Morgunblaðið - 19.02.1977, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRUAR 1977
39
1NNANFÉLAGS-
MÓT HJÁ KR
KR-ING AR gangast fyrir innan-
félagsmóti í frjálsum íþróttum
sunnudaginn 20. febrúar n.k.
og hefst mótið í KR-heimilinu
klukkan 14.40. Keppt verður i
kúluvarpi karla og kvenna og
stangarstökki.
Tómas Pálsson ( uppstökki úr
hraðaupphlaupi, en leikmaður
Léttis kemur engum vörnum við.
IV vann þe'nnan leik 72—44.
Eyjamenn etja
kappi við UMFN
VESTMANNAEYINGAR hafa
verið mjög sigursælir í 3. deild
íslandsmótsins I körfuknattleik í
vetur. Þeir hafa unnið alla leiki
sína með miklum mun og eru
þannig komnir í úrslit. Einnig
unnu þeir það afrek að sigra
K.R.B. í bikarkeppninni og lenda
þar með á móti toppliðinu, Njarð-
vík, í næstu umferð keppninnar.
Njarðvíkingar eru frægir fyrir
baráttu og keppnisskap, en Vest-
manneyingar eru hins vegar
erfiðir heim að sækja og hafa
ekki hug á því að gefa sinn hlut.
Leikur liðanna fer fram á morg-
un, laugardaginn 19. febr. og
hefst kl. 13.30 í íþróttahúsinu við
Brimhólabraut. Er þetta tvímæla-
laust merkasti viðburðurinn i
körfuknattleik í Vestmannaeyj-
um til þessa, og er búist við miklu
fjölmenni á leikinn.
LAUDA
HUGRAKKASTUR
AUSTURRÍSKI kappaksturs-
maðurinn Niki Lauda var ný-
lega valinn „hugrakkasti
íþróttamaður ársins 1976“, en
það eru Englendingar sem
standa fyrir vali þessu, og fær
sigurvegarinn lárviðarkrans og
50.000 pund í verðlaun. Þótti
engum mikið að Lauda skyldi
hljóta þessi verðlaun, þar sem
hann var setztur undir stýri í
kappakstursbifreið sinni aðeins
sex vikum eftir að hann slasað-
ist mjög illa í kappaksturs-
keppni.
Urslitakeppni kvenna
í blaki um helgina
UM þessa helgi fer úrslitakeppn-
in í 1. deild kvenna 1 blaki fram
og i henni eigast við Vikingur og
Þróttur frá Reykjavík og ÍMA frá
Menntaskólanum á Akureyri. Þá
verða 2 leikir í 1. deild karla, í dag
leika á Akureyri UMSE og ÍS og
hefst sá leikur kl. 15.30 óg á
sunnudag klukkan 15.00 leika
Víkingur og Þróttur. Það má bú-
ast við því að viðureign Víkings
og Þróttar verði spennandi og
skemmtileg, þó að Þróttarar verði
að teljast talsvert sigurstrang-
legri.
Riðlakeppni 2. deildar karla er
nú lokið og hafa a-lið UBK og
Völsungur, Húsavík, tryggt sér
réttinn til að leika saman um
efsta sæti deildarinnar og þar
með sæti i 1. deild á næsta ári.
HG
UM þessa helgi verða leiknir 3
leikir í 1. deild karla I körfuknatt-
leik. 1 dag klukkan 14.00 leika KR
og Ármann f fþróttahúsi Haga-
skólans og má þar búast við
spennandi og skemmtilegri viður-
eign. Vinni KR-ingar opnast
deildin nokkuð og hafa þá 4 lið
fræðilega möguleika á þvf að
verða lslandsmeistarar.
Strax að þeim leik loknum leika
Fram og ÍR og verða ÍR-ingar að
teljast sigurstranglegri í þeim
leik.
A sunnudag leika svo Breiða-
blik og ÍS í Garðabæ klukkan
17.00. Um þessa helgi verða einn-
ig þrír leikir í bikarkeppni KKÍ.
GROTTA
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Gróttu verður haldinn i Félags-
heimili Seltjarnarness laugardag-
inn 29. febrúar kl. 16.00.
1 Vestmannaeyjum leika heima-
menn við UMFN og hefst leikur-
inn kl. 13.30 . Á Akureyri leikur
Þór við Val og hefst sá leikur kl.
17.30 á laugardag og á Akranesi
leika UMFS og Fram á sunnudag
dkl. 16.00. Keppnin i 3. deild er
nú að komast á lokastig og hafa 3
lið tryggt sér þátttöku i úrslita-
keppninni, en það eru Vestmann-
eyingar úr suðurriðli, Tindastóll
frá Skagafirði úr norðurriðli og
Patreksfirðingar, sem voru í riðli
með Hornfirðingum.
