Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 29 Eþíópía: Hemám útyarpsstöðvarinn- ar Rödd f agnaðarerindisins Vaxandi úlfúð og óeirðir í kjölfar blóðugrar bgltingar Utvarpsstöðin, Rafio Voice of the Gospel, Rödd fagnaðarerindisins f Addis Ababa sem byltingarstjórn landsins hefur nú hertekið. HERFORINGJASTJORN Eþíópiu hertók um helgina stærstu útvarpsstöð f Afríku Radio Voice of the Gospel, sem hefur verið starfrækt á vegum Lúterska heimssambandsins síðan 1963. Stöðin, sem í dag- legu tali hefur verið kölluð Rödd fagnaðarerindisins, hefur sent út efni á 30 málum í 22 klukkustundir á dag. Hefur stöðin getað útvarpað til nær því helmings mannkyns í Afriku og Asíu. Hefur erlend- um starfsmönnum stöðvarinnar verið tilkynnt um að hafa sig á brott frá landinu innan viku ef þeir vilja ekki vinna undir stjórn og reglum herráðsins. Einn íslendingur hefur um árabil starfað við stöðina. Er það séra Bernharður Guðmundsson og býr hann i Addis Ababa ásamt konu sinni Rannveigu Sigurbjörnsdóttur og þremur börnum, Svövu, Magnúsi Þorkeli og Sigurbirni. 1 gær var haft samband við séra Bernharð frá íslandi og kvað hann hervörð vera um útvarps- stöðina og heimili starfsmanna hennar, en samningaumleitanir standa nú yfir milli stöðvar- manna og ríkisstjórnar Mengistu hershöfðingja. Búizt er við, að stjórn stöðvarinnar muni ekki telja sér fært að starfa eftir þeim skflyrðum, sem eþíópíska rikisstjórnin hefur sett, en í fyrstu útsend- ingunni eftir hernámið var stöðin kynnt sem rödd bylt- ingarinnar í Eþíópiu. Hef ja útvarpsrekstur I öðru landi? Lúterska heimssambandið, sem hefur aðsetur í Genf, hefur ekkert verið látið vita um töku stöðvarinnar nema í gegnum fréttir fjölmiðla. Tveir norskir stjórnarmenn í heimssamband- inu sögðu í norskum blöðum i gær, að til kæru hjá heimssam- bandinu fyrirætlanir um að hefja útvarpsrekstur í öðru landi Afriku, þvi búizt hefði verið við aðgerðum af hálfu stjórnvalda siðan siðasta bylt- ing var gerð eftir áramótin með morðinu á Teferi Bante. Sló í brýnu í herráðinu og voru sjö stjórnarmenn drepnir i stöðv- um herráðsins, en sigurvegarn- ir tóku völdin með Megistu í broddi fylkingar. Útvarpsstöðin Rödd fagnaðarerindisins hefur 17 dagskrárskrifstofur í Asíu og Afríku og hafa þær sent efni til aðalstöðvarinnar i Addis. Þess- ar stöðvar munu starfa áfram og senda út efni og einnig hyggst Lúterska heimssam- bandið kaupa tima í ýmsum út- varpsstöðvum til þess að senda út efni sitt á meðan sambandið hefur ekki fullkomna aðstöðu á ný. Rödd fagnaðarerindisins nýtur virðingar þjóða 70% af efni Raddar fagnaðar- erindisins hefur verið fræðslu- efni um margs konar almenn mál, jarðyrkju, heilsufræði o.fl. auk frétta, en 30% efnisins hefur verið kristilegt. Rekstur stöðvarinnar hefur verið einn merkasti þátturinn i starfi Lút- erska heimssambandsins og starfa 250 menn við stöðina, flest Eþiópíumenn. Stöðin hefur tvo senda, sem eru 100 kw hvor, hefur sent út til um 30 landa og notið mikillar virð- ingar og álits hvarvetna. Þegar útvarpsstöðin var kynnt sem Rödd byltingarinnar í Eþiópíu um helgina hóf hún útsendingar sínar á arabísku, þar sem úthúðað var stefnu Bandaríkjanna á alþjóðavett- vangi. Var jafnframt tilkynnt, að Voice og the Gospel hefði ekki lengur þýðingu fyrir Eþíópíu og þvi væri hún lögð niður. Prent- og málfrelsi dregið i land Þegar Haile Selassie keisara var steypt af stóli 1974 lýsti byltingarstjórnin þvi yfir að prentfrelsi og málfrelsi skyldi vera í landinu. Til að byrja með var slakað á í þessum efnum og menn gripu boðin tveimur höndum. Ekki leið þó á löngu þar til ritskoðun hófst á nýjan leik, sérstaklega varðandi allt sem sagt var um Eþiópiu. Út- varpsstöðin Rödd fagnaðarer- indisins reyndi því að komast Jóhannes Ólafsson kristniboðs- læknir með eþfóplska stúlku, sem eiginmaður hennar hafði höggvið með öxi f höfuð og bendur. hjá þvi að birta fréttir frá Eþiópiu og einn trúnaðarmaður I stöðinni, Eþíópi að nafni Em- anuel Gebre Selassie, dæmdi um fréttir og tók ákvörðun um, hvort útvarpa ætti þeim eða ekki. Haile Selassie var steypt af stóli án blóðsúthellinga, en byltingarmenn notfærðu sér vinsældir hans til að byrja með og höfðu hann með í ráðum og í upphafinu gerði Haile einn af sinum stuðningsmönnum að forsætisráðherra. Hét sá Ende Gatchew Makonen og lofaði hann ýmsum bótum. Hann hafði þó ávallt mikinn andbyr og rekinn var harður áróður gegn honum af