Morgunblaðið - 09.03.1977, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1977
NORÐURLANDAMOTiNU FLYTT
ALLAR líkur eru á þvl að
Norðurlandameistaramótið I Ivft-
ingum verði fært fram um hálfan
mánuð og haldið hérlendis dag-
ana 23. og 24. apríl n.k. en ákveðið
hafði verið að mótið færi fram
f.vrstu helgina í mat. Leitaði lyft-
ingasamhandið eftir því við sam-
böndin á hinum Norðurlöndun-
um að mótið yrði fært fram, þar
• «
• «
\ ^
LANDSLIÐIÐ
SENDI
ÞAKKARKORT
SÍÐASTA keppnisdaginn t Linz
sátu landslíðspiltarnir sveittir við
það að árita póstkort til islands.
Þeir tóku sig til að skrifuðu þeim
aðilum á íslandi þakkarkort. sem
styrkt höfðu förina til Austurrikis.
Má nefna að þeir sendu öllum
ráðherrunum skeyti, skipverjum
á bátum, sem gáfu peninga til
fararinnar, ibúum á Tálknafirði.
sem sömuleiðis gáfu peninga,
Tobba i Val og fleiri og fleiri. Allir
þessir aðilar fá væntanlega á
næstu dögum póstkort með nöfn-
um allra landsliðspiltanna og frí-
merki. sem gefið var út i Austur-
riki i tilefni keppninnar.
sem óttazt er verkföll I maf-
bvrjun. Sem kunnugt er fórst
mótið fyrir sfðast er halda átti
það hérlendis vegna yfirvofandi
verkfalla.
Tveir af stjórnarmönnum Lyft-
ingasambands tslands hafa
nýlega sagt af sér störfum. Voru
það þeir Brynjar Gunnarsson, for-
maður sambandsins, og
Guðmundur Guðjónsson, gjald-
keri. Hafa nýir menn verið kjörn-
ir í þeirra stað. Verður Helgi
Jónsson formaður sambandsins
og Ólafur Sigurgeirsson var kjör-
inn f stað Guðmundar.
Stjórn Lyftingasambandsins
hefur nú kjörið þrjá menn T
nefnd til þess að sjá um Norður-
landameistaramótið, en fram-
kvæmt þess er viðamikið verk-
efni.
Tómas Jónsson æfir
skíðafólk Víkings
Skíðadeild Knattspyrnufélags-
ins Víkings er með æfingar sfnar i
Bláfjöllum á mánudögum og mið-
vikudögum frá 19 — 21.30 og eru
ferðir frá Umferðarmiðstöðinni
klukkan 18. Þjálfari Víkinganna
er hinn kunni skíðamaður úr
Ármanni, Tómas Jónsson. í skfða-
landi Víkinga í Sleggjubeins-
skarði er komin tálsverður snjór,
en ennþá kýs keppnisfólkið þó að
vera í Bláfjöllunum.
Tom Pryce. Þessar myndir voru teknar af honum í Suóur-Afríku. Innsetta myndin
áður en keppnin hófst, og myndin af honum í kappakstursbifreið sinni nokkrum
mínútum fyrir slysið.
TVEIR FÓRUST í „GRAND
PRIX" SUÐUR-AFRÍKU
varð Austurríkismaðurinn Niki
Lauda, sem ók af gífurlegu öryggi
og eftir að hann náði forystu þeg-
ar búið var að aka sex hringi tókst
engum að ógna honum. Tími
Lauda f keppninni var 1:42:21,6
klst. í öðru sæti varð svo S-
Afríkubúinn Jody Scheckter á
1:42,26,8 klst og þriðji varð
Patrick Deapiller frá Frakklandi
á 1:42,42,5 klst, í fjórða sæti varð
heimsmeistarinn James Hunt frá
Bretlandi á 1:42,51,1
Miklum óhug sló á keppendur í
kappakstrinum og áhorfendur er
slysið varð, enda var Pryce góður
vinur margra keppinauta sinna.
