Morgunblaðið - 27.11.1976, Side 14

Morgunblaðið - 27.11.1976, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1976 Björgunarsveitum miðar lítt—80 þorp eru enn einangruð Muradive, Tyrklandi, 26. nóv. Reuter. BJÖRGUNARSVEITIR halda áfram að reyna að komast til af- skekktra staða á jarðskjálfta- svæðunum f Tyrklandi, þar sem þúsundir höfðust við úti undir beru lofti sl. nótt i kulda og trekki. Einn allsnarpur kippur varð f dag á þessum svæðum en manntjón varð ekki, svo vitað sé. Þeir sem sluppu lífs úr jarð- skjálftunum á miðvikudaginn hafa nú tvær nætur f röð orðið að hafast við f rústum bæja og þorpa og talið er nú að um 150 þúsund manns hafi á einhvern hátt orðið fyrir harðinu á náttúruhamförum þessum. Sérþjálfað björgunarlið reynir nú að komast leiðar sinnar til þeirra staða sem lítið hefur frétzt frá vegna þess hve einangraðir þeir eru. Allar tölur um þá sem miststu heiinili sín eða búa nú við sult og þorsta eru byggðar á get- gátum. Og í fréttum um látna í jarðskjálftunum segir einnig að talan 4 þúsund sem sagðir eru hafa látist muni áreiðanlega hækka og verða kannski 6 þús- und. Meirihluti látinna voru kon- ur og börn. Þó sé ekki víst að það verði nokkurn tíma fullkomlega ljóst hversu margir hafi látist. Mikill fjöldi björgunartækja, lyfja, hjálpargagna hvers konar og matvæla hafa borizt til Tyrk- lands siðan atburðir þessir urðu og er reynt að dreifa þeim eins og fyrr segir. En svo læmt er ástand- ið að enn hafa björgunarmenn ekki komist til 80 smáþorpa. YFIRLÝSING frá Félagi Röntgen- hjúkrunarfræðinga Vegna síendurtekinna fullyrð- inga Röntgentæknifélags tslands í dagblöðum um að röntgentækn- ar vinni nákvæmlega sömu störf- in og röntgenhjúkrunarfræðingar vill Félag Röntgenhjúkrunar- fræðingataka fram eftirfarandi: Röntgenhjúkrunarfræðingar hafa lokið sérnámi í röntgen- myndatöku og röntgenlækningum að loknu 3ja ára almennu hjúkrunarnámi. Röntgentæknar hafa hins vegar aðeins lokið sex mánaða sjúkraliðanámi og 2ja ára námi í röntgenmyndatöku. Rönt- genhjúkrunarfræðingar hafa þannig hlotið miklu meiri mennt- un i líffærafræði, sjúkdómafræði og lyfjafrði og almennri mehöndl- un sukliga heldur en röntgen- tæknar. Þess vegna hafa röntgen- hjúkrunarkonur leyfi til að sprauta sjúklinga og tillyfjagjafa, en til slfks hafa röntgentæknar ekki leyfi enda ekkert lært í lyfja- fræði. Auk þess má benda á að vegna þess að röntgentæknar hafa aðeins sérhæft nám í rönt- genmyndatöku hafa þeir ekki menntun til að vinna við stórar „sterilar“ rannsóknir, t.d. hjarta- þræðingar. Af þessu er augljóst að röntgen- hjúkrunarfræðingar :>ru ekki hæfir til ýmissa starfa á röntgen- deildum sem röntgentæknar eru ekki. Við vísum því á bug þeirri fullyrðingu RTi að röijtgentækn- ar vinni nákva mlega sörnu störf- in og röntgenhjúkrunarn-æðing- ar.f I yfirlýsint rtist i Bókmenntir á Kjarvalsstöðum SUNNUDAGINN 28 nóvember kl. 4 síðdegis verður U r■' i . bók- menntakynnin Rithöfundasam- bands tslands og Kjarvalsstaða. Að þessu sinni lesa úr verkum sínum þeir Baldur óskarsson, Birgir Svan, Hilmar Jónsson og Jónas Guðmundsson Bókmenntakynning verður í fundarsal Kjarvalsstaða og er að- gangur kr. 200. dagbiöðum nú í vikunni segir m.a. að eina krafa röntgentækna sé að laun þeirra séu „færð til samræm- is við laun þeirrar stéttar sem við vinnum við hliðina