Morgunblaðið - 08.12.1976, Side 1
32 SÍÐUR
270. tbl. 63. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Healey bindur
vonirviðpmtdið
London 7. desember — Reuter.
BREZKI fjármálaráðherrann
Denis Healey lét f dag I ljðs von
um að lánið frá alþjððagjaldeyris-
sjððnum, sem væntaniega mun
nema 3,9 milljörðum dollara, og
aðgerðir f efnahagsmálum, sem
rfkisstjðrnin leggur fram f næstu
viku, muni koma jafnvægi á
gengi pundsins.
Hann sagði, að hann vonaðist til
að geta lagt fram drög að samn-
Bretland:
Bjargið
fish &
chips
búðum
London 7. desember —
Reuter.
STJÓRN Verkamannaflokks-
ins var í dag hvött til að bjarga
Fish and chips verzlununum,
sem eru með merkustu stofn-
unum Bretlands, en eru nú i
hættu vegna minnkandi fram-
boðs á fiski. Landssamband
fisksteikara, The National
Federation of Fish Fryers,
sagði í dag að 10.000 eigendur
fish and chips verzlana væru
nú svo illa staddir, sérstaklega
vegna úrslita fiskveiðideilna
við fslendinga, að margir sæju
ekki fram á annað en að þeir
yrðu að leggja starfsemi sfna
niður. Vill sambandið að ríkis-
stjórnin leggi áherzlu á mikil-
vægi fisksteikingariðnaðarins,
sem er óþekktur annars staðar
f Evrópu, við leiðtoga Efna-
hagsbandalags Evrópu.
ingi við önnur lönd um alþjóðleg-
an öryggissjóð fyrir pundið sem
erlendar rfkisstjórnir og einka-
aðilar eigi í brezkum bönkum. Er
hér um að ræða 6,3 milljarði sterl-
ingspunda.
Healey sagði þetta á blaða-
mannafundi með erlendum
fréttamönnum eftir ríkisstjórnar-
fund á þriðjudag. Hefur stjórnin
haldið marga fundi um þau skil-
yrði, sem alþjóðagjaldeyrissjóður-
inn setur fyrir láni.
Ráðherrann vildi ekki ræða
nánar um þau skilyrði, sem
sjóðurinn hefur sett um sparnað.
Brezk blöð álíta að sjóðurinn hafi
meðal annars farið fram á að
opinber útgjöld verði skorin
niður um tvo milljarði punda.
Vinstri armur Verkamanna-
flokksins leggst algjörlega gegn
þessu og álitur að það muni leiða
til aukins atvinnuleysis.
Simamynd AP.
RÁÐHERRAFUNDUR NATÓ — Alexander Haig, æðsti maður herja Atlantshafsbandalagsins, til
vinstri, ræðir við brezka aðmfrálinn Sir Peter Hill-Norton.formann hernaðarnefndar Nató, á árlegum
fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsrfkja.
Ráðherrafundur Nató:
Hvetur aðiidamki til að
auka framlög til varna
BrUssel 7. desember — Reuter.
AÐILDARRlKI Atiantshafs-
bandalagsíns hafa ákveðið að
endurskoða framlög sfn til sam-
eiginlegs varnarkerfis bandalags-
ins vegna vaxandi hernaðar-
ógnunar frá Sovétrfkjunum, sam-
kvæmt drögum að yfirlýsingu,
sem Reuter-fréttastofan fékk
upplýsingar um frá áreiðanlegum
heimildum.
I yfirlýsingunni, sem birt
verður á morgun við lok fundar
varnarmálaráðherra bandalags-
ins, eru aðildarrfkin hvött til að
auka í raun útgjöld sín um til
varnarmála. Segir þar, að nauð-
synlegt sé að endurskoða framlög
til Nató fyrir árið 1977 til að
minnka alvarlegan halla. Ráð-
herrarnir eiga þó eftir að koma
sér saman um hvort orðið „alvar-
legan“ skuli standa í yfirlýsing-
unni.
Ljóst varð hvaða stefnu ráð-
herrafundurinn hafði tekið þegar
háttsettur herforingi bandalags-
ins gagnrýndi aðildarrfkin fyrir
að verja ekki nægilega miklu fé
til varna sinna á meðan stöðug
hernaðaruppbygging færi fram f
Sovétríkjunum. Brezki flota-
aðmfrállinn Sir Peter Hill-
Carter hittir
ráðherraefni?
Atlanta 7. desember — Reuter.
