Morgunblaðið - 12.05.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1977
3
Erfiðleikar vió
löndun kolmunna
á Neskaupstað
„Líst vel á kolmunnaveiðamar í fram-
tíðinni” segir skipstjórinn á Víkingi AK
Neskaupstað ll.maí.
Frá Þórleifi ólafssyni blm. Morgunblaðsins:
MJÖG hægt hefur gengið að landa kolmunnanum úr Vfkingi AK hér á
Neskaupstað, en skipið kom hingað f gær með 450 lestir af kolmunna.
Bæði er, að verksmiðjan var ekki fvllilega tilbúin að taka á mðti
kolmunnanum vegna yfirvinnubannsins og svo bætist við að alla tfð
hefur verið ákaflega erfitt að landa þessum fiski og eiga aðrar þjððir
við sömu erfiðleika að etja. Astæðurnar eru þær að fiskurinn er svo
magur, að hann rennur ekki til f lestunum og einnig pressast hann svo
mikið saman f lestunum að hann verður eins og heystabbi. Reiknað var
með að Vfkingur kæmist út f dag, en klukkan 17, þegar vfirvinnubann-
ið skall á, voru nokkrar lestir eftir f skipinu og kemst það þvf ekki af
stað á Færeyjamið fyrr en á morgun. Hefur löndunin þá tekið rúma
tvo daga. Unnið er að þvf að hæta löndunarbúnaðinn en f nðtt er
Börkur NK væntanlegur hingað með 350 lestir af kolmunna.
Skelfiskflokkunar-
vél í ísfirzkan bát
Kristinn Sigurðsson verk-
smiðjustjóri hjá Sfldarvinnslunni
hf. í Neskaupstað sagði f samtali
við Morgunblaðið í dag, að enn
hefði engin sérstök lausn fundist
við löndun á kolmunna. Hins veg-
ar gætu þeir aukið löndunarhrað-
ann. I fyrsta lagi væri vinnudag-
urinn núna svo stuttur af kunn-
um ástæðum að ef eitthvað bæri
útaf, eins og komið hefði fyrir í
gær, væri dagurinn búinn. Krist-
inn sagði að þeir ættu von á stærri
og öflugri löndunarkrabba en
þeim sem nú er notaður við lönd-
unina og þá hefðu þeir möguleika
á því að setja upp löndunarkrana,
sem jafnvel yrði hægt að nota
með góðum árangri við löndun á
þessum fiski.
Að sögn Kristins eru nú koranar
nýjar fiskdælur á markaðinn, svo-
nefndar þurrdælur, sem eru
framleiddar af Myren-
fyrirtækinu i Noregi. Margt benti
til þess að sögn Kristins, að þessar
dælur yrðu framtíðar-
löndunartæki á kolmunna og
einnig á loðnu. Færeyingar hefðu
Vinnutími
í Vinnuskóla
Reykjavíkur
lengdur
ÁKVEÐIÐ hefur verið að vinnu-
timi í Vinnuskóla Reykjavíkur
verði lengdur nokkuð, eða úr 4
tímum á dag í 6 tíma, þegar hægt
verður að koma því við og verk-
efni eru fyrir hendi. Ákvörðun
þessi var tekin á fundi borgarráðs
f fyrradag og er hér um að ræða
yngri aldursflokk nemenda, þ.e.
þá, sem voru í 7. bekk s.l. vetur,
og er þetta gert samkvæmt bókun
stjórnar Vinnuskólans. Þá hefur
verið ákveðið að laun fyrir 14 ára
nemendur verði kr. 180.- á klst.
og 200.- kr. fyrir 15 ára nemend-
ur. Að sögn Erlings Tómassonar
skólastjóra, sem nú hefur verið
endurráðinn skólastjóri Vinnu-
skólans, lýkur innritun í skólann
hinn 20. maí n.k. og er gert ráð
fyrir að um 1100—1200 nemend-
ur komist að í sumar, en það er
svipað og verið hefur.
17. júní
nefnd skipuð
Á FUNDI sínum hinn 10. þ.m.
samþykkti borgarráð að tilnefna
eftirtalda í 17. júni nefnd: Mar-
gréti Einarsdóttur, formann, Öm-
ar Einarsson, Hilmar Svavarsson
og Böðvar Pétursson. Einnig var
samþykkt að Skátasamband
Reykjavikur og íþróttabandalag
Reykjavíkur tilnefndi einn full-
trúa hvort í nefndina.
þegar tekið þær í notkun og slfkar
dælur hefðu verið pantaðar til
tslands fyrir sumarloðnuver-
tíðina. Að lokum sagði Kristinn að
hann gerði ráð fyrir, að kol-
munnabræðsla hæfist í Neskaup-
stað á morgun eða föstudag.
Viðar Karlsson, skipstjóri á
Víkingi, sagði þegar blaðamaður
Mbl. ræddi við hann að sér litist
mjög vel á kolmunnaveiðarnar í
framtíðinni. Sá væri þó galli á
gjöf Njarðar, að kolmunnavörp-
urnar, sem nú væru notaðar,
hefðu ekki reynzt nærri nógu
sterkar. Þá væru íslenzku skipin
aðeins með eina vörpu um borð
en þyrftu að hafa 2—3 eins og þau
færeysku. Einnig þyrftu vörpurn-
ar að vera af mismunandi gerðum
til að hægt væri að sjá hvaða
varpa hentaði bezt til veiðanna.
Sagði Viðar að Færeyingar, Norð-
menn og Danir legðu gífurlega
áherzlu á þessar veiðar og hefðu
undanfarin ár styrkt sín skip til
þeirra. Hæsti færeyski báturinn
hefði fengið 5800 lestir á skömm-
um tíma í fyrra.
