Morgunblaðið - 12.05.1977, Side 1

Morgunblaðið - 12.05.1977, Side 1
36 SÍÐUR 106. tbl. 64. árg. FIMMTUDAGUR 12 MAÍ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Meirihlut ast j órn mynduð í Finnlandi Helsingfors 11. maf. Reuter. ÞRIGGJA flokka stjórn miðflokkanna í Finnlandi sagði af sér í dag og Kalvei Sorsa, leiðtoga jafnaðar- manna var falið að mynda nýja ríkisstjórn. Fráfar- andi stjórn undir forsæti Martti Miettunen, sem er 70 ára gamall, var mynduð af Miðflokknum, Sænska þjóðarflokknum og í'rjáls- lyndaflokknum, og réði hún yfir 58 af 200 sætum á finnska þinginu. Afsögn stjórnarinnar kemur ekki alveg á óvart og litið er á stjórnarmyndun Sorsa, en 54 flokksmenn hans sitja á þingi, sem tilraun til að mynda meiri- hlutastjórn til að styrkja aðstöðu Kekkonens forseta, áður en hann heldur í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna á þriðjudag. Utanríkisráðherrar NATO: þeim upplýsingum, sem lekið hafa frá þeim, er talið að borgara- flokkarnir hafi meirihluta ráð- herrasæta í nýju stjórninni. Tek- ist hefur að ryðja flestum deilu- málum jafnaðarmanna og mið- flokkanna úr vegi en ‘mesta ágreiningsefnið var á milli þeirra síðarnefndu og miðflokksins, sem á mest fylgi meðal bænda, um landnotkun. Hafa jafnaðarmenn hvað eftir annað krafizt nýrra jarðeignalaga áður en þeir taki sæti i rikisstjórn. Nýju lögin fela í sér rétt sveitarfélaga til að taka land kaupnámi en það hefur mætt mikilli andstöðu landeigenda og bænda. Mesta verkefnið, sem biður nýju stjórnarinnar, verður að draga úr atvinnuleysi, en um 140.000 manns eða 6% vinnuafls- ins, er nú án atvinnu. Joseph Luns, aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, lyftir höndum til að binda endi á blaðamannafund á miðvikudag við lok utanrfkisráðherrafundar bandalagsins. Sfmamvnd AP. Hvetja Sovét til aðgerða til að draga úr spennu Búist er við að Sorsa fái fyrr- verandi þrjá stjörnarflokka til myndunar nýrrar stjórnar, sem hefði 112 sæti á þingi. Þátttaka kommúnista er talin ólíkleg en ekki útilokuð. Viðræður hafa að undanförnu átt sér stað á milli miðflokkanna og jafnaðarmanna og samkvæmt Zaire flytur stjórnarsetur Kinshasa, 11. maí. Reuter. STJÓRN Zaire tilkynnti í dag að hún mundi stjórna landinu tima- bundið frá Kolwezi, sem er mið- stöð hernaðaraðgerða gegn upp- reisnarmönnum í Shabahéraði. Mobutu forseti flytur á morgun inn í 150.000 fermetra stöðvar í Kolwezi, þaðan sem efnahags- og hermálum svo og öðrum málefn- um landsins verður stjórnað næstu dagana. Þetta þykir benda til þess að stjórn Zaire telji að stríðið i Shaba eigi eftir að drag- ast á langinn. London, 11. maf. Reuter. NTB. FUNDI utanrfkisráðherra Atl- antshafsbandalagsríkjanna lauk í dag í London með því að Sovétrík- in voru hvött til að fallast á raun- hæfar aðgerðir til að draga úr spennu og minnka vígbúnað. Jafnframt lögðu ráðherrarnir áherzlu á nauðsyn þess að halda uppi sterkum vörnum. í yfirlýs- ingu fundarins segja ráðherrarn- ir 15 að beinar aðgerðir en ekki tóm orð séu það eina sem geti orðið til þess að draga úr spennu. Þó að ákveðinn árangur hafi orðið af tilraunum til að bæta sambúð austurs og vesturs sið- ustu ár er ástand í heiminum enn- þá ótryggt. Stöðugur vöxtur herja Varsjárbandalagsríkjanna og sú áherzla sem lögð er á árásartækni þeirra veldur áhyggjum, segir i yfirlýsingunni. SAS: Stokkhólmi, 11. maí. NTB. SKANDINAVISKA flugvélagið SAS fékk ekki stuðning vinnu- máladómstólsins við kröfu um Utanríkisráðherrarnir ráku endahnút á tveggja daga Nato fund eftir að þjöðhöfðingjar og forsætisráðherrar aðildarland- anna höfðu lokið viðræðum sínum verkbann, sem tæki þegar