Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 Tvísýnt á Indlandi Nýju Delhi — 14. mars — NTB TVEGGJA mánaða langri kosn- ingabaráttu er nú lokið á flestum stöðum á Indlandi. Bæði stjórnar- flokkurinn og stjórnarandstæð- ingar halda því fram að þeir muni vinna öruggan sigur f kosningun- um á miðvikudaginn, en frétta- skýrendur telja að úrslitin verði mjög jöfn. Kosið verður um 542 sæti i neðri deild þingsins. Kongress- flokkurinn, flokkur Indiru Gandhi forsætisráðherra, hafði á síðasta þingi yfir 355 sætum að ráða í neðri deild, sem er rúmur meirihluti. Stjórnarandstaðan hefur hins vegar sýnt styrk og einingu i kosningabaráttunni og beint harðri gagnrýni að stjórninni fyr- ir herlögin, sem hún setti á fyrir 20 mánuðum. Það er þvi álitið að stjórnarandstaðan muni að minnsta kosti minnka verulega meirihluta Kongressflokksins. Kosningabaráttan hefur snúizt mjög um einstakar persónur og Indira Gandhi hefur orðið að þola harkalegar árásir frá stjórnarand- stöðunni. Hún hefur verið sökuð um hefndarþorsta og yfirdrottn- unargirnd og mikilli gagnrýni hefur verið beint að þeim miklu áhrifum, sem Sanjay Gandhi, þrí- tugum syni Indiru, hafa verið fengin í hendur. Staðan er því óljós og getur einnig orðið það eftir kosningar og indversk blöð eru þegar farin að ræða um hver eigi að fá rétt til að mynda rfkisstjórn ef enginn fær hreinan meirihluta. Rúmenskir andófsmenn á geðveikrahæli? Hilversum — 14. marz — Reuter. RÚMENSKI rithöfund- urinn og andófsmaöur- inn Paul Goma sagði í útvarpsviðtali um helg- ina, að þrír félaga hans hefðu verið handteknir eftir að hafa undirritað skjal, þar sem rúmensk yfirvöld voru hvött til að virða mannréttindi, og væru þeir nú á geð- veikrahælum. Goma er 42 ára að aldri. Bækur hans hafa ekki fengizt útgefnar í Rúmeníu í nokkur ár. Flugræningi vill f á dóttur sína Abidjan 14. marz — AP. SPÁNSKRI farþegaflugvél af gerðinni Boeing 727 með 30 far- þegum og sjö manna áhöfn var rænt þegar hún var á leið frá Barcelona til Palma á Mallorca f dag. Flugvélin lenti f kvöld á Port Bouet-flugvelli við Abidjan, höf- uðborg Fflabeinsstrandarinnar. Abidjan, en þar er hún gift emb- ættismanni frá Fílabeinsströnd- inni. Allir farþegarnir voru ennþá um borð í flugvélinni í kvöld og hafði engan þeirra sakað. Roman Polanski — myndin birt- ist f desember- hefti Vogue, en þar sá hann um efni á 53 sfður. Polanski handtekmn fyrir að nauðga 13 ára telpu Los Angeles — 14. marz — Reuter Kvikmyndaleikstjórinn Rom- an Polanski var handtekinn f gistihúsi f Beverly Hills s.l. laugardag og gefið að sök að hafa nauðgað 13 ára stúlku- barni að heimili leikarans Jack Nicholson, auk þess að hafa tælt telpuna til frekara kyn- svalls og haldið að henni eitur- lyfjum. Polanski var látinn laus gegn 2500 dala tryggingu, en hefur verið stefnt fyrir rétt n.k. föstu- dag. Verði hann sekur fundinn er hugsanlegt að hann verði dæmdur til allt að 50 ára fang- elsisVistar. Að sögn lögreglunnar var Anjelica Huston, 26 ára gömul dóttir kvikmyndaleikstjórans John Huston, handtekin um svipað leyti og Polanski að heimili Nicholson, og er henni gefið að sök að hafa haft kókaín í fórum sínum. Henni var sleppt gegn 1500 