á“. Ef þetta er röksemd fyrir kröfu um hærra kaup er þá ekki sjálfsagt að krefjast þess að fá sömu laun og læknarnir sem bæði röntgen- tæknar og röntgenhjúkrunarkon- ur vinna við hliðina á? 25. nóv. 1976 F.h. Félags röntgenhjúkrunar- fræðinga Nanna Friðgeirsdóttir. — Crosland Framhald af bls. 1. Og fyrstu viðbrögð Samtaka brezkra togaraeigenda við niður- stöðum viðræðnanna í Reykjavik voru höfð eftir talsmanni þess: „Þar sem við þekkjum Islendinga kemur þetta tæpast á óvart, en auðvitað veldur þetta okkur von- brigðum. Það virðist nú ekki vafa- mál, jafnvel þótt útlit sé fyrir einhvers konar samkomulag, að mikið harðæri fari í hönd um ára- mótin í togarahöfnum okkar í Hull og Grimsby og í Fleetwood." Talsmaðurinn bætti þvi við að Efnahagsbandalagið væri ábyrgt fyrir þeim mikiu félagslegu og efnahagslegu vandamálum sem nú kæmu upp og ofangreind bæjarfélög ætlast til þess að bandalagið bæti þeim skaðann og geri sitt til að létta af þeim vandanum. Crosland sagði og i yfirlýsingu sinni um viðræður Gundelachs við íslendinga, að það hefði komið i ljós að ógerningur hefði verið að tryggja veiðar á Islandsmiðum frá 1. desember. En enda þótt svo hefði orðið raunin á, væri hann trúaður á að viðræður þær sem hæfust í Briissel um miðjan desember myndu bera árangur. Ekki væri á þessu stigi hægt að láta sér um munn fara einhverjar ákveðnar aflatölur sem um yrði samið, en starf Gundelachs hefði orðið til að dýpka skilning milli aðila á þvi að viðunandi lausn fyndist. WUGHEILAR ÞAKKIRi færi ég öllum þeim. sem sýndu mér vinarhug á sjötugsafmæh minu 10. þ.m. Sérstakar þakkir færi ég sóknarnefnd og kvenfélagi Háteigssóknar fyrir veglegar gjafir og þá vinsemd að halda okkur hjónum virðulegt samsæti á Hótel Sögu á afmælisdegi mínum. Þátttakendum öllum þakka ég ógleymanlega ánægjustund. JÓN þorvarðssonI Finn Olav Gundelach ræddi í gærmorgun við Geir Hallgrímsson forsætisráðherra á skrifstofu hans í stjórnarráðinu. Myndin er tekin við það tækifæri. — Ljósm.: RAX — Brezku togararnir fara 1. desember Framhald af bls. 1 ar myndu sjá til þess að afla- minnkun hvors aðila á svæði hins yrði ekki of skyndileg. Morgunblaðið spurði Gundelach á hvern hátt Efnahagsbandalagið ætlaði að gæta hagsmuna brezka fiskiðnaðarins eftir 1. desember. Hann svaraði þvi til að EBE gætti hagsmuna brezka fiskiðnaðarins sem annarra bandalagsríkja með þeirri sameiginlegu fiskimála- stefnu, sem verið hefði í mótun undanfarið. Hann kvað hana enn ekki fullmótaða, en hvað varðaði innri vandamál ríkjanna 9 lægju nú fyrir tillögur til ráðherranefnd- ar bandalagsins. Gundelach sagði að vissulega hefði það verið til mikilla óþæginda, hve langan tima það hefði tekið að móta sameigin- lega fiskimálastefnu bandalagsins og þvi hefði ekki verið unnt að taka upp samningaviðræður við ríki utan bandalagsin fyrr. Næsta skrefið í þessari stefnumörkun bandalagsins væri útfærslan í 200 mílur 1. janúar 1977. Sameiginleg fiskimálastefna gætti hagsmuna Breta sem annarra, en hið innra samkomulag hennar væri til þess að koma i veg fyrir glundroða á miðum bandalagsins. Hann kvað þvi unnt að skella skuldinni á bandalagsríkin sjálf fyrir að hafa ekki gengið frá fiskimálastefn- unni fyrr — þetta kæmi m.a. niður á því fólki, sem spurt væri um. Þá var Gundelach spurður að því, hvort það væri öruggt að brezkir