Morgunblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 22
22__________________
Nýtt guðs-
þjónustuform
reynt í kirkj-
um í Rvík
N(J um föstutímann verður gerð
tilraun með nýtt guðsþjónustu-
form í tveimur kirkjum Reykja-
víkurprófastsdæmis, Laugarnes-
kirkju og Hallgrímskirkju. Form
þetta er samkvæmt tillögu að
nýrri Handbók fyrir presta og
söfnuði, sem biskup íslands lagði
fram á prestastefnu 1976. Miðar
það að þvi að auka fjölbreytni í
tilbeiðslunni og gefa svigrúm til
aukinnar þáttöku leikmanna í
framkvæmd guðsþjónustunnar.
Með formi þessu er reynt að koma
til móts við þá gagnrýni, sem oft
er látin í ljós, að söfnuðurinn sé
um of óvirkur áheyrandi, þriggj-
andi í stað þess að vera virkur
hluttakandi í þvi, sem fram fer.
Hefur verið útbúin sérstök
messuskrá, sem kirkjugestir fá í
hendur, svo allir geti fylgzt með
og tekið fullan þátt í söng, bæn og
messusvörum.
Málverkagjöf
á sængur-
kvennagangi
ÞANN 9. febrúar 1977 færði frú
Hólmfríður Löve Kvennadeild
Landspítalans málverk að gjöf,
málað af Sigurði Kristjánssyni
listmálara. Er þetta minningar-
gjöf um móður Hólmfriðar,
Pálínu Sæmundsdóttur, ljósmóð-
ur, sem hefði orðið 90 ára þennan
dag.
Prófessor Sigurður S. Magnús-
son og Kristín I. Tómasdóttir yfir-
ljósmóðir veittu gjöfinni móttöku
fyrir hönd Kvennadeildarinnar
og þökkuðu þessa fallegu og
rausnarlegu gjöf.
Málverkinu hefur verið valinn
staður í dagstofu á sængur-
kvennagangi.
— Alifugla-
framleiðsla
Framhald af bls. 2
heilbrigðisskoðun á þeim eggjum, sem
send eru á markað Einnig gæfi dreif-
ingarmiðstöðin tækifæri til þess að
hægt yrði að selja eggjaframleiðsluna á
stærri markað en nú er, en ýmsir
framleiðendur bentu á að ekki væri
nóg að hafa eina móttökustöð fyrir
egg, þær þyrftu að vera fleiri og dreift
um landið
Ýmsir fundarmenn létu í Ijós þá
skoðun að tilkoma dreifingarmiðstöðv-
ar yrði ekki til að koma í veg fyrir
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1977
offramleiðslu á eggjum og til að hindra
offramleiðslu þyrftu að koma til skipu-
legar aðgerðir Nokkur ágreiningur var
meðal fundarmanna um, hvort rétt
væri að fella verðákvörðun á alifuglaaf-
urðum undir það verðlagningarkerfi
búvöru, sem þegar væri til staðar,
töldu andstæðingar þess að með því
væri verðlagnmgin tekin úr höndum
framleiðenda en aðrir töldu að ef Sex-
mannanefnd tæki ákvörðun um verð á
þessum afurðum þyrfti einnig að
fyggja að framleiðendur fengju skráð
verð fyrir framleiðsíuna
Á fundinum var nokkuð rætt um
ástæður þeirrar verðlækkunar, sem
orðið hefur á eggjum að undanförnu
og kom það fram í máli ræðumanna,
að þeir töldu að eggjaframleiðendur
hefðu m.a orðið fórnarlömb kaup-
manna, sem notuðu sér offramboðið til
að auglýsa eggin upp sem ódýra vöru I
þeirri von að fá kaupendur í verslanir
sínar og ekki einungis til að kaupa egg
heldur aðrar vörur.
