Morgunblaðið - 27.11.1976, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1976
7
Dagvistunar-
mál
Dagvistunarmál hafa
verið mjög á dagskrá
undanfarið. bæði I borgar-
stjóm Reykjavikur og á
Alþingi. j ræSu. sem Elin
Pálmadóttir, borgar-
fulltrúi. flutti um þetta
efni, komu fram athyglis-
verðar upplýsingar, sem
erindi eiga til almennings.
Hún sagði m.a. svo efnis-
lega: Dagheimili af venju-
legri gerð kostar i bygg-
ingu um 90 milljónir
króna og leikskóli um 50
milljónir króna. Dag-
vistunarrými fyrir hvert
barn kostar um 1.4 m. kr.
Fjárhagslegir möguleikar
sveitarfélaga til að sinna
þessu samfélagslega hlut-
verki hafa ekki verið ef Idir
nægilega og rekstrar-
kostnaður er nú allur
kominn yfir á sveitar-
félögin. Þó hefur miðað
nokkuð i rétta átt hér i
Reykjavik. Árið 1970 áttu
14.6% og 1974 24%
barna á forskólaaldri kost
á vistun á dagheimili. Nú
er þetta hlutfall komið i
31%.
Rekstrar-
kostnaður
Um rekstrarkostnað
sagði Elin. Áætlaður
rekstrarkostnaður á barn i
dagvistun á næsta ári er
36.000 krónur á mánuði.
Þar af greiða foreldrar eða
vandamenn 12.000 krón-
ur. Borgin greiðir hins
vegar 24.000 krónur á
barn á mánuði, sem er
nokkru hærra en þau 60%
sem gert er ráð fyrir i
stjórnarfrumvarpi um
þetta efni. Þannig greiddi
Reykjavíkurborg þennan
kostnað niður um 225 m.
kr. i ár og áætluð niður-
greiðsla á næsta ári er
293 m. kr. Fyrir áætlaðar
niðurgreiðslur 1977 má
byggja tvö dagheimili og
tvo leikskóla. ef miðað er
við 50% kostnaðarþátt-
töku rikisins i byggingu.
Elin sagði að skóladag-
heimili hefðu gefið góða
raun sem liður i dag-
vistunarstarfsemi. Einnig
hefur verið sett upp ýmiss
konar önnur þjónusta fyrir
börn en áður var, svo sem
skólahvörfin, heimili fyrir
börn sem eiga i sérstökum
erfiðleikum (i Bjarkarási
og á Kleifarvegi) o.fl.
Einnig er nú hugað að
dagvistunaraðstöðu fyrir
eldra fólk, sem lengi hefur
verið aðkallandi.
Lögin frá 1973
Þá sagði Elin að með
lögum um þetta efni frá
1973 hefði ekki verið
nægilega séð fyrir tekju-
stofnum til að gera fram-
lag rikisins raunhæft. Þá
hafi. vegna reglugerðar-
breytinga, reynzt nauð-
synlegt að fækka um 100
börn á dagvistunarstofn-
unum borgarinnar. Verja
hefði þurft um 120 m. kr.
til að standa i stað hvað
viðvék barnafjölda i dag-
vistun í borginni. Hinar
nýju reglur hefðu og gert
það nær útilokað að nýta
tiltækt eldra húsnæði til
dagvistunar. Sérsmiðað
húsnæði skyldi þurfa til.
j frumvarpi þvi sem nú
liggur fyrir Alþingi er gert
ráð fyrir þvi að ríkið greiði
50% stofnkostnaðar
(sveitarfélag hinn helm-
inginn og allan rekstrar-
kostnað). Rikissjóðshlut-
inn er þó bundinn af fjár-
lagaf járveítingu hverju
sinni — og sveitarfélag
má ekki hefja fram-
kvæmdir, nema með fyrir-
fram samþykki rikisvalds-
ins, ef ríkissjóðshlutinn i
stofnkostnaði á að vera
tryggur. Boðuð fjárveiting
i fjárlagafrumvarpi gerir
ekki betur en að standa
undir hluta rikisins i fram-
kvæmdum, sem þegar var
búið að setja i gang árið
1974, sagði Elin Pálma-
dóttir. Þá verður litið eftir
til nýbygginga á sviði dag-
vistunar á árinu 1977.
