Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 25 íslandsmótið 1. deild karla - FH, Víkingur, Valur ng Fram unnu leiki sína LEIKUK Víkings og Hauka í 1. deildinni á laugardaginn var f jafnum allt frá fyrstu mínútu þar til um 15 mfnútur voru eftír. Þá náðu Vfkingarnir loksins að sýna leik eins og liðið getur bezt, en Haukarnir brotnuðu hins vegar algjörlega. Skoruðu Vfkingarnir 12 mörk gegn 2 síðustu 20 mfnúturnar og unnu yfirburðarsigur í leiknum, 26:17. Víkingsliðið státar af mörgum snjöllum leikmönnum og ekki færri en átta þeirra hafa leikið í landsliði meira og minna síðustu tvö árin. Slíkt lið hlýtur að vera sterkt, þegar það nær saman og óneitanlega eru Vikingarnir sigurstranglegir í 1. deildinni í ár. Mikið er þó enn eftir af mótinu og fyrir ofan sig á töfl- unni hafa Víkingarnir lið Vals, sem hefur hlotið tveimur stigum meira. Haukarnir hafa sennilega misst af lestinni með tapi i þessum leik, en þeir geta allvel við árangur sinn til þessa unað. Liðið hefur gert meira en búizt var af þvi í haust. Eins og áður sagði var leikur Vík- inga og Hauka mjög jafn framan af, allt frá því að staðan var 1:1, 11:10 fyrir Hauka í hálfleik og 15:15 þeg- ar eftir voru nákvæmlega 17 minút- ur. Þá tóku Vikingarnir mikinn kipp og skoruðu hvert markið af öðru. Voru mörg þeirra mjög falleg, en önnur skoruð á næsta auðveldan hátt og mörg úr hraðaupphlaupum, enda aðeins eitt lið á vellinum þær mínútur, sem eftir voru. Páll Björgvinsson var mjög drjúg- ur i seinni hálfleiknum og skoraði þá sjö mörk. I fyrri hálfleiknum hafði Ólafur Einarsson hins vegar HAUKAR LAGU KYLLI- FLATIR í LOKIN Á MÓTIVÍKINGUM verið i aðalhlutverkinu, en var tek- inn úr umferð i síðari hluta leiksins. Er það einmitt aðall Vikingsliðsins hve marga sterka leikmenn Vik- ingarnir eiga, ef einn bregzt eða er undir strangri gæzlu eru aðrir til að leysa hann af hólmi. Björgvin gerði 5 mörk i þessum leik og lék vel að vanda og Magnús Guðmundsson stóð vel fyrir sinu. Tveir leikmenn Haukaliðsins voru í sérflokki að þessu sinni. Að sjálfsögðu Hörður Sigmarsson, sem er yfirburðarmaður í liðinu, og sið- an Þorgeir Haraldsson, sem sýnt hefur miklar framfarir í vetur. —áij I stuttu máli FH -ÍR ISLANDSMÓTIÐ 1. dcild. Lauj>ardalsholl 12. mart H1 — IR 20:19 (12:12) (iANGUR LKIKSINS: IR Min. FH Staðan 3. Sæmundur 1:0 4. 1:1 Agúst 5. 1:2 Agúst (v) 6. Janus 2:2 6. Viðar 3:2 7. 3:3 Agúst 10. Janus 4:3 13. Viðar 5:3 14. Janus 6:3 15. 6:4 Agúst 1«. Viðar 7:4 19. 7:5 Vilhjátmur 19. Viðar 8:5 20. 8:6 Brynjðlfur 20. Janus 9:6 21. 9:7 Agúst 22. Birsir 10:7 23. 10:8 Siguröur S. 24. 10:9 Agúst 25. 10:10 Agúst 26. Viðar(v) 11:10 27. 11:11 Vithjáimur 28. (ieir 12:11 30. Leikhlé 12:12 Vilhjálmur 36. Viðar(v) 13:12 37. 13:13 Agúst 39. 13:14 Vilhjálmur 40. 13:15 Bjarni 40. 13:16 Sigurður <■. 41. 13:17 Sigurður S. 45. (iuðmundur 14:17 46. Viðar(v) 15:17 16:18 Brvnjólfur 40. Janus 17:18 54. (ieir 18:18 55. 