Morgunblaðið - 09.03.1977, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1977
29
= VELVAKAN Dl
, SVARAR í SÍMA
Í0100 KL 10 — 11
1 FRÁ MÁNUDEGI
Afmæliskveðja:
Þórdís Steinsen
Eins og kunnugt er, hefur nú
hafizt annað einvígi hér. Enn sem
fyrr sér Skáksamband Islands um
keppnina, og hefur nú eins og þá
baktryggt sig með eins konar
„víxiláritun" ríkis og borgar gegn
hugsanlegu fjárhagstjóni. Mundu
flest félagasamtök telja sig vera
fær í flestan sjó, ef þau ættu slíka
„ábekinga" vísa. — Og enn sem
fyrr virðast forvígismennirnir
vera mjög á bandi þess „gerzka“,
sbr. grein Björns Bjarmans í
Morgunbl. 4/3 sl. um þriðju ein-
vígisskákina. Þar er gefin svo-
felld lýsing á viðbrögðum for-
vísm. Skáksambandsins, er
Spassky hafði sigrað Hort: „Einar
skákforseti svífur um gólfið í
sælurús og Högni brosir líka.“
Er þetta ekki einum um of, eða
hvernig er háttað hinni rómuðu
isl. gestrisni hin síðari ár?
Hér mætti að endingu minna
örlítið á allan fyrirganginn með
Marinu Spassky, útreiðar, hesta-
skálar, kokkteila, o.s.frv., og var
ekki fyrrnefndur Björn Bjarman
eitthvað að minnast á, að einhver
hefði knúsað ljóshærðar sveita-
stúlkur á dansleikjum 1972? —
En eftir á að hyggja: Fáir virðast
þora að segja það sem segja ætti
um bókabrennu aldarinnar.
Jón Sigurðsson."
Þessir hringdu . .
% Engum uppalanda
óviðkomandi
Kona nokkur hringdi fyrir
skömmu og sagðist hún vera að
hringja fyrir hönd nokkurra reyk-
vískra kvenna, sem höfðu nýlega
lesið grein eftir Ingibjörgu Þor-
geirsdóttur, sem var birt í Mbl.
hinn 1. marz s.l. Greinin nefndist
Allt er þá þrennt er, og þar er
fjallaði Ingibjörg um ýmis mál
varðandi unglinga og eins og kon-
an orðaði það „mál, sem enginn,
hvorki uppalandi, foreldrarnir né
unglingar megi láta framhjá sér
fara.“ Þær vildu benda á þessa
grein og biðja menn að huga að
þeim málefnum, sem þar er drep-
ið á.
# Engin ný
bóla
Að undanförnu hafa verið
nokkrar umræður um álverið og
þá mengun sem stafar af því,
bæði ytri og innri mengun, og
hafa nokkrir haft samband við
Velvakanda út af því máli. Hafa
nokkrir viljað benda á það, að
þetta séu engin ný sannindi sem
þar hafa komið fram og eins og
Ragnar Halldórsson forstjóri hef-
ur bent á. Það hefur alltaf verið
vitað að þarna var um óhreinindi
að ræða og það hefur líka verið
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á SVÆÐAMÓTI Sovétrfkjanna,
sem haldið var í Vilnus, kom þessi
staða upp f skák Svorecki, sem
hafði hvítt og átti leik, og Roman-
ishins:
ÞAÐ er löngu vitað að fjöllin við
Hvalnes geyma dýra málma, en
hitt vita ef til vill færri, að þarna
ólst upp fólk gert af þvf undraefni
sem ekkert fær bugað. Einar frá
Hvalnesi var þjóðfrægur höfðingi
og afrennt karlmenni. Þótt Einar
gerði garðinn frægan uxu þar upp
aðrir kvistir af sama meiði. Systir
Einars Þórdfs Steinsen fæddist
upp á Hvalnesi og bjó sfðar við
* rausn á Hornafirði um skeið en
fluttist til Reykjavikur og á nú
heimili að Rauðarárstig 7 ásamt
syni sínum Ólafi Steinsen. Það
vildi svo til að ég og fjölskylda
mfn hittum Þórdísi eitt sinn á
krossgötum. Atvikin höguðu svo
framvindunni á þann veg að minn
betri helmingur hefur verið
meira og minna í þjónustu Þórdís-
ar síðan.
Andlegt og líkamlegt atgervi
konunnar er mikið og tekur þó
höfðingslundin öllu fram. Oft
hafa naprir vindar leikið um
þessa kynbornu dóttur Austur-
Skaftafellssýlu, en undraefnið frá
Hvalnesi lætur ekki auðveldlega
á sjá. Það „bognar aldrei, brotnar
i bylnum stóra síðast“. Þórdís
kann manna best að skýra frá og
hlusta, en segja mætti mér að
henni fyndist ekki um, þegar
kvartsárir náungar eins og ég og
mínir lfkar gera litlar rispur að
stórum meinum.