*
I mörg horn
að líta
Þá kom fram i ræðu
Elínar Pálmadóttur að i
marz og april nk. fara i
gang tveir leikskólar í
Breiðholti. Dagheimili þar
verður senn boðið út.
Skóladagheimili tók
nýlega til starfa i Austur-
bæ og vonandi takast
samningar um annað i
Breiðholti, sem tafizt hef-
ur af orsökum, sem borgin
hefur ekki ráðið við. En
dagvistunarmál er ekki
eini framkvæmdavett-
vangur Reykjavikurborg-
ar. Þar er i mörg horn að
lita. Og fjárhagsgeta
ræður ferð. Þrátt fyrir þá
staðreynd, að margt er
enn ógert, hefui
Reykjavik þó sérstöðu
meðal íslenzkra sveitar-
félaga um frumkvæði i
þessu efni. Þvi frumkvæði
mun borgin áfram halda.
iHlesöur
á tnorgun
1. SUNNUDAGUR í AOVENTU
— UPPHAFSDAGUR NÝS KIRKJUÁRS.
DÓMKIRKJAN Messa kl. 11
árd. Altarisganga. Séra Þórir
Stephensen. Siödegismessa
fellur niður vegna aðventu-
kvöldsins, sem hefst kl. 8.30.
Barnasamkoma kl. 10.30 I
Vesturbæjarskólanum við
Öldugötu. Séra Hjalti
Guðmundsson.
FELLA- OG HÓLASÓKN
Barnasamkoma i Fellaskóla kl.
11 árd. Guðþjónusta í skólanum
kl. 2 siðd. Séra Hreinn Hjartar-
son.
FlLADELFlUKIRKJAN
Safnaðarguðþjónusta kl. 2 siðd.
Almenn guðþjónusta kl. 8 siðd.
Einar J. Gíslason.
NESKIRKJA Barnasamkoma
kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 siðd.
Séra Frank M. Halldórsson.
Aðventuhelgistund kl. 5 síðd.
Sjá nánar i „Félagslífi."
GRENSÁSKIRKJA Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2
siðd. Aðventukvöld kl. 8.30 með
fjölbreyttri dagskrá, sjá
„Félagslif." Séra Halldór S.
Gröndal.
LAUGARNESKIRKJA Messa
kl. 11 árd. Kveðjuguðþjónusta
mín. Séra Garðar Svavarsson.
HALLGRtMSKIRKJA Messa
kl. 11 árd. Séra Karl Sigur-
björnsson. Fjölskyldumessa kl.
2 síðd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
LANDSPlTALINN Messa kl
10 árd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
BUSTAÐAKIRKJA Barnasam-
koma kl. 11 árd. Hátlðarmessa á
5 ára afmæli kirkjunnar kl. 2
siðd. Veizlukaffi Kvenfélagsins
eftir messu. Aðventusamkoma
Bræðrafélagsins kl. 8.30 siðd.
Ræðumaður Geir Hallgrimsson
forsætisráðherra. Séra Ölafur
Skúlason dómprófastur.
FRlKIRKJAN Reykjavík.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2
síðd. Séra Þorsteinn Björnsson.
LANGHOLTSPRESTAKALL
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Arelius Níelsson. Aðventu-
kvöld kl. 8.30. — Munið Liknar-
sjóð. Aóalfundur Langholts-
safnaðar verður 5. desember
eftir messu. Sóknarnefndin.
SELTJARNARNESSÓKN
Kirkjudagur sóknarinnar hefst
kl. 11 árd. með guðþjónustu i
félagsheimilinu. Einsöngur
Þórunn Ólafsdóttir. Séra
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Kvöldvaka kl. 8.30: kórsöngur
undir stjórn Siguróla Geirsson-
ar, erindi, séra Jónas Gislason,
upplestur, Sigurður Pálsson, og
einsöngur og kórsöngur, Ruth
Magnússon. Kaffiveitingar.
ELLI- OG HJUKRUNAR-
HEIMILIÐ Grund Messa kl. 10
árd. Séra Lárus Halldórsson
messar.
ARBÆJARPRESTAKALL
Barnasamkoma í Árbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Guðþjónusta i
skólanum kl. 2 siðd. Séra
Guðmundur Þorsteinsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 siðd.
Hjálpræðissamkoma kl. 8.30
siðd. Kaft. Daniel Óskarsson.
