Morgunblaðið - 09.03.1977, Page 23

Morgunblaðið - 09.03.1977, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1977 23 Georg J. Guðmunds- son — Minningarorð Jónsdóttur, og lifir hún mann sinn. Þegar ég var lítill drengur man ég til þess, að sá frændi (móður- bróðir) minn, sem ég leit alltaf hvað mest upp til, var Viggó. Hann var liðlega 7 árum eldri en ég, alltaf afar stór í mínum augum en áhugamál okkar voru i mörgu áþekk. Fyrst man ég eftir honum á Laugavegi 20, en þar bjuggu foreldrar hans lengi, og átti hann þá meðal annars forláta brunabíl, sem ég kom oft til að horfa á, og þeim bíl mun ég seint gleyma. Viggó lauk námi i Verzlunar- skólanum aðeins 16 ára og minn- ist ég þess, að hann fékk hæstu einkunn skólans fyrir hraða í vél- ritun og þótti það nokkuð mikið. Hann fékk vinnu í tóbaksverzlun- inni London og kom sér þar vel. Eitthvað þótti mér smástráknum skrítið, hvað Viggó var alltaf klár á öllum hlutum, og kom það reyndar vel fram í starfi hans sem afgreiðslumanns, hann samdi um að taka að sér gólfþvott eftir vinnutima og fékk hann fyrir það 15 krónur á mánuði aukalega, og það voru engar álkrónur. Annað fékk hann einnig, en það var handleiðsla góðs verzlunarstjóra og samgangur við annað fólk. Það síðasta kom til að bæta við hann einu tungumáli i viðbót við þau, sem hann lærði í Verzlunar- skólanum en það var franska, sem hann lærði mjög vel m.a. af frönskum sjómönnum, sem komu I London. Áður en yfir lauk talaði hann 7 erlend tungumál reiprenn- andi. Ólafur Jonsson i Ó Johnsen & Kaaher kom auga á þennan vinnusama og gáfaða dreng í verzluninni hjá Erlendi og hafði áhrif á að hann var ráðinn gjald- keri i ísafoldarprentsmiðju og var hann þar áratugum saman eða þar til hann og nokkrir vinir hans keyptu meirihlutann í sælgætis- gerðinni Freyju, og rak hann það fyrirtæki til dauðadags. Viggó var mjög músikalskur og held ég hann hafi getað spilað á öll hljóðfæri, sem hann kom höndum yfir. Hann átti ekki langt að sækja það þar sem móðurbróð- ir hans, Guðjón Jónsson bryti hafði sömu náttúru til hljóðfæra, en sonur Guðjóns er m.a. Vil- hjálmur, sem hefur verið bæði í Lúðrasveit Reykjavíkur og syn- fóníuhljómsveitinni frá upphafi og alltaf staðið vel fyrir sfnu. Viggó var í mörg ár í Lúðrasveit Reykjavíkur og nokkur ár for- maður hennar. Áðan nefndi ég, að Viggó hefði átt brunabíl einn merkilegan. Ekki var það nú eini bíllinn hans á lífsleiðinni og ekki get ég talið þá alla, en næsti blll sem ég man eftir, var 1950 árgerð af De Soeto, sem hafði merkilega hálfsjálf- skiptingu, sem Viggó var snill- ingur að spila á. Þegar alvöru- bílar af Benz-gerð fóru að flytjast til landsins i einhverjum mæli um 1955 keypti Viggó 220 gerðina af slíkum, og held ég að honum hafi fundizt, að það hafi verið bezti bfll, sem hann hafði átt og mikið var þeim bil boðið á hinu frum- stæða þjóðvegakerfi okkar, sem nátttröll á Alþingi vilja enn þann dag í dag halda í sama ástandi og vegi hjá Búskmönnum í Afrfku. Seinna eignaðist Viggó sinn sið- asta bíl af sömu gerðinni. Ekki má sjá á honum, að hann hafi yfirleitt verið notaður, svo vel er hann meðfarinn og átti það reyndar við um alla hans bíla, enda hefur þjóðvegakerfið ekki haft færi á að misþyrma honum. Bílaáhugi okkar frænda fór saman og þegar undirritaður varð formaður Félags islenzkra bif- reiðaeigenda, var Viggó ritstjóri Ökuþórs, sem var timarit þess félags. Viggó var bæði höfúndur nafns tímaritsins og þátta i því, sem að sjálfsögðu voru kenndir við bila t.d. Hljóð úr horni og Blöndungurinn. P^élagið hefur fyrir mörgum árum hætt útgáfu timaritsins, og væri því sannar- lega