Morgunblaðið - 12.05.1977, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAl 1977
13
LANDSFUNDI Sjálfstæðisflokksins lauk sem kunnugt er sl.
mánudag, en hann var haldinn að Hótel Sögu í Reykjavík. Á
lokadegi fundarins lögðu Morgunblaðsmenn leið sína í Súlnasal
Hótel Sögu og tóku tali nokkra fulltrúa utan af landi. Voru þeir
inntir frótta úr byggðarlagi sínu og spurðir um hvaða mála-
flokkar Landsfundarins væru þeim eftirminnilegastir. í flestum
tilvikum voru fulltrúarnir gagnrýnir á ríkisrekstur, og töldu
m.a. aukningu hans undanfarin ár hafa verið sveitarfélögunum
í óhag. Einnig voru þeir gagnrýnir á þá opinberu umræðu sem
verið hefur um byggðamál, og töldu m.a. eflingu dreifbýlis ekki
vera á móti hagsmunum þéttbýlisins. Fara svör fulltrúanna hér
á eftir.
Sigrún Sigfúsdóttir, form.
Sjálfstæðisfélagsins Ingóifs,
Hveragerði: “Ég er mjög ánægð
með Landsfundinn að þessu
sinni. Það er mjög til bóta að
fólk hittist svona, og málin hafa
verið rædd hér af hreinskilni.
Þá finnst mér nefndarstörfin
hafa verið sérstaklega ánægju-
leg og fróðleg, en versta var að
geta ekki starfað i fleiri nefnd-
um en raun varð á. Ég starfaði
mest í nefnd um æskulýðsmál.
Þar var helzt rætt um fíkniefni
og áfengismál. Æskulýðsmálin
voru þó rædd á breiðum grund-
velli og vandamálin tengd
þeim.
Ur Hveragerði er það helzt að
frétta að mál málanna þar er
fyrirhuguð malbikun mikils
hluta gatnakerfisins nú þegar í
sumar. Hafa margar götur verið
undirbúnar fyrir lagningu
varanlegs slitlags, og loforð er
fyrir fjárveitingu, þannig að
verkið hefst að líkum í sumar.
Þetta er og hefur verið Hver-
gerðingum mikið hagsmuna-
mál. Um 90% ferðamanna sem
til landsins koma staldra við í
Hveragerði og því er mikilvægt
að geta tekið sómasamlega á
móti þeim.
Varðandi æskulýðsmál
Hvergerðinga, þá vantar mjög á
Malbikun
gatna
í Hvera-
gerði
að skilyrði fyrir virkri starf-
semi séu fyrir hendi, og hefur
þessum málaflokki verið lítið
sinnt. íþróttahús er að vísu ný-
komið, en fjölbreytni vantar þó
i allt starfið og koma verður til
móts við þá sem ekki endilega
hafa áhuga á fþróttum.
Okkur vantar meiri og fjöl-
breyttari iðnað, léttan iðnað, og
fyrirtæki í bæinn. Fólk hefur
þurft að sækja atvinnu í önnur
byggðarlög, og er það ekki við-
unandi þegar næg orka og
mannafli eru hér til staðar. í
Hveragerði eru mjög miklir
möguleikar á atvinnuuppbygg-
ingu með notkun ylsins sem þar
er og kemur ómældur úr jörðu.
Þá eru miklir möguleikar á
sviði heilsuræktar og elliheim-
ila, og alltaf verið að auka þá
starfsemi sem . þar er fyrir
hendi á þessu sviði.