Einn þeirra sem tárfelldu er frétt-
ist um lát Pryce var Emerson
Fittipaldi, fyrrverandi heims-
meistari í kappakstri. Gekk hann
fram og aftur við brautina eftir
keppnina og hélt höndum um
höfuðið.
Staðan í stigakeppni heims-
bikarkeppninnar er nú sú, að
Jody Scheckter frá Suður-Afríku
sem ekur Wolf-Ford bifreið hefur
hotið 15 stig, Niki Lauda frá
Austurriki sem ekur Ferrari bif-
reið og Carlos Reutemann frá
Argentínu sem einnig ekur Ferr-
ari hafa báðir hlotið 13 stig, fjórði
er James Hunt frá Bretlandi sem
ekur McLaren bifreið með 9 stig,
en síðan koma jafnir með 6 stig
þeir Carlos Pace frá Brasiliu og
Emerson Fittipaldi frá Brasilíu.
FIMLEIKA-
MEISTARAMÓTIÐ
Fimleikameistaramót jslands verð-
ur haldiS dagana 26. og 27. marz
n.k. f jþróttahúsi Kennaraháskóla ís-
lands. Fyrri daginn fer fram keppni
stúlkna, en karlakeppnin sfSari dag-
inn. Keppnin hefst báða dagana kl.
15.00.
Á meistaramótinu er keppt um
meistaratign í hverjum aldursflokki,
en auk þess um tignarheitið fim-
leikameistari ársins f kvenna- og
karlaflokki. Þann titil hljóta þau.
sem flest hafa stigin að keppni lok
inni og fer það ekki eftir aldri kepp-
enda
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borist til skrifstofu FSÍ 14 dög-
um fyrir mót.
27 ára kappakstursmaður frá
Wales, Tom Pryce, og 19 ára
slökkviiiðsmaður frá Suður-
Afríku, Jansen van Vurren, létu
lífið f „Grand Prix“ kappakstri
sem fram fór á Kyalami brautinni
f Suður-Afríku um helgina. Varð
slysið með þeim hætti að einn
kappakstursmannanna missti
stjórn á bifreið sinni og lenti utan
i grindverki við brautina. Kvikn-
aði i bifreiðinni, og var öku-
maðurinn hálf fastur í flakinu.
Hinn ungi slökkviliðsmaður brá
þegar við og ætlaði að hlaupa bif-
reiðastjóranum til aðstoðar , en í
því bar bifreið Tom Pryce að á um
240 kilómetra hraða. Lenti hún á
slökkviliðsmanninum sem kastað-
ist upp i loftið „eins og brotin
brúða“, einsog sjónarvottar lýsa
slysinu. Dunkur með slökkviefni
sem slökkviliðsmðurinn hélt á
kastaðist einnig upp i loftið og
lenti siðan í höfuð Tom Pryce. Er
álitið að dunkurinn hafi brotið
höfuðkúpu kappakstursmanns-
ins, en bifreið hans endasentist
eftir brautinni, lenti i grindverki
við hana, og valt síðan nokkrar
veltur. Báðir mennirnir munu
hafa beðið samstundis bana.
Tom Pryce var kunnur kapp-
akstursmaður, þótt ekki væri
hann i fremstu röð. Þetta var i
fertugasta og fyrsta sinn sem
hann tók þátt í Grand Prix kapp-
akstri. Meðal sjónarvotta að slys-'
inu var Nella Pryce, eiginkona
Tom Pryce, en hún hafði komið
frá Maidstone í Bretlandi daginn
áður til þess að fylgjast með
manni sínum í kappakstrinum.
Sigurvegari í kappakstrinum
I
Hreinn
Halldórsson — á möguleika á að komast f úrslit á EM.
FRJÁLSÍÞRÚTTAFÓLK VERBUR
A FERÐ OG FLUGI
- áætlaður kostnaður við utanferðir 10 millj.
