Morgunblaðið - 08.12.1976, Síða 32
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1976
Demantur M
æðstur eðalsteina ' -
#uU & é>ilfur
Laugavegi 35
í fangelsi í Keflavík:
Grunadur um
fjármálamisferli
Bílstjóri úr Reykjavík í 20 daga gæzluvarðhald
BlLSTJÓRI úr Reykjavfk var f
gær úrskurðaður I 20 daga gæzlu-
varðhald I Keflavfk, grunaður um
fjármálamisferli. Var maðurinn
handtekinn á ferð 1 Keflavfk.
Morgunhlaðið fékk þær
upplýsingar hjá Viðari Olsen,
fufltrúa sýslumanns f Keflavfk,
að ekki væri vitað á þessu stigi
hve málið væri vfðtækt, en talið
er að það geti orðið tafsvert vfð-
tækt.
Morgunblaðinu er kunnugt um,
að þeir Haukur Guðmundsson,
rannsóknarlögreglumaður i
Keflavik, og Kristján Pétursson,
deildarstjóri i Tollgæzlunni á
Keflavíkurflugvelli, hafa að
undanförnu fylgst með athöfnum
þessa manns og unnið að gagna-
öflun um meint fjármálamisferli.
STARFSMAÐUR á hjóibarða
verkstæði KA á Selfossi
handleggsbrotnaði á báð-
um handleggjum þegar hjólbarði
sem sprakk hentist f hann
f fyrradag. Var maðurinn
að vinna við hjólbarðann þeg-
ar slysið henti. Einnig skaddaðist
maðurinn nokkuð á andliti. Hann
var fluttur f Slysadeifd Borgsr-
spítalans.
sem fram hefðu komið I svörtu
skýrslunni.
Framhald á bfs. 18
Ufsastofninn minnkar sifellt:
Lélegir árgang-
ar eru á ferðinni
— segir dr. Sigfús Schopka fiskifræðingur
SJÓMENN og þó sérstak-
lega togarasjómenn hafa
kvartað undan minnkandi
ufsaafla við landið á þessu
ári og á þetta kannski sér-
staklega við sjðmenn á
Austfjarðatogurunum.
Vegna þess hafði Morgun-
blaðið samband við dr. Sig-
fús Schopka fiskifræðing
og spurði hann hver væri
ástæðan fyrir minni ufsa-
gengd en áður.
Sigfús Schopka sagði, að minnk-
andi ufsaveiði á þessu ári væri í
samræmi við þær niðurstöður
Handleggsbrotn-
aði á bádum
Öryrkjasundið:
Vaxandi
þátttaka
JÓLASUNDMÓT öryrkja er
nú f fullum gangi og nú þegar
hafa talsvert á annað hundrað
viðurkenningar verið veittar
fyrir þátttöku f sundinu sam-
kvæmt upplýsingum Sigurðar
Magnússonar hjá tSl. Þegar er
búið að senda 25 viðurkenn-
ingar til Akureyrar, en al-
mennt er þátttaka vaxandi sfð-
ustu dagaog vitað er um fjölda
fólks sem ætlar að taka þátt f
sundinu næstu daga eða áður
en þvf lýkur n.k. mánudag.
T.d. mun hópur blindra fara f
Arbæjarlaug n.k. fimmtudag.
Aage Michelsen heldur hér á réttskeið og má sjá hversu mikið svarta
stoðin hefur svignað, þar sem hann getur sett höndina á milli.
Stálu áfengi
og sjónvarpi
á Vellinum
Tveir menn, fslenzkir, brutust f
fyrrinótt inn f einn af klúbbum
varnarliðsmanna á Keflavfkur-
flugvelli og stálu þeir þar 14 köss-
um af áfengi eða 150 flöskum og
litasjónvarpi. Mennirnir voru
handsamaðir á Suðurnesjum f
gærmorgun og fannst allt þýfið
sem þeir stálu.
400 m2 steinhús í H vera-
gerði lyftist á grunninum
Gólf byrjud ad springa en orsakir ókunnar
HUSIÐ Austurmörk 4 f Hvera-
gerði byrjaði að lyftast á grunnin-
um aðfararnótt s.l. mánudags og
hefur það risið jafnt og þétt sfð-
an, mest um nokkra sentimetra.
Húsið, sem er um 400 fm. tvflyft
steinhús byggt 1973, liggur undir
stórskemmdum vegna þrýstings
upp undir gólfið á jarðhæð, en
orsakirnar eru ókunnar og eng-
inn jarðfræðingur hafði kannað
málið í gær.
Eigandi hússins Austurmarkar
4 er Aage Michelsen og rekur
hann bifreiðaverkstæði f hluta
hússins, en að auki eru þar til
húsa matstofan Búrið og hár-
greiðslustofa.
Þegar starfsfólk á matstofunni
Búrinu kom til vinnu s.l. mánu-
dagsmorgun, tók það eftir því að
stoðir i afgreiðslusal matstofunn-
ar höfðu bognað og sprungur
myndazt í gólfinu á nokkrum stöð-
um. í gær var mælt hve mikið
gólfið hefði lyfzt og nam það 14
millimetrum á einum sólarhring,
en síðan á mánudagsmorgun hef-
ur húsið lyfzt um nokkra senti-
metra. Á gólfi hárgreiðslustof-
unnar höfðu einnig myndazt all-
miklar sprungur, en engar sjáan-
legar skemmdir voru á húsnæði
bifreiðaverkstæðisins.