18:19 Bjarni 55. (iuðmundur 19:19 60. Geir 20:19 25. 8:8 Ingimar 27. 8:9 Hörður (v) 28. Magnús 9:9 28. 9:10 Sigurgeir' 28. 9:11 ÞorReir 29. Erlendur 10:11 leikhlE 31. Björgvin 11:11 32. 11.12 Hörður 33. Viggó 12:12 33. 12:13 Hörður 34. ÓlafurE. 13:13 35. Páll (v) 14:13 37. Björgvin 15:13 37. 15:14 Ingimar 42. 15:15 Jón 43. Páti (v) 16:15 45. Páll 17:15 48. Páll 18:15 49. Björgvin 19:15 50 19:16 Óláfur 51. Páll 20:16 52. 20:17 Þorgeir 53. Páll (v) 21:17 54. Viggó 22:17 58. Björgvin 23:17 59. Páll 24:17 60. Ólafur J. 25:17 60. Þorbergur 26:17 MÖRK VIKINGS: Páll Björgvinsson 7, Ólafur Kinarsson 5, Björgvin Björgvinsson 5, Viggó Sigurósson 3, Magnús Guðmundsson 2. Þorbergur Aðal* steinsson 2, Eriendur Hermannsson 1, ólafur Jónsson 1. MÖRK HADKA: Hördur Sigraarsson «, Þorgrir Haraldsson 4, Sigurgelr Martrinsson 2, Inglmar Haraldx- son 2, Ólafur Olafsson I, Stefin Jönsson I, Jón Hauksson I. MISHEPPNUÐ VtTAKÖST: Gunnar Einarsson varöi vftakast fri Ölafl Einarssyni f fyrri hálfleik og á sfðustu mfn- útu leiksins varði Grétar Leifsson vftakast frá Herði Sigmarssyni. BROTTVlSANIR AF LEIKVELLI: Þorbergi AAalsteinssyni, Vfgingi og Jóni Haukssyni, Haukum. var vikið af velli f 2 mfnútur hvorum. DÓMARAR: Hannes Þ. Sigurðsson og Karl Jóhannsson dæmdu leikinn vel. MÓKK FH. Viðar Sfmonarson 7. Janus (•uðlaugsson 5, (•uðmundur Arni Stefánsson 3, (ieir Hallsteinsson 3. Sæmundur Slefáns- son I, Bírgir Finnbogason 1. MÖRK IR: Agúst Svavarsson 8. Vilhjálmur Sigurgeirsson 4. Rrynjólfur Markússon 2. Sigurður Svavarsson 2. Sigurður Gfslason 1, Bjarni Hákonarson I. Bjami Bessason I. MISIIEPPNHD VÉTAKÖST: Engin BROTTVlSANIK AF LEIKVELLI: Sigurði Svavarssyni. IR, Agústi Svavarssvni. ÍR. og Þróarni Ragnarssyni FH. var vikið af leik- velli. Sigurði f 4 rafnútur, hinum f 2 hvorum. DÓMARAR: Oli Olsen og Björn Kristjáns son dæmdu þennan leik heldur slaklega og óhætt að setja stórt spurningarmerki við atvikið f lok teiksins. Víkingur - Haukar Valur - Grótta Laugardalshöll 13. ’marz. 1. deild, Valur—Grotta 23:20 (12:9). Gangur leiksins: Mln. Valur tírólla I STUTTT' MÁLI: Gangur lelksias. Mln. Vlkfngur 4. ÓlafurE. 6. 7. 8. Þorbergur 10. 11. 11. ÓlafurE. 12. 12. ÓlafurE. 14. Magnús 15. 17. Viggó 17. Björgvin 20. Ólafur E. 23. Haukar Þorgeir Hörður (v) Hörður (v) Hörður Staðan 1:0 1:1 1:2 2:2 2:3 2:4 3:4 3:5 Þorgeir 4:5 5:5 5:6 Sigurgeir 6:6 7:6 8*6 8:7 Stefán 1. 0:1 Arni 2. Jón K. (v) 1:1 4. JónP. 2:1 5. Þorbjörn 3:1 6. JónP. 4:1 10. Stefán 5:1 11. 5:2 Magnús Sig. 11. Jón K. (v) 6:2 13. Björn 7:2 15. 7:3 Magnús Sig. Hh Björn *:3 17. Jón K. (v) 9:3 19. 9:4 Magnús Sig. 19. Bjöm 10:4 21. 10:5 Axei 24. Þorbjöm 11:5 24. 11:6 Arni (v) 26. 11:7 Sigurdur 26. Jón P. 12:7 27. 30. 12:8 12:9 Hálíieikur Hörður Már 32. Bjami 13:9 32. Steindór 14:9 34. 14:10 Sigurður 36. 14:11 Arni 37. Steindór 15:11 38. 15:12 Þór 39. Stefán 16:12 41. 