—Samskipti við útlönd verða
meiri á þessu keppnistímabili
heldur en nokkru sinni fyrr,
sagði Örn Eiðsson, formaður
Frjáslíþróttasambands fslands, f
viðtali við Morgunblaðið í gær. —
Segja má að fslenzkt frjálsíþrótta-
fólk verði á ferð og flugi í allt
sumar, og áætlaður kostnaður
vegna þátttöku í mótum erlendis
er um tíu milljónir króna. Ilvern-
ig Frjálsíþróttasamhandið nær
fjármagni til þess að standa
straum af þessum kostnaði, er svo
önnur saga, og satt að segja er
erfitt að þurfa að viðurkenna það,
að við höfum töluverðar áhyggjur
af þvf að okkar fólk komist nú í
fyrsta sinn áfram f Evrópubikar-
keppninni, en slfkt yki enn kostn-
aðinn verulega, sagði Örn.
Hreinn Halldórsson, kúluvarpi,
ríður á vaðið f keppni erlendis á
þessu ári. Mun hann taka þátt í
Evrópumeistaramótinu inn-
anhúss sem fram fer á Spáni um
næstu helgi. Ætti Hreinn að eiga
nokkra möguleika á því að komast
í úrslit á móti þessu, og yrði það
sannarlega góð byrjuna í utan-
ferðum frjálsíþróttafólksins, ef
svo yrði.
Evrópubikarkeppni landsliða
karla og kvenna verður viðamesta
verkefni Frjálsíþróttasambands-
ins á keppnistímabilinu. Fer
undankeppnin fram í Kaup-
mannahöfn dagana 25. og 26. júní
n.k. og eins og Örn Eiðsson sagði,
er ekki ólíklegt að íslendingum
takist nú í fyrsta sinrii að komast
áfram i keppni þessari.
Dagana 30. og 31. júlf munu
íslendingar svo taka þátt í
Evrópubikarkeppninni í fjöl-
þrautum, þ.e. i tugþraut karla og
fimmtarþraut kvenna og verða
Norðmenn og Danir keppinautar
okkar í riðlinum. Þriðja Evrópu-
mótið sem íslendingar taka
væntanlega þátt í verður í Sovét-
ríkjunum 19. — 21. ágúst. Er þar
um að ræða Evrópumeistaramót
unglinga, og er ekki talið ósenni-
legt að 2 — 3 íslendingar verði
sendir á það mót.
önnur mót
Kalott-keppnin mun fara fram í
Finnlandí f ár dagana 23. og 24.
júli og verða íslendingar þar með-
al keppenda.
Af öðrum mótum erlendis sem
íslendingar taka þátt i n.k. sumar
má nefna að Sovétmenn hafa boð-
ið 4 ísiendingum á mót sem fram
fer i Socchi dagana 28. og 29. maí
og f júnibyrjun munu fjórir
íslendingar taka þátt í mótum i
Tékkóslóvakíu. Þá fer fram í
Gautaborg í Svíþjóð heims-
meistaramót öldunga dagana 8. —
14. ágúst, og verður væntanlega
a.m.k. einn íslendingur sendur
þangað. Á móti þessu keppa þeir
sem eru 40 ára og eldri. Þá verður
einnig landskeppni í tugþraut við
Frakka og Breta dagana 17. og 18.
september og fer sú keppni fram i
Wales.
Stærstu mótin sem fram munu
fara hérlendis á keppnistímabil-
inu, auk meistaramótsins og
bikarkeppninnar, er landskeppni
í kastgreinum við Dani sem fram
fer snemma i júni og afmælismót
Frjálsíþróttasambandsins sem
fram fe í júli.
—Við stefnum að því að fá er-
lenda þátttakendur á afmælismót-
ið, sagði Örn Eiðsson — og þá
sérstaklega I 1500 metra hlaupið,
en ákveðið er að það verði jafn-
framt minningarhalup um Svavar
heitinn Markússon.