gildi, samkvæmt úrskurði dómstólsins f dag. SAS hefur hins vegar boðað verkbann fyrir flugfreyjur og flugþjóna, sem starfa utan Skandinaviu, en verkbannið gengur ekki gildi fyrr en í næstu viku samkvæmt lögum. Dómstóllinn dæmdi ólöglegt verkfall flugfreyja og flugþjóna, sem nú stendur yfir. Ástæðan er sú að samband sænskra verzlun- armanna, sem stendur fyrir verk- fallinu, virti ekki löglegan boðun- arfrest. Það er þó óvíst hvort flug- félagið krefur flugfreyjur skaða- bóta vegna tekjutaps yfir verk- fallsdagana. Slik skaðabótakrafa gæti orðið upp á tugi milljóna króna, þar sem félagið tapar um 35 milljónum króna á dag vegna minni farmiðasölu. Verkbann SAS á að taka gildi fimmtudaginn 19. maí, en það á ekki að hafa áhrif á flug innan Skandinaviu. Verkfallið, sem nú stendur yfir hófst á mánudag eft- ir að samningaviðviðræður höfðu farið út um þúfur á sunnudag. Kemur verkfallið aðeins niður á flugi utan Skandinaviu. SAS hef- ur þó tekist að halda uppi um þriðjungi áætlunarflugs utan- lands með dönskum flugfreyjum, sem ekki fara í verkfall fyrr en i næstu viku. á þriðjudag. Jimmy Carter banda- ríkjaforseti benti í ræðu sinni á nauðsyn þess að styrkja samband- ið á milli Bandaríkjanna og Vest- ur-Evrópulanda og í yfirlýsingu fundarins segir að aðildarþjóðirn- ar hafi orðið sammála um að auka samvinnu um vopnafrainleiðslu. Carter forseti ræddi á fundinum um gerð langtíma varnaráætlunar til að mæta þörfum á næsta ára- tug. Vinna að gerð slíkrar lang- tímaáætlunar hefst þegar í næstu viku þegar varnarmálaráðherrar Natolanda hittast i Brússel. Framhald á bls. 20. Engin sátta- nefnd í Berl- ingskedeilu Kaupmannahöfn, 11. mai. NTB. ANKER Jörgensen, forsætis- ráðherra Danmerkur, mun ekki koma á fót sáttanefnd til að leysa deiluna i Berlingske hus, útgáfufyrirtækis Berlingske Tidende. Skýrði Jörgensen frá þessu eftir að hafa átt fund með déiluaðilum. „Ég held að það sé ekki raunhæft að koma á fót sátta- nefnd. Deiluaðilar hafa sagst ætla að halda viðræðum áfram og ég held að möguleiki sé á að ná samkomulagi," sagði hann. Blaðamenn, verkstjórar og yfirmenn á Berlingi höfðu ósk- að eftir þvi að forsætisráðherr- ann skipaði sáttanefnd eða reyndi sjálfur að koma á sátt- um. Alþýðusambandið og vinnuveitendur hafa hins veg- ar lagzt gegn þvi að málið verði lagt fyrir slika nefnd. Einar Agústsson til fundar vid V ance í júní ÞEGAR utanríkisráðherra- fundi Atlantshafsbandalagsfns var lokið í Lundúnum i gær sagði Einar Ágústsson utan- ríkisráðherra í viðtali við Morgunblaðið, að þeir Cyrus Vance utanrikisráðherra Bandaríkjanna hefðu orðið ásáttir um að ræðast við í Washington í júni sennilega einhverntlma í síðustu viku mánaðarins. „Við ræddum nokkuð um sambúð íslands og Bandarfkj- anna, áframhald á varnarsamn- ingi okkar og hugsanlegar breytingar á honum,“ sagði ut- anríkisráðherra. Hann vildi ekki greina frá efnisatriðum samt alsins, — þau væru trúnað- armál. Einar Agústsson utanrfkisráð- herra. Einar Ágústsson kvaðst hafa rætt við Jimmy Carter Banda- rfkjaforseta stundarkorn í gær. Hefði sér komið Carter mjög vel fyrir sjónir og hefði verið áberandi hve vel hann væri að sér um málefni íslendinga. „Hann er mjög ákveðinn i framgöngu, hefur ákveðnar skoðanir, og mér fannst hann koma miklu betur fyrir í eigin persónu en mér hafði sýnzt af myndum,“ sagði utanríkisráð- herra um forsetann. „Það er ekki nokkur vafi á því að á þessum NATO-fundi varð mjög vart aukinnar sam- stöðu og eindrægni hvað snerti sameiginleg hagsmunamál bandalagsríkjanna, — þetta er Framhald á bls. 20. Flugfreyjum svar- að með verkbanni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.