Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 21
 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 21 r ^ 20,59 METRAR 4. SÆTIÐ Á ÓL Afrek það sem Hreinn Hall- dórsson náði á Evrópumeistara- mótinu í San Sebastian á Spáni á sunnudaginn, 20,59 metrar, hefðu nægt honum i f jórða sæt- ið á Ólymptuleikunum f Montreal s.l. sumar, en sem kunnugt er hafði Hreinn ekki heppnina með sér þá og komst ekki ( úrslit. Sigurvegari á Olympfuleikunum varð Austur- Þjóðverjinn Udo Beyer, sem varpaði 21,05 metra, annar varð Evgeni Mironov frá Sovétríkj- unum, sá er varð f fimmta sæti f San Sebastian, en hann varp- aði 21,03 metra f Montreal. Þriðji f Montreal varð svo Alex- ander Barisnikov frá Sovétrfkj- unum sem varpaði 21,00 metra og f fjórða sæti varð Banda- rfkjamaðurinn Allan Feuer- bach sem varpaði 20,59 metra. Meðal þeirra sem komust f úr- slit f Montrcal var Bretinn Geoff Capes, sem varð annar á eftir Hreini á Evrópumeistara- mótinu og varpaði hann 20,36 mctra sem nægði honum f sjötta sætið f Montreal. Ekki er vitað með vissu hversu margir hafa varpað lengra innanhúss f ár, en þeir munu vera sárafáir. Capes er sá sem á bezta árangurinn en hann varpaði 20,93 metra ný- lega. Talið er mun verra að varpa kúlu innanhúss en utan, jafn- vel þótt aðstæður séu góðar, þannig að afrek Hreins Hall- dórssonar f San Scbastian bendir sannarlega til þess að hann eigi að geta ennþá betur f sumar. III IM ■ ______________ ■■ ■_____________^ ÞAÐ VÖKNUÐU ENGAR VONIR UM GULLVERÐ- LAUN ÞÓH MÉR TÆKIST VEL UPP í 1. UMFERÐ — ÞAÐ vöknuðu engar gullvonir hjá mér þótt mér tækist að vapra 20,59 metra I fyrstu tilraun I kúluvarpi Evrópumeistaramótsins, sagði Hreinn Halldórsson, er Morgunblaðið náði sambandi við hann í San Sebastian á Spáni á sunnudagskvöldið. — Ég var nærri viss um að einhverjir keppinauta minna myndu bæta þennan árangur, og sérstaklega átti ég von á þvi að Bretinn Geoff Capes, myndi ná betri árangri. Ég vissi að hann stefndi að þvf að varpa kúlunni 21 metra á mótinu. Það var vissulega anzi spennandi tími frá þvi að ég náði 20,59 metra kastinu unz keppnin var búin og sigurinn var f höfn, sagði Hreinn. Hreinn Halldórsson er nýlega orðinn 28 ára Hann er ættaður úr Strandasýslu og þar hóf hann keppnisferil sinn á héraðsmóti fyrir 9 árum Hreinn keppti þá í kúluvarpi og varpaði kúlunni 11,19 metra Fráleitt hefur nokkrum dottið þá í hug, að Hremn ætti eftir að standa á efsta þrepi verðlaunapallsins eftir Evrópumeistaramót og taka við gullverðlaunum. eftir glæsilegt afrek Það er langur vegur milli árangursins sem Hreinn náðh* á héraðsmótinu á Ströndum og þess er hann náði á mótinu í San Sebastian, en hann ber vitni um elju og áhuga iþróttamannsins sem þarna á í hlut. — Já. það er rétt að það er ekkert smáræðis púl við æfmgar sem eru á bak við þennan sigur. sagði Hreinn í viðtalinu við Morgunblaðið —- Og meira púl er reyndar framundan hjá manni, þar sem ég ætla ekki á láta staðar numið Hvort ég bæti þennan árangur er ekki gott um að segja. en sjálfur stefni ég ákveðið að því og tel mig eiga möguleika á þvi, svo fremi sem ég fæ aðstöðu og tíma til þess að æfa Sennilega gera fáir sér grein fyrir því að það er full vmna að þjálfa eins og þarf til þess að ná árangri, og því að þeir sem ég var að keppa við á þessu móti gera flestir litið annað en að æfa sig Það er hægt að öfunda þessa menn af aðbúnaði þeirra — þeir hafa líka þjálfara sem vakta þá stöðugt, og eru tilbúnir að hjálpa þeim hvenær sem þörf er á. og veita þeim tilsögn Það sem mér virtist koma mönnum mest á óvart í sambandi við sigur minn hér, var það að ég skyldi engan þjálfara hafa nnnn eun801 160Ó : men 20.59 metres epc33^ sport - indoor results 4 san sebastian ’s shot final: 1. hreinn haltdorsson (iceland) 2. geoff capes (britain) 20.46 3. wladyslaw komar (poland) 20.17 4. reijo stahLberg (finLand) 19.83 5. evgeny mironov (soviet union) 19.57 6. raLf relchenbach (west germany) 19.43 7. aLexander nosenko (soviet union) 19.