Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 48
oroumXiTn^ií> ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 AUíiLV’SINíiASÍMINN EK: 22480 Loðnuaflinn 500 þús.lestir Sigurdur búinn ad MJÖG góð loðnuveiði hefur verið frá því á iaugardag. Á sunnudag- inn fengu ioðnuskipin um 13 þús- und lestir og f gær var sólar- hringsveiðin komin yfir 8000 þús- und lestir um kl. 20. Áttu menn von á að fleiri skip myndu til- kynna um afla f gærkvöldi og að heildaraflinn á vertfðinni færi yfir 500 þúsund lestir í dag. Morgunblaðinu var kunnugt um að Sigurður RE 4 hafði fengið fullfermi um kl. 20 f gærkvöldi og þar með var Sigurður búinn að fá nokkuð yfir 18 þúsund lestir og hafði slegið aflamet Guðmundur RE 29 frá 1973, er Guðmundur fékk 18,090 lestir. Eins var Morgunblaðinu kunnugt um, að Vfkingur AK var kominn með svo til fullfermi f gærkvöldi. Loðnuskipin voru að veiðum á tveimur veiðisvæðum í gær, undir setja aflamet Jökli og vestur af Vestmannaeyj- um. Hefur þetta leitt til þess, að mörg skipanna sigla með aflann, Framhald á bls. 47 Fundur ASÍ og ríkisstjórnar FUNDUR var í gær með rikis- stjórninni og samninganefnd AI- þýðusambands Islands. Var þar rætt um þá hlið kröfugerðar ASÍ, er snýr að stjórnvöldum. Skýrðu samningarnefndar- menn sjónarmið sin og var rætt almennt um komandi kjarasamn- inga. Áformað er, að framhald verði á þessum viðræðum, og var sáttasemjara falið að skipuleggja hvernig að þeim verður staðið. BARDOT 1 REYKJAVlK — Franska kvikmyndaleikkonan og stórstirnið Brigitte Bardot kom óvænt til Reykjavíkur í gær í einkaþotu ásamt fylgdarliði. Þau höfðu örskamma viðdvöl, en Morgunblaðið náði þó að rabba stuttlega við Bardot. Sjá grein og myndir bls. 3. l.jósm.RAX J apanir slaka á kröfunum Viðgerð ástrengnum kostaði um 20 milljónir Landhelgisgæzlan gerð skaðabótaskyld, segir bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum LAUSLEGA áætlað er talið að viðgerð á rafstrengnum til Vest- mannaeyja, sem varðskipið Týr skemmdi fyrir rúmlega hálfum mánuði, hafi kostað um 20 milljónir króna. Lauk viðgerð- inni á sunnudagskvöld, en þá hafði stór hópur manna unnið af miklu kappi án hvfldar frá þvf á laugardagsmorgun. Páll Zóp- hanfasson bæjarstjóri f Vest- mannaeyjum tjáði Morgunblað- inu f gær, að kröfur vrðu á næst- unni settar fram á hendur Land- helgisgæzlunni vegna tjónsins og kostnaðar við viðgerðina. Eigandi rafstrengsins til Vest- mannaeyja er Rafmagnsveita rík- isins, en hins vegar bera Vest- mannaeyingar sjálfir kostnað vegna raforkuframleióslunnar verði bilun á strengnum. Kári Ein- arsson stjórnaði viðgerðinni á strengnum af hálfu Rafmagns- veitu ríkisins, en danskir menn frá fyrirtækinu, sem framleiddi rafstrenginn, voru i Vestmanna- eyjum frá því að strengurinn skemmdist. Varðskipið Árvakur og áhöfn unnu við viðgerðina, einnig Lóðsinn og menn frá Raf- magnsveitunni og Vestmanna- eyjabæ. Er sjópróf fóru fram vegna þessara skemmda á strengnum þótti sannað að varðskipið Týr væri valdur að skemmdunum Karpov efstur, Friðrik annar FRIÐRIK Ölafsson gerði í gær jafntefli við Torre frá Filipps- eyjum eftir 19 leiki. Hafði Friðrik svart í skákinni. Á sunnudag vann hann V- Þjóðerjann Herman, og er Friðrik nú í 2.