Morgunblaðið - 08.12.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1976
23
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Til leigu
5 herb. ibúð í miðbænum.
Fyrirframgreiðsla. Sími
18745.
Sköfum og slipum hurðir,
lökkum eða bæsum, gerum
þær sem nýjar, uppl. i sima
51715.
Keflavik Suðurnes
Tek að mér sendiferða-
flutninga. rúmgóður bill.
Uppl. hjá Ökuleiðum i sima
221 1, heimasimi 341 5.
Garður
Til sölu 2ja hæða steinhús
3ja herb. ibúð á efri hæð og
2ja herb. íbúð á neðri hæð.
Fasteignasala Vilhjálms og
Guðfinns, Vatnesvegi 20,
Keflavik. simar 1263 og
2890.
Ódýrir náttkjólar á börn og
fullorðna. Verð frá kr. 700.-.
Elízubúðin, Skipholti 5.
Pelsinn auglýsir
Pelsar i miklu úrvali. Góðir
greiðsluskilmálar. Hlý og
falleg jólagjöf sem vermir.
Pelsinn Njálsgötu 14, simi
20160.
□ Glitnír 59761287 — 1
I.O.O.F. 9 = 1 581288'/. =
Sk.
HELGAFELL 59761287
VI. — 2
Sóknarkonur
sem eiga rétt á styrk úr
Vilborgarsjóði sendi umsókn
sem fyrst.
Stjórnin.
Hörgshlið 12
Samkoma í kvöld, miðviku-
dag kl. 8.
| Jólafundur Félags ein-
stæðra foreldra
verður i Átthagasal Hótel
Sögu, sunnudaginn 12. des
og hefst kl. 3 e.h. Börn og
gestir félagsmanna velkomin.
Skemmtiatriði, happdrætti
og fleira. Nefndin.
mm
ISUIIIS
ÓLOUGOTU3
__________í
SÍMAR 11798 OG 19533.
Myndasýning
(Eyvakvöld verður i Lindar
bæ niðri, miðvikudaginn
8. des. kl. 20.30.
Bergþóra Sigurðardóttir,
læknir sýnir.
Ferðafélag (slands.
3rr
Frá Guðspekifélaginu
Kynningarfundur stúkunnar
Fjólu i Kópavogi, hefst kl. 21
i kvöld að Hamraborg 1, 3.
hæð. Erindi: „Hvert ætlar
þú?" flytur Guðjón B.
Baldvinsson, Stúkan Fjóla.
Sálarrannsókna-
félagið í Hafnarfirði
heldur fund, annað kvöld
fimmtudaginn 9. des. í
Iðnaðarmannahúsinu, kl.
20.30. Fundarefni annast:
Matthías Johannessen, rit-
stjóri, Guðmundur Jörunds-
son, útgerðarmaður og Sig-
fús Halldórsson, tónskáld.
Stjórnin.
Aðalfundur Knatt-
spyrnudeildar
K.R. verður haldinn i K. R.
heimilinu, fimmtudaginn 16.
des. 1976 kl. 20. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Filadelfia Keflavik
Samkoma verður i kvöld kl.
20.30 Ron Coady, biskup
talar. Fyrirbænir í samkom-
unni. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Konur í Styrktarfélagi
vangefinna
Jólavakan
verður í Bjarkarási fimmtu-
daginn 9. des. kl. 20 30.
Stjórnin.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
tilkynningar
Styrkir
til náms við lýðháskóla
eða menntaskóla í Noregi
Norsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki handa erlendum
ungmennum til námsdvalar við norska lýðháskóla eða mennta-
skóla skólaárið 1977 — 78. Er hér um að ræða styrki úr sjóði
sem stofnaður var 8. mai 1970 til minningar um að 25 ár
voru liðin frá því að norðmenn endurheimtu frelsi sitt og eru
styrkir þessir boðnir fram i mörgum löndum. Ekki er vitað
fyrirfram hvort nokkur styrkjanna kemur i hlut islendinga.
Styrkfjárhæðin á að nægja fyrir fæði, húsnæði, bókakaupum
og einhverjum vasapeningum.
Umsækjendur skulu eigi vera yngrí en 1 8 ára og ganga þeir
að öðru jöfnu fyrir sem geta lagt fram gögn um starfsreynslu á
sviði félags- eða menningarmála.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðu-
neytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik fyrir 20. janúar n.k. _
Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
3. desember 1 976.
Styrkur til háskólanáms í
Hollandi
Hollensk stjórnvöld bjóða fram styrk handa islendingi til
háskólanáms i Hollandi háskólaárið 1977 — 78 Styrkurinn er
einkum ætlaður stúdent sem kominn er nokkuð áleiðis í
háskólanámi eða kandídat til framhaldsnáms. Nam við lista-
háskóla eða tónlistarháskóla er styrkhæft til jafns við almennt
háskólanám. Styrkfjárhæðin er 950 flórinur á mánuði i 9
mánuði og styrkþegi er undanþeginn greiðslu skólagjalda. Þá
eru og veittar allt að 300 florínur til greiðslu nauðsynlegra
útgjalda i upphafi styrktimabilsins.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi gott vald á hollensku
ensku, frönsku eða þýsku.
Umsóknir um styrki þessa, ásamt nauðsynlegum fylgigögn-
um, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavík, fyrir 6. janúar n.k. Umsókn um styrk til myndlistar-
náms fylgi Ijósmyndir af verkum umsækjanda, en segulbands-
upptaka, ef sótt er um styrk til tönlistarnáms. — Sérstök
umsóknareyðublöð fást i áðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
3. desember 1976
Aðvörun
til kaupgreiðenda frá
bæjarfógetanum
í Kópavogi.