dala trygg- ingu. Jack Nicholson, sem hlaut Óskarsverðlaunin f fyrra fyrir leik sinn í „Gaukshreiðrinu", var að heiman þegar handtök- urnar fóru fram. Yfirvöld í Los Angeles hafa tjáð fréttamönnum, að Polanski hafi fyrir tveim vikum byrjað að taka myndir af telpunni, sem hér um ræðir, og hafi það verið með samþykki möður hennar og undir því yfirskini, að mynd- irnar ættu að birtast í franskri útgáfu tímaritsins Vogue. Móð- irin fékk svo grunsemdir um að ekki væri allt með felldu þegar hún sá mynd af dóttur sinni, þar sem hún var nakin að ofan, og þegar telpan kom heim úr myndatöku s.l. fimmtudags- kvöld, sagði hún móður sinni að Polanski hefði gefið sér hálfa töflu af einhverju lyfi, og hefði hann síðan haft við sig samfar- ir. Siðar kom í ljós, að það lyf sem hér um ræðir, nefnist „qaalude", öðru nafni „ástar- lyfið“. Árið 1969 var eiginkona Pol- anskis, leikkonan Sharon Tate, myrt ásamt fimm öðrum á hroðalegan hátt að heimili þeirra. Morðingjarnir voru Charles Manson og félagar hans, en Manson var nokkurs konar trúarleiðtogi hópsins. Þegar morðin áttu sér stað var Tate barnshafandi, en Polanski var að heiman. Polanski hefur getið sér frægðarorð fyrir leik- stjórn, ritstörf og kvikmynda- leik. Meðal mynda hans eru „Rosemary’s Baby“, „China- town“, „Blóðsugurnar“ og „Leigjandinn". „Mannréttindi 77” Havel áfram í haldi Prag — 14. marz — Reuter. TÉKKNESKI leikritahöfundur- inn Vaclav Havel, sem handtek- inn var I janúarmánuði s.l. fyrir aðild sína að „Mannréttindum 77“, verður f haldi að minnsta kosti einn mánuð til viðbótar, að þvf er Olga eiginkona hans sagði f dag. Talið er að blaðamaðurinn Jiri Lederer og leikhússtjórarnir Frantisek Pavlicek og Ota Ornest, sem handteknir voru um leið og Havel, verði einnig áfram f haldi. Ota Ornest er sá eini þessara manna, sem ekki undirritaði „Mannréttindi 77“. Formlegar ákærur á hendur þessum mönn- um hafa ekki verið birtar. Tékkneska fréttastofan Ceteka skýrði frá handtökunum um það leyti sem mest gekk á vegna „Mannréttinda 77“ hinn 17. janúar, og í yfirlýsingunni sagði, að mennirnir fjórir væru ákærðir fyrir alvarlega glæpi, sem brytu í bága við grundvallarreglur tekknesks þjóðfélags. Þeir hefðu staðið í sambandi við fjandsamleg öfl og afhent upplýsingar, sem skaðað gætu Tékkóslóvakíu, en ekki var minnzt á „Mannréttindi 77“ Þá var í síðustu viku birt harð- orð gagnrýni á Havel í tékknesk- um fjölmiðlum, þar sem sagði meðal annars að hann stæði i sam- bandi við Tékka, sem fluttir væru úr landi, en þeir væru flestir i þjónustu vestrænna njósnastofn- ana. Jiri Hajek, sem var utanrikis- ráðherra i tið Dubceks, er enn I stofufangelsi á heimili sínu, og er strangur vörður um heimili hans allan sólarhringinn. Erlendum gestum, svo sem blaðamönnum, er meinað að heimsækja hann, en landar hans fá að hitta hann. Hajek er áhugamaður um líkamsrækt, og hefur honum tek- izt að fá leyfi þeirra sem gæta hans til að skokka daglega undir eftirliti lögreglunnar. Miklar öryggisráðstafanir voru gerðar í Abidjan eftir að ljóst var að flugvélinni yrði snúið þangað, en hún millilenti í Algeirsborg til að taka eldsneyti. Ræningi flug- vélarinnar, sem er vopnaður riffli og