Aðalsmerki Þórdísar er að láta
vitað að menn hafa leitað þangað
eftir vinnu mjög fast enda vel
borgað og menn því viljað leggja
á sig að vinna í ryki fyrir gott
kaup. En spyrja má, sagði einn, af
hverju allt þetta fjaðrafok út af
álverinu, við höfum hér áburðar-
verksmiðju sem sendir frá sér
gulan mökk, sem leggst yfir bæ-
inn á stilltum dögum og er varla
nein heilsubót að því? Er það
HÖGNI HREKKVISI
26. Hxb7 + ! — Ka8, (Eftir 26. . .
Kxb7, 27. Hb4+ — Ka7, 28. Dc5 +
verður svartur mát) 27. Hb6 —
Ka7, (Eða 27... cxb6, 28. Hxc8+
— Ka7, 29. Dc6 — Hb7, 30. Bxb6 +
og mátar) 28. Hb7+ — Ka8, 29.
IIb7+ — De6, 30. Dc5 og svartur
gafst upp. Geysilega hörð keppni
var á mótinu og á endanum urðu
fjórir efstir og jafnir, þeir Balas-
hov, Guljko, Tseshkovsky og
Savon. Þeir hlutu allir 9 v. af 15
mögul. Þar eð aðeins þrfr komust
áfram var teflt til úrslita og urðu
þeir þá aftur jafnir. Þá voru
reiknuð stig úr aðalmótinu og það
varð Savon sem varð sá óhepþni.
Hafið þið konfekt með sardínubragði?
B&’ S\G&A V/öGA t \lLVt9AH
ekki erfiðleikana snækka sig.
Engu að síður hefur hún djúpa
samkennd með öllu sem lifir og
finnur til. Þrátt fyrir háan aldur
ber prýðilegt handbragð þessarar
konu órækt vitni um sköpunar-
gáfu og listfengi þvf ekki fellur
henni verk úr hendi einn einasta
dag. í dag 3. marz. s.l. er Þórdis
Steinsen nfræð. Megi henni end-
ast þrek og heilsa í tíu ár til. Með
þökk og virðingu.
Rögnvaldur Sigurðsson
og fjölskylda.
bara mengun sem útlendingar
eiga hlutdeild í hérlendis.
Þessi hlið á mengunarumræð-
unum hefur lítið komið fram og
því er á hana minnzt hér og fleira
af þessum umræðum við Velvak-
anda verður ekki rakið hér, en
mönnum boðið að hafa samband
ef þeir vilja í framhaldi af þessu
eða öðru sem þeir vilja benda á í
þessum málum.
Atvinnuleysis-
dögum f ækkar
ATVINNULEYSISDÖGUM fækk-
aði nokkuð f febrúar, ef miðað er
við janúarmánuð. AUs reyndust
atvinnuleysisdagar f febrúar vera
9.880, en voru 14.175 mánuðinn
áður. Alls voru 473 skráðir at-
vinnulausir f mánuðinum á land-
inu öllu f febrúar um lengri eða
skemmri tfma, en f janúar voru
þeir 637.
í kaupstöðunum voru flestir
skráðir atvinnulausir f Reykjavík
eða 155, en voru 130 mánuðinn á
undan, á Akranesi voru 25 skráðir
atvinnulausir og á Akureyri 23. í
öðrum kaupstöðum voru færri en
20 á atvinnuleysisskrá og f nokkr-
um kaupstaðanna var enginn
skráður atvinnulaus i mánuð-
inum.
1 kauptúnum, sem hafa 1000
ibúa eða fleiri, reyndust flestir
vera atvinnulausir á Selfossi 44 f
stað 60 mánuðinum á undan. Og f
kauptúnum, sem hafa færri en
1000 íbúa, voru flestir atvinnu-
lausir f Hrfsey eða samtals 24 og
hafði fjölgað um 6 i mánuðinum.
NAMSKEIÐ
Ný námskeið í matvæla- og næringarfræði hefjast í næstu viku.
NÁMSKEIÐIÐ FJALLAR MEÐAL ANNARS UM EFT-
IRFARANDI ATRIÐI:
0 Grundvallaratriði næringarfræði.
0 Innkaup, vörulýsingar, auglýsingar.
0 Ráðleggingar, sem heilbrigðisyfirvöld margra þjóða hafa birt, um
æskilegar breytingar á mataræði, til að fyrirbyggja sjúkdóma.
0 Fæðuval, gerð matseðla, matreiðsluaðferðir, tilbúning ýmissa rétta
(sýnikennsla) með tilliti til áðurnefndra ráðlegginga.
0 Mismunandi framreiðsluaðferðir, dúka og skreyta borð fyrir mis-
munandi tækifæri.
0 Hvað niðurstöður nýjustu vísindalegra rannsókna hafa að segja um
offitu og megrunarfæði. MUNIÐ að rangar megrunaraðferðir eru
mjög skaðlegar og geta valdið varanlegu heilsutjóni.
VEIZT ÞÚ AÐ GÓÐ NÆRING HEFUR ÁHRIF Á:
0 Andlegan, likamlegan og félagslegan þroska allt frá frumbernsku.
0 Mótstöðuafl gegn sjúkdómum og andlegu álagi.
0 Likamsþyngd þina, en hjarta- og æðasjúkdómar, sykursýki og
margir fleiri sjúkdómar eru langtum algengari meðal þeirra, sem
eru of feitir.
Aðeins rétt nærður einstaklingur getur vænst besta árangurs i námi,
leik og starfi.
Upplýsingar og innritun í sima 4424 7 eftir kl. 8 á kvöldin
Kristrún Jóhannsdóttir
manneldisfræðingur.