Morgunblaðið - 09.03.1977, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1977
Loðnuveiðin orð-
in 440 þús. lestir
Þrátt fvrir leiOindaveður á
loðnumiðunum er allaf einhver
veiði og frá þvf á miðnætti f fvrri-
nótt fram til kl. 18 f gær tilkynntu
skip um veiði, samtals 5000 lestir.
Loðnuna fengu skipin á tveimur
slððum, við Reykjanes og undan
Merkjunum á Meðallandssandi.
Með þeim afla, sem tilk.vnnt var
um í gær, hefur heildarloðnu-
veiðin losað 440 þúsund lestir og
nálgast heildarveiðin óðum met-
vertíðina 1975, er veiðin varð alls
455 þúsjind lestir.
Skipin, sem tilkynntu um afla í
gær voru þessi: Sóley ÁR 190,
Magnús NK 260, Skógey SF 220,
Svanur RE 150, Huginn VE 240,
Jón Finnsson GK 520, Hringur
VE 70, Ólafur Magnússon EA 60,
Ásberg RE 380, Gunnar Jónsson
VE 180, Glófaxi VE 50, Arsæll
Sigurðsson GK 200, Þórkatla 2.
GK 180, Ársæll KE 150, Geir goði
GK 120, Huginn VE 200, Húnaröst
Ág Stapavík SI 350 lestir.
Hljómflutnings-
tækjum stolið
NOKKRUM hljómflutningstækj-
um af gerðinni B&O var stolið úr
lest ms. Hvítár í gær. Hvert þess-
ara tækja kostar um 200 þúsund
kr. út úr búð, þannig að verðmæti
allra tækjanna skiptir nokkrum
hundruðum þúsunda. Rann-
sóknarlögreglan hefur málið til
meðferðar og voru nokkrir aðilar
yfirheyrðir í gær vegna þess.
Stækkun Bændahallarinnar
til umræðu á
Við umræður um reikninga
Bændahallarinnar á fundi bún-
aðarþings f gær Ksti Hjörtur E.
Þórarinsson, stjórnarformaður
hússtjórnar Bændahallarinnar
þvf yfir að hann mvndi leita eftir
heimild til að leggja fyrir fund
búnaðarþings f dag tillögu þess
efnis að þau skilyrði, sem þingið
samþ.vkkti á árinu 1972 fvrir þvf
að hafist vrði handa við stækkun
Bændahallarinnar, yrðu tekin til
endurskoðunar.
í samtali við blaðið í gær sagði
Hjörtur, að hússtjórn Bændahall-
arinnar hefði með samþykkt bún-
aðarþings 1972 verið falið að
vinna að þvi að reist yrði viðbygg-
ing við Bændahöllina og hefði
stjórnin unnið að því máli, en
komið hefði i Ijós að þau skilyrði
sem búnaðarþing setti fyrir þvi að
framkvæmdir yrðu hafnar væru
ekki í takt við tímann, eins og
Hjörtur orðaði það, og því vildi
hann láta reyna á það hver hugur
búnaðarþingsfulltrúa væ.ri.
Fyrirhugað er að reisa viðbygg-
inguna norðan við Bændahöllina
og verður hún sex hæðir en sú
neðsta verður opin bifreiða-
geymsla. Á þessum fimm hæðum
er gert ráð fyrir 100 tveggja
manna herbergjum. Þá er ætlun-
in að byggja tveggja hæða við-
byggingu fyrir austan Bændahöll-
ina og verði í henni stór ráð-
stefnusalur, matstofa og ýmis
önnur starfsemi í tengslum við
rekstur Hótel Sögu. Aðspurður
um hver væri áætlaður kostnaður
við þessar framkvæmdir sagði
Hjörtur að miðað við núverandi
verðlag yrði kostnaðurinn ekki
undir 1 milljarði króna.
Sem kunnugt er urðu töluverð-
ar deilur um stækkun Bændahall-
arinnar á árinu 1972 og samþykkt
búnaðarþings þá um stækkunina
var samþykkt með 14 atkvæðum
gegn 11. Eins og áður sagði sam-
þykkti búnaðarþing 1972 nokkur
íslenzkt litsjón-
varpsvidtæki
Meðan innflutningshöft voru á
litsjónvarpstækjum voru hér
uppi ráðagerðir um að hefja
framleiðslu á litsjónvarpstækjum
hér innanlands f nokkrum mæli.
