðir Vel kann svo að fara að
einstakir leikmenn pressuliðsins nái
að ..spila sig inn i landsliðið" i leik
þessum.
Um helgina verða leiknir þrír leikir í
íyrstu deildar keppnmni í blaki j dag
leika Laugarvatnsliðm UMT! og Stig-
andi og fer leikurinn að sjálfsógðu
fram á Laugarvatni og hefst kl 14 00
Lið UMTL ætti að vera nokkuð öruggt
um sigur i þeim leik og eru allar likur á
því að Stígandi verði ekki nema eitt ár i
fyrstu deild að þessu sinni. því að liðið
hefur alls ekki yfir nægilegum mann
skap að ráða
Þá fer Þróttur í heimsókn til Akureyr
ar og leikur við UMSE og verður sá
leikur i iþróttaskemmunm á Akureyri
og hefst klukkan 1 5 30
Að lokum leika Víkingur og UMEL i
MARGIR leikir í Islandsmótinu í
handknattleik munu fara fram
um þessa helgi, en engir þó í
meistaraflokki karla utan pressu-
leiksins.
Eftirtaldir leikir veró í fyrstu
deild kvenna:
LAUGARDAGUR
tveggja er leika í Laugardalshöllinni i
dag:
LANDSLIÐIÐ.
Ólafur Benediktsson, Val
Gunnar Einarsson, Haukum
Jón Karlsson, Val
Þorbjörn Guðmundsson, Val
Bjarni Guðmundsson, Val
Viðar Símonarson, FH
Geir Hallsteinsson, FH
Ólafur Einarsson Víkingi
Björgvin Björgvinsson, Vikingi
Þorbergur Aðalsteinsson, Vikingi
Viggó Sigurðsson, Víkingi
Þórarinn Ragnarsson, FH
Ágúst Svavarsson, ÍR
PRESSULIÐIÐ.
Orn Guðmundsson, ÍR
íþróttahúsi Hagaskóla á sunnudag
klukkan 1 9 00 og verður þar ábyggi
lega um tvisýna baráttu að ræða
UMTL varð í öðru sæti og Víkingur í
þriðja sæti íslandsmótsins i fyrra og
eru liðin nokkuð jöfn að styrkleika svo
að sennilega verður um jafnan og
spennandi leik að ræða
Að leik Víkings og UMFL loknum
leika Þróttur og UBK í kvennaflokki og
siðasti leikur kvöldsins verður á milli
b-liða UBK og Þróttar í annarri deild og
verða Þróttarar senmlega sigurvegarar
beggja leikjanna. en þó gæti annarrar
deildar leikurmn orðið tvisýnn
Þá veröa um helgina tveir leikir
í 2. deild karla. Kl. 18.00 í dag
leika í Laugardalshöllinni Ár-
mann og Leiknir og kl. 15.00 á
morgun leika í Garðabæ Stjarnan
ogKR.
Kristján Sigmundsson, Þrótti
Steindór Gunnarsson, Val
Jóhannes Stefánsson, Vald
Árni Indriðason, Gróttu
Hörður Sigmarsson, Haukum
Stefán Jónssson, Haukum
Jón Pétur Jónsson, Val
Brynjólfur Markússon, ÍR
Elías Jónasson, Þór.
Ingi Steinn Björgvinsson, KR
Simon Unndórsson, KR
ÓMAR MUN LEIÐA ÍÞRÓTTA-
FRÉTTAMENN TIL SIGURS
Forleikur að pressuleiknum verður
milli iþróttafréttamanna og dómara,
en leikir þessara sterku liða hafa
jafnan vakið athygli, og þá ekki hvað
sizt fyrir alls konar tæknilegar brell-
ur sem leikmennimir hafa lumað á.
Gera báðir aðilar sér vonir um að
Janus Cerwinski hafi tækifæri til
þess að fylgjast með þessum leik, og
efa ekki að hann muni komast i
vanda við val landsliðsins á eftir.
