Morgunblaðið - 10.12.1976, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976
Húsvikingar vilja sjá
og heyra í Ríkisútvarpi
BÆJARSTJÓRN Húsavlkur hef-
ur samþykkt ályktun um mót-
tökuskilyrði fyrir hljóðvarp og
sjónvarpssendingar á Ilúsavfk,
þar sem fagnað er endurbótum á
dreifingu til fbúa á Vestur- og
Félag leiðsögumanna
hvetur til að leiðsögu-
menn afli sér
félagsréttinda
FÉLAG leiðsögumanna vill vekja
athygli á því að nú megi búast við
því að félagið veiti ekki lengur
undanþágu fólki til Ieiðsögustarfa
sem ekki eru félagsmenn. Er í
frétt frá félaginu bent á að nokk-
ur undanfarin ár hafi það viljað
brenna við að við fararstjórn og
leiðsögu hafi unnið fólk sem sé
ekki félagsbundið í Félagi leið-
sögumanna og uppfylli ekki kröf-
ur um inngöngu í félagið. Er vak-
in athygli á námskeiði þvf sem
Ferðamálaráð Islands stendur
fyrir í janúar n.k. og bent á að
þeir, sem sæki það námskeið, öðl-
ast rétt til inngöngu í félagið og
renni umsóknarfrestur út hinn
10. desember n.k.
Norðurlandi, en jafnframt minn-
ir bæjarst jórnin á, að þessar
endurbætur koma sjónvarpsnot-
endum á Húsavlk og þar I grennd
að takmörkuðu gagni meðan ör-
bylgjukerfið nær aðeins til Vaðla-
heiðar og þvf eru móttökuskilyrði
fyrir sjónvarp á Húsavfk ennþá
léleg, t.d. er texti tvöfaldur.
Frá þessu er skýrt í fréttatil-
kynningu frá bæjarritaranum á
Húsavík, sem Morgunblaðinu hef-
ur borizt. Þar segir ennfremur:
„Á fundi bæjarstjórnar Húsa-
víkur í desember 1973 var sam-
þykkt harðorð ályktun vegna
ófremdarástands á útsendingum
hljóðvarps frá endurvarpsstöð-
inni á Húsavík.
Nú að þrem árum liðnum er
ennþá notast við sama sendinn,
sem er venjulegur talstöðvarsend-
ir, sem fær dagskrárefni eftir
sfmalinu, sambærilegri við venju-
lega talsimarás. Af þeim sökum
eru tóngæði í algjöru lágmarki,
eins og Sigurður Þorkelsson, for-
stjóri radiótæknideildar Lands-
síma Islands, tók réttilega fram i
sjónvarpsþættinum Kastljósi
föstudaginn 26. nóvember 1976.
Bæjarstjórn Húsavíkur skorar á
Framhald á bls. 19
SGT TEMPLARAHÖLLIN scr
Félagsvistin
í kvöld kl. 9
3ja kvölda spilakeppni.
Heildarverðmæti vinninga kr. 1 5.000 -
Góð kvöldverðlaun
Þekkt tríó leikur gömlu dansana til kl 01
Aðgöngumiðasala frá kl. 8.30
Sími 20010 Templarahöllin
Úrvalsvörurnar frá Marks & Spencer
FÁST HJÁ OKKUR
Fatnaöur á alla fjölskylduna.
Vörurnar, sem eru þekktar og rómaóar
um víöa veröld.
Framleiddar undir strangasta gæöaeftirliti.
DOMUS Laugavegi 91
GEFJUM Ausfurstræti
KEA Vöruhús
Kaupfélögin
Leikmynd Arútsjan vfð „1 deiglunni" eftir Arthur Miller.
Armennsk alþýðu-
list í MÍR-salnum
SVNING á armenskri list verður
opnuð f MtR-salnum að Lauga-
vegi 178 næstkomandi laugardag.
Verða þar sýndar leikmyndir og
teikningar eftir kunnan armensk-
an listamann, Sarkis Arútsjan, en
einnig verða á sýningunni nokkur
sýnishorn armenskrar alþýðulist-
ar. N
Sarkis Arútsjan hefur um ára-
bil verið einn fremsti leikmynda-
teiknari í Armeníu og er heiðurs-
listamaður Armenska sovétlýð-
veldisins. Á sýningunni hér verða
25 leikmyndir eftir hann, eru þær
unnar með ýmsum hætti, og 10
teikningar og tússmyndir. Eru
leikmyndirnar unnar fyrir sýn-
ingar á ýmsum heimsfrægum
leikritum, t.d. Óþelló, I deiglunni
og Rakarann frá Sevilla.
Sýningin verður opnuð kl. 14 á
laugardaginn og sóðan verður
hún opan fram yfir áramót, dag-
lega frá 17 — 19, en 14 — 19 á
laugardögum og sunnudögum.
Götuleikrit
NÆSTKOMANDI laugardag milli
kl. 2 og 4.30 mun hreyfingin An-
anda Marga verða með mótmæla-
aðgerðir á Lækjartorgi til að
krefjast þess að Shrii Shrii
Anadamurti verði leystur úr
haldi og leyft að fara úr landi til
að fá læknishjálp vegna hinnar
löngu föstu sinnar, sem staðið
hefur frá j. aprfl 1973.
Hreyfingin mun hafa götuleik-
rit til að sýna málið á táknrænan
hátt, segir í tilkynningu frá hreyf-
ingunni.
„1 Rauðár-
dalnum”
„t Rauðárdalnum", skáldsaga
Jóhanns Magnúsar Bjarnasonar
er komin út f 3. útgáfu hjá Bóka-
útgáfunni Eddu á Akureyri, en
Árni Bjarnarson bjó hana til
prentunar.
Á kápusíðu segir svo m.a.:
„Flestir tslendingar þekkja vest-
ur-íslenzka rithöfundinn Jóhann
Magnús Bjarnason og bækur hans
Braziliufarana, Eirík Hansson,
Vornætur á Elgsheiðum og Haust-
kvöld við hafið. Nú hefur fimmta
bókin bætzt f ritsafn hans, sem
ber öll einkenni fyrri bóka þessa
frábæra höfundar. Hún er full af
ótrúlegustu ævintýrum. lífsfjöri
og leyndardómum. Lesið um
Arnór Berg, aðalsöguhetjuna,
undrakonuna Madeleine Vanda
og falda fjársjóðinn, er kemur svo
mjög við sögu.“
Bókin er 457 bls. að stærð.
Ragnar Lár
myndskreytir
Ormstungu
LETUR, Bókaútgáfa, hefur gefið
út Gunnlaugs sögu Ormstungu,
myndskreytta af Ragnari Lár
listamanni, Bókin er gefin út í 800
eintökum og myndskreytingar
Ragnars Lárs eru á annað hundr-
að talsins. Bókin er í stóru broti,
aðgengileg bæði fyrir börn og
fullorðna.
CB
kraftur
öryggj - e
'Aflvélarog rafstöóvar frá 75 til 1125 hö.
CATERPILLAR
BÁTAVÉLAR
.-iraxa*..
í((_
Einnig bjóóum vió
hinn vióurkennda
' skiptiskrúfubúnaó.
Sölu-, viógeróa- og
varahlutaþjónusta í
sérflokki
HEKLA HF
450- 520 hö/ 1800sn/min
Caterpillar, Cat.og CB eru skrásett vörumerki
Laugavegi 170-172, — Sími 21240