Morgunblaðið - 19.02.1977, Page 13

Morgunblaðið - 19.02.1977, Page 13
•I n'jAil'.i. MORGUNBLA.fiIÐ. LAyGARDAGUR 19. FEBRUAR 1977 .. Drekinn í mér og þér stefnu átti ekki upp á pall- borðið hjá ráðamönnum i Sovét. Eitt beittasta vopnið i skáldskap Schwarts er skopið og gefur það Drekanum byr undir vængi. Ævintýraheimur Drekans er i senn draum- kenndur og ákaflega raun- verulegur. Sýning ’ Leiklistarfélags Menntaskólans við Hamrahlíð á * Drekanum tókst að minu mati vel þótt athugandi hefði verið að stytta leikinn nokkuð. Á köflum var verkið langdregið, einkum undir lokin. í heild sinni vitnar sýningin um vönduð vinnubrögð: þýðing leikstjórn, leikur, tónlist og siðast en ekki sist hin skemmti- lega leikmynd sem er verk myndlistarfólks skólans. Salur- inn er ágætlega fallinn til leik- sýninga. Það vakti athygii hve leikur var góður, framsögn skýr. Ekki verður komist hjá þvi að nefna nöfn nokkurra nemenda sem stóðu sig með slikri prýði að betur verður ekki á kosið i skólasýningu. Þar er fremstur i flokki Jakob S. Jónsson sem gerði borgarsGóranum ágæt skil, enda fær hann mörg tæki- færi til að sýna hvað i honum býr. Leikur Jakobs var furðu þroskaður af svo ungum manni að vera. Hann hefur glöggt auga fyrir skoplegu hliðunum og dregur ekki úr hinni ýktu mynd af borgarstjórnaum. Björn Guðbrandur Jónsson var gervilegur Lancelot, drekabani allra alda. Sigriður Þorgeirs- döttir var sakleysið sjálft i hlut- verki Elsu, óspillt og hugrökk Leikarar og aðstoðarfólk I „Drekanum“. Leiklistarfélag Menntaskólans við Hamrahlið: DREKINN eftir Évgeni Schwarts. Þýðing: Örnólfur Árnason. Leikstjóri: Þórunn Sigurðar- dóttir. DREKINN eftir Évgeni Schwarts er hefðbundinn ævin- týraleikur. Eins og öll góð ævintýri hefur hann boðskap að flytja. Brýnt er fyrir mönnum að sigrast á hinu illa í sjálfum sér og öðrum. Sýnt er hvernig lífsblekkingin leikur fólk, hégómleikinn afskræmir það. Einfaldleiki hjartans, göf- ugt hugarfar eru leiðarljós Drekans. Sagt er að Évgeni Schwarts hafi lært af H.C. Andersen, flest verk hans eru i ævintýrastíl. Schwarts var Rússi og varð fyrir ofsóknum á Stalinstimanum og kemur það ekki á óvart þegar þess er gætt Lelkllsl eftir JÓHANN HJÁLMARSSON hve andsnúinn hann var hvers kyns einræði (samanber Drek- ann) og ríkisforsjá. Mannúð hans með keim af frjálshyggju- Elsa (Sigrfður Þorgeirsdóttir) og Drekinn (Karl Ágúst tJlfsson). gagnvart valdinu. Karlamagnús, faðir Elsu, var leikinn af Indriða Einarssyni og gerði hann þessum gamla heiðursmanni eftirminnileg skil. Drekinn var leikinn af Karli Ágústi Ulfssyni. Um leik hans má segja að hann var hik- laus og ákveðinn. Karl var rétt- ur maður í þetta að mörgu leyti vandmeðfarna hlutverk. Einnig mætti nefna Ingvar Ólafsson i hlutverki Hinriks, Ragnheiði Tryggvadóttur i hlutverki kattarins og Guðmund R. Guðmundsson sem leikur fangavörð. Þótt hér sé um áhugamanna- sýningu að ræða og viðvanings- bragur að sjálfsögðu nokkur held ég að þessi sýning eigi erindi til margra. Fólki skal því eindrégið ráðlagt að sjá þessa sýningu Leiklistarfélags Menntaskólans við Hamrahlið. Þrumuvedur og ljósagangur á Eskifirði Eskifirði, 17. febrúar. HÉR Á Eskifirði æru nú komin á land 17.500 tonn af loðnu og bíða skip í höfninni með um 2000 tonn, sem landað verður á morgun föstudag. Loðnufrysting hefst strax og loðnan verður frystingar- hæf. Hólmanesið landaði 100 tonnum af þorski í vikunni og Hólmatindurinn 70 tonnum. Tregt hefur verið hjá neta- og línubátum. Nýlega tók til stárfa ný hrað- fiskverkun hér í bænum og er það Sæberg hf. sem rekur hana. Fór fyrsta framleiðslan af bitafisk á markaðinn í gær. Þá bættist nýr bátur i flotann hér, 42 lesta bátur, keyptur i Reykjavik. Skipstjóri og eigandi er Gylfi Þ. Uiðsson og fer báturinn á netaveiðar. Allmikill snjór er og hefur fólk notað skíða- færið vel, er skíðalyftan í gangi alla daga. í nótt var þrumuveður og ljósagangur og fylgdi þessu veðri allmikil rigning. — Ævar. Leigubílstjóri beðinn að gefa sig fram KLUKKAN 17.26 á þriðjudaginn varð árekstur milli tveggja fólks- bíla af Trabant og Chevroletgerð á mótum Hringbrautar og Njarðargötu. Ágreiningur e;r uppi um stöðu umferðarljósanna þegar þetta gerðist. Leigubilstjórinn ræddi við ökumann Trabantbíls- ins á árekstursstað og bauðst til að bera vitni i málinu, en enn hvarf af vettvangi áður en nafn hans var tekið niður. Er leigubíl- stjórinn beðinn að gefa sig fram ■ svo og önnur vitni ef til eru. Vökvaknúin skurögrafa með ótrúlega verkhæfni Faanleg með ýmsum mismunandi aukabúnaði. Veitum fúslega ailar upplýsingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.