Morgunblaðið - 08.12.1976, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1976
11
Flugleiðir byggja
nýtt verkstæðishús á
Rey k j aví kurf lugv elli
ALLT FRA því að flugskýli nr. 5
og verkstæði Flugfélags tslands á
Reykjavfkurflugvelli brunnu
hinn 13. janúar 1974 og þar til
fyrir skömmu, hafa flugvirkjar
unnið störf sín við erfiðar aðstæð-
ur og tæknideildin búið við hús-
næðisskort. Nú rofar hins vegar
til I þessum málum, þvf samfara
endurnýjun á flugskýli nr. 4, sem
Flugmálastjórn hefur látið gera
við, einangra og endurbæta,
byggja Flugleiðir verkstæðishús
við hlfð flugskýlisins, sem bæta
mun verulega úr f þessum efnum.
Nýja byggingin, sem stendur
sunnan við skýli nr. 4, og verður
r
Isafold með
Kennimark
kölska
KENNIMARK kölska heitir ný
tsafoldarbók sem nýkomin er f
bókaverslanir. Hér eru prentaðar
ritgerðir um galdra eftir sr. Pál í
Selárdal og Daða Jónsson.
Höfundar lýsa viðhorfi sínu til
galdra og krydda frásögnina með
smásögum. Þá flýtur talsvert af
galdri með þessum fróðleik.
Lýður Björnsson cand.mag.
annaðist útgáfuna og ritar inn-
gang og skýringar, en á bókar-
kápu segir að hann hafi rannsak-
að galdra meira en flestir nútíma-
fræðimenn hérlendir.
Bókin er mikið myndskreytt.
tengd þvf, er rúmlega 1000 fer-
metrar að flatarmáli á einni hæð.
Þarna fær sá hluti tæknideildar
sem sér um og annast viðgerðir og
viðhald Fokker Friendship flug-
véla Flugleiða aðstöðu. Þrátt fyrir
það verður enn nokkur hluti
starfseminnar f óviðunandi hús-
næði. 1 nýbyggingunni, sem nú
verður brátt tekin f notkun, verða
verkstæði, lager og þar verða enn-
fremur forstöðumenn tæknideild-
ar, verkfræðideild, skoðunardeild
og skipulagsdeild. Þá verða i
byggingunni snyrtiherbergi og
fataherbergi ásamt kaffistofu.
Sem fyrr segir verður gangur
milli nýbyggingarinnar og þess
hluta flugskýlis nr. 4, þar sem
stærri skoðanir á F-27 Friendship
flugvélum fara fram. Eldtraustar
hurðir verða beggja vegna gangs-
ins. Flugskýli nr. 4 hefur verið
endurbætt og framkvæmdi Flug-
málastjórn endurbætur á húsinu
sjálfu en Flugleiðir kostuðu lögn
hitaveitu, uppsetningu hitatækja,
lýsingu og ennfremur millivegg,
sem aðskilur geymslurými fyrir
flugvélar og 30 m langt svæði i
austurenda hússins þar sem stór-
skoðanir á Friendship skrúfuþot-
um fara fram.
Þótt enn vanti nokkurt húsrými
til þess að vel sé séð fyrir öllum
þörfum tæknideildar á Reykja-
vikurflugvelli, mun þó nýbygg-
ingin ásamt og með endurbótum
og breytingum á flugskýli nr. 4
skapa betri aðstöðu en áður hefur
verið fyrir hendi.
Ráðgert er að hluti nýja hússins
verði tekinn í notkun um áramót,
en að smíði verði endanlega lokið
um miðjan febrúar n.k., segir i
lok fréttar frá Flugleiðum.
HÖPUR ungra piJta ( Túnunum f Reykjavík byrjaði
fyrir nokkru sfðan að safna f áramótabrennu. Ætluðu
strákarnar sér að bjóða upp á stóra og fallega brennu um
áramótin, en forsjálni þeirra og dugnaður hefur farið f
taugarnar á einhverjum og um helgina var kveikt í
brennunni. Var kallað á slökkvilið til öryggis, en ekki
kom til neinna óhappa vegna þessarar íkveikju. (Ljósm.
RAX).
