Morgunblaðið - 12.05.1977, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 12.05.1977, Qupperneq 15
MQRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAl 1977 15 Systir María Albína nírœð tæki. Þegar verið er að meta arð- semi fyrirtækis eins og járn- blendiverksmiðjunnar, þá verða menn að meta horfur, bæði styðj- ast við reynslu fyrir allmörg ár og við álit hinna kunnugustu og sér- fróðustu manna í þessari grein. Það þýðir ekki að taka verðið á kisiljárni eins og það mun hafa verið í mestu lægð i einhverjum tilteknum mánuði á árinu 1976 og segja út frá því, að hér hljóti að vera um stórfelldan hallarekstur að ræða. Það vili þannig til, að ýmsir sérfróðir aðilar hafa fjallað um þetta mál. ÁLIT NORRÆNA FJÁRFESTINGARBANKANS Á AFKOMU VERKSMIÐJUNNAR Kannski er rétt að vitna fyrst í hinn Norræna fjárfestingar- banka. Norræni fjárfestingar- bankinn hefur veitt lán um 200 millj. n.kr. til járnblendiverk- smiðjunnar án ábyrgðar íslenska ríkisins og án ábyrgðar hins aðil- ans, Elkem-Spigerverket. Bank- inn lánar fyrirtækinu þetta með veði í eignum þess. Fjárfestingar- bankinn þarf að afla sér fjár á alþjóðlegum markaði, hann þarf að tryggja sig, tryggja að staðið verði í skilum um vexti og afborg- anir. Þegar haft er i huga, að þetta er fyrsta meiri háttar lánið, sem þessi banki lánar út og hann vandar þvi alveg sérstaklega allan undirbúning að þvi láni, hvaða manni dettur það i hug i alvöru, að þessi nýi banki hefði farið að lána i fyrirsjáanlegt fjárglæfra- fyrirtæki, sem óhugsandi væri að gæti borið sig á næstu árum? Fjárfestingarbankinn leitaði auð- vitað upplýsinga hjá hinum fær- ustu sérfræðingum og mat hans var það, eftir að hafa kynnt sér þau álit, að hér væri um álitlegt fyrirtæki að ræða. Þjóðhagsstofnun hefur einnig komist að þeirri niðurstöðu. Hér var að vísu gert ráð fyrir nokkuð lægri arðsemi heldur en fyrir tveimur árum, en það muni stafa af því að kostnaðar- og reksturs- áætlanir séu vandaðri og varlegri en áður. Þjóðhagsstofnun metur það, hverjar séu liklegustu for- sendur og kemst að þeirri niður- stöðu, að arðgjöf fyrirtækisins sér varlega áætluð 9.8%. Það er tæp- ast heiðarlegur málflutningur að vera hvað eftir annað að nefna Þjóðhagsstofnun i þessu sam- bandi á þann veg, að kenna við hana útreikninga, sem starfs- menn Þjóðhagsstofnunar gera eftir beiðni Alþýðubandalagsins á forsendum, sem það gefur upp. Það er vitað, að hér er um áhættusamt fyrirtæki að ræða eins og flest það, sem við íslend- ingar ráðumst í til sjós og lands. Þetta er allt saman meira og minna áhættusamt. Við verðum að meta áhættuna, við verðurn að meta horfurnar. Eftir að hafa kannað það að bestu manna yfir- sýn og reyndustu manna i þessum efnum, þá er það mat okkar, að likur séu til þess að þetta verði .arðvænlegt 'fyrirtæki. Áður en viðræður hófust i aprilmánuði í fyrra við Elkem-Spigerverket, gaf norska rikisstjórnin þessu fyrir- tæki meðmæli sem eitt af best reknu fyrirtækjum í Noregi, fjár- hagslega traust og með mikla reynslu á þessu sviði. Það er vissulega vísbending um að þetta sé sæmilega álitlegur atvinnu- rekstur, að svo traust fyrirtæki með slíka reynslu vill i þetta ráð- ast. Vitanlega er það ljóst, að ekkert er hægt að fullyrða um afkomu þessa fyrirtækis. En eftir að hafa kynnt sér álit hinna fróðustu aðila og ég nefni þar sérstakiega það álit, sem