ÓO 8. gerhard steines (west germany) 18.98 9. marco monteLatici (itaLy) 18.62 10. markku tuokko (finLand) 18.53 more sp/tmb________________ Þegar Hreinn var spurður að þvi hvort hann teldi ekki að þessi glæsi- legi sigur hans á Evrópumótinu yrði til þess að hann fengi meiri stuðning og skilningur á þörf hans á meiri tima til æfinga myndi aukast svaraði hann því til. að hann hefði góðar vomr um að svo yrði. — Ég yrði satt að segja hissa, ef svo yrði ekki, sagði Hreinn. — ég get mjög vel æft heima i íslandi. svo fremi að mér gefist sæmilegur timi til þess og þurfi ekki að vinna jafnmikið og ég hef orðið ð gera Hitt er svo annað mál að ég tel nauðsynlegt að keppa meira erlendis en ég hef gert — mæta mér betri mönnum i keppni og öðlast þannig reynslu og öryggi Um keppnina sjálfa á sunnu- dagmn sagði Hreinn m a — Við vorum búnir að hita vel upp og vorum að ganga út á völlinn til þess að hefja keppnina. þegar mikil ólæti hófust i húsinu Þarna voru Baskar á ferð sem notuðu tæki- færið til þess að vekja athygli á málstað sinum Fresta varð keppn- inni i um það bil klukkustund, og það kom sér satt að segja ákaflega illa fyrir mig Þegar maður er búinn að búa sig undir að keppni hefjist á ákveðnum tima, verður ótrúlega ' mikil röskun hjá manni, ef‘eitthvað fer úrskeiðis og það dregst að maður komist í hrmginn En þarna sátu keppmautar minir við sama borð Þessi læti og frestun höfðu jafnmikil áhrif á þá og mig Ég held að það hafi líka haft sitt að segja að ég náði svona góðu kasti strax. — það virtist einnig koma þeim út af laginu Eftir að ég hafði náð 20,59 metrum i fyrsta kasti ákvað ég að taka ..sjensa' . en þeir heppnuðust ekki Ég náði reyndar 19.09 metra kasti. en gerði emmg ógilt í siðustu umferðmm ákvað ég svo að vera rólegur og kasta á svipaðan hátt og ég hafði gert í fyrstu umferðmni. og það kast mældist 20.27 metrar — mitt annað bezta i þessari keppni Hreinn sagði að það hefðu verið Geoff Capes sýnileg vonbrigði að tapa fyrir sér i móti þessu — Menn eru auðvitað alltaf dálitið sárir þegar þeir tapa, sagði Hreinn — En Capes er mjög viðfelldin náungi og hann var meira að segja að segja mér til milli umferðanna Mun ekki hafa verið alveg sáttur við stilinn hjá mér Óþarfi er að taka fram að afrek Hreins er nýtt íslandsmet. Gamla metið átti hann sjálfur og varð það 1 9.89 metrar sett fyrir skömmu „Hreinn knminn í fremstu röð" — ARANGUR Hreins Halldörs sonar kom mér ekki é óvart. sagði Geoff Capes. brezki kúluvarpar inn, sem var8 að sjá af Evrópu- meistaratitli slnum i viðtali vi8 Morgunblaðið á sunnudagskvöld. — Ég hef haft nokkur kynni af íslenzkum frjálsiþróttamönnum og veit að þeir eru ótrúiega harð- snúnir, ekki sízt þegar miðað er við hversu fámenn þjóð ykkar er. ViS fylgjumst auðvitað alltaf hver með öðrum sem erum i þessu, og það hlaut að koma á því að Hall- dórsson næði sér á strik. Hann býr yfir stórkostlegum hæfileikum i íþróttinni, og óg er ekki í vafa um að hann á eftir að bæta sig veru- lega á næstunni. — Það sem kom mér meira á óvart, sagði Capes, var hve iangt ég var frá minu bezta. Ég hafði búið mig vel undir þetta mót og ætlaði að halda Evrópumeistara- titlinum Ég átti von á þvi að það yrðu Austur-Evrópubúarnir sem yrðu aðalkeppinautar minir, en ekki íslendingurinn. Þegar úrslitin lágu fyrir i keppninni sneru sér allir til min, en töluðu ekki við Austur Evrópubúana Þeir töpuðu lika, og þarna voru t.d. Ólympiuverlaunahafar. Capes sagði. að aðstæður til keppni I kúluvarpinu í San Sebastian á sunnudaginn hefðu verið langt frá þvi að vera góðar. — Það afsakar mig þó ekkert sagði hann £ við sátum allir við sama borð. — ViS vorum búnir að hita upp og tilbúnir að keppa þeg- ar mótmælendurnir ruddust inn í salinn. Það er alltaf mjog slæmt þegar maður er búinn að hita sig vel upp og tilbúinn að keppa. ef einhverjar tafir verða. Að maður tali nú ekki um ef eins er i pottinn búið og var i San Sebastian Að lokum sagði Geoff Capes: — Það er auðvitað alltaf dálitið sárt fyrir mang að tapa, ekki sizt Evrópumeistaratitli. En Halldórs- son var vel að þessum sigri kom- inn. Hann er hér með búinn að sanna að hann er kominn i fremstu röð í heiminum, og ég spái þvi að mikið eigi eftir að heyrast frá honum i framtiðinni. Það fór heitur straumur um mig — ÞETTA var stórkost- legt, sagði Einar Frf- mannsson, sem fór með Hreini sem fararstjóri til San Sebastian. — Það fór heitur straumur um mig þegar Hreinn náði þessu stórgiæsilega kasti í fyrstu umferðinni og með sjálfum mér var ég viss um að það nægði til sigurs. — Mér er óhætt að fullyrða, að ekkert afrek vakti eins mikla athygli og sigur Hreins á þessu Evrópumóti, sagði Einar, — í veizlu, sem var hald- in eftir keppnina, hafði Hreinn tæpast við að taka við hamingjuósk- um, og menn voru greini- lega f senn undrandi og hrifnir af frammistöðu hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.