Það var Jón Sen, hljómlistar-
maður og rafeindavirki, sem hug-
leiddi möguieika á slfkri fram-
leiðslu, en Jón framleiddi tölu-
vert af venjulegum sjónvarps-
tækjum þegar sjónvarpið hóf inn-
reið sfna hér á landi. Að því er
Jón tjáði Morgunblaðinu setti
hann saman litsjónvarpstæki
seinnihluta sl. árs, sem gafst
ágætlega og kvaðst hann þá hafa
hugleitt framleiðslu á lit-
sjónvarpstækjum 1 nokkrum mæli
fyrir innlendan markað, þar sem
allur innflutningur á þeim lá
niðri. Hins vegar taldi hann allar
forsendur fyrir slíkri framleiðslu
brostnar nú þegar innflutningur
væri kominn í eðlilegt horf.
búnaðarþingi
skilyrði fyrir stækkun Bænda-
hallarinnar en þau voru m.a. að
innlent fjármagn fengist til
verksins að mestu eða öllu leyti,
að núverandi húsnæði Bænda-
hallarinnar verði ekki veðsett fyr-
ir láni vegna nýbyggingarinnar,
að ríkisábyrgð fáist fyrir láni til
nýbyggingarinnar, sem verði 80%
af stofnkostnaði og engin framlög
verði innheimt frá bændum til
framkvæmdanna. — Við í hús-
stjórninni teljum að tómt mál sé
að tala um að fara út í þessar
framkvæmdir ef þessi skilyrði
eigi að standa og því ætla að ég að
flytja tillögu, ef leyft verður
vegna þess hversu seint hún er
fram komin á þingtímanum, þess
efnis að slakað verði á þessum
skilyrðum, sagði Hjörtur að lok-
um.
Færeyska
sjómanna-
heimilið
FÆREYSKA Sjömannaheimilið
hefur verið opnað og Jóhann Ols-
en, forstöðumaður þess, og kona
hans nýlega komin til landsins.
Verður starfsemin fram á vor
meó sama hætti og verið hefur,
þ.e.a.s. Færeyingakvöldum á
fimmtudagskvöldum kl. 8.30 og
kristilegum samkomum kl. 5 á
sunnudögum. Verður fyrsta
kvöldvakan annað kvöld. Jóhann
kvaðst vilja nota tækifærið og
þakka góðar undirtektír undir
basar sem færeyskar konur
(Sjómannskvinnuhringurinn)
efndu til á sunnudaginn var 1
Sjómannaheimilinu til eflingar
byggingarsjóði hins nýja Sjó-
mannaheimilis. Hann kvaðst von-
ast til að fá leyfi fyrír að efna til
bílhappdrættis fyrir byggingar-
sjóðinn, eins og undanfarin ár, en
síðasti bíll fórtil Hafnarfjarðar.
Manch. United áfram
MANCHESTER United sigraði
Southampton 1 endurteknum
bikarleik liðanna í gærkvöldi með
2 mörkum gegn einu 1
Manchester, og hefndi þar með að
nokkru harma sinna frá því á
Wembley 1 fyrra, þar sem þessi
lið voru i úrslitum. Þar með er
Manch. United komið í 8-Iiða úr-
slit á móti Aston Villa, en þar
munu auk þess keppa saman
Everton og Derby County. Liver-
pool og Middlesbrough , Wolver-
hamton Wanderers og Leeds
United.
— Á lífi í rúst-
um 1 Búkarest
Framhald af bls. 1.
Vestur-Þýzkalandi og fleiri lönd-
um.
Rúmenska fréttastofan segir, að
i oliubænum Ploesti hafi rúmlega
2.000 byggingar skemmst og 200
byggingar hrunið til grunna.
Rúmur helmingur 70 verksmiðja
hefur skemmst.
Meira tjón hefur orðið í Júgó-
slavíu en í fyrstu var talið að sögn
júgóslavnskra blaða í dag. Þau
segja að i einum bæ, Negotin, hafi
rúmlega 1.000 byggingar
skemmzt, þar af 100 sem ekki sé
hægt að gera við.