Einn ræðumanna, Einar Tönsberg,
lét í Ijós þá skoðun að samþykkt fund-
arins leysti ekki þann vanda, sem nú
væri við að fást og varpaði hann fram
þeirri hugmynd, hvort ekki væri rétt að
eggjaframleiðendur sameinuðust um
að taka 50 tonn af eggjum af markaðn-
um og til frystingar. Mætti með þessu
ná verðinu upp en verðmæti þessara
50 tonna væri um 1 5 milljónir og það
þyrftu eggjaframleiðendur að fá í af-
urðalán Ef með þessu tækist að hækka
eggin upp í 400 krónur í heildsölu,
fengju eggjaframleið-
deeedeeedeendennnennnen
endendur 20 milljónum meira fyrir
eggin miðað við mánaðarsölu.
— Ungur maður
hætt kominn
Framhald af bls. 40
til Reykjavíkur var komið með
hann klukkan 04 í fyrrinótt.
Lögreglan i Vík tjáði Morgun-
blaðinu að mikið þrumuveður
hefði gengið yfir á Mýrdalssandi
og þar fyrir :ustan í fyrradag.
Simamenn munu á þessum slóð-
um hafa verið að vinna við síma-
viðgerðir og voru m.a. uppi i sima-
staurum. Eldingu laust niður í
einn símastaurinn og tættist hann
gjörsamlega i sundur. Var ungur
piltur, sem vann að viðgerðum
tiltölulega nýkominn ofan úr
staurnum, er eldingunni laust
niður. Þvi má segja að hurð hafi
þar skollið nærri hælum. Talsvert
var um síma- og rafmagnsbilanir
á þessum slóðum.
V æng jaen durskoð-
un er á lokastigi
ENDURSKOÐUN á bókhaldi
Fiugfélagsins Vængja er á loka-
stigi, að sögn Gunnars R. Magnús-
sonar endurskoðanda. Bjóst hann
við því að verkinu lyki einhvern
tíma i næstu viku.
Söngur og
hljódfæra-
sláttur
SIGRÚN Harðardóttir söngkona
og lagasmiður mun syngja við
undirleik á tónleikum í Mennta-
skólanum i Hamrahlið n.k. mánu-
dagskvöld kl. 21 og einnig mun
koma þar fram Kvintett Ólafs
Helgasonar sem leikur létta tón-
list án söngs.
Hljómsveit skipuð eftirtöldum
hljóðfæraleikurum mun aðstoða
Sigrúnu: Magnús Kjartansson,
Ingólfur Steinsson, Lárus Gríms-
son og Ragnar Sigurjónsson.
Sigrún og aðstoðarmenn henn-
ar munu einnig koma fram á sjálf-
stæðum tónleikum i Verzlunar-
skóla islands n.k. fimmtudags-
kvöld.
Bollusala
í Garðabæ
KVENFÉLAG Garðabæjar efnir
til bollusölu f barnaskóla Garða-
bæjar nú sunnudaginn 20. febrú-
ar til styrktar Garðakirkju. Bollu-
salan hefst klukkan 14 og stendur
yfir á meðan óseldar bollur eru
til.
Talsmaður fjáröflunarnefndar
kvenfélagsins sagði i viðtali við
Mbl. í gær, að um nýlundu væri
að ræða. Ekkert brauðgerðarhús
væri í Garðabæ, en konurnar hafa
bakað bollurnar sjálfar og eru
þær fjölbreyttar að gerð.
Nýr hæstarétt-
arlögmadur
NÝLEGA lauk Hafsteinn
Hafsteinsson hdl. prófmálum fyr-
ir Hæstarétti, og mun hann því
öðlast hæstaréttarlögmannsrétt-
indi. Hafsteinn Hafsteinsson var
blaðafulltrúi Landhelgisgæzlunn-
ar i Þorskastríðinu 1972.
— Nöfn 29 um-
sækjenda birt
Framhald af bls. 40
Ingibergur Þorkelsson, sjálfstæð-
ur atvinnurekstur
James A. Wilde, framkvæmda-
stjóri
Július M. Magnús, sjálfstæður at-
vinnurekstur
Kári Guðmundsson, heilbriðgis-
ráðunautur
Kristinn Gunnarsson, deildar-
stjóri í samgönguráðuneytinu
Ölafur Karvelsson, deildarstjóri í
innflutningsverzlun
Páll Andreason, kaupfélagsstjóri
m.m.