16:13 (iunnar 43. JónP. 17:13 Framhald á bls. 26 Elnkunnagjöfln VÍKINGUR: Rósmundur Jónsson 1, Grétar Leifsson 2, Olafur Jóns- son 1, Magnús Guðmundsson 2, Páll Björgvinsson 3, Björgvin Björgvinsson 3, Viggó Sigurðsson 2. Þorbergur Aðalsteinsson 2. Jðn Sigurðsson 1, Erlendur Hermannsson 1, Ólafur Einarsson 4. HAUKAR: Þoriákur Kjartansson 1, Sigurgeir Marteinsson 1, Olafur Olafsson 2, Guðmundur Haraldsson 1, Arnðr Guðmundsson 1, Jön llauksson 2, Stefán Jónsson 1, Hörður Sigmarsson 3, Þorgeir Haralds- son 3, Svavar Geirsson 1, Ingimar Haraldsson 2, Gunnar Einarsson 2. IR: örn Guðmundsson 1, Bjarni Hákonarson 2, Bjarni Bessason 2, Sigurður Svavarsson 2, Agúst Svavarsson 3, Vilhjáimur Sigurgeirsson 3, Brynjólfur Markússon 1, Hörður Hákonarson 1, Sigurður Glslason 2, Jens Einarsson 2. FH: Birgir Finnbogason 2, Viðar Sfmonarson 3, Geir Hallsteinsson 2, Guðmundur Arni Stefánsson 3, Janus Guðlaugsson 3, Þðrarinn Ragnarsson 1, Sæmundur Stefánsson 3, Auðunn Oskarsson 1, Júlfus Bjarnason 1, Arni Guðjónsson I, Vignir Þorláksson 1. VALUR: Jðn B. ólafsson 2, Gunnsteinn Skúlason 1, Jðhann Ingi Gunnarsson 1, Jóhannes Stefánsson 1, Steindðr Gunnarsson 2, Stefán Gunnarsson 3, Bjarni Guðmundsson 1, Jón H. Karlsson 2, Jón Pétur Jónsson 2, Þorbjörn Guðmundsson 2, Björn Björnsson 2, Garðar Kjartansson 2. GRÓTTA: Guðmundur Ingimundarson 2, Hörður Már Kristjánsson 1, Sigurður Pétursson 2, Björn Pétursson 2, Magnús Margeirsson 1, Arni Indriðason 2, Magnús Sigurðsson 2. Grétar Vilmundarson 1, Þór Ottesen 1, Axel Friðriksson 2, Gunnar Lúðvfksson 2, örn Stefánsson I. FRAM: Einar Birgisson, 3 Magnús Sigurðsson 1, Jðn Arni Rúnarsson 2, Arni Sveirrisson 2, Gústaf Björnsson 2, Sigurbergur Sigsteinsson 2, Pétur Jóhannesson 2, Guðmundur Þorbjörnsson 2, Pálmi Pálmsson 3, Ragnar Hilmarsson 1, Andrés Bridde 3, Jón Sigurðsson 2. ÞRÓTTUR: Kristján Sigmundsson 2, Trausti Þorgrfmsson 3, Halldór Bragason 1, Arni Svavarsson 1, Sævar Ragnarsson 1, Jóhann Frfmannsson 2, Sveinlaugur Kristjánsson 2, Sigurður H. Sveinsson 2, Konráð Jónsson 3, Bjarni Jönsson 2, Gunnar Gunnarsson 1, Sigurður Ragnarsson 1. FRAM FJARLÆGÐIST HÆTTUSVÆÐtt) MEÐ SÍNUM BEZTA LEIK FRAMARAR sýndu sinn bezta leik I deildarkeppninni þegar þeir mættu Þrótti i Laugardalshöll á sunnudagskvöldið. Fram sigraði örugglega 24:19, eftir að hafa verið einu marki undir I hálfleik, 10:11. Þar með krækti Fram f tvö dýrmæt stig og fjarlægðist aðeins hættusvæðið á botni 1. deildar. Fram hefur 5 stig, Þróttur hefur 3 stig en Grótta er I neðsta sæti með 1 stig. Telja verður yfirgnæfandi Ifkur á þvf a Grótta falli niður í 2. deild og annað lið getur einnig fallið úr deildinni. Sú breyting var nefnilega samþykkt á sfðasta HSt-þingi, að næst neðsta lið 1. deildar og næst efsta lið 2. deildar leiki sfn á milli um rétt til þátttöku í 1. deildar keppninni. Sigur Fram yfir Þrótti var þvf afar mikilvægur en tapið eykur vanda Þróttaranna. Fyrri hálfleikur leiksins benti til