Morgunblaðið - 19.02.1977, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRUAR 1977
23
— Vituð ér enn...
Framhald af bls. 21
lestur þessara tveggja bóka
(Fjár og Ur. G.D.) fyllist brjóst
manns glöðu stolti, og trú á
varanleik sannleikans, eins og
þríeins — Þess má geta, að skrá
um tilvitnunarstaði (tilvitnanir
í innlend og erlend rit.GD.)
tekur fjórtán blaðsíður. Sýnir
það nokkuð þá vinnu, sem að
baki liggur fræðum þessum.
Bók þessa verður að lesa í næði
á eftir fyrra bindi og með at-
hygli, án fyrirfram gefinna
fordóma —. “
Framanskráð tilvitnun er úr
blaðagrein Kristjáns skálds frá
Djúpalæk, birt á prenti 1970.
Siðan hafa tvö þykk bindi bæst
við ritsafnið: Þurs — Tlminn
og Eldurinn 1972, 429 blaðsfður
og Ás — Steinkrbss 1976, 542
blaðsiður. 1 fyrsta bindinu, Fé
— Baksvið Njálu, 1969, leggur
Einar Pálsson fram kjarna
sögurannsókna sinna i 64 til-
gátum, ásamt ýtarlegri greinar-
gerð fyrir hávísindalegri vinnu-
aðferð sinni, sem í grundvallar-
atriðum er hin sama og allir
sannir vísindamenn beita, —
það er að segja: þeir fullyrða
aldrei neitt, en nefna niður-
stöður sínar tilgátur og draga
fram öll rök sin fyrir þeim og
telja þær sannleika, meðan
enginn annar hrekur þær með
því að draga fram fleiri og
auðskildari rök gegn þeim,
heldur en höfundurinn hefur
birt þeim til stuðnings. Þrjú
seinni bindin: Or — Trú og
landnám, Þurs — Tíminn og
eldurinn og Ás — Steinkross
innihalda röksemdafærslur og
sannanir fyrir því að
tilgáturnar 64 séu réttar.
Fyrir mitt leyti er ég
sannfærður um, að flestallar
tilgátur Einars séu óhrekjandi
þvi að á hverju ári koma út
víðsvegar um heim vísindarit
eftir lærðustu sérfræðinga í
menningar- og trúarbragða-
visindum og þjóðfélagsfræðum
fornaldar, og þó að fæstir höf-
undanna hafi kynnst
uppgötvunum Einars, nema
kannski af afspurn falla niður-
stöður þeirra í öllum atriðum
nákvæmlega að kenningum
Einars Pálssonar, þó að
öngvum öðrum en honum hafi
tekist að finna ráðninguna á
gátum launsagnanna í heild,
víðfeðmi þeirra, samkvæmni,
raunsæi og notagildi þeirra
fyrir það fólk sem skapaði þær.
En það furðulega er, að allt
þetta fer saman.
Ég segi nú eins og Kristján
frá Djúpalæk, að i einni blaða-
grein, og jafnvel þó í langri
ritgerð væri, er ógerningur að
gera stórvirki Einars Pálssonar
viðhlitandi skil. Nákvæmur
lestur verksins er það eina sem
nægir til fulls skilnings á því.
Ritsafnið Rætur Islenskrar
menningar, er öðrum þræði
flókin og hárnákvæm tölvisi, en
á hinn bóginn barmafullt af
fegursta skáldskap og kristals-
tærri lifsvisku. Nú þegar er það
byrjað að orka svo um munar á
skáldskap nokkurra islenskra
höfunda, og væri mér auðvelt
— Sláturhúsin . .
Framhald af bls. 20
upp nú siðustu árin, höfum við
mælt með og styrkt, sem ýmist
gengur undir nafninu hringað-
ferðin eða talíuaðferðin. Það er
því ekki rétt að endurbygging
sláturhúsanna sé eingöngu mið-
uð við færikeðjuaðferðina.
