Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 41 fclk í fréttum „Hjemmet paa tunet” + Bók Halldórs Laxness, „I túninu heima“, mun koma út i danskri þýðingu á vegum Gyldendal í aprfl næstkomandi í tilefni af 75 ára afmæli skáldsins. Bókin heitir á dönsku „Hjemmet pá tunet“, að því er segir f danska blaðinu Aktuelt. Alpa- klúbbur stofnaður + Haldinn hefur verið stofnfundur fslenzka Alpaklúbbsins í fundar- sal Hótel Esju. Mark- miðið með stofnun félagsins er að efla áhuga manna hér á landi á fjallamennsku. Erlendis starfa vfða hliðstæð félög með þessu sama markmiði. Allir sem náð hafa 16 ára aldri geta orðið félagar, að þvf er segir f fréttatilkynningu um stofnun klúbbsins, og eru þeir sem hafa áhuga á þessari fþrótt hvattir til að koma. Rómantík í fangelsinu + Sören og May-Britt ætla að gifta sig. Þau kynntust í ríkisfangelsinu í Ringe á Fjóni í Danmörku, fyrsta fangelsinu þar sem konur og menn afplána sekt sína undír sama þaki. Fangelsið i Ringe var tekið i notkun fyrir ári síðan og hefur vakið athygli víða um heim. Þar er rúm fyrir 90 fanga en núna eru þar aðeins 53, sex konur og 47 karlmenn. Fangarnir eru á aldrinum 18—25 ára og enginn afplánar þar lengri refsingu en 4 ár. Allir fangarnir vinna og í því tilliti er aðgreining kynjanna engin. Á húsgagnaverkstæðinu vinna stúlkurnar sömu störf og piltarnir og allir fá sömu laun, 600 kr. á tímann. „Þegar við vinnum á verkstæðinu finnst okkur við aðeins vera vinnu- félagar ekki fangar," segir May-Britt. Sören situr inni fyrir bankarán. Hann hefur verið í Ringe síðan i janúar 1976 og á eftir tvö ár en May-Britt aðeins 4 mánuði. Þegar hún verður látin laus ætlar hún að búa nálægt fangelsinu svo hún geti heimsótt Sören eins oft og leyfilegt er eða einu sinni í viku. Meðan þau dvelja í fangelsinu fá þau að vera ein í klefa klukkutima á dag og tvo á sunnudögum. Ástæðan fyrir því að þau fá ekki að vera lengur saman á degi hverjum er að þau eru ekki í sömu deild i fangelsinu. En innan deildanna fá fangarnir að heimsækja hver annan ótakmarkað eftir vinnu- tima. „Við verðum auðvitað að horfast i augu við þá staðreynd að við er- um fangar, en manneskj- urnar hafa þörf fyrir ást hvar sem þær eru," segir May-Britt. Hárlagningarvökvinn €) fyrir blástur: mform Inform í litlu, fjólubláu og grænu glösunum.fær háriö til að sitja alveg eins og þú vilt hafa það,- eðlilega og með lyftingu Inform - fyrir dömur og herra. HALLDÓR JONSSON HF Dugguvogi 8 FEF heldur fund um dag- vistarmál miðvikudag FÉLAG einstæðra foreldra gengst fyrir fundi um dagpistar- mál að Hótel Esju miðvikudags- kvöldið 16. marz kl. 21. Þar munu tala Margrét Sigurðardóttir, starfsm. hjá félagsmálastofnun Reykjavíkur, Svandls Skúla- dóttir, fulltrúi I menntamálaráðu- neyti, og Bergur Felixson, fram- kvæmdastjóri Sumargjafar. Einnig munu nokkrir einstæðir foreldrar skýra frá reynslu sinni af dagheimilum og heimafóstri. Borgarstjóra og öllum borgar- fulltrúum hefur verið boðið að koma til fundarins. Eins og alkunna er ríkir nú mikil vöntun á dagheimilispláss- um fyrir börn sovkallaðra forgangshópa, þ.e. einstæðra for- eldra og námsmanna. Eiga margir í hinum mestu erfiðleikum vegna þessa ástands, þar sem þessi þjóðfélagshópur hefur ekki um annan kost að veljatil framfærslu heimili sínu, en stunda vinnu úti. Sú lausn að koma börnum í einka- fóstur hefur gefizt misjafnlega, enda þótt hún hafi i öðrum tilvik- um blessast bærilega. Þá er að hefjast þriggja kvölda spilakeppni FEF og verður spilað á Hallveigarstöðum fimmtudags- kvöldin 17., 24. og 31. marz. Verðlaun eru veitt fyrir hvert kvöld og loks myndarleg heildar- verðlaun. Að lokum má svo geta þess að FEF er að hleypa af stokkunum skyndihappdrætti til að unnt verði að hraða viðgerðum og endurbótum á væntanlegu neyðarhúsnæði félagsins i Skerja- firði og verður nánar sagt frá happdrættinu síðar. Kvenfélög í A-Skaftafells- sýslu mótmæla bjórfrumvarpinu Á sameiginlegum fundi kvenfélaganna í Austur- Skaftafellssýslu var sam- þykkt eftirfarandi tillaga: „Málfundur kven- félaganna í A-Skaft., sem haldinn var i Holti á Mýrum 21. febr., mótmælir framkomnu frumvarpi um að leyfa frjálsa sölu á áfengum bjór. NÁMSKEIÐ NÁMSKEIÐIÐ FJALLAR MEÐAL ANNARS UM EFTIRFARANDI ATRIÐI: 9 Grundvallaratriði næringarfræði. 0 Innkaup. vörulýsingar, auglýsingar. 9 Ráðleggingar, sem heilbrigðisyfirvöld margra þjóða hafa birt, um æskilegar breytingar á mataræði, til að fyrirbyggja sjúkdóma. 9 Fæðuval, gerð matseðla. matreiðsluaðferðir, tilbúning ýmissa rétta (sýnikennsla) með tilliti til áðurnefndra ráðlegginga. 9 Mismunandi framreiðsluaðferðir, dúka og skreyta borð fyrir mis- munandi tækifæri. ^ Hvað niðurstöður nýjustu visindalegra rannsókna hafa að segja um offitu og megrunarfæði. MUNIÐ að rangar megrunaraðferðir eru mjög skaðlegar og geta valdið varanlegu heilsutjóni. VEIZT ÞÚ AÐ GÓÐ NÆRING HEFUR ÁHRIF Á: 0 Andlegan, likamlegan og félagslegan þroska allt frá frumberhsku. 0 Mótstöðuafl gegn sjúkdómum og andlegu álagi. 9 Líkamsþyngd þina, en hjarta- og æðasjúkdómar, sykursýki og margir fleiri sjúkdómar eru langtum algengari meðal þeirra, sem eru of feitir. Aðeins rétt nærður einstaklingur getur vænst besta árangurs i námi, leik og starfi. Upplýsingar og innritun i sima 44247 eftir kl. 8 á kvöldin. Kristrún Jóhannsdóttir manneldisfræðingur. Vegna mjög mikillar eftirspurnar hefst nýtt námskeið mánudagmn 21. marz.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.