— Kosið
Framhald af bls. 2
Möller, hjúkrunarfræði, 3. Haraldur
Johannessen, lögfræði, 4. Tryggvi Pétursson,
verkfr. raunvfsd. 5. Ilörður Jöhannesson,
löxfræði, 6. Jón&s Ingimarsson, læknisfræði,
7. Skafti Harðarson, heimspekideild, 8.
TrvK^vi Jðnsson, viðskiptafræði, 9. Haraldur
Sií<urðsson. læknisfræði, 10. Jón Ragnarsson,
guðfræði, 11. Birna Snót Stefnisdóttir,
viðskiptafræði 12. firéta Baldursdóttir, lög-
fræði, 13. Páll Torfi önundarson, læknis-
fræði, 14. Sigurður B. Arnþórsson, viðskipta-
fræði, 15. Erla Elín Hansdóttir,
heimspekideild, 16. (iuðmundur íiuðjónsson.
verkfr. landafr. 17. (iuðrfður (iuðmunds-
dóttir, lögfræði, 18. Ægir Ingólfsson,
tannlæknisfræði, 19. Einar K. (iuðfinnsson,
félagsvfsindadeild, 20. Helga (iuðmunds-
dóttir, sjúkraþjálfun. 21. Ólafur Egilsson,
heimspekideild, 22. Þorvaldur (íunnlaugs-
son, verkfr. raun. 23. Vilhjálmur A. Ar&son,
læknisfræði 24. Hrafnkeil Tryggvason,
læknisfræði 25. Þorvaldur Friðriksson, heim-
spekideild. 26. Eirfkur Þorgeirsson, læknis-
fræði,
Listi Vinstri manna er skipaður
eftirtöldum:
Háskólaráð
1. Sigrún Helgadóttir Ifffræði, 2. Ingihergur
(iuðmundsson, fslenska 2. (iuðrún Pálfna
Héðinsdóttir bók&safnsfræði, 4. Þorsteinn
Magnússon, þjóðfélagsfræði
Stúdentaráð
1. Björg Þorleifsdóttir, Ifffræði, 2. Pétur Þor-
steinsson, guðfræði, 3. (iísli Fannherg,
sálfræði, 4. Ingólfur Jóhannesson, sagnfræði,
5. Tryggvi Jónsson verkfræði, 6. Einar Kára-
son, hókmennt&saga, 7. Björn Lfndal,
lögfræði, 8. Ástrós Arnardóttir, Ifffræði, 9.
Bolli Héðinsson, viðskiptafræði, 10. Helga
(iuðmundsdóttir, danska, 11. Þorlákur Karls-
son sálfræði, 12. Arnór Sighvatsson, heim-
speki, 13. örn Jónsson þjóðfélagsfræði, 14.
Hannes Örn Blandon guðfræði, 15. Hjördfs
Smith læknisfræði 16. Ingibjörg Þórhalls-
dóttir hjúkrunarfræði, 17. Árný Erla
Sveinbjörnsd. jarðfræði, 18. Sigrún Páls-
dóttir verkfræði, 19. Björn Harðarson
jarðfræði, 20. Jóhannes (iuðmundsson
læknisfræði, 21. Þorgeir Pálsson verkfræðí,
22. Elfsabet Þorgeirsdóttir. fslensk& 23.
Jakoh Jónsson, tannlækningar. 24. Þórður
Ingvi (iuðmundsson, þjóðfélagsfræði, 25.
vSteinunn H. Hafstað, bókmenntasaga, 26.
össur Skarphéðinsson. Ifffræði.
— Bretar vilja
viðræður á ný
Framhald af bls. 1.
miðum bandalagsins þegar þær
rynnu út 31. marz.
Stjórnarnefnd bandalagsins
lagöi til að heimildirnar yrðu
framlengdar i þrjá mánuði, en um
tímalengdina var ekki rætt á
fundinum í dag. Yfir standa
viðræður milli EBE og Sovét-'
ríkjanna, Póllands og Austur-
Þýzkalands um fiskveiðisamninga
til langs tíma en ekki er Ijóst
hvort þeim verður lokið fyrir
næstu mánaðamót.
Brezki utanrikisráðherrann,
David Owen sem var 1 forsæti á
fundinum, sagði að lengd
framlengingarinnar og önnur
skilyrði væri ekki hægt að ákveða
á þessu stigi.
Frá því var skýrt I Briissel í dag
að Rússar, Pólverjar og Austur-
Þjóðverjar virtu i einu og öllu
samninga um takmörkun fjölda
fiskiskipa frá þessum löndum á
miðum EBE.
Eftirlit á sjó og úr lofti sýnir að
sovézkum skipum á miðunum
hefur fækkað um tvo þriðju siðan
i janúar. 42 sovézk skip af ýmsum
stærðum mega veiða á miðum
EBE.