Það sem Hvergerðinga vantar
helzt um þessar mundir er að fá
sérstaka lögreglu. Hingað til
hefur okkur verið sinnt af lög-
reglu Árnessýslu, en okkur
finnst við þurfa sérstaka Iög-
gæzlu hér á staðnum. Höfum
við komið upp húsnæði fyrir
lögreglu í Hveragerði, en um-
leitan okkar hingað til hefur
ekki borið árangur, þótt undir-
tektir hafi gjarnan verið
góðar.“
Byggðajafn-
vægi spor í
rétta átt
fundi að fylgjast með umræðum um
atvinnumál og byggðajafnvægi, sem
skiptir okkur úti á landsbyggðinni að
sjálfsögðu miklu máli og finnst mér
það spor í rétta átt. Vona ég að hin
svokallaða byggðastefna haldi áfram
velli, svo að dreifbýlið verði i sem
nánustu jafnvægi við þéttbýlið, bæði
atvinnulega, samgöngulega og
menningarlega."
Páll Pétursson, Egilsstöðum
,,Það er sitthvað á döfinni i
sambandi við framkvæmdir á
Egilsstöðum núna. Við erum að
byggja menntaskóla og von-
umst til að fyrsta áfanga verði
lokið 1979. Þá eru að hefjast
framkvæmdir við byggingu
fjölbýlishúss og verið er að
byggja við Valaskjálf, sem
gengur heldur erfiðlegar, þar
sem enginn vill leggja fé í þær
framkvæmdir.
Ákveðið hefur verið að leggja
þrjátiu milljónir í gatnagerð og
eiga þær framkvæmdir að
hefjast i sumar.
Nýr apótekari er að flytjast á
staðinn, en hingað til hefur
lyfjaafgreiðsla verið í höndum
lækna. Kaupfélagið er að
byggja nýja mjólkurmiðstöð, en
þá kemur til rafmagnsskortur.
Við erum iðulega í hönk með
rafmagn á veturna. Sennilega
kemst þessi mjólkurmiðstöð
ekki í gagnið fyrr en gengið
verður frá byggðaiínunni frá
Kröflu. En á hana hefur
einmitt verið lögð áherzla á hér
á fundinum.
Á þessum landsfundi hefur
verið ríkjandi mikill samhugur
manna á meðal, um að minnka
30 milljón-
ir króna í
gatnagerð
rfkisafskipti og efla í stað þess
sveitarfélög og einstaklings-
framtakið.
Ég er bjartsýnn á að okkur
sjálfstæðismönnum á Austur-
landi muni eflast fylgi eftir
þennan fund.“
Fimmta flóttamanna-
platan frá Alþjóða
flóttamannastofnuninm
Þau hafa unnið að undirbúningi dreifingar Golden Soul plötunn-
ar hérlendis. Frá vinstri eru: Björn Tryggvason, Mikael
Fransson, Auður Einarsdóttir og Ólafur Haraldsson (Ljóssm.
Mbl. Ól.K.M.)
Flóttamannahjálp
Sameinuðu Þjóðanna hefur ný-
verið sent frá sér 5. svonefnda
flóttamannaplötu sfna, en sem
kunnugt er rennur andvirði
sölu þessara platna til hjálpar
flóttamönnum l heiminum,
sem aldrei hafa verið fleiri en
einmitt um þessar mundir.
Þessi plata heitir GOLDEN
SOUL, en áður hefur stofnunin
sent frá sér plöturnar All Star
Festival, International Piano
Festival, World Star Festival
og Top Star Festival, en sú
siðastnefnda seldist I flestum
eintökum eða 3975 alls.
Á plötunni Golden Soul hafa
ýmsir fremstu listamenn „soul-
hljómlistarinnar" gefið krafta
sína. Eru þeir íslendingum að
góðu kunnir og mörg laganna á
plötunni hafa náð vinsældum
hérlendis og erlendis. Á
blm.fundi með „Golden Soul“
nefnd Rauða kross íslands, sem
er umboðsaðili Alþjóða Flótta-
mannastofnunarinnar hér á
landi, en nefndina skipa þeir
Björn Tryggvason formaður
RKÍ, Mikael Fransson og
Ólafur Haraldsson, lét nefndin
í ljós að hún treysti á lands-
menn að bregðast vel við og
leggja flóttamannastarfinu lið
með því að kaupa piötuna, því
platan væri frábær og ekki síðri
en fyrri plötur í þessum flokki.