togarar færu út úr fisk- veiðilögsögu Islands eftij- 1. desember. Þessari spurningu svar- aði hann ákveðið með einsat- kvæðisorðinu „já“. Einar Ágústsson utanrikisráð- herra kvað niðurstöðu fundanna vera að tslendingar hefðu sam- þykkt að hefja samningaviðræður við Efnahagsbandalagið. Hann kvað langmestan tíma fundanna hafa farið í það að lýsa ástandi fiskstofnanna og kvað erfitt að sjá um hvað i raun væri hægt að semja. Hins vegar ætti að kanna það til þrautar. Hann kvað lang- mestan tíma fundanna hafa farið í það að lýsa ástandi fiskstofnanna og kvað erfitt að sjá um hvað í raun væri hægt að semja. Hins vegar ætti að kanna það til þraut- ar. Hann kvað engin tilboð hafa komið frá Efnahagsbandalaginu og nú væri ekki ákveðið hvar eða hvaða dag viðræðurnar færu fram. Þá væri heldur ekki ákveðið á hvaða stigi þær yrðu eða hverjir tækju þátt í þeim. Einar Ágústs- son sagðist vilja leggja á það áherzlu, að aðalatriðið f sameigin- legu yfirlýsingunni, sem lesin hefði verið upp, væru viðræður fyrst og fremst um fiskvernd. Matthias Bjarnason var þá spurður að þvi, hvað EBE gæti i raun boðið Islendingum. Matthías sagði að viðræðurnar hefðu fyrst og fremst fjallað um fiskverndar- sjónarmið. Hann kvað fslenzku fulltrúana hafa skýrt ástandið hér og brýnt það fyrir gestunum, að þeir gæfu skýr svör við því, hvað þeir ættu við með fiskvernd og hvort tilgangurinn væri að ná sam- komulagi um möskvastærð, veiði- svæði og hámarksafla. Slfkt kvað hann vera sameiginlegt áhugamál beggja aðila. Sjávarútvegsráðherra sagðist hafa lýst þvi, að Islendingar hefðu þegar sjálfir fullnýtt og það meira til fiskstofnana við landið, en hann kvað jafnframt menn þurfa að meta það hvað Efnahagsbandalag- ið vildi bjóða. „Það er ekki okkar að spila fyrst út,“ sagði ráðherr- ann „heldur litum við svo á að það eigi Efnahagsbandalagið að gera, þar sem það séu þeir, sem óskað hafi eftir viðræðunum." Þá var Matthías spurður að því, hvort nauðsynlegt væri að gera samning við Efnahagsbandalagið. Hann sagði að tslendingar þyrftu að ná samkomulagi um fiskvernd við bandalagið. Það væri nágranni Islands, þegar fiskveiðilögsaga Grænlands væri orðin að lögsögu bandalagsins. Fiskvernd þar væri þvi mikilvæg fyrir framtiðina. Þá var lögð fyrir íslenzku ráð- herrana spurning um það, hvort skilja mætti yfirlýsinguna, sem í raun v?eru teknar upp samninga- viðræður við bandalagið fyrir jól. Einar Ágústsson svaraði því til að að þvi er tæki til viðræðnanna um samvinnu um fiskvérnd, mætti segja að um samningaviðræður væri að ræða, en um gagnkvæm fiskveiðiréttindi kvað hann áfram yrði um könnunarviðræður að ræða. Finn Olav Gundelach skýrði þá frá því að honum hefði skilist að spurt hefði verið um það, hvort EBE hefði gert íslendingum eitt- hvert tilboð. Hann sagði að vissu- lega hefði bandalagið gert það. „Við bjóðum samvinnu um fisk- vernd og gagnkvæm fiskveiðirétt- indi.