réttara að koma þvi f gang aftur og auðveldara er það eftir að troðin voru brautryðjenda- sporin af fyrsta ritstjóra þess. Viggó trúlofaðist Sígriði Jóns- dóttur, sem lifir mann sinn, að- eins 16 ára gamall. Man ég, að talað var um, að þetta væri nú aldeilis ekki i lagi þar eð bæði voru nú börn. Fólk tók ekki eftir auði þeirra sem var vinnusemi, samheldni og reglusemi. Hjóna- band þeirra var hið bezta og eignuðust þau 3 börn, Viggó Örn (sem lézt í flugslysi), Jón Viðar og Ásdísi, sem gift er verksmiðju- eiganda á Spáni. Barnabörnin eru 5 og voru mikil upplyfting afans og ömmunnar. Sigrfður hefur alltaf verið mesta myndarkona, hefur alltaf unnið mikið. Man ég t.d. eftir því, að hún kom sér upp sokkaviðgerðarvél til að gera við kvensokka fyrir stríð, en þá voru þræðir slíkra sokka sýnilegir og viðgeranlegir. Hún hefur einnig frá því að Viggó kom í Freyju unnið þar fulla vinnu, og hefur hún þó átt við verulegt heilsuleysi að stríða, en aldrei gert mikið úr þvf. Á síðastliðnu sumri fékk Viggó alvarlega hjartabilun og bar hann sitt barr ekki eftir það. Hann gekk þó til vinnu sinnar sem áður, og daginn, sem hann lézt, fann hann til verkjar og ók þá sjálfur i bíl sínum upp á spítala, tók á móti konu sinni í viðtalstíma um kvöldið kátur og glaður eins og alltaf, og var liðinn fyrir mið- nætti. Þar með var hans saga 611, en vinir hans og afkomendur munu hann sem hinn glaðværa mann, sem alltaf sá vel um sitt fólk og vildi aldrei neinum neitt annað en gott eitt. Ég þakka frænda mínum fyrir alla hluti gamla og nýja og ber kveðjur úr hrauninu í Garðabæ. Sveinn Torfi Sveinsson. „Dáinn, horfinn" — Harma- fregn! Hvílíkt orð mig dynur fyrir. Þannig kvað Jónas Hallgrímsson forðum er hann frétti lát vinar sins Tómasar Sæmundssonar. Þessi orð hljóma nú fyrir eyr- um mér og allra, sem einhver kynni höfðu af vini mínum Viggó Jónssyni, en hann lést á Lands- spítalanum að kveldi dags hinn 1. marz. Hann hafði siðustu mánuði ekki gengið heill til skógar, en engu sfður var hann hress og kátur að venju og lét engan bilbug á sér finna. Enda skapgerðin þannig að allt vil og vol var honum mjög fjarri skapi. Gáfur hans og dugnaður var með eindæmum, hann vissi skil á flestu milli himins og jarð- ar; málamaður var hann með af- brigðum, hljómlistar unnandi og spilaði sjálfur á margs konar hljóðfæri sér til hugarléttis og vinum og vandamönnum til ánægju. Ég, sem þetta rita og kona mín, höfum átt því láni að fagna að vera vinir þeirra hjóna, Sigríðar og Viggós, í tugi ára og hefur aldrei brugðið skugga á þá vin- áttu, enda þau bæði heilsteypt, trygglynd og vinaföst. Árum saman höfðum vió Viggó notið hvíldar og unaðar við lax- veiðar, en hann var slyngur veiði- maður, og hef ég notið hans kennslu í þessari íþrótt. Hann lagði mikið kapp á flugu- veiði og á þvi sviði manna færast- ur. Af sérstakri alúð lagði hann sig fram um að kenna mér þessa kúnst. Það er því engan veginn kennaranum að kenna að árangur hefir ekki orðið sem erfiði. Ég hefi átt marga góða veióifélaga, en Viggó var alveg í sérflokki. Við horfðum báðir með tilhlökkun og eftirvæntingu til veiða i sumar, i Norðurá, en þar höfðum við feng- ið úthlutað dögum til veiða. En enginn veit sina ævina fyrir en öll er. Það er mikill og þungur harmur kveðinn að vinum og vandamönn- um, en sérstaklega konu hans, börnum og barnabörnum. Þar verður skarð fyrir skildi, en tíminn læknar öll sár og vonandi þessi Ifka. Við hjónin sendum þeim öllum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Viðar Pétursson. Einn af öðrum falla þeir sem teljast til aldamótakynslóðar- innar, — einn af þeim var Georg Júlíus