JIMMY Carter, kjörinn forseti
Bandarfkjanna, byrjaði f dag við-
töl við hugsanleg ráðherraefni f
rlkisstjórn sinni. Kallaði hann
fjóra menn og eina konu til fund-
ar við sig f húsi ríkisstjóra
Georgfu f Atlanta f dag.
Álitið er, að Carter einbeiti sér
nú að lista yfir hugsanlega menn
f embættf varnarmálaráðherra,
dómsmálaráðherra og öryggis-
málaráðgjafa.
Patricia Roberts Harris, fyrr-
verandi forseti lagadeildar
Howard-háskóla, þar sem aðallega
eru þeldökkir stúdentar og eitt
sinn sendiherra f Lúxemborg,
kom fyrst til fundar við Carter.
Hún er talin hugsanlegur dóms-
málaarðherra.
Sfðar átti Carter að hitta Paul
Warnke aðstoðarvarnarmálaráð-
herra í stjórn Johnsons og James
Schlesinger, fyrrverandi varnar-
málaráðherra, sem taldir eru
Jimmy Carter
koma til greina sem varnarmála-
ráðherrar. Þá var von á prófessor
Zbigniew Brzezinski frá
Kólumbíuháskóla, sem talinn er
lfklegastur sem öryggismálaráð-
gjafi.
Carter sagði blaðamönnum, að
sumir þeirra, sem hann talaði við,
væru að gefa honum ráð við
vandamálum, sem hann mun
þurfa að eiga við og kæmu ekkL
nauðsynlega til greina sem ráð-
herrar.
Einn þeirra,sem átti að hitta
Carter, er Joseph Califano, lög-
fræðingur f Washington og ráð-
gjafi Lyndon Johnsons, en hann
hefur ekki verið talinn meðal
þeirra, sem þykja lfklegir ráð-
herrar.
Heimildir, sem standa Carter
nærri, hafa sagt að Carter muni
Framhald á bls. 18
Norton, formaður hernaðarnefnd-
ar Atlantshafsbandalagsins, sagði
að mesti veikleiki bandalagsins
væri lág framlög til varnarmála.
„Alvarlegasta vandamálið er sú
upphæð sem varið er til varnar-
mála,“ sagði hann á blaðamanna-
fundi eftir að hafa haldið ræðu,
þar sem hann varaði ráðherrana
við vígbúnaði Sovétmanna.
Yfirlýsingin, sem á eftir að
hljóta samþykki varnarmálaráð-
herranna, tfundar viðleitni, sem
einstök aðildarlönd hafa sýnt til
að efla hermátt sinn, og segir að
framfarirnar séu mikilvægar en
þó í lágmarki. Orðin „í lágmarki"
verða ef til vill strikuð út í með-
ferð ráðherranna.
I yfirlýsingunni segir, að nú sé
áætlað að Sovétríkin verji 13%
vergrar þjóðarframleiðslu sinnar
til varnarmála og er það meira en
nokkurt Nató-Iand. Lýst er
Framhald á bls. 18
Waldheim endur-
ráðinn til 5 ára
Sameinuðu þjóðunum
7. desember — Reuter.
AUSTURRIKISMAÐURINN
Kurt Waldheim var f annað sinn
kosinn til að gegna starfa aðal-
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna i fimm ár, þrátt fyrir
andstöðu Kfnverja. Reyndu Kfn-
verjar að koma f veg fyrir endur-
kjör hans með þvf að beita neit-
unarvaldi á lokuðum fundi
öryggisráðsins í dag. Vilja þeir fá
mann úr einhverju landi þriðja
heimsins f embættið.
Aðeins einn opinber mótfram-
bjóðandi var gegn Waldheim,
Luis Echeverria, fyrrverandi for-
seti Mexikó, og hlaut hann at-
kvæði aðeins fjögurra tanda þar á
meðal Kína af 15, sem sæti eiga i
öryggisráðinu. I annarri atkvæða-
greiðslu drógu Kínverjar til baka
neitun sfna og var þá Waldheim
kosinn með 14 atkvæðum en einn
sat hjá.
Þegar Waldheim gaf fyrst kost
á sér í starf aðalframkvæmda-
stjóra 1971, beittu Kínverjar og
Bretar neitunarvaldi, en sátu hjá
f seinni atkvæðagreiðslu.
Búizt er við að allsherjarþingið
staðfesti endurráðningu Wald-
heims án mótatkvæða á morgun
eða fimmtudag.