Morgunblaðið - 12.05.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAl 1977
5
Atriði frá skemmtuninni f
Háskðlabfói sfðastliðið ár.
Listahátíð í léttum
dúr og góðum tilgangi
„LISTAHÁTÍÐ í léttum dúr‘‘
heitir skemmtun, sem fer fram
í Háskólabíói föstudagskvöid
13. maf kl. 23.30. Það eru Sin-
fóníuhijómsveit íslands og Fél-
ag íslenzkra leikara, sem gang-
ast fyrir fjölbreyttri skemmtun
til styrktar slysasjóði, en sá
sjóður er í vörzlu Slysavarna-
félags Islands, og aflar hann
tekna með þessari árlegu
skemmtun, en auk þess hafa
sjóðnum borizt áheit og gjafir.
Á skemmtuninni annaðkvöld,
sem er hin fimmta sinnar teg-
undar, koma fram margir leik-
arar, söngvarar, Sinfóníuhljóm-
sveitin, Karlakór Reykjavíkur
og íslenzki dansflokkurinn.
Hér hafa því margir lagt hönd á
plóginn til styrktar góðu mál-
efni. Allir listamennirnir og að-
standendur skemmtunarinnar
láta vinnu sína í té endurgjalds-
laust og rennur allur ágóði í
slysasjóð, en hann var stofnað-
ur árið 1973 og hefur það mark-
mið að rétta hjálparhönd því
fólki, sem orðið hefur fyrir
slysi eða á í erfiðleikum vegna
slysa, sem aðstandendur þeirra
eða fyrirvinna hefur lent í.
Einkum eru hafðir í huga
þeir, sem einhverra hluta
vegna njóta ekki trygginga hjá
tryggingastofnunum.
Að því er skemmtinefnd skip-
uð fulltrúum Félags íslenzkra
leikara, Sinfóniuhljómsveitar-
innar og Slysavarnafélagsins
segir, hafa skemmtanir undan-
farinna ára tekizt mjög vel og
aflað sjóðnum þó nokkurs fjár
en þegar hefur verið veitt úr
honum nokkrum sinnum.
Tilurð sjóðs þessa var sú, að á
liðnum vetri 1973, eftir sjóslys,
skipskaða, eldgos og slysfarir á
íslandi, mæltu fimm leikarar
sér mót ásamt fimm hljóðfæra-
leikurum frá Sinfóníunni og
stofnuðu Slysasjóð FÍL og
Starfsmannafélags Sinfóniu-
hljómsveitarinnar og var stofn-
sjóðnum, að upphæð rúmlega
tvö hundruð þúsund krónum,
komið í vörzlu Slysavarnafélags
íslands.
Skemmtinefnd skipa Herdis
Þorvaldsdóttir, Randver Þor-
láksson, Jón Hjartarson, Ing-
unn Jendóttir, Jóhanna Norð-
fjörð, Hannes Hafstein, Haf-
steinn Guðmundsson, Katrin
Árnadóttir, Guðbjörg Þorbjarn-
ardóttir og Lárus Sveinsson.
i dag munu nokkrir þessara
selja aðgöngumiða að skemmt-
uninni annað kvöld, og verða
þau klædd í grimubúningum á
Bernhöftstorfunni. Aðgöngu-
miðar verða einnig til sölu í
Bókabúð Lárusar Blöndals og
hjá Sigfúsi Eymundssyni, en
verðið er eitt þúsund krónur.
Meðal atriða á skemmtuninni
annað kvöld má nefna, að flutt
verða atriði og söngvar úr
Saumastofunni eftir Kjartan
Ragnarsson, Sigurður Björns-
son og kona hans, Sieglinde
Kahman, munu syngja. Árni
Tryggvason og Jón Sigur-
björnsson verða með forvitni-
legt efni, Karlakór Reykjavíkur
mun syngja, Ómar Ragnarsson
mun skemmta og margt fleira.
Sigalda:
Verkfall Málmiðnadarmanna
myndi tefja gangsetningu
á annarri vélasamstæðu
„EF AF verkfallinu verður, þá
mun það auðvitað verða til tafar,
en sem stendur erum við ekki
þannig staddir að verkfali ylli
neyðarástandi," sagði Egill Skúli
Ingibertsson, verkfræðingur
Landsvirkjunar við Sigöldu, er
Mbl. ræddi við hann í gær, en
sveinafélag málmiðnaðarmanna f
Rangárvallasýslu hefur boðað
verkfall á Sigöldusvæðinu frá og
með næsta mánudegi.
Skem m darvargurinn
fylgjandi nýrri
viðreisnarstjórn
Á MÁNUDAGINN voru unnin
skemmdarverk á bláum Volvobfl,
árgerð 1976, þar sem hann stóð
annaðhvort við grunn nýja Seðla-
Nú vinna um 30 málmiðnað-
armenn við Sigöldu við vélar tvö
og þrjú, en verkfall getur engin
áhrif haft á vél eitt, sem komin er
í rekstur.
Sagði Egill, að reiknað
hefði verið með, að með fullri
vinnu yrði vél tvö tilbúin til próf-
ana i október og til framleiðslu 1.
desember, og myndu tafir vegna
verkfalla seinka þessu, sem þeim
næmi.
bankahússins eða við Hótel Sögu.
Skemmdarvargurinn virðist vera
stuðningsmaður nýrrar við-
reisnarstjórnar, þvf hann risti á
farangurslok bifreiðarinnar X-A
og X-D. Eru það tilmæli rann-
sóknarlögreglunnar, að þeir, sem
upplýsingar geta gefið um atburð
þennan, hafi strax samband við
lögregluna.
ALLTAF
eykst úrvalið af nýjum sumarvörum
Takið eftir:
Kúreka-
stígvélin
kosta hjá okkur
aöeins kr.
Athugið: OPIÐ TIL KL. 6 Á
MORGUN, LOKAÐ LAUGARDAG.
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi frá skiptiborói 281S5