Verður platan til sölu frá og
með mánudeginum 9. maí, en
sem kunnugt er er Alþjóða-
dagur Rauða krossins daginn
áður, þ.e. sunndaginn 8. maí.
Þann dag fæddist stofnandi
Rauða krossins, Henri Dunant,
fyrir 149 árum. Platan kostar
krónur 2600, en um dreifingu
hérlendis sér Fálkinn hf„ en að
sögn forráðamanna Fálkans
verður plötunni dreift i allar
hljómplötuverzlanir.
Á blm.fundinum kom fram
að sala einnar plötu veitir
flóttamanni í Thailandi einnar
viku matarskammt, og sala á
sjötiu plötum greiðir eitt tonn
af sementi til byggingar húsa,
skóla og sjúkrahúsa fyrir flótta-
menn frá Indókína.
Rækjuleitín ber ekki
nógugóðan árangur
RÆKJULEIT rannsóknarskips-
ins Árna Friðrikssonar úti fyrir
Norður- og Austurlandi hefur
ekki gengið eins vel og menn áttu
von á I upphafi, að þvf er Ingvar
Hallgrfmsson fiskifræðingur
tjáði Morgunblaðinu
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Ingvar var Árni Friðrikdsson á
Sporðagrunni og höfðu leið-
angursmenn litið orðið varir við
rækju þar. Skipið var þá búið að
fylgja djúpkantinum undan
Norðurlandi frá öxarfirði, og
hvergi hafði fundist mikil rækja.
Sagði Ingvar að þeir hefðu einnig
athugað rækjumióin við Grimsey
en þar hefði verið litið að finna,
og rækjan minni en áður. Arnar-
borg frá Ðalvik er nú að rækju-
veiðum á Kolbeinseyjarsvæðinu
og að þvi er Ingvar sagði, þá er
rækjan sem báturinn fær mun
smærri en verið hefur 'siðustu ár
hvernig sem á því stendur, og
sömu sögu væri að segja af öðrum
miðum undan Norðurlandi, dýrin
væru smærri en síðustu ár.
I upphafi rannsóknarleið-
angursins leitaði Árni Friðriks-
son rækju undan Austfjörðum, án
þess að verulegur árangur yrði.
Það var helzt vart við rækju i
Berufjarðarál og Seyðisfjarðar-
dýpi, en magnið á þessum slóðum
var það litið að vart er talið borga
sig að stunda veiðar á þessum
slóðum. Þá sagði Ingvar að þeir
hefðu leitað rækju á Gletting.a-
nesflaki, en þar telja togaraskip-
stjórar sig oft hafa fundið mikið
af rækju. Þarna fékk Árni
Friðriksson 60—70 kíló á klst,
sem er mjög svipaó og fékkst í
Seyðisfjarðardýpi og Berufjarðar-
ál.
4229 atvinnu-
leysisdagar
í apríl sl.
ATVINNULEYSISDAGAR í
apríl urðu 4229 en voru 7395 i
sama mánuði i fyrra.
Langflestir atvinnuleysisdagar
voru skráðir i Reykjavik 1186, og
næstflestir á Akureyri, 332. Engir
atvinnuleysisdagar voru skráðir á
Bolungarvík, Isafirði, Seyðisfirði,
Eskifirði, Vestmannaeyjum,
Grindavik og Garðakaupstað. Af
kauptúnum meó 1000 ibúa og
fleiri eru skráðir 216 atvinnuleys-
isdagar á Selfossi, 12 i Hveragerði
og 7 i Þorlákshöfn.
Af minni stöðum eru flestir
atvinnuleysisdagar skráðir á
Blönduósi 194, á Bakkagerði 173
og fjórum stöðum öðrum eru
skráðir fleiri en 100 atvinnuleys-
isdagar í mánuðinum.
Atvinnulausir á skrá í mánaðar-
lok voru 260 á móti 351 i apríllok i
fyrra. ... ...... ' I