Páll Vidalín Valdemarsson,
deildarstjóri Sindra Stáls
Ragnar Pétursson, sölustjóri
s.i.s.
Sigurður Jónsson, iðnrekandi
Sigurður örn Ingólfsson, tækni-
maður
Sigurjón Guðbjörnsson, fulltrúi i
Frihöfninni Keflavíkurflugveili
Sigurjón Magnússon, sjálfstæður
atvinnurekstur
Sigvaldi Friðgeirsson, skrifstofu-
stjóri tollstjóra
Skúli Ólafs, sjálfstæður atvinnu-
rekstur
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, stór-
kaupmaður
Þröstur Sigtryggsson, skipherra
Reykjavík, 18. febrúar 1977.
Einar Ágústsson."
— Landburður
Framhald af bls. 40
Þír4ur Jónasson EA 380, Arsæll KE 220,
Itákon ÞH 450, Hringur 70, Helga II RE 350,
Faxi GK 200. Bára GK 180, Geir goói GK 150,
tsleifur VE 430, Bylgja VE 140, Steinunn SF
40, Ólafur Magnússon EA 190, Klængur Ar
170, Kap II VE 590, Vöróur ÞH 180, Gunnar
Jónsson VE 300, Vonin KE 180, Skfrnir AK
380, Arni Sigurður AK 400, Hðnaröst Ar 270,
Náttfari ÞH 300, Börkur NK 980 og Pótur
Jónsson RE 630 tonn. Þetta eru samtals
14.430 tonn.
stjóra á
TALSVERT atvinnuleysi hefur
verið á Selfossi undanfarið og er
þar fjölmennastur hópur kvenna,
sem starfaði við Prjónastofu Sel-
foss fram að áramótum. Höfðu
Útibússtjóra-
skipti hjá
Landsbanka
SAMKVÆMT ákvörðun banka-
ráðs mun Helgi Jónsson, sem ver-
ið hefur útibússtjóri Landsbank-
ans á ísafirði, taka við stjórn úti-
búsins á Akranesi 1. júní n.k.
Sveinn Elíasson, sem verið hef-
ur útibússtjóri á Akranesi, mun
jafnframt taka við stjórn útibús-
ins á Hvolsvelli, en Ari Jónsson,
útibússtjóri á Hvolsvelli, mun
samkvæmt eigin ósk taka við
störfum í aðalbankanum í Reykja-
vík. Þá hefur starf útibússtjóra á
isafirði verið auglýst laust til um-
sóknar.
Orgeltónleikar
Á MORGUN, sunnudaginn 20.
febrúar, klukkan 17 heldur
prófessor Hans Gebhard orgel-
hljómleika í Filadelfíu í Reykja-
vík. Á efnisskrá verða verk eftir
Muffat, Bustehude, List, Mozart
og Bach.
Prófessor Gebhard er fæddur
1929 og er organleikari við
Nicolaikirkjuna í Kiel og prófess-
or við tónlistaháskólann í Ltibeck.
Hann stundaði nám í organleik
hjá Friedrich Högner og Michael
Schneider. Aðgangur er ókeypis.
300 fluttir
vegna hættu
á eldgosi
Jakarta, 16. febrúar. Reuter.
HÆTTA á eldgosi á eynni Makian
i Indónesiu hefur leitt til þess að
um 400 manns hafa verið flutt á
brott að þvf er skýrt var frá í dag.
Embættismenn hafa varað við
þvi að flytja verði á brott rúmlega
300.000 manns ef eldgos verður.
Eldfjall á eynni hefur spúð reyk
og sandi í nokkra mánuði.
Selfossi
þar alls 30 konur vinnu hálfan
eða allan daginn, en Hagkaup hf,
sem rekið hefur fyrirtækið, ákvað
að loka fyrirtækinu um áramót
vegna verkefnaskorts um tima að
minnsta kosti.