Við Grænland eru aðeins sjö
sovézkir togarar um þessar
mundir miðað við 20 i janúar.
r
— Utreikningar
Framhald af bls. 2
Tryggingaeftirliti ríkisins tók
mjög í sama streng og Bjarni
Þórðarson. Hann kvað mismun á
útkomu félaganna og Trygginga-
eftirlitsins vera þá að eftirlitið
byggði á víðtækari upplýsingum
eða tölfræði frá 8 félögum í stað 6.
Erlendur kvað Félag íslenzkra
bifreiðaeigenda hins vegar reikna
með 18% verðíagshækkun, en
hann kvað það óraunhæft mjög.
Réttara væri að miða við verðags-
þróun ársins á undan og ef svo
væri ávallt gert, myndi hækkunin
leiðréttast, þegar til lengdar léti.
Ef félögin fengju of mikla hækk-
un eitt árið, myndi það koma til
frádráttar næsta ár eða öfugt. Þá
kvað Erlendur Lárusson veruleg-
ar líkur á að verðlagshækkun yrði
meiri en segði í þeim forsendum,
sem FÍB gæfi sér fyrir útreikn-
ingum sínum. I rekstri trygginga-
félaga er ekki hægt að vera svo
bjartsýnn um verðlagsþróun, sem
FÍB er — sagði Erlendur og bætti
við, að ef farið væri að áliti FÍB,
myndu félögin verða rekin með
200 milljón króna tapi á árinu.
Það kvað hann myndu verða
meira tap en félögin þyldu.
— Lifði af
F'ramhald af bls. 2
hjá Rarik og til heimilis á
Galtalæk (Rangárvallasýslu.
Enginn sjónarvottur var að
slysinu en svo virðist sem Sig-
urjón hafi ekki snert neitt sem
straumur var á heldur aðeins
komið of nálægt, þannig að
neisti hafi hlaupið í hann og til
jarðar. Hann var í blautum eða
rökum fötum og kann það að
hafa hlíft honum nokkuð.
Sjalfvirkur útsláttarrofi rauf
strauminn á sekúndubroti.
Sigurjón liggur á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri.
— Sv.P.
— Þjóðhags-
stofnun
Framhald af bls. 32
bættum tækjakosti eigi mestan
þátt i því.
Þrátt fyrir minnkandi tollvernd
gagnvart erlendum iðnaði hefur
fyrirtækjum í samkeppnisgrein-
um ekki fækkað frá inngöngunni
i EFTA og í sumum greinum,
sérstaklega í húsgagna- og
innréttingasmíði hefur þeim
fjölgað. Þá kemur það einnig
fram að framleiðni hefur aukist
meira i samkeppnisgreinum en í
iðnaði í heild.
Afkoma iðnfyrirtækja hefur
verið fremur jöfn og mun jafnari
en afkoma t.d. sjávarútvegs. Hef-
ur afkoman ekki versnað frá
aðildinni að EFTA. í iðnaði í
heild hefur hagaður fyrir af-
skriftir og beina skatta yfirleitt
numið 6—7% af vergum tekjum á
árunum 1968 til 1974. Hagnaðar-
hlutfall útflutningsgreina, að ál-
verinu undanskildu, var 5—6% á
árunum 1971 — 1973, en á árun-
um 1974 og 1975 batnaði afkoma
útflutningsiðnaðar verulega og
hækkaði hagnaðarhlutfallið upp í
7,3% 1974 og 9,8% 1975. Segir 1
skýrslunni að ekki verói séð ann-
að en að vöxtur og viðgangur iðn-
aðar á sjö ára tímabilinu 1970 til
1976 hafi verið bærilegur.
Þreföldun útflutnings.
Þá segir i skýrslu Þjóðhags-
stofnunar að eftir aðildina að
EFTA, sem veitti iðnaðinum toll-
frjálsan aðgang að Evrópumörk-
uðum, hafi vinnuafl og fjármagn
flutzt frá framleiðslu fyrir heima-
markað til framleiðslu til útflutn-
ings. Almennur iðnaðarútflutn-
ingur hefur því nær þrefaldast,
þótt ál sé ekki meðtalið, á árunum
1969 til 1976, en á sama tíma
hefur magn annars útflutnings
staðið I stað. Hlutur almenns iðn-
aðarútflutnings í útflutningsverð-
mæti er nú rúmlega 7% saman-
borið við tæplega 5% árið 1969.
Ef ál er talið með, er hlutur iðn-
aðarútflutnings nú um 24%
samanborið við 10% árið 1969.