16 manns á þungavinnu-
vélanámskeiði á Höfn
, Höfn f Hornafirði, 6. desember
NVLOKIÐ er námskeiði f stjórn-
un þungavinnuvéla á Höfn f
Hornafirði, en 16 manns sóttu
það. Námskeið þetta var haldið á
vegum iðnaðarráðuneytisins.
Um helgina var haldið hér
kirkjukvöld. Þar kom fram
kirkjukór Hafnarhrepps. Söng-
málastjóri þjóðkirkjunnar, Hauk-
ur Guðlaugsson, lék á orgel, Sig-
urveig Hjaltested söng einsöng og
séra Gylfi Jónsson og Þorsteinn
Matthiasson skólastjóri fluttu
hugleiðingu.
Eldey hefur verið hér um helg-
ina að lesta saltfisk og i dag er
verið að skipa út 5600 tunnum af
saltsild í Skeiðsfoss, sem fara á til
Finnlands og Sviþjóðar.
Spærlingsbátarnir hafa fiskað
vel að undanförnu, t.d. var Arni
Magnússon að landa góðum afla I
dag. Elías.
Ljóðmæli
eftir Bjarna
Thorarensen
í nýrri útgáfu
KOMIÐ er út úrval úr Ijóðmael-
um Bjarna Thorarensens
(1786—1841), frumortum og
þýddum. Þorleifur Hauksson
hefur búið það til prentunar og
ritað inngang um Bjarna, ævi
hans og skáldskap. Bókin er
gefin út af Rannsóknastofnun i
bókmenntafræði við Háskóla
íslands og Menningarsjóði í
flokknum íslensk rit, en stjórn
hans hafa með höndum Njörð-
ur P. Njarðvík, Óskar Ó.
Halldórsson og Vésteinn Óla-
son.
Þorleifur Hauksson hefur auk
inngangsins tekið saman
skýringar og athugasemdir við
kvæðin, svo og greinargerð um
fyrri útgáfur af Ijóðum skálds-
ins og heimildir. Gegnt titilsíðu
er mynd af málverki A. Mayers
úr ferðabók Gaimards af Bjarna
Thora rensen.
Áður hefur komið út í bóka-
flokknum íslensk rit: Jón Þor-
láksson. Kvæði, frumort og
þýdd. Úrval.
Saga þolgæðis og þrautseigju,
karlmennsku og dirfsku, saga
mannrauna og mikilla hrakninga,
heillandi óður um drýgðar dáðir
íslenzkra sjómanna á opnum
skipum í ofurmannlegri aflraun
við Ægi konung.
Fjölbreytt og þjóðlegt efni, m.a.
þættir um listamennina Finn
Jónsson og Kjarval, dr. Stefán
Einarsson og . Margréti móður
hans, húsfreyju á Höskulds-
stöðum, ábúendatal Dísastaða í
Breiðdal, lýsing Fosrárdals, upp-
haf prentlistar og blaðaútgáfu á
Austurlandi.
Bergsveinn
Skú/ason
Gamlir
grannar
Stórskemmtilegir og fróðlegir
þjóðlífsþættir frá liðinni tíð, frá-
sagnir af körlum og konum úr
alþýðustétt, raunsönnum aðals-
mönnum og höfðingjum eins og
þeir gerast beztir.
Gunnar
Benediktsson
RÝNTÍ
F0RNAR
RÚNIR
Snjallar ritgerðir í sambandi við
frásagnir fornra rita tslenzkra.sem
varpa nýju ljósi á líf stórbrotinna
sögupersóna. Gagnmerk bók,
sem á sess við hlið íslendinga-
sagna á hverju bókaheimili.
ELÍNBORG LÁRUSDÓTTIR
SANNAR
DYRASOGUR
Hin mikilvirka, nýlátna skáld-
kona lauk rithöfundarferli sinum
með þessari fallegu bók, frá-
sögnum af þeim dýrum sem hún
umgekkst og unni í bernsku
heima í Skagafirði og eins hinum,
sem hún síðar átti samskipti við
árin sem hún bjó á Mosfelli.
Stórkostleg bók um undraaflið
ESP. - Einnig þú býrð yfir ótrú-
legri hugarorku, yfirskilvitlegum
hæfileikum, sem gjörbreytt geta
lífi þínu og lífsviðhorfum. Allir,
sem leita aukins sjálfsþroska, ættu
að lesa þessa bók og fara að ráð-
um hennar.