HÁTEIGSKIRKJÁ Barna-
guðþjónusta kl. 11 árd. Séra
Arngrimur Jónsson. Guð-
þjónusta kl. 2 síðd. Séra Tómas
Sveinsson. Siðdegisguðþjón-
usta kl. 5. Séra Arngrfmur
Jónsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Messa kl. 2 sfðd. I Breiðholts-
skóla. Séra Lárus Halldórsson.
ÁSPRESTAKALL Messa kl. 2
síðd. að Norðurbrún 1. Séra
Grimur Grimsson.
DÓMKIRKJA KRISTS Konungs
Landakoti. Lágmessa kl. 8.30
árd. Hámessa kl. 10.30 árd. og
lágmessa kl. 2 síðdegis.
DIGRANESPRESTAKALL
Barnasamkoma i Safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastig kl.
11 árd. Guðþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 11 árd. og
aðventusamkoma i kirkjunni
kl. 8.30 siðd. Séra Þorbergur
Kristjánsson.
KÁRSNESPRESTAKALL
Barnasamkoma í Kársnesskóla
kl. 11 árd. Guðþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 2 siðd. (altaris-
ganga). Séra Arni Pálsson.
BESSASTAÐAKIRKJA
Guðþjónusta kl. 2 sfðd. í umsjá
Fél. guðfræðinema. Magnús
Björnsson prédikar. Séra Jónas
Gíslason þjónar fyrir altari.
GARÐAKIRKJA Guðþjónusta
kl. 11 árd. Séra Bragi Friðraks-
son.
MOSFELLSPRESTAKALL
Messa i Lágafellskirkju kl. 2
síðd. Altarisganga. Mosfells-
kirkja. Kvöldbænir kl. 8 síðd.
Séra Birgir Ásgeirsson.
FRlKIRKJAN Hafnarfirði.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðþjónusta kl. 2 síðd. Vænzt
er þátttöku fermingarbarna og
foreldra þeirra. Altarisganga.
Séra Magnús Guðjónsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
Barnasamkoma kl. 11 árd. Rún-
ar Egilsson guðfræðinemi. Að-
ventukvöld kl. 8.30.
KALFATJARNARSÓKN
Barnasamkoma i Glaðheimum
kl. 2 siðd. Séra Bragi Friðriks-
son.
KEFLAVlKURKIRKJA Messa
kl. 2 síðd. Altarisganga. Aðal-
safnaðarfundur að lokinni
messu. Séra Ólafur Oddur Jóns-
son.
GRINDAVlKURKIRKJA
Barnaguðþjónusta kl. 11 árd.
Sóknarprestur.
STRANDAKIRKJA Messa kl. 2
síðd. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA
Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd.
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Magnús
Karel Hannesson prédikar.
Altarisganga. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA
Aðventukvöld kl. 9. Sóknar-
prestur.
SELFOSSKIRKJA Messa kl. 2
siðd. Sóknarprestur.
ODDAKIRKJA Guðþjónusta
kl. 2 síðd. Séra Stefán Lárus-
son.
HELLA Barnaguðþjónusta í
barnaskólanum kl. 11 árd. Séra
Stefán Lárusson.
AKRANESKIRKJA Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2
siðd. Séra Jón Einai sson i Saur-
bæ messar. Séra Björn Jónsson.
Verzlunarhúsnæði
Til leigu er verzl. og iðnaðarhúsnæði við Grens-
ásveg. Uppl. í síma 1 7888.
Æviminningabók Menningar-
og Minningarsjóðs kvenna
er tilvalin jólagjöf. Kostar aðeins 1800 kr. í
bókabúðum. Fæst einnig á skrifstofu sjóðsins
að Hallveigarstöðum við Túngötu. Sími
18156.
Menningar- og Minningarsjóður kvenna.
■m w ■ ■ ■
i ■ ■
HHB á Wk i r i ■ ■ ■ ■ ■
■ ■■ ■ wmm i i ■1 JM ■■
— ■ ■ i i ■ ■ ■ ■ ra
■■ t nr t 'r it
■■ i ■ ii ■ ■ I i
PÖNNUKÖKUR (Griddle Cakes) með smjöri og
sírópi ásamt kaffi á aðeins 390 krónur.
Tilvalið bæði á morgnana og um eftirmiðdaginn.
Sýnikennsla
í gerð
aðventukransa
í dag kl. 14—18.
Allt efni
í aðventukransinn.
ÍÍIIÍlBÍffip^jjlÍÍB^^g^ÍÍsÍú: