Morgunblaðið - 19.02.1977, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 197?
BLÚM /grX.
VIKUNNAR
UMSJÓN: ÁB.
ÞRÍBURABLÓM
— FELUBLÓM
(Bougainvillea)
Á síðari hluta 18. aldar fóru Frakkar í fyrsta leiðangur sinn
umhverfis jörðina, en stjórnandi hans var frægur sæfari L.A
de Bouganville. Grasafræðingur var með í förínni ásamt
aðstoðarmanni sem siðar reyndist vera kona dulbúin sem
karlmaður og gerði það sitt til að vekja umtal og varpa
ævintýrablæ á fyrirtækið Þegar leiðangurinn kom til Suður-
Ameríku tók grasafræðingurinn ásamt ..aðstoðarmanni" sin-
um til óspilltra málanna við grasarannsóknir, söfnuðu þau og
lýstu fjölda nýrra plantna sem þá voru náttúruvísindunum
með öllu ókunnar. Þar á meðal voru nokkrar tegundir af jurt
sem látin var bera nafn leiðangursstjórans og um verður
fjallað að þessu sinni. Bougainvillea er nú ræktuð víða um
heím m.a. hér á landi undir nafninu Þríburablóm eða
Felublóm og sennilega er stærsta planta þeírrar tegundar
hérlendis í blómasöluskálanum í Eden í Hveragerði Nafnið
þríburablóm höfðar til blómskipunarinnar sem er þannig að
gulleit pípulaga 'blómin sitja þrjú saman umlukt þrem
litsterkum háblöðum. Þessi háblöð halda lit sínum mánuðum
saman svo að plantan getur skartað í stofunni meiri hluta
sumars. Hún er til í mörgum litum aðallega þó rauðum og
fjólubláum, og einnig er til afbrigði sem ber fyllt blóm
Blómstrandi bougainvillea hér ð landi nefnd Þriburablóm eða Felublóm
Þetta er fljótvaxin þyrnótt klifurjurt sem getur orðið æði
fyrirferðarmikil sé henni ekki haldið i skefjum með hæfilegri
klippingu. Ræktun í gróðurskála eða á yfirbyggðum svölum
hentar henni vel en hiti má ekki vera undir 1 5° C ef vöxtur á
að haldast í eðlilegu horfi. Umplöntun skal fara fram að
vorinu og notuð blanda af laufmold, mómold, sandi og
gömlum húsdýraáburði, einnig má nota grasrótarmold
blandaða muldum mosa. Pottar skulu ekki vera stærri en
nauðsyn krefur.
Erfiðlega gengur að koma til græðlingum í heimahúsum.
Þa skal taka af þroskamiklum greinum og þurfa þeir
25—30 gráður hita og mikinn loftraka til þess að mynda
rætur. Ekki sakar að reyna, spennandi getur það verið og
ánægjulegt ef vel tekst til. Bestur árangur hvað blómgun
snertir næst þar sem plantan nýtur mikillar sólar.
Hér verður bætt við klausu sem á við allflestar sólelskar
jurtirt d pelargóniur o.m.fl.
..Mikilvægt er að sem best samræmí sé milli birtu og
áburðargjafar, má í þvi sambandi benda á að hafi píantan
ekki næga birtu en ríflegan áburð getur svo farið að hún
svikist um að mynda blóm. Hafi hún hinsvegar næga birtu
getur hún í mörgum tilfellum borið sæg af blómum jafnvel
þótt hún fáí lítinn sem engan áburð, en ef svo ber undir
verða jurtirnar oft fremur blaðlitlar.
Erfitt er að segja nokkrar ákveðnar reglur sem vit er í um
þetta atriði þar sem svo mismunandi skilyrði og aðstæður
allar eru hjá fólki sem föndrar við ræktun —- úti sem inni. Því
er nauðsynlegt að þreifa fyrir sér og reyna að gera sér sem
gleggsta grein fyrir hváð best hentar svo að góður árangur
náist í hverju einstöku tilfelli Þetta getur kostað tíma og
fyrirhöfn, ekki er því að neita, en minnist þess að verkið lofar
meistarann'. HL/ÁB
Útgerðarmenn — Skip-
stjórar
Til leigu góð loðnunót 150 faðmar á
lengd, 40 faðmar á dýpt.
Uppl í: Netageröinni,
Eyrartröð 6, Hafnarfirði sími 50944,
heimasímar 50881 — 50 733.
Alþingismanna og %
borgarfulltrúa
Sjálf stæðisf lokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Valhöll,
Bolholti 7 á laugardögum frá klukkan
14:00 til 1 6:00. Er þar tekið á móti hvers
kyns fyrirspurnum og ábendingum og er
öllum borgarbúum boðið að notfæra sér
viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 19. febrúar verða til viðtals
Elín Pálmadóttir, borgarfulltrúi og
Margrét S. Einarsdóttir, varaborgarfulltrúi.
HÚSEIGNIN
Safamýri
4ra herb. endaíbúð á 4. hæð. 3
svefnherb. Suður svalir. Bílskúr.
Útb. ca. 8 millj.
Einbýlishús
á einni hæð í Norðurbænum i
Hafnarfirði ca 145 fm. 55 fm.
bilskúr. Allt frágengið. Frekari
uppl. i skrifstofunni.
Fossvogur
2ja herb íbúð. Útb. 5 millj.
Furugerði
nýleg 3ja herb. íbúð. Frekari
uppl. i skrifstofunni.
Rauðalækur
5 herb. íbúð á 1. hæð. ca. 130
fm. Sér inngangur. Sér hiti. Bil-
skúrsréttur. Verð 13.5 millj.
Nýbýlavegur Kóp.
2ja herb. lúxusíbúð á 2. hæð.
Bilskúr.
Háaleitisbraut
5 til 6 herb íbúð á 3. hæð.
Bilskúr. Verð 1 3.5 millj.
Einbýlishús
i Smáibúðahverfi hæð og ris og
hálfur kjallari Bílskúr. Útb.
9.5 til 10 millj.
Einstaklingsibúð
á 4. hæð i lyftuhúsi. Útb. ca.
4 millj.
Meistaravellir
130 fm. ibúð á 4. hæð. 3 svefn-
herb. Verð 12.5 millj.
Einbýlishús
Góð eign við Langagerði. Útb.
ca. 13 millj.
Dalaland
3ja herb. ibúð á 3. hæð. Útb.
ca. 7 millj.
Hjallabraut
glæsileg 4ra til 5 herb. ibúð á 2.
hæð Þvottaherb. inn af eldhúsi.
Dunhagi
125 fm. ibúð á 3. hæð. Útb. 7
til 8 millj.
Kársnesbraut Kóp.
4ra herb. risibúð. Utb. 4.5
millj.
Holtsgata
2ja herb. ibúð á 2. hæð.
Ránargata
hæð og ris 4 svefnherb. Verð
11.6 millj.
Grenigrund
sérhæð i tvibýlishúsi 135 fm. 4
svefnherb. Bílskúrsréttur. Verð
1 5 millj.
Hverfisgata
3ja herb. íbúð á 3. hæð í stein-
húsi. 86 fm. Útb. 5.5 millj.
Þverbrekka Kóp.
4ra til 5 herb. íbúð á 2. hæð.
Bilskúrsréttur. Útb. ca. 7
millj.
Einstaklingsíbúð
við Hjarðarhaqa. Utb. 2.5
millj.
Einstaklingsíbúð
við Ásbraut i Kóp. Útb. 3.5 til
4 millj.
Opið í dag
Pétur Gunnlaugsson lögfr.
Laugavegi 24, 4. hæð.
sími 28370 — 28040,