þess aó Þróttarar myndu fara með öruggan sigur af hólmi. Þeir náðu fljótt forystu og munaði mest um nokkur stórglæsileg mörk Sigurðar H. Sveinssonar en pilturinn sá virö- ist litið hafa fyrir þvi að skora falleg mörk með þrumuskotum. Framar- arnir náðu sér ekki á strik í fyrri hálfleik og þeir voru sérstaklega óöruggir í sókninni. Pálmi Pálma- son meiddist snemma í leiknum og var lítið með i fyrri hálfleik. í seinni hálfleiknum snerist dæm- ið heldur betur við og það voru ekki liðnar nema nokkrar mínútur af seinni hálfleik þegar Framarar höfðu náð forystu i fyrsta skipti í leiknum. Var leikurinn síðan jafn fram í miðjan seinni hálfleikinn og Frömurum tókst að skora fjögur mörk i röð og breyta stöðunni úr 14:14 í 18:14. Á þessu tímabili var allt í kalda koli hjá Þrótti, sóknarleikurinn mjög ráðleysilegur og fundu Þróttararnir ekki svar við því bragði Framara að senda menn út á völlinn til þess að trufla spil andstæðingsins. Lokatölurnar urðu 24:19 eins og fyrr sagði og var sið- asta mark Fram hrein gjöf. Pétur Jóhanneson tók aukakast að leik- tíma loknum og henti boitanum i markið án þess Kristján markvörð- ur hreyföi legg né lið til varnar. Framarar hafa átt heldur erfitt uppdráttar í vetur og þeir hafa ver- íð í þeirri óvenjulega aðstöðu að berjast við faliið i stað þess að berj- ast um íslandsmeistaratignina, eins og liðið hefur svo oft gert á undan- förnum írum. í þessum leik sýndu Framararnir að þeir þurfa ekki að óttast fall ef rétt er á spilunum haldið. Beztu menn liðsins að þessu sinni voru þeir Pálmi Pálmason, Andrés Bridde og Einar Birgisson markvörður. Pálmi er nú sem óðast að ná sér á strik eftir veikindi, sem hann hefur átt við að striða í vetur. Þegar Pálmi er í fullu fjöri er hann geysilega mikilvægur fyrir lið sitt. Andrés Bridde er mjög vaxandi leikmaður. Hann hefur nú tekið við ábyrgðarmeiri hlutverkum i liðinu en áður og i þessum leik skilaði hann hlutverki sinu með mestu prýði. Einar Birgisson er ungur Pétur Jóhannesson og Konráð Jónsson berjast um knöttinn 1 leik Fram og Þrðttar markvörður, fremur lágur i loftinu en hann hefur snöggar hreyfingar og góðast staðsetningar og i þessum leik varði hann mjög vel. Lið Þóttar byrjaði leikinn mjög vel en dalaði þegar á ieið og seinni hálfleikurinn var mjög slakur af hálfu Þróttaranna. Liðið hefur vald- ið vonbrigðum i vetur eftir góða 2. Deild IIAUKUR Ottesen var hetja KR- inga i leik þeirra við KA í 2. deild- inni á sunnudaginn. Er aðeins 12 sekúndur voru eftir af ieiknum var staðan jöfn, 19:19, og KA-menn með knöttinn. Misheppnað skot þeirra færði KR-ingum knöttinn og liaukur Ottesen brunaði fram allan völl með knöttinn og 3 KA-menn I bakinu. Ilaukur sleit sig af þeim ölium og með góðu skoti tryggði hann KR-liðinu þýðingarmikinn sigur, 20:19. KA-liðið var yfir allan seinni hálf- leikinn og fjögur mörk þegar munurinn var mestur. Er um 15 mínútur voru til leiksloka