Morgunblaðið - 15.03.1977, Qupperneq 48
oroumXiTn^ií>
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977
AUíiLV’SINíiASÍMINN EK:
22480
Loðnuaflinn
500 þús.lestir
Sigurdur búinn ad
MJÖG góð loðnuveiði hefur verið
frá því á iaugardag. Á sunnudag-
inn fengu ioðnuskipin um 13 þús-
und lestir og f gær var sólar-
hringsveiðin komin yfir 8000 þús-
und lestir um kl. 20. Áttu menn
von á að fleiri skip myndu til-
kynna um afla f gærkvöldi og að
heildaraflinn á vertfðinni færi
yfir 500 þúsund lestir í dag.
Morgunblaðinu var kunnugt um
að Sigurður RE 4 hafði fengið
fullfermi um kl. 20 f gærkvöldi og
þar með var Sigurður búinn að fá
nokkuð yfir 18 þúsund lestir og
hafði slegið aflamet Guðmundur
RE 29 frá 1973, er Guðmundur
fékk 18,090 lestir. Eins var
Morgunblaðinu kunnugt um, að
Vfkingur AK var kominn með svo
til fullfermi f gærkvöldi.
Loðnuskipin voru að veiðum á
tveimur veiðisvæðum í gær, undir
setja aflamet
Jökli og vestur af Vestmannaeyj-
um. Hefur þetta leitt til þess, að
mörg skipanna sigla með aflann,
Framhald á bls. 47
Fundur ASÍ og
ríkisstjórnar
FUNDUR var í gær með rikis-
stjórninni og samninganefnd AI-
þýðusambands Islands. Var þar
rætt um þá hlið kröfugerðar ASÍ,
er snýr að stjórnvöldum.
Skýrðu samningarnefndar-
menn sjónarmið sin og var rætt
almennt um komandi kjarasamn-
inga. Áformað er, að framhald
verði á þessum viðræðum, og var
sáttasemjara falið að skipuleggja
hvernig að þeim verður staðið.
BARDOT 1 REYKJAVlK — Franska kvikmyndaleikkonan og stórstirnið Brigitte
Bardot kom óvænt til Reykjavíkur í gær í einkaþotu ásamt fylgdarliði. Þau höfðu
örskamma viðdvöl, en Morgunblaðið náði þó að rabba stuttlega við Bardot. Sjá
grein og myndir bls. 3.
l.jósm.RAX
J apanir slaka
á kröfunum
Viðgerð ástrengnum
kostaði um 20 milljónir
Landhelgisgæzlan gerð skaðabótaskyld,
segir bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum
LAUSLEGA áætlað er talið að
viðgerð á rafstrengnum til Vest-
mannaeyja, sem varðskipið Týr
skemmdi fyrir rúmlega hálfum
mánuði, hafi kostað um 20
milljónir króna. Lauk viðgerð-
inni á sunnudagskvöld, en þá
hafði stór hópur manna unnið af
miklu kappi án hvfldar frá þvf á
laugardagsmorgun. Páll Zóp-
hanfasson bæjarstjóri f Vest-
mannaeyjum tjáði Morgunblað-
inu f gær, að kröfur vrðu á næst-
unni settar fram á hendur Land-
helgisgæzlunni vegna tjónsins og
kostnaðar við viðgerðina.
Eigandi rafstrengsins til Vest-
mannaeyja er Rafmagnsveita rík-
isins, en hins vegar bera Vest-
mannaeyingar sjálfir kostnað
vegna raforkuframleióslunnar
verði bilun á strengnum. Kári Ein-
arsson stjórnaði viðgerðinni á
strengnum af hálfu Rafmagns-
veitu ríkisins, en danskir menn
frá fyrirtækinu, sem framleiddi
rafstrenginn, voru i Vestmanna-
eyjum frá því að strengurinn
skemmdist. Varðskipið Árvakur
og áhöfn unnu við viðgerðina,
einnig Lóðsinn og menn frá Raf-
magnsveitunni og Vestmanna-
eyjabæ.
Er sjópróf fóru fram vegna
þessara skemmda á strengnum
þótti sannað að varðskipið Týr
væri valdur að skemmdunum
Karpov efstur,
Friðrik annar
FRIÐRIK Ölafsson gerði í gær
jafntefli við Torre frá Filipps-
eyjum eftir 19 leiki. Hafði
Friðrik svart í skákinni. Á
sunnudag vann hann V-
Þjóðerjann Herman, og er
Friðrik nú í 2.—4. sæti ásamt
HUbner og Liberzon með 5
vinninga. Heimsmeistarinn
Karpov er efstur á mótinu með
6!4 vinning og gerði hann jafn-
tefli við Keene í gær. A sunnu-
daginn-«varð jafnt hjá Karpov
og HUbner, en biðskák sína
gegn Liberzon frá því á föstu-
dag vann heimsmeistarinn.
Friðrik teflir í dag gegn
Sosonko og hefur hvítt, en
Karpov hefur svart gegn
Anderson.
