Morgunblaðið - 10.12.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976
3
Kommúnistar köstuðu
grímunni á ASÍ-þingi
„ÉG ER sammála því, að þetta ASÍ-
þing er sennilega eitt hið afkasta
mesta þing, sem haldið hefur verið.
Mjög þýðingarmikil mál voru af-
greidd eins og stefnuskrá Alþýðu-
sambandsins og ályktunin um kjara-
málin. Ég tel hins vegar að þessa
þings verði þó lengi minnzt fyrir aðra
hluti, sem á því gerðust," sagði
Magnús L. Sveinsson, varaformaður
og framkvæmdastjóri Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur, í viðtali
við Morgunblaðið f gær.
„Ég tel að þessa þings verði lengi
minnzt fyrir þá sök, að nú köstuðu
kommúnistar grímunni og . fjöldi
þingfulltrúa, sem hafði trúað þvi, að
þeir vildu fyrst og fremst berjast fyrir
bættum kjörum launþega, sá þá nú í
sínu rétta Ijósi. Eftir þetta þing dylst
engum, að kommúnistar meta rétt
manna í verkalýðshreyfingunni eftir
pólitlskum skoðunum þeirra. Hags-
munir launþega eru settir aftur fyrir
pólitfska hagsmuni kommúnista."
hana sem valdatæki fyrir pólitiskum
sjónarmiðum kommúnista eins og allir
þekkja meðal einræðisrikja, þar sem
kommúnistar hér berjast nú fyrir á
íslandi," sagði Magnús L. Sveinsson,
en hann hélt áfram:
„Það, að kommúnistar skyldu nú
kasta dulargervinu svo afdráttarlaust er
mjög gott. Þeir hafa skýlt sér með þvi
um morg undanfarin ár og þannig
blekkt almenning. Nú veit almenningur
við hverju hann má búast af þessum
mönnum, sem meta rétt manna i
verkalýðshreyfingunni eftir pólitiskum
skoðunum þeirra. Augu margra þing-
fulltrúa opnuðust fyrir þessari hættu,
sem menn voru farnir að trúa, að væri
ekki lengur til.
% Allt itarlega undirbúið
Það, sem mér finnst þó óhugnanleg-
ast við framkomu þessara manna, er
þinginu undir markvissri forystu nokk-
urra kunnra Alþýðubandalagsmanna."
• Svik
Það voru talsmenn þessarar komma-
deildar, sem skipulögðu vinnubrögðin,
sem komu fyrst og fremst fram i hatri
og fjandskap í garð pólitískra andstæð
inga Það er íhugunarefni fyrir allt
hugsandi fólk sjónarmiðið, sem fram
kom i áðurnefndri grein í Þjóðviljanum
í fyrradag, þar sem rætt er um kosn-
ingu milli Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur
og Snorra Jónssonar i embætti vara-
forseta ASÍ, en þar segir orðrétt: „Ekki
einn einasti Alþýðubandalagsmaður á
ASÍ-þingi sveikst undan merkjum þeg-
ar á reyndi. Það er staðreynd að það er
sterkt."
Hér er engin tæpitunga töluð —
sagði Magnús L. Sveinsson Því er
slegið föstu, að hver $á kommúnisti,
sem hefði leyft sér að kjósa Aðalheiði
sem varatorseta hetöi veriö svikari.
Þarna kemur stefna kommúnista innan
verkalýðshreyfingarinnar ómenguð
fram: Sá, sem ekki stendur pólitískt
með kommúnistum i verkalýðshreyf-
ingunni er svikari."
Á þinginu gerðu kommúnistar harða
hríð að núverandi ríkisstjórn og mátti
skilja á sumum þeirra, að allt hið illa
kæmi þaðan „Það er kannski dæmi-
gert fyrir vinnubrögð kommúnista,"
sagði Magnús, „að eftir að þingið var
hafið fluttu þeir tillögu um að þingið
krefðist þess að ríkisstjórnin segði af
sér. Þetta töldu flutningsmenn mesta
og mikilvægasta mál þingsins Sam-
kvæmt 23 grein laga ASÍ ber félögum
að senda tillögur um öll stór mál sem
fyrir þingið er lögð, til miðstjórnar ASÍ
tveimur mánuðum fyrir þingið Þessi
tillaga hefði þvi átt að berast með
slikum fyrirvara. Svo var ekki, henni
var fleygt inn á þingið eftir að það var
hafið í umræðum benti ég á þessa
augijósu staðreynd og óskaði, að tillög-
unni yrði visað frá, þar sem tilkoma
hennar á þingið bryti í bága við lög
ASÍ. Þvi var ekki sinnt Svo virðist sem
lög séu ekki að skapi þessara manna,
nema „þeirra lög"
% Vinstri stjórnar saknað
í ræðum kommúnista, sem töluðu
fyrir tillögunni var hástemmdur s ökn-
„A timabilinu trá 30. april til 30.
nóvember 1 974 er vinnuveitendum og
launagreiðendum óheimilt að greiða
hærri laun en svarar 20% grunnlauna-
hækkunar frá 31. desember 1973.
