Morgunblaðið - 27.11.1976, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÖVEMBER 1976
J ANTWERPEN:
Grundarfoss
EIMSKIP
A NÆSTUNNI
FERMA SKIP VOR
TIL ÍSLANDS
SEM HÉR SEGIR:
1 des
Skeiðarfoss
Urriðafoss
Grundarfoss
3
'3
jlj' lungufoss
U' ROTTERDAM:
(jrj Grundarfoss
“i Skeiðsfoss
_j! Urnðafoss
Grundarfoss
3
j-t Tunyufoss
FELIXSTOWE:
3 Mánafoss
£jl Dettifoss
1
Mánafoss
Dettifoss
Mánafoss
6. des IÍ!X
1 3. des [|j
20. des [rr
27. des ^
30. nóv
7 des K
14 des Yrr
2 1. des
28 des
30. nóv. lr-
7 des UJ
K\
ÍJj hAMBORG:
JJ Mánafoss
j-l Dettifoss
-J Mánafoss
Sj Dettifoss
"Tj Mánafoss
1 4 des
21 des
28 des
2. des
9. des
1 6 des
23. des
30. des
PORTSMOUTH:
6 des
20 des
27 des
4 jan
J
Bakkafoss
ÍTji Goðafoss
Uj Bakkafoss
HSj Selfoss
SjHALIFAX:
Jil Brúarfoss- 30. nóv
H KAUPMANNAHÖFN:
Múlafoss 30. nóv
_ írafoss 7. des
Múlafoss
{rji írafoss
rfj Múlafoss
JS| GOTHENBURG
íyi m úlafoss
1 4. des
21 des
28 des
1 des liJJ
8. des j!>|
15 des pJ
22. des
29. des !|í
Ilrafoss
Múlafoss
írafoss
Múlafoss
HELSINGBORG:
Álafoss 1 des jj
Álafoss 1 5. des L
Álafoss 28. des [[
Álafoss 10.jan Ir
KRISTIANSAND:
Álafoss 30. nóv L
Álafoss 1 6. des . [I
Álafoss 30. des [j
STAVANGER:
Álafoss 12.jan k
GDYNIA/GDANSK: £
Skógafoss
Fjallfoss
VALKOM.
Skógafoss
Fjallfoss
VENTSPILS:
Skógafoss
6 des lyj
1 5. des
2. des I
13. des M
I
4. des M
14. des Ijm
WESTON POINT:
Kljáfoss 1 des
Kjáfoss 1 5. des
REGIUBUNDNAR
gír" VIKULEGAR
HRAÐFERÐIR FRÁ:
[S ANTWERPEN,
fá FELIXSTOWE,
U GAUTABORG,
U HAMBORG,
KAUPMANNAHÖFN,
1 n<
%
3
ÍOTTERDAM
ALLTMEÐ
I
I
i
I
1
EIMSKIP
Skífan
— ný hljóm-
plötuverzlun
SKlFAN nefnist ný hljómplötu-
verzlun sem opnuð var á Lauga-
vegi 33 fyrir skömmu.
Þar verða á boðstólnum allar
tegundir tónlistar, fslenzkar sem
erlendrar. Eigandi verzlunarinn-
ar er Jón Ólafsson, en hann hefur
um eins árs skeið rekið hljóm-
plötuverzlunina Vindmilluna í
Hafnarfirði og er auk þess fram-
kvæmdastjóri hljómplötuútgáf-
unnar Júdas hf. — I samtali við
Morgunblaðið kvaðst Jón flytja
inn erlendu plöturnar fyrir verzl-
anir sínar sjálfur beint frá Banda-
ríkjunum og leggja áherzlu á að
bjóða allar nýjustu plöturnar sem
fyrst eftir að þær kæmu ámarkað
erlendis. — Verzlunarstjóri Skíf-
unnar er Rúnar Marvinsson.
Nýja verzlunin að Smiðjustíg 4 — þar sem verksmiðja fyrirtækisins var til húsa f þrjátfu ár.
Ný verzlun þar sem
áður var verksmiðja
Rúnar Marvinsson verzlunar-
stjóri (t.v.) og Jón Ólafsson eig-
andi verzlunarinnar Skffunnar.
KRISTJAN Siggeirsson hf. hefur
opnað nýja húsgagna verzlun að
Smiðjustfg 4a. Verzlun fyrir-
tækisins að Laugavegi 13 verður
rekin áfram og er þvf um að ræða
verulega stækkun á verzlunarhús-
næði. Nýja verzlunarhúsið er á
tveimur hæðum, samtals 700 fer-
metra gólfflötur, sem tekið er
undir verzlunar- og lagerhúsnæði.
Húsnæðið, sem nú hefur verið
tekið f notkun, var um þrjátíu ára
skeið verksmiðja fyrirtækisins og
var þá bakhús við Smiðjustíg. Nú
hefur húsið að Smiðjustfg 6 verið
rifið og á grunni þess hellulagt
opið svæði.