skammbyssu, er italskur, Mario Rossi að nafni, krefst þess að fá þriggja ára gamla dóttur sína, sem er í Abidjan, og um 8.7 milljarða íslenzkra króna. „Jarðýta” Pompidous stefnir i forsetastólinn Samkvæmt upplýsingum spánska flugfélagsins Iberia, sem á flugvélina, býr telpan hjá fyrr- verandi eiginkonu Italans f Patocka látinn Prag — 14. marz — Reuter JAN Patocka, tékkneski heim- spekingurinn og einn helzti málsvari „Mannréttinda 77“, andaðist i Prag á sunnudags- morgun af völdum heilablóð- falls, sem hann fékk á föstu- daginn. Fyrir rúmri viku var Patocka fluttur I sjúkrahús eftir að hafa verið í 11 klukku- stunda látlausum yfirheyrsl- um hjá öryggislögreglunni i Prag. Ættingjar Patocka hafa látið I Ijósi þá skoðun, að langar og strangar yfirheyrslur hafi átt þátt f andláti Patocka. Jan Patocka var 69 ára að aldri. Paris — 14. marz — Reuter. KOSNINGABARÁTTAN fyrir sveitarst jórnakosningarnar i Frakklandi snerist að verulegu leyti um tvo menn, '■— Jacques Chirac, leiðtoga gaullista, og Giscard d’Estaing forseta, en með þvf að bjóða sig fram gegn fram- bjóðanda forsetans, d’Ornano iðnaðarráðherra, f borgarstjóra- embættið f Parfs skömmu eftir að hann sagði af sér forsætisráð- herraembætti f ágúst s.l., má segja að> Chirac hafi skorað Giscard d’Estaing á hólm. Afsögn Chiracs kom á óvart, en fljótlega varð á almanna vitorði, að ástæð- an hefði verið persónulegur ágreiningur hans og forsetans. I forsetakosningunum 1974 studdi Chirac ekki frambjóðanda gaullista, Chaban Delmas, heldur Giscard d’Estaing, og hlaut að launum forsætisráðherraembætti í stjórn Giscard d’Estaings. Fljót- lega tók að bera á ágreiningi milli þeirra um hvernig berjast ætti gegn vinstri öflunum, og hann varð ástæðan til þess að Chirac sagði af sér f ágúst í fyrra. Jacques Chirac er 44 ára að aldri og komst til verulegra áhrifa innan flokks gaullista fyrir til- Pompidou hreifst mjög af atorku stilli Georges Pompidous, forseta. hans og gaf honúm viðurnefnið GISCARD KÝS — Valery Glscard d'Estaing, forseti Frakklands, á kjörstað á sunnudaginn I bænum Chanonat, ásamt föður sfnum Edmond Giscard d’Estaing, og eiginkonu sinni, Anne-Aymone Sfmamynd AP „Jarðýtan”. Chirac hlaut skjótan frama í ríkisstjórn Pompidous, og i embætti landbúnaðarráðherra fékk hann sérstakt orð fyrir að vera harður samningamaður á vettvangi Efnahagsbandalagsins. Chirac er skapmikill, og að lokn- um stormasömum fundi hjá Efna- hagsbandalaginu fyrir nokkrum árum, lét Josef Ertl, landbúnaðar- ráðherra V-Þýzkalands, hafa eftir sér, að Chirac væri hollast að leita geðlæknis. Eftir afsögn úr forsætisráð- herraembætti I fyrra lagði Chirac allt kapp á að vinna aftur þing- sæti sitt hvað honum tókst, og siðan hefur hann lagt áherzlu á að sameina Gaullistaflokkinn . að nýju. Þegar Chirac tilkynnti um framboð sitt til borgarstjóraem- bættisins I París kvaðst hann þess fullviss að hann einn gæti hindr- að sigurgöngu vinstri manna I borginni og síðan i þingkosning- unum. Ýmsir stjórnmálaskýrendur töldu fyrir kosningarnar að ynnu vinstri menn í sveitarstjórnakosn- ingunum sæi Giscard D’Estaing Framhald á bls. 39

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.