Guðmundsson, eins og hann hét fullu nafni sem andaðist 28. febr. s.l. Georg var fæddur að Görðum í Önundarfirði 11. jan. 1898 sonur hjónanna Guðmundar Jónassonar bónda og Gróu Finnsdóttur. Hann ólst upp i foreldrahúsum i stórum systkinahóp og var með- al þeirra eldri. Snemma vandist hann sjósókn þvi á ungum aldri byrjaði hann sjóróðra með föður sínum, úr því var hann á ýmsum fiskiskipum mestmegnis togurum þar til hann hóf nám í Stýri- mannaskóla íslands en þaðan út- skrifaðist hann árið 1927. Að námi loknu tók hann upp þráðinn þar sem frá var horfið og hóf á ný störf á togurum, — fljótlega sem stýrimaður og var lengst af með aflamönnunum Þórði Hjörleifs- syni og Vilhjálmi Árnasyni en sið- ustu árin sem hann sótti sjóinn var hann skipstjóri a togara. Hohum veittist aldrei örðugt að fá skiprúm því hann var eftirsótur dugnaðarmaður og samvisku- samur í hverju því starfi sem honum var falið. Góðir netamenn hafa löngum orðið eftirsóttir á togurum en á því sviði var Georg svo að af bar. Árið 1955 hætti Georg sjó- mennsku og hóf störf við neta- gerð og vann við það starf meðan starfskraftar leyfðu, — við þetta starfaði hann lengst af einungis hjá tveim netagerðarfyrir- tækjum. Svo hefur mér verið sagt að hann hafi verið mjög vel látinn bæði af yfirboóurum og undir- mönnum. Árið 1930 kvæntist Georg frændkonu minni Jóninu Ingi- björgu Magnúsdóttur skipstjóra og þá hófst okkar kunnings- skapur og vinátta sem aldrei siðan hefur slegið fölva á. Þau hjónin eignuðust tvö börn, — Sigurveigu, hjúkrunarfræðing að mennt, gifta Lárusi Guðmunds- F. 29. ágúst 1957. D. 4. febrúar 1977. Við eigum erfitt með að skilja að hún Kolla skuli vera farin frá okkur, hún sem var svo ung og átti allt iífið framundan. En vegir Guðs eru órannsakanlegir. Kolla fæddist á Akureyri 29. ágúst 1957. Hún var næstyngst af sex börnum þeirra hjónanna Sól- veigar Eyfeld og Hjálmars Júlus- sonar. Ég kynntist Kollu fyrst árið 1973, þá er við báðar lögðum leið okkar að heiman í fyrsta skipti. Það var um sumartíma er við unn- um i Hreðavatnsskála í Borgar- firði, að ég kynntist þessari lífs- glöóu jafnöldur minni. I tvö sumur unnum við saman á þessum fallega stað, þar sem allt- af var líf og fjör hjá okkur ungl- ingunum. Upp fra4 þessu lá leið okkar Kollu til ísafjarðar. Tókum við að vinna þar við sjúkrahúsið og feng- um fljótt áhuga á starfinu, sem varð til þess að við ákváðum að læra það. Á ísafirði vorum við i eitt og hálft ár við mikla gleði og ánægju sem við upplifðum þar í hópi vina, en allir þakka þeir Kollu fyrir yndislegar ánægjustundir sem aldrei gleymast. í september fluttist Kolla til mín og hóf nám í kvöldskóla til undirbúnings fyrir Sjúkraliða- skólann. En sá ánægjutimi reynd- ist stuttur. Kvöld eitt kom hún ekki heim úr skólanum, óhamingjan hafði dunið yfir er þau systkinin lentu í slysi. syni presti að Holti i Önundar- firði, og Guðmund lækni sem starfar við Tilraunastöð Há- skólans í meinafræði að Keldum, kvæntan Örbrúnu Halldórs- dóttur. Þá ættleiddu þau systur- son Jónínu, Magnús, fram- kvæmdastjóra við íþróttahúsið á Seltjarnarnesi, kvæntan Svein- björgu Símonardóttur. Árið 1955 andaðist Jónína og var það Georg mikið áfall enda Flafði sambúð þeirra verið einkar góð. Enda þótt börn hans öll hafi verið honum mjög nærgætin kunni hann því best að vera útaf fyrir sig og njóta samvista við þau um helgar. Sérstaklega naut hann þess að dvelja á æskustöðvunum hjá dóttur sinni og tengdasyni að Holti, — fór hann þangað að jafn- aði um jól, og hverju vori dvaldi hann þar alllengi. Um 12 ára skeið bjó Georg sem Hvammstangi, 7. marz. RÆKJUVEIÐI er nú