Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 27 Helgi og hinir Völsung- arnir ætla sér sigur í 1 deid á 50 ára afmælinu 17 ára piltur, Helgi Helgason, frá Húsavík hefur nú haldið til Bandarfkjanna og mun æfa þar með hinu fræga atvinnumannaliði í knattspyrnu Cosmos, með þvf liði leikur einn mesti knattspyrnusnillingur allra tíma, Edson Pele, auk margra annarra atvinnumanna frá Bretlandseyjum og fleiri iöndum. Helgi Helgason, hinn efnilegi leikmaður Völsungs, sem nú æfir með New York Cosmos f Bandarfkjunum en þar er hinn heimsfrægi Pele meðal leikmanna og nokkrir fyrrverandi leikmenn f enskum 1. deildarliðum. McKernan, sem verður þjálfari Völsungs annað árið I roð. Helgi Helgason er einn af beztu leikmönnum Völsungs frá Húsavík og hefur einnig verið valinn í unglingalands- liðið. Hann mun verða hjá Cosmos að minnsta kosti f einn mánuð, en nú er liðið að búa sig undir keppnistímabilið, sem hefst í maí og er þetta eins konar reynslu tími fyrir hann og greiðir félagið allan kostnað af dvöl hans þarna svo og allan ferðakostnað. Forráðamenn Völsungs telja fremur ólíklegt að Helgi ílengist í Bandaríkj- unum þó að honum muni ganga vel og búast þeir við því að hann komi tvíelfdur heim til að taka þátt í íslandmótinu í 2. deild sem Völsungar eru nú ákveðnir í að vinna í tilefni af 50 ára afmæli félagsins auk þess sem Helgi hefur verið val- inn f unglinga landsliðið og á að leika með því i Belgíu í sumar. Það var þjálfari Völsungs, John McKernan, sem kom þessu í kring fyrir Helga, en hann er mjög hagvanur i Bandaríkjunum og hefur hann meðal annars leikið þar með atvinnumannaliðum. John McKernan hefur nú verið endurráðinn þjálfari Völsungs, en hann þjálfaði liðið einnig síðasta kepnnistímabil og mun hann koma til landsins i byrjun marz, en æfingar eru nú hafnar hjá liðinu og munu flestallir þeir leikmenn sem með liðinu voru á síðasta keppnistímabili verða með áfram auk þess sem nokkrir ungir og efnilegir pilt- ar munu koma upp í 2. flokk- inn, en i sumar mun hann í fyrsta sinn taka þátt í islands- mótinu. Það er vissulega gaman að vita til þess að íslenzkir knatt- spyrnumenn hafi náð svo langt sem raun ber vitni og það að 17 ára piltur skuli hafa náð svo langt að vera tekinn til reynslu hjá þekktasta og dýrasta knatt- spyrnuliði Bandaríkjanna þar sem frægustu knattspyrnu- menn heimsins hafa leikið og munu líklega enn leik mcð. Þetta undirstrikar það að við erum stöðugt að ná lengra á þessu sviði, því eins og við vit- um er þeim íslendingum alltaf að fjölga sem gerast atvinnu menn hjá erlendum félögum og áður en langt um lfður verður liklega komið svo að allir okkar beztu leikmenn verða orðnir at- vinnumenn erlendis ef ekki verður búið betur að þeim hér heima. Það sjá allir að þegar leikmenn þurfa að æfa allt að þvi 3 tíma 5 daga vikunnar og leika svo þann 6. verður vinnu- taj) geysimikið auk þess sem leikmönnum gefst ekkert tæki- færi til að eyða fristundunum með fjölskvldu sinni. Að lokum óskum við Helga til hamingju með þennan merka áfanga sem hann hefur náð og Völsungi óskum við til hamingju með 50 ára afmælið og vonandi gengur félaginu vel I mótum sumarsins. HG. ÝMSAR hræringar eru f knatt- spyrnunni þessa dagana. Félög- in eru að Ijúka við að ráða þjálfara og þeir leikmenn, sem ætla sér að skipta um félög hafa annað hvort gert það eða eru að þvf um þessar mundir. Af þjálfaramálum liðanna f 1. deildinni er það nýjast að frétta að Meldrum þjálfari KR- inga hætti við að koma eftir að hann var þó búinn að skrifa undir samning. Tókst KR- ingum að fá annan enskan þjálfara í stað hans og telja sig heppna að Meldrum skyldi ekki hafa tekið við starfinu hjá þeim. Sá sem nú hefur verið ráðinn til KR heitir Tom Cazie og hefur m.a. leikið með New- castle og verið þjálfari hjá Everton. Vfkingar og Billy Haydock hafa að undanförnu staðið í samningum og lyktir mála urðu þær að Billy hefur verið ráðinn til félagsins til tveggja ára. Hafa þá öll Iiðin i 1. deild ráðið þjálfara. Youri Ilitchev verður hjá Val. Kirby verður með Skagamennina, Anton Bjarna- son með Fram, Þorsteinn Frið- þjófsson með Breiðablik, Skinnear með ÍBV, Ferguson með Þór, Hólmbert Friðjónsson með