Húsgagnaverzlun og verkstæði
Kristjáns Siggeirssonar er eitt af
elstu húsgagnafyrirtækjum lands-
ins, stofnað 1919. í verksmiðju
þess að Lágmúla 7 vinna um 25
manns, en alls vinna hjá Kristjáni
Siggeirssyni hf, fjörutfu og fimm
manns. Mestur hluti þeirra hús-
gagna er fyrirtækið selur er eigin
framleiðsla. Hjalti Geir Krist-
jánsson húsgagnaarkitekt er
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Hjalti Geir sagði á blaðamanna-
fundi s.l. fimmtudag að fyrir-
tækið hefði selt langmest af svo-
kölluðum Variahillusamstæðum
og skápum, sem það framleiðir og
hefðu verið seld 45 þúsund
stykki. Einnig er selt mikið af
skrifborðum , en salan á
íslenzkum húsgögnum er, að sögn
Hjalta Geirs, nokkuð jöfn. Á
Hola 10
en ekki 9
SLÆM misritun var f fyrirsögn í
frétt Morgunblaðsins um bor-
holurnar á Kröflu, en þar stóð að
horft væri vonaraugum á holu 9
en átti að sjálfsögðu að standa
holu 10, eins og alls staðar kemur
fram í fréttinni. Lesendur eru
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum.
fyrstu hæð nýju verzlunarinnar
eru seld húsgögn frá Svíþjóð, svo
kölluð pakka-húsgögn, við hæfi
yngra fólks, en þau eru ódýrari en
önnur innflutt húsgögn á markað-
inum.
Að undanförnu hafa staðið yfir
verulegar breytingar á verk-
smiðju fyrirtækisins, og sagði
Hjalti Geir að keyptar hefðu verið
vélar, sem myndu auka afköst
verksmiðjunnar um þrjátíu pró-
sent.
Brennivín hefur
hækkað minna
en kaffi og ýsa
ÁFENGISVARNARRÁÐ hefur
sent frá sér fréttatilkynningu,
þar sem borið er saman verð á
brennivíni, kaffi og ýsu annars
vegar f nóvember 1967 og hins
vegar 8. nóvember sl.
Segir f fréttatilkynningunni að
1 kg af ýsu hafi kostað 15 kr. i
nóvember 1967, 1 kg af kaffi 84
kr. og 1 fl. af brennivíni 315 kr.
Þá segir að 8. nóvember s.l. hafi 1
kg af ýsu kostað 172 kr., 1 kg. af
kaffi 1.110 kr. og 1. fl af brenni-
víni 2.600 kr.
Að lokum segir: „Ef brenni-
vínið hefði hækkað jafn mikið og
verð á ýsu ætti það að vera 3.612,
kr. og ef brennivin hefði hækkað
jafn mikið og verð á kaffi ætti það
að vera kr. 4.125 kr.“
Vinahjálp styrkir
Fæðingarheimilið
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi frá Vinahjálp:
Árlegur basar „Vinahjálpar“
verður að Hótel Sögu á sunnudag-
inn 28. þ.m. kl. 2 e.h. Vandaðar
glæsilegar vörur, handunnar af
félagskonum verða á boðstólum,
ennfremur happdrætti og sæl-
gæti.
Undanfarin 10—12 ár hefur
Vinahjálp gefið ýmsum stofnún-
um og sjúkrahúsum tæki og ann-
að til að auka hagkvæmni við
störf og um leið til þess að bæta
aðbúnað sjúkra og fatlaðra.
Að þessu sinni hafa félagskon-
ur mikinn áhuga á að hlynna að
Fæðingarheimili Reykjavíkur-
borgar við Eiríksgötu. Heimili
þetta er sem kunnugt er annað
stærsta fæðingarheimili í borg-
inni, þar sem fæðast um 1000
börn á ári, en um 1500 á Fæðing-
ardeild Landspitalans.
Á síðustu árum hafa orðið mikl-
ar framfarir i öllum búnaði
sjúkrahúsa. Félagskonur Vina-
hjálpar hafa starfað að þvi undan-
farna mánuði að útvega upplýs-
ingar um tæki sem fylgjast með
lfðan barns og móður á meðan á
fæðingu stendur. Tæki þessi,
„Fetal Monitor", mæla bæði
hjartslátt móður og barns auk
annars. Höfum við nú fundið
heppileg tæki að dómi yfirlæknis
heimilisins, og mun það verða
næsta verkefni okkar að afla
þeirra auk annarra hluta sem
heimilið þarfnast.
Minnumst þess að yngsta borg-
aranum er ekkert of gott, þvi
hann er framtið þjóðarinnar.
Akranes
Til sölu eru parhús við Dalbraut. Húsin
seljast tilbúin undir málningu og verða
tilbúin til afhendingar á næsta ári Nánari
upplýsingar í símum 93-1722 og 93-
1318 eftir kl. 19.
Byggingafélagið Nes h. f.
Gautar frá Siglufirði
skemmta Reykvíkingum
HLJÓMSVEITIN GAUTAR frá
Siglufirði mun skemmta borgar-
búum nú um helgina með leik og
söng I Sigtúni. Þeir munu leika
þar fyrir dansi á laugardag og
sunnudag. GAUTAR munu vera
elzta starfandi danshljómsveit
landsins, og enn þann dag l dag
leika tveir af stofnendum hennar
með þeir bræðurnir Guðmundur
og Þórhallur. A myndinni t.f.v.:
Rafn, Þórhallur, Elfas, Guðmund-
ur og Sverrir.