Morgunblaðið - 19.02.1977, Side 37

Morgunblaðið - 19.02.1977, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRUAR 1977 37 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA Í0100 KL 10 — 11 FRA MANUDEGI mij^ f\y - ua 'i) i r næsta bréfi er fjallað um mismun tveggja hljóðfæra, en þau eru: 0 Franskt horn — Waldhorn „Talsvert hefur borið á því að undanförnu í fjölmiðlum, að gamla góða Waldhornið sé nefnt .jfranskt horn“ og er það bein þýðing úr ensku: French Horn. ídagskrám útvarps hef ég rekist á þessa notkun og í blöðum einnig. I fyrra birtist t.d. á forsíðu Dag- blaðsins frétt ásamt mynd af ungri fallegri stúlku um að stolið hefði verið frá henni franska horninu hennar, og jafnframt þess getið að þetta væri henni bagalegt þar sem hún væri að læra á hljóðfærið. Allt bendir til þess að kennari stúlkunnar viti ekki betur en að hljóðfærið heiti franskt horn. S.l. sunnudag 13. febrúar rakst ég svo á í sjónvarpi heitið „franskt horn“ í undirtitli. Bendir allt til þess að þetta heiti sé að læðast inn í málið, en verst er að þessi notkun veldur hug- takaruglingi. Þessir hringdu . . . % Ekki blandað morfíni H.Ö.H.: — Mig langar til að benda á smáatriði sem kom fram i skrifum nýlega varðandi morfínblandað hass. Slík blöndun er algerlega ómöguleg, svona blanda er alger- lega útilokuð, bæði efnafræðilega og eftir öðrum fræðum, að blanda hass og morfini saman. Það hefur einnig verið bent á það — mig minnir að það hafi verið Örn Höskuldsson, eða ein- hver rannsóknarmaður, að aldrei hefur fundizt ópíublandað hass. Ég held að hér sé aðeins verið að sverta þessa hluti um of og að þetta sé áróður sem ekki hentar. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á öðru miliisvæðamóti kvenna I skák, sem fram fór í Rosendal i Hollandi ídesember í fyrra, kom þessi staða upp i skák Veröczy, Ungverjalandi, sem hafði hvítt og átti leik, og Lemacko, Tékkóslövakiu: 19. Hxf6!! gxf6 20. Rf5 Bd4 (Svartur er varnarlaus) 21. Dg4+ Kf8 22. Dg7+ Ke8 23. Dg8+ Kd7 24. Dxf7+ Kd8 25. Df8+ Svartur gafst upp því að eftir 25. ... Kd7 26. De7+ Kc6 27. Bd5 er hann mát. Úrslit mótsins urðu þessi: 1.—2. Akmilovskaja (Sovét- ríkjunum) og Kushnir (ísrael) 914 v. af 13 mögulegum. 3.—4. Lemacko (Búlgariu) og Van der Mije (Hollandi) 9 v. Þær tvær siðastnefndu verða að tefla til úr- slita um sæti i áskorendaein- vígjunum Menn hafa spurt mig hvers konar hljóðfæri franskt horn sé, hafa augsýnilega ekki heyrt það fyrr eða veitt nafninu athygli, Þau 15 ár sem ég starfaði í Lúðra- sveit Reykjavíkur, Hljómsveit FlH, Hljómsveit Reykjavikur og Utvarpshljómsveitinni undir taktstokk ekki lakari snillinga en Páls ísólfssonar, Róberts A. Ottós- sonar, Victors Urbanschitch, Alberts Klahn og Þórarins Guðmundssonar, heyrði ég aldrei nefnd ensk heiti á hljóðfærum né við útskýringar á tónlistinni. Ég tel nauðsynlegt að benda á að samræma beri nöfn hljóðfæra og músikheiti, þvi ef áframhald yrði á þessari iðju, að þýða af ensku, færi maður að búast við að heyra að leikið verði á bassúnu en ekki fagott, af þvi að fagott heitir bassoon á ensku. Hvað yrði þá um básúnuna okkar, yrði þá hennar heiti kannski trombóna af þvi að hún heitir trombone á ensku? Skotið hefur upp kollinum nafnið Enskt horn, sem er bein Það er miklu nær að benda á hin eiginlegu eiturefni en það eru pillurnar, t.d. amfetamin og vali- um, læknalyfin, sem mesta hætt- an stafar af. — Velvakandi hefur nú ekki miklu við þetta að bæta — hér er þýðing úr ensku einnig. Þar er mönnum þó nokkur vorkunn þar sem það er oft nefnt Ingles horn en heitir Cor d’Anglais á frönsku, en Cor þýðir horn, og cornet sntækkun af þvi, þ.e. ein tegund af trompet. En aðalgallinn við nafnið „enskt horn“ er að hljóð- færið er alls ekkert horn, heldur tréblásturshljóðfæri af óbó- fjölskyldunni og er tónninn myndaður á sama hátt, þ.e. með tvöföldu reyrblaði. Ef þýðingar úr ensku héldu áfram í þessum dúr gæti maður farið að heyra t.d. að leikinn verði fransk horn konsertinn í flötum E-dúr en ekki Es-dúr eða eitthvert verk í skörp- um G-dúr en ekki Gis-dúr. Mér bara datt þetta svona í hug að hafa orð á þessu. Og af hverju geta sjónvarpsmenn ekki komið sér saman um Addis Abeba eins og hún hefur alltaf verið kölluð, í stað Abbis Ababa (úr ensku) og Abbis Abeba til skiptis. Sumir eru ekki vissir hvort um sömu borg sé að ræða. Viggó Jónsson” komið út á svið sem hann hefur mjög takmarkaða þekkingu á og hættir hann sér því ekki út á þessar brautir. En ef fleiri hafa eitthvað til málanna að leggja varðandi þessi mál þá verður þvi ljáð rúm. HÖGNI HREKKVISI .,a ©1977 McN'aught Synd., Inc. Ilögni vill bjóða uppá friðarpfpu OPIÐ laugar MJÖLKURMIDSTÖÐIN Laugalæk 4 Dieselrafstöðvar Til leigu Höfum til leigu sérlega vel búnar dieselraf- stöðvar 37 kVA og 12.5 kVA, 380/220 V ORKA H.F. Laugavegi 1 78 Sími 38000. Flóamarkaður Félags einstæðra foreldra verður að Hall- veigarstöðum laugardag 19. febrúar kl. 2 e.h. Úrval af nýjum og notuðum fatnaði, ýmis búsáhöld og leirtau, m.a. strauvél, sófi, mokkastell, tekatlar og gamlar bæk- ur. Lítið inn, gerið góð kaup og styrkið gott málefni. Nefndin. Árshátíð Félag Snæfellinga og Hnappdæla verður haldin laugardaginn 5. mars n.k. að Hótel Borg. Húsið opnað kl. 18.30 — Aðgöngumiðar seldir hjá Þorgilsi Þorgilssyni, 3. og 4. mars frá kl 1 6.00 báða dagana. Skemm tine fndm. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.