Til viðbótar því að afkasta-
geta færikeðjuhúsanna var
meiri heldur en þeirra húsa,
sem byggðu á eldri aðferðum,
þá komst nefndin að þeirri
niðurstöðu að stærð húss með
færikeðjunni þurfti ekki að
vera eins mikil og húss sem
byggði á eldri aðferðum, miðað
við sömu afköst. Munaði þar,
um það bil 10%.
Að lokum get ég upplýst
Steinþór um það að tvær hinna
síðari sláturhúsanefndir hafa
gert tillögur um enduruppbygg-
ingu fleiri húsa en nefnd sú
sem fyrst starfaði i þessum
málum. Auðvitað er slíkt
að sanna að þeir hafi orðið fyrir
frjóvgandi áhrifum af ritum
Einars Pálssonar. Margir munu
á eftir koma, enda verða það
skáld og frjálshuga áhugamenn
í sagnfræði, en ekki norrænu-
eða bókmenntafræðingar
Háskóla íslands, sem fyrstir
munu veita sannleikanum og
fegurðinni í Rótum íslenskrar
menningar viðtöku. Einn
þeirra var Gunnar Gunnarsson
skáld, sem lét svo ummælt
skömmu fyrir dauða sinn, að rit
Einars hefðu haft stórkostleg
áhrif á sig.
Ég stenst ekki þá freistingu,
að ljúka þessari ritsmíð á
nokkrum endursögnum úr
verki Einars, — ekki sjálfri
röksemdafærslunni, heldur fá-
einum ljóðfænum ályktunum á
víð og dreif, rökstuddum og
raðað í kerfi annars staðar í
ritsafninu:
Hinn goðsögulegi Hvoll upp-
hafsins í launsögnum Njálu er
Bergþórshvoll, þar sem Þri-
drangar risa úr hafi í suðvestri.
Tiltekinn staður á himinhring
var staður upphafs og endis,
suðvesturáttin undir stjörnu-
merki Steingeitar, þar sem afl
sólar verður minnst — að sól-
hvörfum, jólum, enda gekk
hafur I túni Njáls, sem er
imynd Njarðar, guðs sjávar,
sköpunar og lögvisi, föður
Freys kornkonungs, og systur
hans og ástmeyjar, Freyju,
imynd hinnar frjóu jarðar. En
depill endalokanna er einnig
depill upphafsins. Þar sem
lýkur hring gamla ársins, þar
upphefst hringur hins nýja, og
nær hámarki i norðaustri, á sól-
stöðum, þegar afl sólar er mest,
undir stjörnumerki Krabbans.
Hjólið er helsti grundvöllur
íslenskra goðsagna. Það byggist
á sjóndeildarhring og hug-
myndum um snúning timans.
Hjól Rangárhverfis er fasttengt
stjörnuhimni, enda bundust
landsvæði stjörnuhimni í
menningarrikjum fornaldar.
Þrir drangar úr sjó, undir
merki steingeitar í suðvestri,
urðu upphafsstaður, viðmið-
unardepill og kjölfesta heims-
myndar í fjölmörgum löndum,
einnig Islandi. Við Þridrangana
bundust hugmyndir getnaðar,
fæðingar og dauða. ímynd
þeirra eða tákn I Landnámu
eru þeir Hallsteinn, Hólm-
steinn og Hásteinn synir Atla
jarls, og urðu þess valdandi að
Ingólfur og Hjörleifur fluttust
til islands. Annar var drepinn á
akri, sem hann vildi sá, ásamt
uxa sinum, heilögu dýri forn-
þjóða, hinn varð skapari nýrrar
þjóðar. Við sköpunarathafnir,
svo sem landnám, var Móðir
Jörð svipt meydómi sinum.
