Morgunblaðið - 08.12.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1976
5
íslenzk
listakona
verdlaun-
uð erlendis
BJÖRG Þorsteinsdóttir listmál-
ari hlaut nýlega verðlaun á al-
þjóðlegri graffksýningu, XXII
Salon del Grabado y Sistema
Estampacion, en sú sýning er
haldin árlega f Madrid.
A sýningunni voru veitt alls
niu verðlaun. Gullverðlaun
hlaut David de Almeida frá
Portugal, fyrstu verðlaun Forn-
elsi Fornelis frá Spáni og Björg
hlaut önnur verðlaun. Er þetta
í þriðja skiptið, sem Björg fær
viðurkenningu fyrir grafík á al-
þjóðlegum sýningum erlendis.
Björg Þorsteinsdóttir hélt
sína þriðju einkasýningu I
sýningarsal Byggingarþjónustu
Arkitektafélags Islands um
mánaðamótin april—mai s.l.
Hún lagði stund á myndlist i
gi -ii
Björg Þorsteinsdóttir
Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands, Myndlistarskólanum i
Reykjavik, Staatliche Aka-
demie der Bildenden Kiinste i
Stuttgart, „Atelier 17“ í Paris
og Ecole Nationale Superieure
des Beaux Art i Paris. Hún hef-
ur sýnt verk sín víða erlendis,
m.a. í Frakklandi, Spáni, Italiu,
Bandarikjunum, Ástralíu og
viðar.
Jólasöfnun Mæðra-
styrksnefndar hafin
JÖLASÖFNUN Mæðrastyrks-
nefndar er nú hafin, en allt frá
árinu 1928 hefur nefndin liðsinnt
þeim, sem bágstaddir hafa verið,
fyrir jólin. Hefur framlag
nefndarinnar fært birtu og yl inn
á mörg heimili.
Jónina Guðmundsdóttir, sem
kvenna lengst hefur unnið að
þessari starfsemi Mæðrastyrks-
nefndar, sagði i samtali við blað-
ið, að árið 1928 hefði verið úthlut-
að 10 — 12 krónum á heimili. En
Vilja greiða fyr-
ir kennslunni
1 FRÉTT í Morgunblaðinu I gær
var það haft eftir Einari Ágústs-
syni utanríkisráðherra, að Frakk-
ar hefðu lýst því að þeir væru
fúsir að kosta frönskukennslu í
skólum á tslandi. 1 viðtalinu við
ráðherrann mun hafa gætt mis-
skilnings. Frakkar hafa ekki boð-
izt til þess að standa undir kostn-
aði við frönskukennsluna, en hafa
boðizt til þess að styðja við íslenzk
menntamálayfirvöld á alla lund.
Leggja þeir áherzlu á, að franska
sé lögð að jöfnu við þýzku í
menntakerfinu. Þá hafa frönsk
stjórnvöld verið mjög gjafmild á
undanförnum árum I veitingu
námsstyrkja til frönskunáms.
Rétt er því að orða það svo að
Frakkar vilja greiða fyrir fram-
gangi frönskukennslu í íslenzkum
skólum.
síðan hefur sú upphæð að sjálf-
sögðu margfaldast.
Jónina sagði að Reykvíkingar
hefðu alltaf brugðizt vel við, þeg-
ar nefndin hefur leitað til þeirra
á undanförnum árum og efaðist
ekki um að svo yrði einnig nú, því
að þörfin væri víða mikil. Söfn-
unarlistar hafa nú verið sendir til
stofnana og fyrirtækja, en einnig
er tekið á móti gjöfum í skrifstofu
nefndarinnar að Njálsgötu 3 alla
virka daga kl. 12 — 6 e.h.
Nefndinni er nauðsynlegt að
framlög berist sem fyrst svo hún
geti gert sér grein fyrir hvað til
úthlutunar kemur. Þá er henni og
nauðsynlegt að hjálparbeiðnir
berist sem fyrst, svo hægt sé að
sjá hvar skórinn kreppir mest.
Vegna vöntunar á húsnæði
verður ekki hægt að taka á móti
fatagjöfum í ár.
„Hjálpum þeim, sem eru
hjálparþurfi," sagði Jóhanna, „og
reynum þannig öll að eiga gleði-
leg jól.“
Þrír vilja verda
prófessorar í
guðfræði
UMSÓKNARFRESTUR um
prófessorsembætti í guðfræði við
guðfræðideild Háskóla tslands er
runninn út. Umsækjendur eru
þrir: séra Einar Sigurbjörnsson,
dr. theol., séra Gunnar Kristjáns-
son og séra Kristján Búason
dósent.
'3*4
Jólasundmót öryrkja 1976
25. nów. — 13. des.
(nafn) (aldur)
(haimilisfang)
Sundstaður:_________________________________________________________
^Örorka vegna:___________________________________________________________
^ (tilgreinið t.d. lömun, fötlun. blinda. vangefni o.s.frv.
Sendist ^ ^
til Í.S.Í. ^ Þátttoku stadfestir
Box 864, Reykjavík. ^ ^
Stórkostlegt úrval
af herrafötum með og án vestis
Einnig tökum við upp nýjar vörur í
miklu úrvali daglega fram til jóla