um það bil að Ijúka hér, en Hvammstanga- bátar eiga nú aðeins eftir að veiða nokkur tonn af þeim 306, sem þeim var úthlutað f vetur. Reynd- ar var bátunum úthlutað 36 tonna veiði f Ófeigsfirði, en um þessar mundir fæst þvf sem næst engin rækja þar, og bendir þvf allt til að ekki verði hægt að veiða það magn þar að þessu sinni. Það er mjög bagalegt að rækju- veiðinni skuli ljúka svona snemma vetrar. Um 20 manns vinna nú við rækjuvinnsluna og bendir flest til þess að það fólk fari á atvinnuleysisskrá að vinnslu iokinni. Rækjubátarnir eru alls fjórir, og fara tveir þeirra suður á vetrarvertíð, en ekki er vitað um nein verkefni fyrir hina tvo. Áhafnir þeirra báta verða því í þrjá mánuði lá hún meðvit- undarlaus á gjörgæsludeild Borgarspítalans. Allt var gert sem í mannlegu valdi stóð, en óvissan var sár fyrir ástvini hennar. Hún var burt kölluð 4. febrúar. Utför hennar fór fram frá Dal- víkurkirkju 12. febrúar. Ég votta foreldrum hennar og systkinum mína dýpstu samúð. Ég þakka þessari elsku vinkonu minni, allar þær gleði- og ánægju- stundir sem við áttum saman, allt- af ljómaði hún af lífsþróttir og gleði sem kom öllum í gott skap. Guð verði með henni, ég veit að hún verður i vinahóp á himnum eins og hér á jörðu. Guð blessi minningu hennar. Fjóla. leigjandi hjá okkur hjónunum og á þeim tíma urðu kynni okkar mjög náin. Hann var traustur vinur, glaðvær og hlýr í vinahóp á gleðistundum, en undir niðri var hann viðkvæmur alvörumaður. Við hjónin vottum ástvinum hans innilega samúð. Þórður Runólfsson. að likindum atvinnulausar á næstunni. Þótt ekki blási byrlega á þessu sviði, er þó einn ljós punktur i athafnalifinu hér. Verið er að stækka saumastofuna, sem er í leiguhúsnæði hjá félagsheimil- inu. Hefur saumastofan tekið að sér stór verkefni fyrir Banda- rikjamarkað og á þvi að vera lokið fyrir 1. september n.k. Að stækkun lokinni má búast við að saumastofan þurfi fleira fólk til vinnu á næstu mánuðum og ætti því sumt af því fólki er unnið hefur við rækjuvinnsluna að fá vinnu þar. Karl... — Saga úr stríðinu Framhald af bls. 31 drengunnn yfirgefur móður sína dapur í bragði. sem vonlegt er Ef lagið á að lýsa hugrennmgum drengsins á þessu ugnabliki, eru þetta meira en lítið kaldrifjaðar hugsanir. og koma ekki alveg saman við þá mynd af drengnum. sem hugsaði um það að valda móður sinni ekki of miklum áhyggjum á afmælisdeginum. og sneri þess vegna heim aftur, eftir að hafa hlaupist á brott Val lagsins er því augljóslega val fullorðins fólks. og sett inn til að fullnægja allt öðrum þörfum en þörfum verksins S ma má ef til vill segja um annan i myndmm. sem að mínum dómi tók of mikið rúm i svo knappri mynd. sem þessari Var það skemmtiatriðið í hermannaklúbbnum. þar sem söngkonan var látin syngja tvo log i svipuðum dúr. ..Our love is here to stay' og ..They say that falling in love is wonderful' Að þessum agnúum slepptum var myndin yfir höfuð mjög vel unnin Öll svið myndarinnar virkuðu trú- verðug á leikmann, og yfirleitt skil- uðu þær ..týpur' , sem valdar hofðu verið i verkið. hlutverkum sinum með prýði Öll tæknivinna var með yfirbragði atvinnumanna og ýmis atriði voru mjög vel útfærð. eins og t d þegar drengurmn hleypur úr afmælisveislunni og felur sig i skúrnum og jafnframt atriðið inni i veitingasalnum. þar sem móðir hans vann Að visu er drukknunaratriði föðurins ofurlitið skrítið. enda snúið i uppsetningu. ef það á áð líta raun verulega út Hms vegar hefði trúlega mátt leysa það á fynrhafnarminm hátt N SSP Kolbrún Hjálmars- dóttir—Minning Rækjuvertíð að ljúka á Hvammstanga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.