Eigandi matstofunnar Búrsins,
Þorgeir Sigurgeirsson, sem rekur
hana ásamt Sólveigu Björnsdótt-
ur, sagði að starfsfólk matstof-
unnar hefði tekið eftir að stoðirn-
ar í afgreiðslusalnum voru bogn-
ar á mánudagsmorgni þegar fólk-
ið kom til vinnu. Einnig hefði
mátt sjá skemmdir á afgreiðslu-
borði og í veggklæðningu þar sem
þilplötur hafa svignað frá. Sagði
Sigurgeir að ekki hefði sézt neitt
óvenjulegt á sunnudagskvöldið
þegar starfsfólkið yfirgaf matstof-
una um kl. 20:00 og hann hefði
„Tefjist geðdeild Landspítalans,
fjölgar langlegusjúklingum”
- segir Tómas Helgason yfirlæknir á Kleppi <
MORGUNBLAÐIÐ innti
Tómas Helgason, yfir-
lækni á Kleppi, eftir áliti
hans f gær á því hvaða
afleiðingar það hefði fyr-
ir málefni geðsjúkra ef
framkvæmdahraði verð-
ur ekki aukinn á geð-
deild Landspítalans, en
nú er búið að steypa upp
hús, sem á að rúma 60
rúm af alls 120, sem eiga
að vera í geðdeild spítal-
ans fullbúinni.
„Ef framkvæmdahraði verð-
ur ekki aukinn,“ Sagði Tómas,
„mun það leiða til þess, að
sjúklingar, sem nauðsynlega
þurfa að komast á sjúkrahús,
komast ekki að og það er þvl
hætta á, að ekki takist að lækna
þessa sjúklinga og þeir verði
króniskir sjúklingar og öryrkj-
ar. Það myndi hins vegar leiða
til þess, að meira langdvalar-
pláss þarf fyrir þetta fólk siðar,
en ella þyrfti, ef unnt reyndist
að lækna það f tfma.
Það er einnig ljóst, að ef geð-
veikt fólk þarf að bíða lengi
eftir sjúkrahúsplássi þá eykst
mjög álag á aðstandendur þess
og bindur þá heima við, jafnvel
frá vinnu. Siðar yrðu þessir að-
standendur ugglaust tregari til
að taka við sjúklingunum aftur
þegar þeim væri batnað, af ótta
við að ekki yrði brugðízt nógu
skjótt við aftur, ef á þyrfti að
Tómas Helgason
halda með sjúkrahúsþjónustu.
Það hefur einnig ýmsar aðrar
afleiðingar ef fólk, sem er geð-
veikt, kemst ekki á sjúkrahús i
tæka tíð. Það getur leitt til
fleiri sjálfsmorða, aukningar á
lyfjanotkun og aukningar á
áfengisnotkun, sem í mörgum
tilvikum leiðir til áfengissýki.
Þá er þessari geðdeild ætlað
að leysa nokkurn vanda varð-
andi kennslu fyrir heilbrigðis-
stéttirnar f geðlækningum, en
aðstaða i þeim efnum er nú
ónóg og kennslan I geðlækning-
um ekki samhæfð kennsluf öðr-
um greinum læknisfræði sem
skyldi. Þess vegna verða
nemendum ekki nógu ljós
tengslin milli geðrænna og
likamlegra kvartana. Og ófull-
komin kennsla leiðir til þess að
heilbrigðisþjónustan verður
ekki nógu góð. Komist geðdeild-
Framhald á bls. 18
komið þar seinna um kvöldið og
ekki heldur séð neitt óvenjulegt.
Aage Michelsen sagði að hann
hefði reynt að ná sambandi við
jarðfræðinga en það hefði enn
ekki tekizt og að hann furðaði sig
Framhald á bls. 18
Bændum
tryggðar
400 millj.
fyrir jól
FJÖLMENNUR fundur bænda á
Suðurlandi var haldinn I Árnesi f
gærkvöldi og sótti á 4. hundrað
manns fundinn sem boðað var til
af hálfu bænda I Árnessýsiu.
Framsögumenn á fundinum
voru Árni Jónasson, erindreki
Stéttarsambands bænda, Halldór
E. Sigurðsson, landbúnaðarráð-
herra, og Jón Bergs, forstjóri
Sláturfélags Suðurlands.
Það kom fram í ræðu land-
búnaðarráðherra, að rfkisstjórnin
hefur ákveðið að leysa fyrir 20.
des. n.k. þann vanda hjá bændum
sem skapazt hefði vegna
ógreiddra útflutingsbóta. Um er
að ræða 400 millj. kr. ógreiddar
frá árinu 1975 og einnig ftrekaði
ráðherrann að rfkisstjórnin
hyggðist leggja fram um 40
milljónir kr. til að bændur fengju
fullt verð fyrir gærur frá haust-
inu 1975. Upphaflega var áætlað
að um 100 millj. kr. vantaði til að
bændur fengju fullt verð, en það
sem á vantar, taka gærukaupend-
ur og sláturleyfishafar á sig að
greiða.