Morgunblaðið - 19.02.1977, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRUAR 1977
Ófullkomnir varahlutir
í mörg hundruð þyrlum
KOMIÐ hefur á daginn að vara-
hlutir sem settir hafa verið f
þyrlur af gerðunum Bell,
Sikorsky og Westland standast
ekki þær kriifur sem gerðar eru
til slfkra varahluta. Er hér um
að ræða varahluti frá banda-
rfska fyrirtækinu Aviation Sal-
es að þvi að bandarfska stór-
blaðið Washington Post upp-
lýsti fyrir skömmu. Hefur
fyrirtækið m.a. selt varahluti
sína til herja Bretlands, Frakk-
lands, Vestur-Þýzkalands, Nor-
egs og Belgfu og er talið að hin
tíðu þyrluslys undanfarin ár
megi að verulegu leyti rekja til
þessara ófullkomnu varahluta.
Eins og kunnugt er hlekktist
Sikorsky-þylu Landhelgisgæzl-
unnar á í Skálafelli fyrir tæp-
um tveimur árum og fyrir
nokkru varð bilun í lítilli Bell-
þyrlu Gæzlunnar og varð hún
að nauðlenda á túninu við
Kópavogshælið. í viðtali við
Morgunblaðið í gær sagði Torfi
Guðbjartsson yfirflugvirki
Landhelgisgæzlunnar að hann
teldi ólíklegt að varahlutir frá
Aviation Sales hefðu verið í
þessum þyrlum Landhelgis-
gæzlunnar, en ekki væri hægt
að segja um það á þessu stigi
málsins með fullri vissu.
— Varahlutir í Bell-
Þyrlurnar eru keyptir beint frá
Evrópuumboði Bell í Amster-
TF-GNÁ, Sikorsky þyrla Landhelgisgæzlunnar, sem hlekktist á f
Skálafelli. (Ljósm. Brynjólfur).
— Við höfum aldrei verzlað
beint við Aviation Sales, en
hins vegar höfum við sent fyrir-
tækinu fyrirspurnir um hugs-
anleg kaup á varahlutum. í
svörum þeirra og verðlistum
hefur okkur þótt verðið það
hátt að af verzlun hefur ekki
orðið.
— Annars eru alltaf að koma
á markaðinn varahlutir, sem
standast ekki þær kröfur, sem
gerðar eru til þeirra. Mjög erf-
itt er að eiga við þetta, stundum
tekst að sjá fyrir að hér er um
svikna vöru að ræða, en stund-
um þó ekki fyrr en eftir að
hlutirnir eru komnir í vélarnar
og kostar því oft mikið erfiði að
fjarlægja þá aftur. Stundum
tekst ekki að ná þessum vara-
hlutum úr fyrr en einhver
skaði er skeður, en ég held þó
Ekki útilokað að þeir hafi verið í þyrl-
um Gæzlunnar segir yfirflugvirkinn
dam í Hollandi , sagði Torfi
Guðbjartsson.
— Við teljum nær öruggt að
þeir varahlutir séu frá fram-
leiðendum vélanna sjálfra.
Varahluti í Sikorsky-þyrluna
kaupum við hins vegar frá
bandarísku Strandgæzlunni og
þó við höfum alla stimpla á
sendingum frá þeim, þá getum
við ekki sagt um hver selur
þeim varahlutina.
ekki að varahlutir frá þessu
bandaríska fyrirtæki hafi verið
í okkar þyrlum, sagði Torfi
Guðbjartsson að lokum.
Hér fer á eftir endursögn á
þeim fréttum, sem birtust í
Washington Post og hafa meðal
annars verið endurprentaðar i
brezka blaðinu Guardian.
Mörg hundruð þyrlur I flug-
bann
Möguleikar eru á því að
hundruð þyrla í Evrópu, Afríku
og Asiu verði settar i flugbann
vegna þess að í þær hafa verið
settir varahlutir, sem standast
ekki lágmarkskröfur. Hér er
um að ræða þyrlur af gerðun-
um Bell og Sikorsky, sem eru
bandarískar, og Westland, sem
framleiddar eru i Bretlandi.
Bandaríska dagblaðið The
Washington Post skýrði nýlega
frá þvi, að bandarísk flugmála-
yfirvöld hefðu nú starfsemi
fyrirtækisins Aviation Sales i
New York til athugunar. Fyrir-
tækið hefur framleitt varahluti
í Sikorsky-, Bell- og Westland-
þyrlur og hafa komið fram
ásakanir um að varahlutirnir
standist ekki þær kröfur sem
gerðar eru til þeirra. Á fyrir-
tækið að hafa látið ýmis önnur
fyrirtæki framleiða þessa vara-
hluti fyrir sig án þess að veita
þeim nauðsynlegar framleiðslu-
leiðbeiningar. Siðan hafa vara-
hlutirnir verið merktir
Sikorsky eða Bell og fengið þar
með villandi gæðastimpil og
seldir á sama verði og varahlut-
ir sem þyrluframleiðendurnir
gera sjálfir.