“ Einar Ágústsson tók þá fram að hann vildi leiðrétta það sem hann hefði áður sagt um þetta atriði. Hann hefði átt við, er hann sagði að engin tilboð hefðu komið, að þau hefðu ekki verið ákveðin um sérstök atriði. Undir það tók Gundelach. Könnunarviðræðunum, sem hér er lýst lauk klukkan 15.30 í gær, en þær hófust aftur þá um morg- uninn klukkan 11. Áður hafði Finn Olav Gundelach heimsótt Geir Hallgrimsson forsætisráð- herra f forsætisráðuneytið. Sýning Péturs framlengd Að undanförnu hefur Pétur Stefánsson sýnt 25 pennateikn- ingar á Mokka-kaffi við Skóla- vörðustíg. Agæt aðsókn hefur ver- ið að sýningunni og átti henni að ljúka nú um helgina en hefur nú verið framlengd um eina viku. Bílstjóri gefi sig fram FÖSTUDAGINN 26. nóvember, um klukkan hálftólf að morgni, var hvítur sendiferðabíll á Hafnarfjarðarvegi á leið til Reykjavíkur. Við Arnarneslæk- inn mætti hann rauðum vörubíl, líklega að gerðinni Volvo, með segl á palli. Einhver hlutur frá vörubifreiðinni kastaðist frá henni um leið og bílarnir mættust og stórskemmdi sendiferðabílinn að framan. Er ökumaður vörubíls- ins svo og vitni beðin að gefa fram við rannsóknarlögregluna í Hafnarfirði, simi 51566. Kreppa Bern, 26. nóvember. Reuter. EFNAHAGUR Sviss lenti í sinni mestu kreppu síðan á striðsárun- um á siðasta ári, þegar brúttóþjóðarframleiðslan féll um 7,6% miðað við árið 1974, ef mið- að er við fast verðiag. A fljótandi verðlagi var minnkunin 1,5%. Kreppan stafaði aðallega af hækkuðum kostnaði í byggingar- iðnaði, samdrætti innan hans og minni eftirspurn erlendis frá. Nýr bækl- ingur um rafmagn RAFMAGN — það sem allir þurfa að vita- er heiti á bæklingi, sem Rafmagnseftirlit ríkisins hefur gefið út. Bæklingur þessi er þýdd- ur úr ensku en höfundur hans er Francis Mc. Kinney, sem þegar hefur gefið út á 3 tug bæklinga til að vara við slysum og hættum af völdum rafmagns. I bæklingnum er að finna upplýsingar um eðli rafmagns, áhrif þess og minnt er nokkur atriði, sem hafa verður í huga, þegar fólk kemur fyrir tækjum s.s. heimilistækjum. — Danmörk Framhald af bls. 1. Ríkisstjórnin neitaði þvi og þar af ieiðandi var talið að svo gæti farið að ríkisstjórnin myndi boða til nýrra kosninga. Allir voru sann- færðir um að Jörgensen myndi grípa til þess þar sem stjórnin hafði brotið í bága við samþykkt sina við hina flokkana „ágústsam- komulagið" svonefnda, en þar hafði línan verið lögð í launamál- um og ekki gert ráð fyrir að laun hækkuðu meira en sem svaraði tveimur prósentum. Jörgensen sagði I ræðu sinni i dag að sú stefna sem stjórnin hefði reynt að fylgja hefði orðið fyrir ýmiss konar ógnunum og úr ýmsum áttum, bæði vegna verk- fallanna, svo og með hliðsjón af pólitískum kröfum sem myndu verða til þess eins að vekja enn frekari ókyrrð á vinnumarkaðn- um. Sagði hann þær kröfur brjóta algerlega i bága við þær megin- reglur sem í gildi eiga að vera. Hann sagði að þær raddir hefðu heyrzt að dæma hefði átt verka- mennina til að greiða skaðabætur og höfða mál á hendur þeim. Ríkisstjórnin hefði hafnað sliku. Það væri í sjálfu sér alvarlegt að leggja niður vinnu sina, en það væri ekki glæpur. „Kosningar leysa engan vanda,“ sagði Jörgensen í ræðu sinni sen var útvarpað og sjón- varpað beint frá þinghúsinu. Hann sagðist ekki hafa trú á því að styrkleikahlutföllin eftir kosn- ingar yrðu önnur en nú og þar af leiðandi engin ávinningur að kosningum nú. Rikisstjórnin mundi áfram kanna möguleika á því að ná víðtækari samstöðu, að sögn Jörgensen. Ekki leikur á tveimur tungum að Jörgensen litur mjög alvarleg- um augum á stöðuna í dönskum stjórnmálum nú, þvi að hann lauk máli sinu I dag með þvi að hvetja til að samvinnu og samhug væri gefið enn eitt tækifæri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.