1 2. deild er staða Þórs frá
Akureyri bezt, liðið hefur unnið
alla sína leiki og hefur 4 stiga
forskot á næsta lið sem er UMFG
og eiga Þórsarar aðeins eftir þrjá
heimaleiki og eru flestar likur til
þess að þeir tapi ekki stigum í
þeim.
I meistaraflokki kvenna er stað-
an sú, að ÍR og KR standa jafnt að
vigi, bæði liðin hafa tapað 2 stig-
um og þó þau eigi bæði eftir eitt-
hvað af leikjum eru allar líkur á
því að þau verði efst og jöfn og
verði þvi að leika aukaleik um
efsta sætið. Rétt er þó að geta
þess, að ÍR-stúlkurnar eiga eftir
að leika við Þór á Akureyri og
gæti sá leikur farið á báða vegu.
HG
... »{
%
Island og Holland léku tvo landsleiki f handknattleik kvenna hérlendis árió 1974, og er þetta mynd úr
öðrum þeirra. Hollenzku stúlkurnar unnu báða leikina með 1 marki. Það er Oddný Sigsteinsdóttir, sem
þarna er að skora fyrir fslenzka liðið, en Oddný er nú ein af liðskonum B-landsliðs Islands.
Kvennakeppnin verður aðal hand-
knattleiksviðburður helgarinnar
KVENNAMÓTIÐ í handknattleik
verður aðalhandknattleiksvið-
burðurinn hérlendis um þessa
helgi. I móti þessu taka þátt A- og
B-iandslið Islands og Landslið
Ilollands og Færeyja. Fyrstu leik-
ir mótsins fóru fram í gærkvöldi,
en mótinu verður sfðan fram
haldið f dag og þvf lýkur á morg-
un.
Kl. 15.30. í dag leika í Laugar-
dalshöllinni fyrst A-landslið
íslands og B-landslið Islands. Er
beðið eftir þeim leik með tölu-
nrnmiifu
verðri eftirvæntingu vegna þess
sem á undan er gengið. Landsliðs-
nefnd kvenna tók þá stefnu s.l.
haust að velja aðeins ungar stúlk-
ur til landsliðsæfinganna, þar
sem nefndinni þótti áhugi hinna
eldri ekki nægur. Eldri stúlkurn-
ar vildu ekki una þessu viðhorfi
landsliðsnefndar og skrifuðu opið
bréf til landsliðsnefndar og
stjórnar HSI, þar sem vinnubrögð
nefndarinnar voru gagnrýnd.
Fóru stúlkurnar fram á pressu-
leik við landsliðið, en þátttaka i
móti þessu verður að teljast enn
betra tækifæri fyrir liðin tvö til
þess að leiða saman hesta sina.
Strax að loknum leik islenzku iið-
anna i dag, eða kl. 16.30, leika svo
lið Færeyja og Hollands.
Mótinu lýkur svo I Laugardals-
höllinni annað kvöld og leika þá
fyrst Island B og Færeyjar og
siðan island — Holland. Má gera
ráð fyrir að það verði úrslitaleik-
ur mótsins. Siðast þegar islenzkar
stúlkur og hollenzkar léku lands-
leik fóru leikar svo að þær hol-
lenzku sigruðu 18:10, en sá leikur
fór fram á útivelli.
Um helgina fara svo fram
nokkrir leikir í yngri flokkunum,
og einn leikur í 2. deild karla
milli ÍBK og Fylkis, en þeim leik
var frestað um síðustu helgi.
Verður leikið f Keflavik í dag.
Komum hreint fram við Ölaf
- segir stjórn Frjálsíþróttardeildar KR
ÓLAFUR Unnsteinsson heldur átram
skrifum sínum í Morgunblaðið um
samskipti sín við stjórn Frjálsíþrótta-
deild KR Fimmtudaginn 17. febrúar
síðastliðinn er þar löng grein eftir Ólaf
sem ber yfirskriftina: Stjórn Frjðls-
íþróttadeildar KR skaut yfir markið
í grein sinni segir Ólafur að athuga-
semd sú er við gerðum við fyrri grein
hans hafi verið lítið annað en skæting-
ur og útúrsnúningur, víða væri réttu
máli hallað, honum lögð orð í munn
sem hann kannist ekki við — og að
mestu sé sneitt hjá kjarna málsins.
Það er greinilegt á öllu að Ólafur
hefur gleymt málsatvikum eða hann
vill ekki muna þau og því þykir okkur
rétt að minna hann á þau aftur:
Á síðastliðnu hausti var Ólafi boðið
að þjálfa hjá Frjálsíþróttadeild KR
Voru gerðar ýtarlegar tilraunir til að fá
Ólaf til starfa, en hann afþakkaði og
bar þvf við að við hefðum ekki efni á að
greiða honum þau laun er hann færi
framá — og eins bar hann við tlma-
skorti.