Hefur skipið verið við Vest-
mannaeyjar siðan og framleitt
raforku fyrir Vestmannaeyjar, en
einnig diselvélar og gastúrbina
frá Rafmagnsveitu rikisins. Sagði
Páll Zóphaníasson i gær, að ein-
sýnt væri að farið yrði fram á
skaðabótagreiðslur vegna þessa,
en á hvern hátt þær yrðu lagðar
fram og hvenær væri ekki frá-
gengið.
Viðgerð á rafstrengnum hófst á
laugardagsmorgun kl. 10 og lauk
Framhald á bls. 47
SlÐUSTU daga hefur lítið
sem ekkert verið hægt að
frysta af loðnu, enda er
loðnan alveg komin að
hrygningu. Éftir því sem
næst verður komizt, er nú
aðeins búið að frysta um
4000 lestir að loðnuhrogn-
um meðtöldum, sem er um
H af því sem fslenzk fyrir-
tæki höfðu samið um sölu á
til Japans í vetur.
Orsökin fyrir þessari
litlu frystingu er fyrst og
fremst sú, að Japanir
gerðu mun strangari kröf-
ur nú en áður um stærð
loðnunnar og flokkun
hennar og hefur verið
mjög tímafrekt verk að
flokka hana. Almennt
vildu Japanir að ekki fleiri
en 50 loðnur færu í kílóið,
en nú síðustu daga, er þeir
hafa séð fram á að aðeins
tækist að frysta hluta'af
því magni, sem um var
samið, hafa einhverjir
japönsku kaupendanna
slakað á kröfum sínum,
þannig að nú er leyfilegt að
hafa 55 loðnur eða færri í
kílóinu.
8. skákin
tefld í dag
ATTUNDA einvigisskák Boris
Spasskys og Vlastimil Horts
verður tefld að Hótel Loftleið-
um I dag og hefst kl. 17. Á
sunnudaginn tefldu skák-
meistararnir 7. einvfgisskák-
ina, og lyktaði henni með jafn-
tefli I 28. leik. Staðan f einvfg-
inu er nú sú, að Spassky hefur
4 vinninga en Hort 3 vinninga.
Um skák þeirra og aðrar ein-
vfgisskákir er fjallað á bls 18
og 19 f blaðinu I dag.
Talsvert vatnsleysi í Reykjavík undanfarið:
Mun minna grunnvatn
nú en mörg síðustu ár
VATNSLEYSI var töluvert f eldri bverfum Reykjavfkur f gær, og
hefur veturinn f vetur verið mjög erfiður fyrir starfsmenn Vatnsveitu
Reykjavfkur. Mjög Iftið vatn hefur verið f vatnsbólum borgarinnar og
grunnvatn ekki eins lftið f mörg ár að sögn Þórodds Tb. Sigurðssonar
vatnsveitustjóra f gærkvöldi.
Smygl fannst í Dísarfelli
TOLLGÆZLAN fann um helgina
töluvert magn af smyglvarningi f
m.s. Dfsarfelli, þar sem skipið lá í
Reykjavfkurhöfn, en skipið kom
hingað frá Finnlandi s.l. föstu-
dag.
Voru þetta 108 flöskur af
áfengi, 14 kassar af áfengum bjór,
9200 vindlingar og nokkuð magn
af niðursoðnu svínakjöti. Varn-
ingurinn fannst að meginhluta til
í hýbýlum sex skipverja, sem
reyndust vera eigendur smygl-
varningsins.
Lítill þrýstingur var á húsum
víða í Vesturbænum í gærdag og
sömuleiðis í Sundhöllinni. I gær-
kvöldi var hins vegar kvartað yfir
vatnsleysi í húsum við Njálsgötu
og Grettisgötu. Ástæðurnar fyrir
því hve Iítið vatn væri viða sagði
Þóroddur vera þær, auk þess hve
grunnvatn væri lftið, að loðnu-
vinnsla og vertíðarstarfsemin
"tækju mikið vatn og að auki væri
trúlega einhver bilun á kerfinu í
Vesturbænum. — Það hafa verið
talsvert miklar bilanir að undan-
förnu og t.d, fannst í gær brotið
sex tommu rör í Ægissiðu. Við
vitum ekki hve lengi það hefur
verið brotið, en allt hjálpast þetta
að, sagði Þóroddur.
— Vatnið hækkaði nokkuð f
vatnsbólunum í rigningunum fyr-
ir 10 dögum og náðum við þá
60—70 em meiri hæð í brunnun-
um, en það er að falla niður aftur,
og nú eigum við eftir um 20 cm
þar til við þurfum að fara að uæla
yfir í brunnana. Við höfum gert
ráðstafanir til að hafa allt tilbúið
til að dæla 200 sekúndulítrum úr
vatnsbólinu við Jaðar i Gvendar-
brunna. Þannig ætti að vera unnt
að komast hjá alvarlegum vatns-
skorti, en samt er full ástæða til
að benda fólki á að fara sparlega
með vatnið, sagði Þóroddur.
Fyrir nokkru greip Vatnsveitan
til þess ráðs að taka vatn af bíla-
þvottastöðvum, en sú lokun stóð
aðeins i rúman sólarhring. Sagði
Þóroddur Sigurðsson að tæplega
væru tök á að hafa slíkar stöðvar
opnar, og yrði gripið til þess ráðs
að loka fyrir vatnið til þeirra aft-
ur ef nauðsyn bær.i til.