Tvíkynja goð frjóseminnar,
Freyja—Freyr, börn Njarðar,
renna frá Þrídröngum upphafs-
ins til fulls þroska á hásumri
undir merki krabbans i norð-
austri. Þá er verk þess full-
komnað. Mennirnir uppskera
korn þess og vín. Guðinn
gengur út til að sá. Þar fellur
hann á akri sínum, særður
fimm sárum, Leifur við Höfða
sinn, Höskuldur á akrinum i
Vorsabæ, Kristur á Golgata. Sú
fráhvarf frá hinum fyrstu til-
iögum, en þar var gert ráð fyrir
að í landinu yrðu aðeins 18—20
sláturhús, eða að þau hefðu for-
gang í uppbyggingunni. Ennþá
er þó eftir að byggja upp ein 10
sláturhús samkvæmt tillögum
fyrstu sláturhúsnefndarinnar,
en það er hægt að hughreysta
Steinþór með þvi að þessi
sláturhúsamál eru ávallt I
endurskoðun og munu án efa
lengi verða það.
MYIMDAMÓTA
Adalstræti 6 simi 25810
goðumborna vera, sem færir
manninum hina miklu gjöf,
jarðargróðann, gengur í dauð-
ann svo að mennirnir megi lifa.
Likami hans er korn, blóðið er
vín. Fæðing og dauði mætast i
sama depli hringsins, á hverfi-
punkti dauða og upprisu. Þetta
er ekki annað en við erum öll
vitni að árlega, meðan hjól árs-
ins snýst heilan hring.
Utilokað er hér, rúmsins
vegna, að gera meira en rétt
tæpa á örfáum atriðum tákn-
málsins, sem Einar tekur til
meðferðar, túlkar og rökstyður
í ritum sínum úr alligóriskum
bókmenntum okkar, svo sem
Njálu, og er vafamál, að fólk
sem þessa grein les verði
nokkru nær um efnið, svo yfir-
gripsmikið og nýstárlegt er það,
og til skilnings á bókunum
nægir ekkert annað en að lesa
þær með gaumgæfni. Enn ætla
ég þó að fara nokkrum orðum
um Timann i Rótum fslenskrar
menningar:
Helsta einkenni „frum-
stæðrar" hugsunar er að gera
sér grein fyrir oki tímans. Það
ok byggist á endurtekningunni,
hringrásinni. Öll lifandi skepna
er bundin í viðjar timans,
fæðingu, þroska og dauða. Að
baki ásýnd tímans ætti að felast
raunveruleiki, þar sem menn
lifa óáreittir i fullum þroska
um aldir. Kyrrstæður er tíminn
í þá veru , að hann snýst alltaf i
hring. Dagurinn í dag er ekki
annar dagur en í gær, heldur
sami dagurinn endurtekinn.
Árið i ár er ekki árið 1977, sem
kom á eftir árinu 1976, heldur
árið 1 eftir árið 1 i fyrra.
Timinn líður ekki beina braut
frá vissu upphafi að vissum
endi, heldur frá upphafi til
endis í hring. Spurningin er:
Upphefst hringurinn aftur? —
Talað er um tímaskyn hins
,Jrumstæða“ manns sem eins
konar eilifa nútið. Á slikri nú-
tið byggist meydómur Jarðar.
Þótt hún verði gömul og vömb
hennar geld á háusti, og á vetri
með kartneglur kræklóttra
greina (kerling Hel-Bergþóra),
þá vaknar hún síung og frjó i
endurnýjuðum meydómi á vori.
Svipting þess meydóms merkir
sköpun nýrrar veraldar.
Hvíld og hátið hefur jafnan
tengst hugmyndinni um
stöðvun Tímans. Þegar oki
Timans er af létt — þegar
menn lifa í eindrægni á bak við
ásýnd hins ytra borðs — þegar
sól og tungl draga menn ekki
miskunnarlaust frá fæðingu til
dauða — þá eru menn frjálsir
undan oki daglegrar annar.
Hvarvetna tengja menn þessa
stöðvun tímans við jól.Þá
uppljúkast himnarnir — hlið
opnast inn í raunveruleikann
að baki ásýndinni. Ný sól fæðist
og ný miskunn: Lífið fæðist og
ný miskunn: Lifið.