—4. sæti ásamt HUbner og Liberzon með 5 vinninga. Heimsmeistarinn Karpov er efstur á mótinu með 6!4 vinning og gerði hann jafn- tefli við Keene í gær. A sunnu- daginn-«varð jafnt hjá Karpov og HUbner, en biðskák sína gegn Liberzon frá því á föstu- dag vann heimsmeistarinn. Friðrik teflir í dag gegn Sosonko og hefur hvítt, en Karpov hefur svart gegn Anderson. Hefur skipið verið við Vest- mannaeyjar siðan og framleitt raforku fyrir Vestmannaeyjar, en einnig diselvélar og gastúrbina frá Rafmagnsveitu rikisins. Sagði Páll Zóphaníasson i gær, að ein- sýnt væri að farið yrði fram á skaðabótagreiðslur vegna þessa, en á hvern hátt þær yrðu lagðar fram og hvenær væri ekki frá- gengið. Viðgerð á rafstrengnum hófst á laugardagsmorgun kl. 10 og lauk Framhald á bls. 47 SlÐUSTU daga hefur lítið sem ekkert verið hægt að frysta af loðnu, enda er loðnan alveg komin að hrygningu. Éftir því sem næst verður komizt, er nú aðeins búið að frysta um 4000 lestir að loðnuhrogn- um meðtöldum, sem er um H af því sem fslenzk fyrir- tæki höfðu samið um sölu á til Japans í vetur. Orsökin fyrir þessari litlu frystingu er fyrst og fremst sú, að Japanir gerðu mun strangari kröf- ur nú en áður um stærð loðnunnar og flokkun hennar og hefur verið mjög tímafrekt verk að flokka hana. Almennt vildu Japanir að ekki fleiri en 50 loðnur færu í kílóið, en nú síðustu daga, er þeir hafa séð fram á að aðeins tækist að frysta hluta'af því magni, sem um var samið, hafa einhverjir japönsku kaupendanna slakað á kröfum sínum, þannig að nú er leyfilegt að hafa 55 loðnur eða færri í kílóinu. 8. skákin tefld í dag ATTUNDA einvigisskák Boris Spasskys og Vlastimil Horts verður tefld að Hótel Loftleið- um I dag og hefst kl. 17. Á sunnudaginn tefldu skák- meistararnir 7. einvfgisskák- ina, og lyktaði henni með jafn- tefli I 28. leik. Staðan f einvfg- inu er nú sú, að Spassky hefur 4 vinninga en Hort 3 vinninga. Um skák þeirra og aðrar ein- vfgisskákir er fjallað á bls 18 og 19 f blaðinu I dag. Talsvert vatnsleysi í Reykjavík undanfarið: Mun minna grunnvatn nú en mörg síðustu ár VATNSLEYSI var töluvert f eldri bverfum Reykjavfkur f gær, og hefur veturinn f vetur verið mjög erfiður fyrir starfsmenn Vatnsveitu Reykjavfkur. Mjög Iftið vatn hefur verið f vatnsbólum borgarinnar og grunnvatn ekki eins lftið f mörg ár að sögn Þórodds Tb. Sigurðssonar vatnsveitustjóra f gærkvöldi. Smygl fannst í Dísarfelli TOLLGÆZLAN fann um helgina töluvert magn af smyglvarningi f m.s. Dfsarfelli, þar sem skipið lá í Reykjavfkurhöfn, en skipið kom hingað frá Finnlandi s.l. föstu- dag. Voru þetta 108 flöskur af áfengi, 14 kassar af áfengum bjór, 9200 vindlingar og nokkuð magn af niðursoðnu svínakjöti. Varn- ingurinn fannst að meginhluta til í hýbýlum sex skipverja, sem reyndust vera eigendur smygl- varningsins. Lítill þrýstingur var á húsum víða í Vesturbænum í gærdag og sömuleiðis í Sundhöllinni. I gær- kvöldi var hins vegar kvartað yfir vatnsleysi í húsum við Njálsgötu og Grettisgötu. Ástæðurnar fyrir því hve Iítið vatn væri viða sagði Þóroddur vera þær, auk þess hve grunnvatn væri lftið, að loðnu- vinnsla og vertíðarstarfsemin "tækju mikið vatn og að auki væri trúlega einhver bilun á kerfinu í Vesturbænum. — Það hafa verið talsvert miklar bilanir að undan- förnu og t.d, fannst í gær brotið sex tommu rör í Ægissiðu. Við vitum ekki hve lengi það hefur verið brotið, en allt hjálpast þetta að, sagði Þóroddur. — Vatnið hækkaði nokkuð f vatnsbólunum í rigningunum fyr- ir 10 dögum og náðum við þá 60—70 em meiri hæð í brunnun- um, en það er að falla niður aftur, og nú eigum við eftir um 20 cm þar til við þurfum að fara að uæla yfir í brunnana. Við höfum gert ráðstafanir til að hafa allt tilbúið til að dæla 200 sekúndulítrum úr vatnsbólinu við Jaðar i Gvendar- brunna. Þannig ætti að vera unnt að komast hjá alvarlegum vatns- skorti, en samt er full ástæða til að benda fólki á að fara sparlega með vatnið, sagði Þóroddur. Fyrir nokkru greip Vatnsveitan til þess ráðs að taka vatn af bíla- þvottastöðvum, en sú lokun stóð aðeins i rúman sólarhring. Sagði Þóroddur Sigurðsson að tæplega væru tök á að hafa slíkar stöðvar opnar, og yrði gripið til þess ráðs að loka fyrir vatnið til þeirra aft- ur ef nauðsyn bær.i til.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.