Eftir að við vorum orðnir úrkula
vonar um að takast mætti að fá hæfan
íslenskan þjálfara til starfa (Ólafur vill
kannski benda okkur á einhvern sem
liggur á lausu?) var leitað til sovéska
sendiráðsins um að það hlutaðist til
um að útvega þjálfara Ólafi var kunn-
ugt um þessa ákvörðun. en hafði þá
ekkert við hana að athuga Ef Ólafur
væri samkvæmur sjálfum sér hefði
hann þá átt að gera athugasemdir.
Eftir að við höfðum beðið í nokkra
mánuði án þess að heyra frá sendiráð-
inu var aftur haft samband við Ólaf —
og eftir nokkra fundi með honum var
gerður munnlegur samningur sem átti
að gilda frá áramótum til 1 maf
Siðan gerðist það að sovézka sendi-
ráðið tilkynnir okkur 24 janúar sfðast-
liðinn að tekist hafi að útvega okkur
þjálfara en með öllu væri óvíst hvenær
hann gæti komið hingað til starfa
Þá þegar var haldinn stjórnarfundur
og þar ákveðið að halda gerðan samn-
ing við Ólaf Honum var tilkynnt um
þessa ákvörðun strax sama kvöldið en
um leið spurður hvort um hugsanlegt
samstarf gæti orðið að ræða við so-
vézkan þjálfara Ólafur tók þessu ekki
illa. i fyrstu, en síðan tilkynnti hann
þeim stjórnarmönnum er á fund hans
gengu að hann myndi ekki undir nein-
um kringumstæðum vinna með so-
véskum þjálfara — það væri annað ef
um Bandaríkjamann væri að ræða —
því þetta væri pólitískt mál Þessi um-
mæli hafði Ólafur i vitna viðurvist, en
neitar samt að hafa sagt i grein sinni.
Síðan tilkynnti Ólafur að hann myndi
þá þegar leggja niður starf þar til
ákveðið yrði hvað gert yrði i málinu.
Ólafur segir að við höfum brotið
gerðan samning gagnvart sér Var það
brot á samningnum að við sögðum
honum að svar hefði bonst? Var það
brot á samningnum að við skyldum
spyrja hann hvort um hugsanlega sam-
vinnu gæti orðið að ræða við sovéskan
þjálfara?
Við vildum samt ekki gefast upp við
svo búið og ákváðum að ef Ólafur vildi
skrifa undir skriflegan samning, þá
myndum við ekki ráða hingað sovésk-
an þjálfara Þessu boði hafríaði Ólafur
nema að við kæmum með yfirlýsingu
frá stjórn Frjálsíþróttasambands ís-
lands þess efnis að þó annað félag
gengist f því að ráða sovéska þjálf-
arann hingað til starfa, þá yrði Ólafi
falið að sjá um landsliðið en ekki
honum.
Við sögðum Ólafi að við teldum með
öllu útilokað að fara framá slíka yfirlýs-
ingu, en sögðum honum að hann fengi
okkar stuðning sem þjflfari KR
Ekki gat Ólafur fallist á þetta og
neitaði að gera nokkurn samning við
okkur Þá fyrst óskuðum við eftir því
við talsmann sovéska sendiráðsins að
hann hlutaðist til um að sovéski þjálfar-
inn kæmi hingað eins fljótt og kostur
væri.
Ólafur talar mikið um ágreining við
stjórn Frjálsíþróttadeildar KR Hver var
sá ágreiningur? Ólafi stóð alltaf þjálf-
arastaðan til boða, en hann hafnaði
henni nema við tryggðum honum
landsliðsþjálfarastöðu Það teljum við
ekki f okkar verkahring heldur er það
mál Frjálsíþróttasambandsins hvern
það ræður til að hafa umsjón með
iandsliðinu Síðan segir Ólafur að við
höfum gert sér ókleyft að starfa hjá
félaginu — og haldið klaufalega á
málum
Við teljum okkur hins vegar hafa
komið fram við Ólaf af fullri hreinskilni
og einurð og oskum því eftir að hann
geri grein fyrir þessum ásökunum nán-
ar
Að lokum segir Ólafur að stjórnin
beri ábyrgð á skrifum sínum og gerð-
um Rétt er að minna Ólaf á að það var
hann sem hóf þessa ritdeilu. Við erum
aðeins að svara ásökunum — og mun-
um fyllilega standa við öll okkar skrif
og gerðir. þvi við höfum ekkert að fela
nema síður sé
Stjórn Frjálsíþróttadeildar KR
Helgi Eiríksson (sign)
Björn Blöndal (sign)
Úlfar Aðalsteinsson (sign)
Þorleikur Karlsson (sign)
Bjami Stefánsson (sign)
KR - Ármann aðal-
leikur helgarinnar
í körfuknattleiknum