Aðalstjarna íþróttamannaliðsins er
að venju hin stjórsnjalla skytta, linu-
maður og vitaskytta, Ómar Ragnars
son. Ómar er að visu ekki lengur
iþróttafréttamaður, en hann ákvað
að taka þátt i þessum leik til þessað
gefa pólska landsliðsþjálfaranum
nýjar hugmyndir um ýmis tækni-
brögð i handknattleiknum.
Upphaflega var ákveðið að leikur
inn hæfist kl. 15.00, en vegna mik-
illar upphitunar sem dómarar og
íþróttaf réttamenn þurfa með, var
leiktimanum breytt og mun leikurinn
hefjast kl. 1 5.30.
Körfuknattleikur
um helgina
UM helgina verða leiknir 3
leikir í fyrstu deild í körfu-
knattleik. í dag, laugardag,
leika í íþróttahúsi Hagaskóla
klukkan 14.00 Ármann og
Fram og í iþróttahúsi
Kennaraskólans leika ÍS og
Valur klukkan 15.00. Þá verð-
ur einn leikur á sunnudag og
leika þá UBK og KR í Garðabæ
og hefst sá leikur klukkan
17.00.
Fyrirfram verður að telja
Ármann og KR nokkuð örugga
sigurvegara í leikjum sinum
við Fram og Breiðablik, en
leikur IS og Vals verður,
ábyggilega mjög tvisýnn og
spennandi og er engu hægt um
hann að spá. Bæði liðin geta
átt góða leiki, en eiga það til að
detta niður á milli, en vonandi
eiga bæði liðin góðan dag og
bjóða áhorfendum upp á góða
skemmtun.
Þá verða leiknir fjölmargir
leikir í annarri og þriðju deild
ogyngri flokkunum. H.G.
Vert er að rifja upp skípan liðanna
Omar Ragnarsson ákveðinn á svip í einum af fyrri stórleikjum
íþróttafréttamannaliðsins. Enn ætlar þetta lið sér ekkert minna en
sigur í leik sfnum við handknattleiksdómarana.
Mikið blakað um helgina
HG
4 LEIKIR í 1. DEILD KVENNA
Jimmy Rogers skorar eina af hinum mörgu körfum sfnum gegn
landsliðinu og Birgir Guðbjörnsson kemur engum vörnum við, en þeir
voru báðir beztu menn sinna liða.
Laugardalshöll kl. 17.00: Valur —
Þór
SUNNUDAGUR
Laugardagshöll kl. 16.00: KR —
Fram
Laugardalshöll kl. 17.00: Ármann
— Breiðablik
Hafnarfjörður kl. 13.55: FH —
Þór
UNGLINGA-
BADMINTON
UNGLINGAMEISTARAMÓT
Reykjavíkur í badminton fer
fram í dag og á morgun í TBR-
húsinu. Hefst keppni báða dagana
kl. 13.30. Þátttakendur í mótinu
eru um 50 talsins og eru þeir frá
TBR, Vai, KR og Víking.
ÁRSÞING FRÍ
Ársþing Frjálsíþróttasambands
Islands fer fram um helgina að
Hótel Loftleiðum og hefst kl.
13.30 bæði í dag og á morgun.
26 STIGA SIGUR PRESSULIÐSINS
- viðhorf landsliðsmanna þurfa að breytast, sagði Markovich
Á FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ var lék
landsliðið í körfuknattleik við lið val
ið :f íþróttafréttariturum og var þar
um fremur slakan leik af hálfu lands-
liðsins að ræða, enda var það rfg-
bundið f leikkerfisæfingar og allt
einstaklingsframtak bannað. Hins
vegar var leikur pressuliðsins nokk-
uð vel leikinn og munaði þar mestu
um leikgleði þeirra og viljann til að
vinna leikinn.
Þjálfari landsliðsins var að
sjálfsögðu ekki ánægður með leikinn
og sagði hann að þetta hefði verið
hrein leikleysa. „Við lékum ekki
körfuknattleik," sagði hann og ef
viðhorf okkar til leiksins breytist
ekki verður þetta aldrei nógu gott.