gripu KR- ingarnir til þess ráðs að taka Hörð Hilmarsson úr umferð og við það riðlaðist allt spil norðanliðsins. Söx- uðu KR-ingar nú mjög á forskot KA og jafnt varð í fyrsta skipti í seinni hálfleiknum, 19:19, þegar hálf önn- ur mínúta lifði af leiktímanum. Síð- asta marki leiksins er áður lýst og HAUKUR HRIFSAÐI BÆÐI STIG- IN AF KLAUFSKUM KA-MÖNNUM víst er að gleði KR-inga var mikiil þegar flautað var til leiksloka. Sigur í þessum leik þýðir að KR- liðið ætti að vera öruggt með annað sætið f 2. deildinni — gæti reyndar náð þvi fyrsta. Sigurliðið í 2. deild flyzt beint upp i 1. deildina, en lið númer 2 leikur hins vegar við næst- neðsta liðið í 1. deildinni um sæti þar næsta vetur. Ármann stendur bezt að vígi í 2. deild og ótrúlegt er annað en að Iiðið sigri þar, en eftir þennan leik er lið KA í rauninni án möguleiki á sæti í 1. deild að ári. Ekki var leikur KR og KA vel leikinn á sunnudaginn. Var mikið um óðagot hjá leikmönnum og ótímabær skot. Sérstaklega á þetta við KA-liðið i upphafi leiksins og i lokin, en KR-ingana meira og minna allan tímann. I lok fyrri hálfleiksins náói KA-liðið að komast yfir i fyrsta skípti i leiknum og leiddi 12:10 í hálfleik. Sá munur hélzt svo áfram í seinni hálfleiknum fram á sióustu mfnútur leiksins. Léku KA-menn á köflum mjög vel og ná þeir oft að sýna betri leiki ( Laugardalshöilinni heldur en fyrir norðan. Hörður Hilmarsson var afgerandi bezti maður KA i þessum leik og liðið féll alveg saman er hann var tekinn úr umferð. Magnús Gauti markvörður og Þorleifur Ananias- son fyrirliði liðsins áttu einnig báðir mjög góðan leik að þessu sinni. Það var bióðugt fyrir KA að tapa þessum leik og varla sanngjarnt, en þeir geta engu um kennt nema sjálfum sér. Af KR-ingum var Ólafur Lárusson sterkastur og hélt liðinu á floti lengi vel með góðum mörkum. Haukur Ottesen átti sæmilegan leik og markið hans i lokin var óborganlegt. Hilmar Björnsson lék aðeins nokkr- ar minútur með liðinu, en hann meiddist í baki fyrir nokkru og er ekki orðinn góður enn. Mörk KR: Ólafur Lárusson 8, Haukur Ottesen 6, Sigurður Páll 3, Kristinn Ingason 2, Ingi Steinn 1. Mörk KA: Sigurður Sigurðsson 6, Hörður Hilmarsson 5, Þorleifur Ananfasson 4, Jóhann Einarsson 2, Armann Sverrisson 2. Maður leiksins: HAUKUR OTTESEN —áij Jón H. Karlsson, fyrirliði Vals skorar úr vftakasti I leik Vais og Gróttu. Bragðlítil skemmtun er Valur vann Grnttu LEIKUR Vals og Gróttu f Laugardalshöllinni á sunnudagskvöldið er einn sá bragðdaufasti í mótinu til þessa. Það var ekki glæsilegur handknattleik- ur sem liðin sýndu og fátt gladdi augu þeirra fáu áhorfenda, sem lagt höfðu leið sína í Laugardalinn. Enda þótt mundurinn hafi ekki verið meiri en þrjú mörk Val í hag í leikslok, 23:20, var sigur Vals eigin- lega aldrei f hættu. Lið Gróttu var svo slakt, að maður hafði það eiginlega á til- finningunni að það gæti alls ekki unnið Val. En víst er, að með spilamennsku, sem Valur sýndi i þessum leik, hefði liðið tapað fyr- byrjun, en eins og menn eflaust muna, varð Þróttur Reykjavikur- meistari s.l. haust. Og allt útlit er fyrir það að iiðið þurfi að heyja harða baráttu á botni 1. deildar. 