Washington Post segir, að
þessar eftirlíkingar hafi meðal
annars verið settar í þyrlur
herja Bretlands, Frakkclands,
Vestur-Þýzkalands, Noregs,
Belgíu, Egyptalands, Ástraliu,
Pakistan, írans og Qatar.
Segir blaðið, að ef ásakanirn-
ar reynist vera á rökum reistar
muni það kosta um 100 milljón-
ir dollara að skipta um vara-
hluti og að hundruð þyrla verði
settar í flugbann.
Tilboð í stauravirki Grundartanga opnuð:
90 milljón krónu munur á
hæsta og lægsta tilboði
Ný sýning hjá
Sólon Islandus
TII.BOÐ voru opnuð í gær í
undirstöður fyrir stauravirki 220
kW háspennulínu þeirrar, sem
Landsvirkjun hyggst reisa milli
spennistöðvar Landsvirkjunar
við Geitháls og hinnar fyrirhug-
uðu járnblendiverksmiðju á
Grundartanga i Hvalfirði. Undir-
stöðurnar voru boðnar út í þrem-
Verður Maí seld-
ur til Noregs
BÆJARUTGERÐ Hafnarfjarðar
athugar nú tilboð, sem borizt hef-
ur í togarann Maí — að þvf er
Guðmundur Ingvason, fram-
kvæmdastjóri, tjáði Morgunblað-
inu í gær. Tilboðið er frá norsk-
um aðilum, en i staðinn er
útgerðarfélagið að fhuga kaup á
litlum skuttogara frá Noregi.
Togarinn Maí er gamalt og við-
frægt aflaskip, síðutogari.
Guðmundur Ingvason kvaðst lítið
geta sagt að svo stöddu um athug-
un á tiiboðinu, sem borizt hefur,
en bjóst við að niðurstöður
myndu liggja fyrir i lok næstu
viku.
Akranesi 1 7 febrúar
BÆJAR- og héraðsbókasafnið á
Akranesi gengst fyrir Rithöfunda-
kynningu í bókhlöðunni laugar
daginn 19. febrúar klukkan 14.
Bókasafnið hefur á undanförnum
árum annazt nokkrar slfkar höfunda-
kynningar. Tilgangurinn er að skapa
tengsl milli höfunda og lesenda og
reynslan sýnir að sllk tengsl skapast
m.a. með aukinni kynningu viðkom-
andi höfunda.
Þessir borgfirzku rithöfundar hafa
þegar kynnt rit sln Björn J Blöndal,
Guðmundur Böðvarsson, Jón Helga-
son og Þorleifur Biarnason Raddir
ur verkhlutum og var bjóðendum
gefinn kostur á að bjóða í einn
eða fleiri hluta. Sjö tilboð bárust.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Landsvirkjun, sem Mbl. barst
i gær átti Aðalbraut h.f. lægsta
tilboðið að krónutölu til i fyrsta
verkhluta, en Hlaðbær h.f., Fjöl-
virkinn áttu lægstu tilboð í annan
og þriðja verkhluta. Tilboðin
verða nú tekin tii nánari athug-
unar og endanlegs samanburðar.
Hitatæki h.f., Steingrímur Páls-
son bauð í fyrsta verkhluta 121,7
milljón krónur, í annan hluta
130,9 milljónir, í þriðja hluta
127,4 milljónir. Aðalbraut h.f.
bauð í fyrsta verkhluta 107,6
milljónir króna, i annan 117,7
SLÖKKVILIÐSSTJÓRINN i
Reykjavík, Rúnar Bjarnason,
bæjarstjóri Kópavogs, Björgvin
þeirra eru varðveittar á bókasafninu á
segulspólum Einnig gáfu þeir bóka-
safninu sýnishorn af handritum slnum
Á bókasafninu 19. febrúar munu eftir-
taldir rithöfundar lesa úr ritverkum
sinum Guðmundur G Hagalin. Jón
Óskar og Sveinbjörn Beinteínsson,
sem kveður rimur Þess má vænta að
Akurnesíngar og nærsveitafólk noti
tækifærið til að kynnast þess'um rithöf-
undum betur Áformað er að hafa
barnabókakynningu siðar i vetur, en
þær kynningar hafa hlotið eindæma
vinsældir og biða börnm þeirra ávallt
með mikilli eftirvæntingu
— Júlfus.
milljónir og í hinn þriðja 113,5
milljónir króna. Völur h.f. og
Stólpi h.f. buðu aðeins í annan
verkhluta 110,5 miiljónir króna.
