Morgunblaðið - 19.02.1977, Síða 5
MORC.UNBLAÐIÐ, LAUGARDAC.UR 19. FEBRUAR 1977
5
Kl. 21.55:
Rauða myllan:
Sögð vera ein
dýrustu mistök
leikstjórans
ÞETTA er gömul og fræg
bíómynd frá árinu 1953.
Hún byggist á sýnum mál-
arans Toulouse-Lautrec.
Er þetta stórmynd, eins og
þaö er kallað, en í mynd-
inni er mikið um dýrðir og
t.d. mörg dansatriði. Þann-
ig mælti Björn Baldursson
hjá Sjónvarpinu er við
spurðum hann um bió-
myndina Rauðu mylluna
sem er á skjánum kl. 21.55 í
kvöld. Rauðu myllunni, eða
Moulin Rouge, eins og
myndin heitir á frummál-
inu, leikstýrir hinn frægi
leikstjóri, rithöfundur og
leikari John Huston, sem á
sínum tíma var stórt nafn í
Hollywood. Huston vann
þessa mynd þó ekki fyrr en
að hann hafði sagt skilið
við Hollywood, og í kvik-
myndaannál, þar sem fjall-
að er um feril John
Hustons, er sagt aó honum
hafi mistekizt nokkuð
mikið í leikstjórn sinni eft-
ir að hann sagði skilið við
draumaborg kvikmynd-
anna. Þannig segir, að
Rauða myllan hafi einmitt
verir eitt hans dýru mis-
taka . Frá fagurfræðilegu
sjónarmiði er þessi mynd
sem sagt dæmd sem mis-
lukkuð, en þar sem mikið
ku vera um dýrðir í henni
þá er bara að setjast fyrir
framan skjáinn, og í lokin
geta menn svo annaðhvort
verið með eða á móti „sér-
fræðingunum".
Kl. 18.15:
Emil
sprellar
MÉR er tjáð, að þessi þátt-
ur með Emil sé mjög
skemmtilegur, sagði Björn
Baldursson hjá Sjónvarp-
inu er við öfluðum upplýs-
inga um dagskrá laugar-
dagsins. Þetta byrjar með
því að Emil fer í skóla, og
sprellar eitthvað þar. Síðan
kemur prestur í húsvitjun,
en maður má víst ekki fara
meira út í það því þá er
maður að taka skemmtun-
ina frá fólki. En þetta mun
verða mjög skemmtilegur
þáttur í dag, sagði Björn.
Aðspurður kvað Björn
nú fara að líða að lokum
þáttanna með Emil, en sá
siðasti er áætlaður 19. marz
nk.
Hitaveita í öll hús 1
SigluJörði í lok ársins
SIGLFIRÐINGAR reikna með að
fá 30 sekúndulftra af 67 gráðu
heitu vatni úr einni borholunni,
af þeim 9, sem boraðar voru þar á
sfðasta ári. Við þetta hitastig þarf
um 50 sekúndulftra fyrir allt
bæjarfélagið, en verði hins vegar
reist kyndistöð til að hita vatnið á
þetta vatnsmagn að duga. Verður
f vor haldið áfram með boranir f
Siglufirði, en gefi þær ekki gðða
raun hafa verið gerðar ráðstafan-
ir til að reisa kvndistöð strax I
sumar.
Dreifikerfi hefur verið lagt í
allan Siglufjarðarbæ að sögn
Þorsteins Jöhannessonar bæjar-
verkfræðings þar. Hafa 220 hús
þegar verið tengd við kerfið og
áætlað er að í lok ársins verði öll
hús í bænum tengd inn á hita-
veitukerfið. Undanfarið hefur
verið unnið að ýmsum tilraunum í
sambandi við heita vatnið og var
djúpdæla sett niður i holuna fyrir
þremur vikum, hefur síðan verið
fylgst með niðurdrætti og gerðar
rannsóknir á breytilegu vatns-
magni.
Verðlaunasamkcppnin: Fýlgjum reglum, forðumst slys.
~ SAMVIWITRVGGIVGAR GT
ARMÚLA3 SÍMI 38500
Klipptu auglýsinguna út.
Notaðu hana sem eyðublað undir svör þín.
Sendu þau þegar þú hefur leyst alla (3) hluta
^ verkefnisins. Skilafrestur til 15. mars 1977.
Á leikfangabfl tíl
Kananeyja!
Akir þú bíl þínum klakklaust gegn um verk-
efni samkeppninnar og sendir rétt svör til Sam-
vinnutrygginga fyrir 15. mars n.k. þá átt þú
von í verðlaununum: Kanaríeyjaferð, með Sam-
vinnuferðum h.f. fyrir hinn heppna og tvo ferða-
félaga að auki. Verðmœtið nemur kr. 255.000.-
STÓRA LITPRENTAÐA UMFERÐAR-
KORTIÐ hans Jóns granna þarft þú að hafa til
að geta svarað spurningunum. Það fœrðu gegn
200 króna gjaldi í nœstu afgreiðslu Samvinnu-
trygginga. í Reykjavík fæst það einnig á bensín-
stöðvum Esso.
VERKEFNIÐ:
Katrín ekur manni sínum í vinnuna (Merkt: C).
Þau leggja lykkju á leið sína og koma jafnframt
við í pósthúsinu (Merkt:B). Síðan fer Katrín
Athugiö aö Hvara ávallt öllum liöum spurninganna.
aftur heim (Merkt.A). Atriði eru hverju sinni
talin upp í þeirri röð sem þau koma fyrir á leið
Katrínar.
Á leið frá 1 til la.
Já Nei
1, 1 Ber Katrinu að gefa stefnumerki?
1, 2 Má hún aka hiklaust inn á umferðargötuna?
1, 3 Ber henni að víkja fyrir akandi umferð
frá báðum hliðum?
1, 4 Má hún aka yfir varúðarlínuna?
1, 5 Heitir breiða, brotna linan á móts við biðskyldu-
merkið:
a) Varúðarlina?
b) Markalína?
Á leið frá 2 til 2a.
Já Nei
2, 1 Er gangandi vegfaranda skylt að taka tillit til
akandi umferðar sem nálgast, sé hann á merktri
gangbraut?
2, 2 Er bláa gangbrautarmerkið leiðbeiningar-
merki?
2, 3 Sé gangandi vegfarandi á gangbrautinni, eða í
þann veginn að fara út á hana, hvort er þá
öruggara að Katrín stöðvi bilinn:
a) Við gangbrautina?
b) 10 metra frá henni?
□ □
□ □
EB
Á leið frá 3 til 3a.
Já Nei
3, 1 Má Katrín aka hiklaust inn á hringtorgið?
3, 2 Ber henni að víkja fyrir X bílnum sem nálgast ____ __
frá vinstri? □ U
3, 3 Er rétt, miðað við ökuleið hennar, að hún velji __ ___
vinstri akrein á hringtorginu? I_11_I