1 þessum leik voru þeir Konráð Jóns- son og Trausti Þorgrímsson beztu menn Þróttar. —SS. FH MARÐI SIGUR A IR í SPENNANDI VIÐUREIGN STRAX 1 fyrsta leik tslandsmótsins f 1. deild karia að loknu hinu langa jólafríi leikmanna var um mikla spennu að ræða. ÍR-ingar mættu þá liði FH-inga f Laugardalshöllinni á laugardaginn og lengi vel virtist sem ÍR-ingar yrðu hinir öruggu sigurvegarar í ieiknum. Undir lok leiksins slakaði ÍR-liðið þó svo mjög á að hinir leikreyndu Hafnfirðingar náðu að sfga framúr og sigra með einu marki 20:19, í þessum spennurfka leik, en þó ekki að sama skapi vei leikna. FH-ingar voru yfir nær allan fyrri hálfleikinn og aðeins stór- góður leikur Ágústs Svavarssonar hélt ÍR-liðinu á floti. Gerði hann 7 mörk í hálfleiknum og með góðri aðstoð Vilhjálms i lok hálfleiksins tókst liðinu að halda jöfnu í leik- hléi, staðan var þá 12:12. Byrjun seinni hálfleiksins var mjög góð hjá ÍR-ingum, sem breyttu stöðunni úr 12:13 í 17:13 sér í vil með 5 góðum mörkum í röð. Leit nú út fyrir sigur iR-inga, en ótimabær skot, þar sem Hörður Hákonarson og Brynjólfur Markússon sóuðu mest, gerðu það að verkum að FH-ingar fengu góð færi á að jafna leikinn aftur. Breyttist staðan á 10 mfnútum i 18:18 og var þáttur Guðmundar Árna drjúgur við að jafna leikinn á ný. Aftur varð jafnt 19:19 og nú var þeim bræðrum Ágústi og Sig- urði Svavarssyni vísað af velli i 2 minútur hvorum á eftir öðrum og það var svo Geir Hallsteinsson, sem skoraði 20. mark FH-inga þegar mínúta var eftir af leiknum. FH-ingar sóttu síðustu mínut- una og þegar nokkrar sekúndur voru eftir skoraði Brynjólfur Markússon fyrir ÍR-inga af linu utarlega í horninu. Markið var dæmt af — sögðu dómarar að Brynjólfur hefði verið lentur þegar hann sleppti kenttinum. Bjuggust þá flestir við :ð vitakast yrði dæmt, en svo var ekki, ÍR- ingar fengu aðeins fríkast, sem ekki dugði þeim til að skora og jafna á ný: Vissulega hæpinn dómur þó ekki sé meira sagt. FH-liðið stendur og fellur meó þeim Geir Hallsteinssyni og Viðar Símonarsyni en einnig verður Janus Guðlaugsson stöðugt at- kvæðameiri i leik liósins og fyllti ágætlega stöðu Geirs Hallsteins- sonar, sem var óvenju daufur í þessum leik og þreyta virtist einnig hrjá Þórarin Ragnarsson i leiknum. Viðar átti hins vegar góðan leik og sérstök ástæða er til að hrósa einnig Sæmundi Stefáns- syni og Guðmundi Árna. Sá fyrrnefndi er sterkur varnar- maður og sá siðarnefndi gerði dýrmæt mörk í seinni hálf- leiknum eftir slakan fyrri hálf- leik. Það er seigla i FH-liðinu og það á örugglega eftir að blanda sér í baráttuna á toppi 1. deildarinnar. Hvort Iiðið nær að endurtaka leikinn frá því í fyrravetur og verða íslandsmeistari eftir