Með orðinu „frumstæður"
hugur er ekki átt við, að þar sé
Um að ræða villimann eða and-
stæðu siðmenntaðs manns,
heldur er átt við að frumstæður
maður sé sá, sem hlýðir þeim
hvötum og eðlisbundnu kennd-
um hugarheimsins, sem frum-
læg eða upprunaleg trú byggist
á.
Öll trúarbrögð eru af sömu
rót. Kristindómurinn er fullur
af heiðnum minnum. Goðaveldi
islendinga til forna var sniðið
eftir konungdæmum í nálægum
löndum með uppruna sinn eða
fyrirmynd í suðlægum
menningarsamfélögum.
Goðarnir 36 (síðar 48) voru
hver um sig 1/36 hluti konungs,
með sameiginlega löggjafar-
samkundu og dómstóla á hug-
myndafræðilegri Miðju lands,
sem skorðuð var helgum rúna-
tölum við tíma og vegalengdir,
nákvæmlega sömu tölum og
giltu annars staðar i heiminum.
Tíminn einn var eilífur, gat
hvorki farist í eldi né vatni né
fyrir vopni (Kári í Njálu). i
eiðstaf sinum ákölluðu heiðnir
menn Njörð og Frey og hinn
Almáttka Ás, sem kann að hafa
verið Timinn. Þegar kristni var
lögtekin breyttist fátt annað en
að guðirnir skiptu um nöfn,
Þeir urðu að Föður, Syni og
Heilögum Anda, — eða kannski
má segja, að skipt hafi verið um
Konung — hugmyndafræðilega
séð. Það var ekki fyrr en að
goðaveldið leið Undir lok á
Sturlungaöld síðla, að hin forna
heimsmynd var máð af ásýnd
islenskrar menningar, hún
bannfærð og henni visað niður
til djöfulsins, með tölvísi sína,
rúnaletri, merkistöngum, stein-
krossum og náttúrudýrkun.
Þessa fordæmdu menningu
læsti höfundur Njálu inni i
Listaverki sinu, fól hana
augum heimsins bak við glæsi-
legt yfirborð þess, og þar lá hún
falin og gleymd í sjö hundruð
ár. Þangað til núna. Núna
hefur Einar Pálsson fundið
lykil táknmálsins og opnað
Sesam með honum. Leitendur
sannleikans viða um lönd sjá,
skilja og undrast, en hinir
skriftlærðu á islandi snúa sér
þegjandi til veggjar, og vilja
halda áfram að sofa.
Selfossi 15. febr. 1977
Guðmundur'Daniélsson
Dýhuhlífin
Það er meó ólikindum, en þó staðreynd að
DÝNUHLÍFAR hafa aldrei verið fáanlegar á íslandi
fyrr en nú, þótt þær hafi í áraraðir verið taldar
jafn sjálfsagður hlutur og rúmdýnur á hverju
heímili í öllum nágrannalöndum okkar.
Full þörf er því á að kynna dýnunlífina hérlendis.
DÝNUHLÍFiN er notuð sem hliföar-ábreiða á
rúmdýnur undir venjulegt lak og þvegin með
öðrum rúmfatnaði. Dýnuhlífin er framleidd úr
hvítu lérefti, vattstungin með polyester.
KOSTIRNIR ERU AUGLJÓSIR:
Fyrst og fremst - fullkomið hreinlæti.
Rúmdýnan er ætið hrein og sem ný.
Þægilegra og hlýrra rúm að sofa í.
Þótt' sjálfsögð nauðsyn sé að kaupa dýnuhlíf með
hverri nýrri rúmdýnu, þá er hún ekki siður
nauðsynleg á eldri rúmdýnur, þvi allir eru sammála
að fullkomið hreinlæti er nauðsyn.
DÝNUHLÍFIN er fáanleg i öllum stærðum, einnig á
svefnsófa og svefnbekki.
Útsölustaðir:Flestar húsgagnaverslanir, sem
versla með rúm og rúmdýnur, ásamt
stærri verslunum og Kaupfélögum
út um land.
Heildsölubirgðir DÍMON Umboðs- og heildverslun
Suðurlandsbraut 20, Box 5291,
Reykjavik. Simi: 85288.