fjárfestingarbank- inn norræni hefur á þessu máli, þá teljum við að likur séu til þess að þetta verði arðsamt fyrirtæki. MENGUNARVARNIR FRÁ UPPHAFI Að lokum víl ég nefna mengun- armálin. Það er ekkert auðveld- ara heldur en æsa fólk upp út af mengunarhættu og skapa ógn og skelfingu út af því, að hér sé verið að stofna til verksmíðju, sem muni spúa eitri yfir mannfólkið, eyðileggja allt líf í Hvalfirði og beggja vegna Ilvalfjarðar. Þegar hv. þm. sem þahnig íála ræðá' jöfnum höndum um mengun frá álverinu i Straumsvík og gefa í skyn, að viðbúið sé að það sama muni gerast með Grundartanga- verksmiðjuna, þá vita þessir hv. þm. betur. Þeir vita það ósköp vel, að þegar álverið var byggt, þá var ekki komið upp mengunarvörn- um eða hreinsitækjum i þeirri verksmiðju. Þeir vita það vel, að það hefur verið lögð á það mikil áhersla nú hin siðustu ár að fá sett þar upp hreinsitæki og nú er ákveðið að þau verði sett upp, þau fullkomnustu sem völ er á. Það tekur tíma. En sem sagt, þegar verksmiðjan var byggð, voru eng- in hreinsitæki. Verksmiðjan á Grundartanga verður hins vegar frá upphafi búin þeim fullkomn- ustu hreinsitækjum, sem völ er á í þessum iðnaði. Það er vitað, að Elkem Spigerverket, sem verður með okkur í byggingu þessarar verksmiðju, hefur lagt i það geysi- lega vinnu, tækni og fjármagn á siðustu árum að finna upp og framleiða í slikum verksmiðjum með góðum árangri. Það er vitað Iika, að með starfsleyfinu til verk- smiðjunnar eru settar jafnstrang- ar eða strangari reglur heldur en þekkjast i okkar nágrannalönd- um. Á sama tíma leyfa þessir hæstvirtu þingmenn sér að blekkja landslýðinn, safna undir- skriftum og kalla fram samþykkt- ir á þeim röngu forsendum, að hér sé i rauninni verið að fara af stað á sama hátt eins og með ál- verið i Straumsvik, þar sem engin hreinsitæki voru, í stað þess að hér verða frá upphafi sett full- komnustu hreinsitæki. Þetta er ekki sæmilegur, ekki frambæri- legur málflutningur. Til þess að sem best væri hægt með þessu að fylgjast, þá var sett inn ákvæði um það i lögin um byggingu járnblendiverksmiðj- unnar fyrir tveimur árum, að líf- fræðistofnun háskólans og Náttúruverndarráð skyldu hafa með höndum rannsóknir á lifríki Hvalfjarðar til þess fyrst og fremst að fá grundvöll fyrir því að fylgjast nákvæmlega með því, ef einhverjar skaðlegar breyting- ar kynnu að verða þar af völdum verksmiðjunnar. Að þessu hefur verið unnið eins og ég hef skýrt hér frá áður EKKI ORÐ UM AÐ DRAGA ÚR MENGUN FRÁ OKKAR EIGIN VERKSMIÐJUM. Það er létt verk og löðurmann- legt að æsa fólk upp með blekk- ingum um heilsuspjöll og eitur, sem eigi að fara að spúa yfir það. Ef menn reyna að líta á þessi mál með rósemi og skynsemi, þá ætt- um við að vera sammála um það, að allir íslendingar hafa áhuga á því að auka mengunarvarnir og holiustuhætti í hvers konar at- vinnurekstri hér á landi. Hér er ákaflega mikið ógert hjá okkur íslendingum í okkar eigin iðnaði, hvort sem það er á sviði landbún- aðar, sjávarútvegs eða almenns iðnaðar. Það er talið, að ef þær reglur, sem nú eru settar í starfs- leyfi járnblendiverksmiðjunnar, ættu að gilda um allar verksmiðj- ur á íslandi, þá yrði þegar I stað að loka sementsverksmiðjunni, áburðarverksmiðjunni og fjölda verksmiðja i eigu tslendinga. Við verðurn auðvitað að vinna að því að koma á fullkomnum rneng- unarvörnum og hollustuháttum í