Gangur leiksins var svo sá að Bjarni
Jóhannesson skoraði fyrstu körfuna,
en Birgir Guðbjörnsson jafnaði fyrir
landsliðið og var síðan jafnt upp í
6—6, en þá tók pressan leikinn í sínar
hendur og á 6 minútu var staðan
orðm 16—8 henni i vil Mestur varð
munurinn 10 stíg 30—20 á 16
mínútu, en þá skánaði leikur landsliðs
ins aðeins og því tókst að minnka
muninn og i leikhléi var staðan
39—37 pressunni í vil og hafði þá
Guðmundur Böðvarsson skorað 7
síðustu stigin fyrir pressuliðið, öll úr
vítum
í upphafi seinni hálfleiks slakaði
pressuliðið aðeins á, svona til að fá
dálitla spennu i leikmn, ems og leik-
menn pressuliðsins sögðu, og tókst
landsliðmu þá að jafna tvívegis,
53—53 og 56—56 og voru þá liðnar
10 minútur af semni hálfleiknum
Tveimur mínútum seinna hafði pressan
svo náð 6 stiga forskoti, 64—58 og á
1 5 mín var munurinn orðinn 1 0 stig
Eftir þetta var leikur landsliðsins algjör-
lega í molum og pressan jók muninn
jafnt og þétt og lauk leiknum með 14
stiga mun henni i vil eða 90—76
Eins og áður sagði var leikur landsliðs
ins afar slakur og gekk leikmönnum illa
að spila eftir hinum ákveðnu kerfum og
virtist sem öll leikgleði væri fokin út í
veður og vind og eins og Vladan
Markovich sagði, þá verður það að
lagast ef einhver árangur á að nást
Það er ekki hægt að hæla neinum af
landsliðsmönnunum fyrir þennan leik.
þeir léku allir langt undir getu og
einnig verður að taka tillit til þess að
þeir voru yfirleitt stutt inná í einu og
hefur því sennilega gengið verr að
finna sig Stigin fyrir landsliðið
skoruðu Þórir Magnússon 14, Jón
Sigurðsson 12, Birgir Guðbjörnsson
9, Kolbeinn Kristinsson 9, Kári Maris-
son 6, Bjarni Gunnar Sveinsson 6,
Ríkharður Hrafnkelsson 5 Ingi Stefáns-
son 4,Jón Jörundson 4 Kristinn
Jörundsson 2, Torfi Magnússon 2, og
Einar 1 stig
Pressuliðið lék þennan leik fremur
vel og ágætlega á köflum og munaði
þar mest um leikgleðina og viljann til
að vinna leikinn: Það verður einnig að
teljast nokkuð gott hve vel liðið náði
saman án þess að það fengi nokkra
samæfingu og var oft gaman að sjá
hve vel útfærð sókn liðsins var og hve
mörg hraðaupphlaup náðust
Beztu menn pressuliðsins voru þeir
Jimmy Rogers sem átti stórleik bæði i
vörn og sókn, Jón Héðinsson og Bjarni
Jóhannesson sem var sterkur i vörn-
inm og bakverðirnir Kolbeinn Pálsson,
Steinn Sveinsson og Gunnar Gunnars-
son Stigin fyrir pressuna skoruðu
Jimmy Rogers 23, Jón Héðinsson 1 5,
Bjarni Jóhannesson 14, Steinn Sveins-
son 10, Kolbeinn Pálsson 9,
Guðmundur Böðvarsson 9, Kristján
Ágústsson 4, Geir Þorsteinsson 3,
Gunnar Gunnarsson 2 og Stefán
Bjarkason 1 stig
Að lokum er rétt að geta þess að i
leikhléi háðu íþróttafréttaritarar víta-
keppni og lauk henni með sigri G. Jóh.
frá Þjóðviljanum H.G.