stúdentum og menntamönnum. Var hann þvi óvinsæll, þótt hann veldi með sér I ríkisstjórn menntamenn, sem ekki höfðu verið pólitizkir. Fall tákns Eþfópfu Smátt og smátt voru tök bylt- ingarinnar hert, Haile keisari var settur í fangelsi og 150 manna byltingarráð var stofn- sett. Lét ráðið drepa 60 fyrrver- andi ráðherra og gamla fylkis- stjóra og herforingja I október 1975. Einnig létu byltingar- menn drepa Ammon yfirhers- höfðingja, sem hafði verið for- ystumaður herstjórnarinnar. Eftir fall tákns Eþíópíu Haile Selassies keisara, varð Ammon tákn Eþíópíu og undir hans stjórn varð byltingin sannfær- andi og rýmileg. „Eþíópía fyrst“, var viðkvæðið undir hans stjórn. Aðalbreytingin við byltinguna var skipting lands- ins og vald landeigendanna var brotið á bak aftur. Var sú breyt- ing jákvæð á margan hátt, en þegar róttækari öfl í landinu vildu umsnúa öllu án þess að taka tillit til sérkenna Eþíópa, reyndist Ammon ekki sam- vinnufús. Vildi hann fara hæg- ar I sakirnar, vinna skynsam- lega, en ekki af tilfinningaleg- um eldmóði. Meðal annars var hann ^á móti þvi að loka öllum skólum landsins og senda alla nemendur yfir 15 ára aldri út og suður til þess að kenna landsmönnum. Ammon vildi einnig reyna samningaleiðina við aðskilnaðarsinna í Erítreu, en hann var sjálfur Erítreu- maður og naut mikillar virðing- ar þar eins og I allri Eþíópiu. Virðingu hafði Ammon áunnið sér í stríði Eþíópa við Sómalíu. Allt i bál og brand með byltingunni Eftir morðið á Ammon fór allt i bál og brand i opinberri stjórn landsins. Prentfrelsi var takmarkað mjög og byltingar- menn þrengdu smátt og smátt tökin á þjóðfélaginu. Síðustu átökin voru þegar samstarfsmenn Bante drápu hann og Mengistu Haile Mariam tók við stjórnartaum- unum ásamt Atenofu Abate, en ráðamaðurinn nú er Mengistu. Lýsti hann því yfir, að her- stjórn landsins fylgdi marx- leninisma. Hins vegar vinna flokkar eins og EPRP mikið á laun, en þar eru á ferðinni harðsvíraðir maóistar og eru menntamenn og stúdentar i þeim flokki. Valda þeir mikilli úlfúð um allt landið og stöðugt verður minni og minni sam- staða meðal landsmanna. Pólitizk kennsla i skólum og á vinnustöðum í mai s.l. ár lýstu stjórnvöld þvi yfr að stofna mætti stjórn- málaflokka og þá hlupu hinir ýmsu róttæku flokkar af stokk- unum, en.bilið á milli þeirra hefur stöðugt aukizt. Þá var jafnframt tekin upp pólitisk kennsla á vinnustöðum, tvær klukkustundir á sólarhring. Skylduvinna skólanema út um þúfur Skylduvinna skólanema hef- ur einnig farið út um þúfur og smátt og smátt hefur gætt vax- andi ólgu og uppreisnar í hópi skólafólksins. Endaði það með þvi að mikill hluti skólafólksins rak áróður gegn þeim stjórn- völdum, sem sendu þau út á meðal landsmanna, enda var það allt gert án nokkurrar skipulagningar og oft á tíðum hafði skólafólkið nóg að gera með að bjarga lífi sjálfs sins, hvað þá að geta kennt löndum sinum eitthvað. S.l. haust átti aftur að reyna að koma skólum landsins í gang eftir nokkurra ára hlé frá byltingunni, en það hefur ekki tekizt, og það litla sem gekk í þeim efnum fór út um þúfur þegar Mengistu komst til valda eftir morðið á Abate fyrir skömmu. Alls kyns erjur eru nú viða í Eþiópiu, sumar af völdum lióa, sumar af völdum EPRP og sum- ar af völdum fyri landeigenda, og þá hefur stjórn Sómalíu einnig staðið að skemmdarverk- um I Suður-Eþiópiu. Þegar starf skólafólksins hafði farið út um þúfur, var hafizt handa á vegum stjórn- valda um að mynda bændafélög út um allt landið og innan bændafélaganna var stofnaður bændaher. Um sama leyti voru skipaðir pólitiskir fulltrúar i bændafélögunum til þess að kenna stjórnmál i skólum og félögum bænda. Hefur þetta fyrirkomulag gengið erfiðlega, þvi þótt jaróvæðisskiptingin hafi verið jákvæð fyrir flesta bændur landsins, þá likar þeim illa að landið, sem þeir yrkja, skuli ekki ganga í erfðir. Þykir það fyrirkomulag mjög ótryggt. Algjör þjóðnýting Þjóðnýtingin i landi er algjör, og t.d. voru öll hús i landinu þjóðnýtt á s.l. ári. Menn, sem áttu fleiri en eitt hús, máttu þó velja sér hús til að búa í, en Framhald á bls. 39 Tvær á röltinu I frumskógi Suður-Eþfópfu með gjafaföt frá fslenzku kristniboðsstöðinni f Konsó. Séra Bernharður Guðmundsson við hús sitt á lóð Voice of the Gospel stöðvarinnar f Addis. Frá vinstri: Svava, Bernharður og Rannveig. Magnús Þorkell og Sigurbjörn eru fyrir framan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.