Kaupgreiðendur, sem taka skatta af starfsmönnum sinum
búsettum í Kópavogi, eru hér með krafðir um tafarlaus skil
innheimtufjárins. Jafnframt eru þeir aðvaraðir um, að málum
þeirra, sem ekki hafa skilað innheimtufé, verður vísað til
sakadóms á næstu dögum.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
tilboö — útboö
Útboð
Tilboð óskast í smíði og uppsetningu á
skilveggjum og hurðum í nýbyggingu að
Háaleitisbraut 68, Reykjavík. Tilboðs-
gangna má vitja á Teiknistofunni s.f.
Ármúla 6, Reykjavík miðvikudaginn 8.
des n.k. gegn kr. 1 0 þús skilatryggingu.
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð á húseigninni Litla Hvammi, Bíldudal, talin
eign Matvælaiðjunnar h.f., sem auglýst var i 69., 7 1. og 73.
tölublaði Lögbirtingablaðsins 1976. fer fram eftir kröfu
Gunnars Sæmundssonar hdl., og Páls S. Pálssonar hrl., á
eigninni sjalfri föstudaginn 10. des. n.k. kl. 16. Á sama tíma
verða seldar bifreiðarnar B-254, B-479 og B-854.
Sýslumaðurinn 1 Barðastrandarsýslu
6. desember 1976
Jóhannes Árnason.
Reykjaneskjördæmi
Skýrslur og greiðslur árgjalda þurfa að berast hið allra fyrsta til
formanns kjördæmisráðs Jóhanns Petersen, Tjarnarbraut 7,
Hafnarfirði.
Stjórn Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins
í Reykjaneskjördæmi
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda Kópavogi
Jólafundur\
verður haldinn fimmtudaginn 9. des kl. 20.30 að Hamraborg
1,4. hæð
Dagskrá:
Sýnikennsla jóladrykkja.
Upplestur.
?
Veitingar
Helgistund
Félagskonur fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Stjórnin
Baldur málfundafélag
Sjálfstæðisfólks
íKópavogi
Heldur almennan fund um bæjarmál.
Fundarstaður Hamraborg 1—3, 4. hæð, miðvikudaginn 8.
desember kl. 20.30.
Dagskrá.
1. Bæjarmál. Frummælendur: Björgvin Sæmundsson bæjar-
stjóri. Rikhard Björgvinsson bæjarfulltrúi. Stefnir Helgason
bæjarfulltrúi. Bragi Mikaelson bæjarfulltrúi. Frummælendur
svara fyrirspurnum.
2. Önnur mál.
Sjálfstæðisfólk fjölmennið.
Stjórnin
F.U.S.Njörður Siglufirði
Aðalfundur
Aðalfundur F.U.S. Njarðar á Siglufirði verður haldinn í Sjálf-
stæðishúsinu laugardaginn 11. des. n.k. kl. 16. Dagskrá.
Venjuleg aðalfundarstörf. Fulltrúar stjórnar F.U.S. mæta á
fundinn.
F.U.S. Njörður.
Félag Sjálfstæðismanna í
Nes-, Mela-, Vestur- og
Miðbæjarhverfi
Almennur fundur verður haldinn i Átthagasal Hótel Sögu
miðvikudaginn 8. desember kl. 20:30
Fundarefni:
Hvað getum við gert fyrir
unglingana okkar —
Hallærisplanið!
Frummælendur Björn Jónsson skólastjóri (Hagaskóla) Hrönn
Pétursdóttir, húsmóðir, Helga Leifsdóttir, nemi, Bjarki Elias-
son, yfirlögregluþjónn.
Fundarstjóri séra Þórir Stephensen, dómkirkjuprestur.
—Jörgen Bukdahl
Framhald af bls. 14
Ég fjölyrði ekki meira um þessi
mál. Það verður gert síðar og á
þann hátt sem verðugt er, bæði
málefninu og manninum, sem
varði mörgum árum ævi sinnar til
þess að kynna málstað Islendinga
I einhverju merkasta máli sem
verið hefur á dagskrá siðustu ára-
tugi og var leyst á giftusamlegan
hátt og til ævarandi sóma fyrir
fyrrverandi sambandsþjóð okkar.
Hér að framan hefur litið verið
minnzt á manninn Jörgen
Bukdahl, en það er vegna þess að
persóna hans kemur svo skýrt
fram I ritum hans að þar er engu
við að bæta. En við, kunningjar
hans gleymum ekki gestrisni hans
og konu hans í húsinu við
mylluna I Askov. Hann er alger-
lega laus við allan þann yfirborðs
hégóma sem mjög hefur verið i
tízku lengi.
Hann hefur litinn
áhuga á heiðurstáknum krossa-
veseni og öðru slíku. Það var
aðeins fyrir beiðni forseta Islands
að hann tók á móti fálkaorðunni i
sambandi við Skálholtshátiðina
1957, þegar forsetinn sannfærði
hann um að Islenzka þjóðin
myndi ekki skilja ástæðuna fyrir
þvi að hann afsalaði sér þessu
heiðurstákni frá Islandi.
Ég vil svo enda þessar línur
með innilegri hamingjuósk og
þökk til Bukdahls frá okkur
nemendum hans og vinum fyrir
hans mikla starf i þágu islenzku
þjóðarinnar. Ég veit að allir
tslendingar taka undir þessi orð
min. Megi heill og hamingja
fylgja þér, gamii vinur um
ókomin ár.
AVGI.VsiNÍI ASIMIW ER: ]