Ákvæði í kjarasamningum eða kjara
dómum um frekari hækkun skulu ekki
koma til framkvæmda á greindu tima-
bili
Ákvæði 1 mgr taka einnig til
ákvæðisvinnulauna, en ekki til grunn-
launa, sem lægri eru en 36 þúsund
krónur á mánuði fyrir fulla dagvinnu
miðað við kaupgreiðsluvísitölu 1.
desember 1973 = 100
Við ákvörðun grunnlaunahækkana
skal tekið tillit til hvers konar taxtatil-
færslna, flutninga milli launaflokka og
allra hlunninda, sem meta má til launa
Undanskildar skulu þó vera samnings-
bundnar starfsaldurs- eða starfs-
reynsluhækkanir."
í 4. gr. segir um bindingu kaup
greiðsluvísitölu:
„Ekki skal greiða hærri verðlagsupp
bót á laun en svarar til þeirrar kaup
greiðsluvísitölu, sem tók gildi 1. marz
1 974 skv. kjarasamningum
Þó er ríkisstjórninni heimilt að
ákveða að greiða skuli hærri verðlags-
uppbót en segir í 1. mgr. á grunnlaun.
sem lægri eru en 36 þúsund krónur á
mánuði fyrir fulla dagvinnu miðað við
Samtal við Magnús L. Sveinsson varaformann og framkvæmdastjóra VR
9 Kommúnistar afhjúpuðu sjálfa sig
„Kommúnistar á ASÍ-þingi fóru ekk-
ert dult með þá grundvallartrú sína, að
enginn geti barizt fyrir bættum kjörum
launþega, nema þeir, sem tilheyra
þeirra flokki, sem þeir hafa „löggilt"
sem hinn eina sanna verkalýðsflokk.
Þessar kenningar þekkjum við vel frá
þeim löndum, þar sem kommúnistar
hafa náð völdum og þeir hafa bannað
alla aðra flokka. Kommúnistar hér á
landi hafa á undanförnum árum látið
sem þeir væru andvígir slíku stjórn-
kerfi. Ég hygg að fólk hafi almennt
verið farið að trúa því, að þeir meintu
það
En þeir sem sátu Alþýðusambands-
þing upplifðu sannarlega að sjá og
heyra, að hér er hópur manna, sem
telur það fyrstu skyldu sína að ná undir
sig verkalýðshreyfingunni og nota
hatrið, sem þeir ala með sér í garð
pólitískra andstæðinga sinna Af mál-
flutningi þeirra er augljóst, að þeir
leggja mikla rækt við þá iðju Það
virðist vera þýðingarmikill þáttur í
stefnu þeirra að egna hinar ýmsu stétt-
ir þjóðfélagsins gegn hver annarri.
í Þjóðviljanum í fyrradag er sagt, að
árangur kommúnista á ASÍ-þingi hafi
mátt rekja til ítarlegs undirbúnings.
sem lengi hafi verið unnið að i röðum
þeirra áður en þingið hófst. Sagt er að
við undirbúninginn hafi verið deilt um
„mat á stöðu til að koma málum fram
og vinnubrögð." Það fer ekki milli
mála, hvaða deild kommúnista á þing-
inu náði undirtökunum og réð verulega
ferðinni. Það var það sem i þjóðviljan-
um í fyrradag er kallað „órólega deild-
in" og að sögn Þjóðviljans „starfaði á
uður af falli vinstri stjórnarinnar. Björg-
vin Sigurðsson sagði, að það myndi nú
vera öðru visi og betur ástatt i kjara-
málum launþega, ef vinstri stjórnin
sæti enn við völd. Ég svaraði Björgvin
og sagði, að hann hefði gleymt að geta
um síðustu kveðjur vinstri stjórnarinn-
ar til launþegasamtakanna. Það var
frumvarpið, sem vinstri stjórnin samdi
nokkrum vikum eftir að verkalýðsfélög-
in með ASÍ i fararbroddi höfðu undir-
ritað kjarasamninga 26. febrúar 1 974,
og lagt var fyrir Alþingi 2. maí 1974,
daginn eftir árlegan hátíðisdag verka-
lýðsins.
0 Kaldar kveðjur vinstri stjórnar
Og hverjar voru síðustu kveðjur
vinstri stjórnarinnar, sem kommúnistar
harma nú svo mjög. til launþegasam-
takanna? í frumvarpinu segir m a i 7.
flr.:
kaupgreiðsluvísitölu 1. desember
1973 = 100 Slik verðlagsuppból
yrði ákveðin sem föst krónutala en ekki
sem hlutfall af launum
Kauplagsnefnd skal ekki reikna út
nýja kaupgreiðsluvisitölu á meðan
ákvæði þessarar greinar eru í gildí."
Q Vinstri stjórnin vildi svipta
launþega frjálsum samningsrétti
Og Magnús L. Sveinsson segir:
„Meginþorri launþega hafði hærri
grunnlaun en 36 þúsund krónur Sam-
kvæmt útreikningi Kjararannsóknar-
nefndar sömdu t d verzlunarmenn um
23.7% launahækkun i febrúar 1974
og hefði því orðið að lækka laun þeirra.
hefði þetta frumvarp vinstri stjómar-
innar náð fram að ganga Til að undir-
strika það að búið væri að taka hínn
Framhald á hls. 1J
„Jólastjörnur".
0
A henni eru samankomnir einir mestu
listamenn þjóðarinnar í poptónlist,
gamanmálum og þjóðlagatónlist,
Jólastjömur
er jólaplatan þessi
og komandi jól
☆
•••• ’
Gfieðileg jól!
Halli og Laddi, ^
Ríó tríó, ^
Björgvin Halldórsson,
Gunnar Þórðarson
Hljómplötuútgáfan
Ýmir
Jólastjörnur
auðvitað!