Þá er fjallað um tollamál, beina
og óbeina skatta iðnaðarins. Rak-
ið er hvernig dregið er i áföngum
úr tollvernd íslenzks iðnaðar og
hvernig hann hefur aðlagast nýj-
um aðstæðum og segir að ekki
verði annað séð en að aðlögunin
hafi tekist bærilega. Bent er á þá
verndarröskun, sem óbeinir skatt-
ar hafa haft i för með sér vegna
uppsöfnunar t.d. söluskatts og
sett fram sú skoðun að á þessu
megi ráða bót með virðisauka-
skatti eða skyldum skatti, eða
beinum endurgreiðslum vegna
skatta af aðföngum.
Um beina skatta segir að al-
menn skattakjör iðnfyrirtækja
hér á landi séu nú fremur hag-
stæð i samanburði við önnur lönd,
og tiltölulega hagstæðari nú en á
árunum fyrir EFTA-aðild.
Þá segir i skýrslunni að hlutur
iðnaðar i lánveitingum til rekstr-
ar og framkvæmda hafi ekki auk-
ist sem æskilegt hefði verið, og
stafi það meðal annars af þvi að
fjármagni hafi verið beint í mikl-
um mæli til sjávarútvegs. Þá kem-
ur það fram að iðnaðurinn búi við
lakari lánakjör en hinar hefð-
bundnu framleiðslugreinar.
Nánar verður skýrt frá inni-
haldi skýrslunnar í Morgunblað-
inu á morgun.
— Krafla
Framhald af bls. 32
gert hefði verið ráð fyrir, hvort
sem til tíðinda drægi í nótt eða á
morgun eða síðar, þvi að öll þróun
á svæðinu væri mjög svipuð og
var fyrir siðasta sig í janúar og
atburðarásin því vafalaust áþekk,
hvort heldur kvikan hlypi norður
í Gjástykki eða bryti sér leið
annað.
Gasaukningin I holu 7 reyndist
við siðustu mælingu vera um
20%, en sérfræðingar telja að það
sé á mörkum þess að vera mark-
tækt. í næstu mælingu er hins
vegar talið að línurnar skýrist, en
veruleg gasaukning gefur
vísbendingu um að eitthvaó sé í
aðsigi innan skamms tima.
— Allt saman
aulafiskur
Framhald af bls. 7
alsmerki Árskógsstrendinga.
Það er því óþarfi að bæta því
við, að útgerðin þar stendur
traustum fótum og afkoma
fólks er góð. Mér virðist það
líka ánægt og una hag sinum
vel, þótt vinnudagurinn sé
langur. Því þykir vænt um
plássið sitt, fjölskyldurnar eru
samhentar og hjálpast að við að
byggja þaó upp.
Ilalldór Blöndal.
— Hinn þögli
meirihluti
Framhald af bls. 13.
bjór sem öórum vínum telji hann
það rýra afköstin. Og hefur Jón
nokkuð hugleitt það að flest allir
atvinnurekendur á íslandi banna
drykkju áfengis i vinnutimanum
og í þeim efnum mundi ekkert
breytast þó að bjór yrði bruggað-
ur og seldur i landinu.
Ég tel að hinn þögli meirihluti
sé orðinn svo leiður á þessum
endalausa áróðri gegn bjór á ís-
landi að svona níðskrif hafi lítið
sem ekkert að segja. Hvernig
væri bara að hafa þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið og láta þar með
skynsemi þjóðarinnar ráða hvort
hér verður leyfður áfengur bjór
eða ekki.
— Yfirlýsing
Framhald af bls. 3
Þá er um raunverulegan ríkis-
rekstur að ræða með venjulegu
sjóðafargani, sem siðan rikið
stjórnar að geðþótta.
Stjórn Samtakanna vill áminna
menn um að missa ekki sjónar á
eðlilegum og heilbrigðum
atvinnurekstri og vara menn við
að falla í gryfju ríkisrekstrar á
öllum sviðum.
Telur stjórn Samtakanna að
nauðsynlegt sé að fella niður tolla
af vinnuvélum og gera afskriftar-
reglur þannig úr garði að heil-
brigður rekstur atvinnutækjanna
geri það kleyft, að hægt sé að
endurnýja þau á eðlilegum tíma.
Telur stjórnin nauðsynlegt að
heimila aftur erlend lán og að
almennum lánastofnunum sé gert
kleyft að taka að sér hlutverk
stofnlánasjóða.
Stjórn Samtaka
fslenzkra verktaka.