ÍBK, Þórir Jónsson með FH og þeir Billy Haydock og Tom Cazie með Víking og KR. Gengið frá ráðningu bjálfara - hræríngar meðal leikrnanna Af félagskiptum leikmanna úr 1. deildinni má nefna að Örn Óskarsson úr ÍBV er genginn f KR og Kristinn Björnsson Vals- maður verður með Skagamönn- um f sumar. Þorsteinn Ölafsson markvörður ÍBK stundar nám í Sviþjóð og hyggst leika með þriðjudeildarliði þar. Teitur Þórðarson, Matthías Hallgríms- son og Davíð Kristjánsson — allir af Akranesi — eru einnig í Svíþjóð og leika með þarlend- um liðum eins og kunnugt er. Alitaf eru það einhverjir leik- menn, sem leggja skóna á hill- una á hverju haust, aldurs eða annarra ástæðna vegna. Virðist þetta bitna harðast á Keflvík- ingum f ár, þar sem margir af máttarstóipum liðsins hafa lagt skóna á hilluna, t.d. Einar Gunnarsson og Ástráður Gunnarsson og óvfst er hvað þeir gera Guðni Kjartansson og Karl Hermannsson, en báðir hafa þeir átt viíi meiðsli að stríða. I þriðju deildinni eru hreyf- ingar á mönnum eins og annars staðar og nefna má að Atli Helgason, sem verið hefur unglingaþjálfari hjá KR og Vík- ingi undanfarinn áratug með ^góðum árangri hefur nú tekið við þriðjudeildarliði Aftureld- ingar. Þá mun Hreiðar Ársæls- son hafa hug á að taka að sér þjálfun á nýjan leik og hefur heyrst að hann ætli austur á Firði. KR-ingarnir Halldór Björns- son og Gunnar Gunnarsson fara báðir út á land til þjálfunar i sumar. Halldór verður í Siglu- firði, en Gunnar á tsafirði. Gisli Magnússon, sem hafði verið orðaður-við ísafjarðarliðið, fer á nýjan leik til Færeyja, en þarlendum likaði vel við Vest- mannaeyinginn sfðastliðið sum- ar og náði hann mjög athyglis- verðum árangri. Magnús Jónatansson frá Eskifirði verður með Þrótt á Neskaupstað eins og í fyrra- sumar, en þá kom hann liðinu upp i 2. deild. Nafni hans Jónatansson frá Akureyri verð- ur hins vegar með lið Reynis frá Árskógsströnd. Með Magnúsi Eskfirðingi verða a.m.k. þrir leikmenn, sem leikið hafa í 1. deildinni. Það eru þeir Þórhallur Jónasson, sem áður lék með Víkingi, en hefur undanfarin ár verið við há- skólanám f Svfþjóð, Halldór Árnason frá Eskifirði lék nokkra Ieiki rpeð meistara- flokki Fram í fyrra, en ætlar nú að skipta um félag og leika með Þrótti í 2. deildinni. Siðast en ekki sizt hefur svo Valsmaður- inn Helgi Benediktsson ákveðið að skipta um félag og bætast f hóp Norðfjarðar-Þróttara. Vissulega búbót fyrir Þróttara að fá þá þrjá f liðið. ,* —áij DANIR OG SVIAR MEÐ SAMEIGINLEGT „KERFI' DANSKA og sænska handknatt- leikssamböndin gerðu nýlega samkomulag sfn á milli um upp- lýsingamiðlun og er ætlun sam- bandanna að koma sér upp á næstunni safni myndsegulbanda af landsleikjum sem allra flestra þjóða í handknattleik. Telja landsliðsþjálfarar beggja þjóð- anna mikið fengið með þessu samkomulagi, og eru sammála um að slfkt myndasafn af leikjum hinna ýmsu landsliða geti orðið veigamikil aðstoð við undirbún- ing landsliðanna. Leif Mikkelsen, þjálfari danska handknattleikssambandsins, sagði nýlega f blaðaviðtali, að þetta samkomulag myndi nánast tryggja það að alltaf væru til myndir af þeim andstæðingum sem keppa ætti við — a.m.k. þeim andstæðingum sem máli skiptu. Þannig ættu t.d. Svfar nú fyrir- liggjandi kvikmyndir af vestur- þýzka landsliðinu, en við það eiga Danir að keppa á næstunni. Sagði Mikkelsen, að kvikmyndasafnið myndi hafa enn meiri þýðinu þeg- ar nær drægi heimsmeistara- keppninni í Danmörku. Er ætlun Svía og Dana að kosta sameigin- lega ferð kvikmyndatökumanns til keppninnar í Austurrfki, og munu þeir þar einkum taka myndir af þeim liðum sem búizt er við að komist i A-keppnina, en mat þessara þjóða er það að þau lið verði: Austur-Þýzkaland, Tékkóslóvakía, Sviþjóð, Noregur, Spánn og Austurríki. — Auðvitað breytast leikaðfeðir liðanna alltaf eitthvað, en þegar myndir eru skoðaðar af liðum, er alltaf hægt að fá þannig nokkrar upplýsingar um hvernig einstakir leikmenn leika, bæði í sókn og vörn, sagði Mikkelsen. Danskir handknattleiksmenn með eftirvæntingu f svipntim. Þeir gera sér vonir um góða frammistöðu f heimsmeistarakeppninni og spara ekkert til þess að árangur náist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.