Hlaðbær h.f. og Fjölvirkinn h.f.
buðu ekki í fyrsta hluta. í annan
hluta buðu þeir 59 milljónir og
hinn þriðja 57,4 milljónir. Vörðu-
fell h.f. bauð ekki í fyrsta hluta,
en í annan 80,9 milljónir og hinn
þriðja 74,2 milljónir króna. Mið-
fell h.f., Véltækni buðu í fyrsta
hluta 108,8 milljónir, í annan
hluta 145,8 milljónir og hinn
þriðja 108,3 milljónir króna.
Grétar og Rúnar buðu i fyrsta
hluta 142 milljónir, í annan hluta
149 milljónir og í þriðja hluta
164,8 milljónir króna.
Sæmundsson, og forstjóri Bruna-
bótafélags tslands, Ásgeir Ólafs-
son, verða framsögumenn á
almennum borgarafundi f Kópa-
vogi á morgun, sunnudag 20.
febrúar. Fundurinn ber yfir-
skriftina Brunavarnir ( Kópavogi
og hefst kl. 15.00 I Félagsheimil-
inu. Eftir ræður framsögumanna
verða almennar umræður og
spurningum svarað.
Fundurinn er haldinn á vegum
Junior Chamber og í fréttatil-
kynningu hreyfingarinnar segir
m.a.: Að undanförnu hafa átt sér
stað atburðir, sem gefa tilefni til
aukinna umræðna um brunamál
og brunavarnir. Margvíslegar
spurningar hafa gerzt áleitnar og
er það í þeim tilgangi að svara
þessum spurningum, sem JC
gengst fyrir fundinum. Fundar-
stjóri er Reynir Þorgrimsson en
fundurinn hefst eins og áður
sagði kl. 15.00 í Félagsheimilinu.
„ÉG hefi enga trú á ismum eða
kenningum um myndlist. Mynd
er mynd og hún verður að standa
alein fyrir sínu — hver sem það
kann að vera, sem málaði hana,
hvort sem það tók fimm mfnútur
eða heilt ár eða hvernig sem
hugarástand málarans kann að
hafa verið á meðan,“ sagði Einar
Þorláksson, sem opnar sfna 5.
einkasýningu f Gallerf Sólon
Islandus f dag, laugardag.
Á sýningunni eru 32 pastel-
myndir og meira verður ekki sagt
um myndirnar án þess að brjóta i
bága við skoðanir listamannsins.
Einar var við nám í myndlist
m.a. I Hollandi, Danmörku og
Noregi og hefur áður sýnt í Lista-
mannaskálanum, Unuhúsi, Casa
Nova og í Norræna húsinu. Hann
starfar hjá Orkustofnun — „ég
byrjaði feril minn þar i landmæl-
ingum, var við það í 10 ár — þess
vegna hef ég litið gaman af að
mála landslag eins og þú sérð“.
Sýning Einars verður opin til 6.
marz n.k.
Athugasemd
í ÚTVARPSÞÆTTI Sigmars -Br
Haukssonar. þar sem fjallað var um
dægurlög og dægurtexta. fór ég
rangt með eitt orð i einni textalinu
sem nokkru máli skiptir Þegar ég
hlustaði á textann, heyrðist mér
sungið „nú er hjá okkur nótt'. en
það mun eiga að vera „nú er hjá
okkur hljótt' Betur fer á þvi. en að
visu verður þá ofstuðlun i næstu
linu á eftir, og þó ekki til stórbaga
Skal ekki frekar farið út i textann
hér, en misheyrnina vildi ég leið-
rétta
Þá skal, að gefnu tilefni, tekið
fram, að gagnrýni min í umræddum
þætti beindist ekki að neinum sér-
stökum höfundi eða höfundum.
heldur vildi ég benda á, að það sem
væri mest áberandi i óskalagaþátt-
um útvarpsins og jafnvel kallað frá-
bært á dægurlagasiðum dagblað-
■onwa. væri i raunmni klaufalega
saman sett og bæri vitni um van-
kunnáttu Til að gera þetta Ijóst. tók
ég smáglefsur úr hinum og þessum
textum, án þess að nefna nöfn text-
anna eða höfundanna Ég leiddi
hinsvegar hjá mér að fara rækilega í
efni .einstakra texta. enda skiptir
mestu máli að menn kunni til verka,
hversu lltilfjörlegur sem efniviðurinn
er Hitt er skaði. ef alþýða manna
lætur skemmtanaiðnað nútimans
slæva dómgreind sina, svo að hún
taki við hverju sem að henni er rétt
Þau dæmi, sem ég tók. voru sum
gullvæg hjá þvi versta sem hampað
er i útvarpi og blöðum
Reykjavik 1 5 febr 1 977
Jón Óskar.
Rithöfundakynn-
ing á Akranesi
Almennur fundur um
brunavamir í Kópavogi