okkar verksmiðjum. En það sýnir yfirdrepsskap og hræsni þessara manna, sem mest fjasa hér með fölskum upplýsingum um meng- unarhættu af Grundartangaverk-- smiðjunni, að aldrei heyrist orð frá þeim um það að neitt þurfi í því að &era að draga úr mengun frá verksmiðjum okkar Islend- inga. Aldrei hef ég heyrt orð frá þess- um mönnum, sem mest hafa tekið upp í sig hér, um að það þurfi t.d. að draga úr þeirri mengun, sem kannske er nú mest hér, en það er frá bifreiðunum. Vitanlega eigum við að kosta kapps um það að reyna aö draga úr mengun á öll- um sviðum og við undirbúning járnblendiverksmiðjunnar hefur verið lögð á það sérstök áhersla að ganga þannig frá málum, að þar yrðu hinar fullkomnustu meng- unarvarnir og hreinsunartæki, sem n'ú éi1 völ á. Allir Hafnfirðingar og þótt viðar væri leitað kannast við nafn systur Albínu, svo nátengt er það hinu fórnfúsa starfi, sem St. Jósefssystur hafa unnið við St. Jósefsspítalann í Hafnarfirði frá því að hann tók til starfa árið 1926. Systir Albína er fædd í Vestur- Þýzkalandi 12/5 1887. Gengur hún ung i reglu St. Jósefssystra og flyzt til Danmerkur, þar sem hún er búin undir lifsstarf sitt, að líkna og hjálpa þeim, sem sjúkir eru. Árið 1914 kemur hún svo til íslands og tekur til starfa á Landakotsspítala í Reykjavík. Þegar spítalinn okkar hér í Hafnarfirði hefur starfað í nokkra mánuði, nánar tiltekið haustið 1926, að systir Alvína er lánuð hingað í 8 daga, m.a. til að koma reglu á og hjálpa til við að koma á fót skurðstofu sjúkrahúss- ins. Þessir 8 dagar urðu lengri en til var ætlast, því að þeir standa enn. Hér hefur hún því dvalið stanzlaust í rúma hálfa öld. Hér hefur langur starfsdagur verið unnin af sérstakri trúmennsku og kostgæfni frá upphafi. Strax í upphafi tók systir Albína að sér störf og umsjón með skurðstofu sjúkrahússins. Sá hún um allan undirbúning aðgerða, alla sótt- hreinsun, auk þess sem hún sá um að svæfa alla sjúklinga, sem að- gerðir fóru fram á, allt til ársins 1954. Var sérstaklega tiltekið af læknum sjúkrahússins, hve frá- bær hún var i starfi í sambandi við svæfingar. Tæknin við svæf- ingar var þá öðru visi en nú er, og var þá fyrst og fremst undir ár- vekni svæfingarmannsins komið, hvernig svæfing tókst til og þar með aðgerðin, em framkvæmd var. Árvökul augu systur Albínu vöktu yfir sjúklingunum i þessu starfi og kom aldrei óhapp fyrir í sambandi við svæfingar hjá henni öll þau ár, sem hún vann við þær. Auk alls þessa, sem að framan getur, sá systir Albina fyrstu árin, sem hún starfaði hér á sjúkrahús- inu, um hjúkrun á 2 stofum í sjúkrahúsinu. Faðir minn og systir Aibina voru nánir sam- starfsmenn hér á sjúkrahúsinu í áratugi. Mat hann það samstarf mikils, enda féll þar aldrei skuggi á allan tímann, sem það stóð. Oft var vinnudagur systur Albínu langur, en aldrei var kvartað, alltaf tilbúin, hvort sem var á nóttu eða degi, þegar hjálp hennar þurfti við. Öll þjóðin stendur í mikilli þakkarskuld við hið fórnfúsa og mikla starf, sem St. Jósefssystur hafa unnið hér á landi í sambandi við liknarstörf. í dag þökkum við sérstaklega systur Albínu þann mikla skerf, sem hún hefur lagt af mörkum í starfi þessu. Við, allt starfsfólk spítalans, sendum henni okkar beztu árnaðaróskir og vonum, að við fáum að njóta nærveru hennar um ókomin ár. Jónas Bjarnason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.