Alls eru 56 á atvinnuleysisskrá
á Selfossi, 22 karlar, 13 bílstjórar,
5 verkamenn, 2 málarar, 2 tré-
smiðir, og 34 konur eru atvinnu-
lausar en 17 þeirra njóta ekki
atvinnuleysisstyrks þar sem mak-
ar þeirra eru of tekjuháir.
Brautskráning
stúdenta
AFHENDING prófskírteina til
kandídata fer fram við athöfn í
Hátiðasal Háskólans, laugardag-
inn 19. febrúar kl. 13:30. Rektor
Háskólans, próf. Guðlaugur Þor-
valdsson, ávarpar kandídata og
deildarforsetar afhenda próf-
skírteini. Þá syngur Háskólaskór-
inn nokkur lög undir stjórn frú
Ruthar Magnússon.
Atvinnuleysi meðal
kvenna og bifreiða-
Hver er framtíð Islands
undir erlendri stóriðju?
EFTIRFARANDI grein hefur
borizt til Morgunblaðsins frá
„starfshópi í M.H. um stóriðju á
Islandi". Það skal tekið fram, að
teikningar, sem fylgja greininni,
eru frá þessum starfshópi.
Þessa dagana eiga sér stað tals-
verðar umræður meðal lands-
manna um þau stóriðjuáform sem
ráðamenn þjóðarinnar hafa aug-
ljóslega á prjónunum. I þessum
umræðum hefur verið drepið á
mörg athuglisverð atriði og er
ekkert nema gott um það að segja
að menn ræði sín í milli um lands-
ins gagm og nauðsynjar. Þó eru
nokkur atriði sem okkur, þeim,
sem þessar línur ritum, þykir
ónóg áhersla hafa verið lögð á.
Þar sem hér er um málefni að
ræða sem eflaust verður afdrifa-
ríkt fyrir mannlif í þessu landi,
viljum við koma skoðunum okkar
á framfæri. Jafnframt viljum við
hvetja alla þá sem ígundað hafa
þessi mál til að skípa sér ekki i
hinn þögla hóp heldur láta til sín
heyra og veita þannig stjórnvöld-
um þá pressu og aðhald sem
nauðsynlegt er.
Það hlýtur að vera grundvallar-
atriði í umræðu sem þessari að
menn úthýsi allri skammsýni og
geri sér grein fyrir nauðsyn þess
að setja hlutina í samhengi. Sagan
hefur sýnt okkur það, að þau
sjónarmið sem ríkja í dag og
þykja sjalfsögð geta svo auðveld-
lega kollsteypst er fram líða
stundir.
Nú höfum við islendingar fyrir
augunum okkar eigin reynslu og
einnig reynslu annarra þjóða af
stóríðju og af henni hljótum við
að reyna að draga nokkra lær-
dóma. Álverið í Straumsvik er
okkur ljóslifandi dæmi um stór-
iðjuframkvæmdir á íslandi.
Álverið átti að skila okkur
dágóðri summu gjaldeyris og
verða máttarstólpi öflugs og
gróandi atvinnulífs. En í upphafi
skyldi endirinn skoða. Flestir eru
sammála um að álverið sé fram-
kvæmd sem hafi skilað okkur
sáralitið áfram f átt til efnahags-
legs öryggis og velfarnaðar. í
þann tæpa áratug sem álverið
hefur starfað hefur það skilað
hagnaði aðeins eitt ár og þá sára-
litlum.
Hvað er þá áunnið við samlífi
íslenskra yfirvalda og erlendra
stórfyrirtækja við uppbyggingu
stóriðju á íslandi? Því er vand-
svarað fyrir allt venjulega
þenkjandi fólk en með rang-
færðum upplýsingum og orða-
gjálfri hefur yfirvöldum tekist að
slá ryki I augu margra. Að vísu er
Framhald á bls. 25
B«g»B