slaka byrjun skal látið ósagt, en enginn skyldi þó afskrifa Hafnfirðing- ana. Birgir Finnbogason stóð i marki FH-inga allan leikinn og varði sæmilega, skoraði hann auk þess sjálfur eitt mark með skoti yfir þveran völlinn. Ágúst Svavarsson var potturinn og pannan i leik ÍR-inga að þessu sinni og .gerði góð mörk með föst- um langskotum í fyrri hálfleikn- um. 1 þeim siðari gætti Sæmundur hans mjög vel og átti Ágúst því óhægt um vik. Vilhjálmur Sigurgeirsson var drjúgur í leiknum, en bæði Brynjólfur og Hörður Hákonar- son voru óvenju slakir í leiknum. Siguróur Svavarsson var sterkur i vörninni að vanda og í seinni hálf- leiknum stóð Jens Einarsson i markinu og varði með ágætum. Stundar Jens nám í íþrótta- kennaraskólanum á Laugarvatni og hefur ekkert leikið með liðinu fyrr í vetur og lítið æft. Möguleikar ÍR-inga rýrnuðu verulega við þennan ósigur en vinni þeir Vikinga annað kvöld eru þeir þó enn með í baráttunni. — áij ir öllum öðrum liðum en Gróttu. Ef Valsmenn leika ekki betur í næstu leikjum sinum verður erf- itt fyrir þá að halda forystunni i deildinni. Valsmenn byrjuðu leikinn vel, eða réttara er kannski að segja að Grótta hafi byrjað leikinn alveg herfilega illa. Eftir 10 mínútur var staðan orðin 5:1 Val í hag og eftir 17 minútur var staðan orðin 9:3. Munurinn var mestur 6 mörk á liðunum í fyrri hálfleik, en rétt fyrir hlé tóku Gróttumenn aðeins við sér og tókst þá að minnka muninn niður i þrjú mörk og í hálfleik var staðan 12:9. í seinni hálfleiknum gekk á ýmsu og um miðjan hálfleikinn hafði Gróttu- mönnum tekizt aó minnka mun- inn niður í tvö mörk, 17:15, en þeir áttu möguleika á því að minnka muninn niður í eitt mark. En það tókst þeim ekki og þrjú mörk Valsmanna i röó breyttu stöðunni I 20:15 og þar með var leikurinn unninn. Lið Vals var alls ekki sannfær- andi f þessum leik. En liðið er skipað sterkum einstaklingum, sem geta gert miklu betri hluti en þeir gerðu í þessum leik. Nú get- ur Valur ekki lengur treyst á Ólaf Benediktsson i markinu, þv: hann er fluttur til Svíþjóðar. Það er því spurning hvernig arftakar hans standa sig, þeir Jón Breiðfjörð Ólafsson og Garðar Kjartansson. Þeir stóðu sig allþokkalega í þess- um leik en leikurinn sem slíkur var enginn mælikvarði á það hversu vel þeir félagar fylla i það skarð, sem Ólafur skilur eftir. Það mun koma í ljós í leikjum gegn sterkari andstæðingum. I þessum leik var Stefán Gunnars- son áberandi bezti maður Vals- liðsins, að vanda geysisterkur i vörn og í sókninni sýndi hann á sér fáséöar hliðar, nefnilega mörk úr langskotum. Fátt virðist geta bjargað Gróttu frá falli. Leikmenn viróast vera i litilli æfingu og ekki var merkjan- legur mikill áhugi meðal leik- manna á þvi verkefni, sem þeir voru að fást við. Ekki er ástæða til þess að nefna einn leikmann öðr- um fremur, enginn skar sig úr liðinu i leiknum gegn Val. — SS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.