Kolmunninn er mjög magur um
þessar mundir og við fitumæling-
ar hjá útibúi Rannsóknarstofnun-
ar fiskiðnaðarins á Neskaupstað
reyndist búkfitan vera 1,4% en
fiskurinn fitnar eftir því sem líð-
ur á sumarið. Þórhallur Jónasson
efnaverkfræðingur og forstöðu-
maður útibúsins sagði að hins
vegar væri þurrefnisinnihald kol-
munnans mikið, líklega 18—20%.
Helleskov farið
frá Siglufirði
Siglufiröi, 11. mai.
DANSKA skipið Maria Helleskov
fór frá Siglufirði í morgun full-
lestað loðnumjöli. Skipstjórinn
hafði frestað brottför í tvo sólar-
hringa, þar sem hann gerði kröf-
ur á hendur kaupendum mjölsins
um bætur vegna tafa, sem skipið
varð fyrir í Siglufirði vegna yfir-
vinnubannsins.
Fréttaritari
Áríðandi að vitni
gefi sig fram
LAUGARDAGINN 30. april s.l.
varð árekstur tveggja fólksbif-
reiða klukkan 11.30 á gatnamót-
um Lönguhliðar og Miklubrautar.
Ók önnur bifreiðin austur Miklu-
braut og beygði norður Lönguhlið
en hin bifreiðin ók vestur Miklu-
braul. Ágreiningur er um stöðu
umferðarljósanna þegar atburð-
urinn gerðist. Eru það tilmæli
slysarannsóknadeildar lögregl-
unnar að vitni gefi sig fram, en
vitað er um sendibilstjóra, sem
var í bil sínum á Lönguhlíð norð-
an Miklubrautar og leigubíl-
stjóra, sem var einnig á Löngu-
hlið, sunnan Miklubrautar.
KRISTINN Haraldsson á Isafirði
hefur hannað skelfiskflokkunar-
vél, sem um helgina verður sett
um borð í bátinn Bryndísi frá
Isafirði, að sögn Vestfirzka frétta-
blaðsins.
Kristinn hefur áður búið til
rækjuflokkunarvél, sem víða er
notuð, en pantanir á skelfiskvél-
um hafa komið frá stöðum við
Húnaflóa og Breiðafjörð og er það
vélsmiðjan Þór á ísafirði, sem
mun annast framleiðsluna.
Skelfiskflokkunarvélin vinnur
eins og sigti og heldur eftir
hörpudiski, sem er 7 sm. og stærri
og ætti hún að spara mörg hand-
tökin, sem nú fara í handflokkun
á aflanum.
Maður miss-
ir tvo fingur
VINNUSLYS varð í Ofnasmiðj-
unni við Flatahraun i Hafnarfirði
á þriðjudaginn. Maður lenti með
vinstri höndina í klippu og tók af
baugfingur og löngutöng. Mann-
inum liður vel eftir atvikum.
Fiskverkun-
araðstaða bætt
1 Bakkafirði
Á VEGUM Framkvæmda-
stofnunar rfkisins hefur verið
gerð þróunaráætlun fyrir Bakka-
fjörð eða Skeggjastaðahrepp. Er
þetta liður I áætlunargerð sem
fram fer innan stofnunarinnar
fyrir svonefndar jaðarbyggðir,
svo sem Inn-djúp, Norður-
Strandir, Hólsfjall og Efrafjall.
Að sögn Tómasar Arnasonar,
forstjóra Framkvæmdastofnunar-
innar, er þarna um litið og fá-
mennt byggðarlag að ræða og
kvað hann áætlunargerðina smáa
i sniðum, en hún beindist fyrst og
fremst að þvi að koma þarna upp
verkunaraðstöðu fyrir hrognkelsi
og fisk. Væri það ekki viðamikið
fyrirtæki en nauðsynlegt. Tómas
sagði að auk þess væri til svoköll-
uð Skeggjastaðahreppsáætlun,
sem ætlunin væri að taka mið af á
löngum tíma en markmið hennar
væri að koma í veg fyrir eyðingu
byggðar þarna á ströndinni.
Svona
„DERBY“ frystikistur, 5 stærðir, 2 verðflokkar, frystiskápar, 2 stærðir,
„DERBY“ frystitækin hafa vandað yfirbragð, með haganlega lausn á hverju smáatriði eins og:
* „Hermetisk" frystiþjappa sem tryggir hámarks frystiafköst.
* Ytrabyrði úr stáli, rafzinkhúðuð til ryðvarnar, búið hitarörum gegn daggarmyndun.
* Innrabyrði úr hömruðu áli, en kostir þess eru ótvíræðir, ál er mjög góður varmaleiðari með
afar lágan eðlisvarma, þetta flýtir djúpfrystingunni. Jafnframt er ál framúrskarandi auðþrifið.
* Lokið lokast óaðfinnanlega þétt, búið jafnvægisgormum sem létta það við opnun, læsingu og
ljósi. Ennfremur er yfirborð þess klætt plasthúð til prýðis og til varnar gegn rispum.
* Sérstakt djúpfrystihólf er í „DERBY", þannig má djúpfrysta ný matvæli án þess að kosta til
frekari kælingu á matvælum sem þegar liggja frosin fyrir í kistunni.
Petta hraðar djúpfrystingunni og sparar rafmagn.
* Einangrunin er hið viðurkerinda „Pelyuretan" frauðplast.
* í „DERBY" frystikistum er botninn auðvitað frystiflötur líka.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670